Fréttablaðið


Fréttablaðið - 27.06.2006, Qupperneq 50

Fréttablaðið - 27.06.2006, Qupperneq 50
22 27. júní 2006 ÞRIÐJUDAGUR Olíufélagið ehf. (ESSO) græddi rúmlega 883 milljónir króna í fyrra og jókst hagnaður um 31,4 prósent á milli ára. Rekstrar- hagnaður fyrir afskriftir (EBIT- DA) var rúmir 1,8 milljarðar króna og stóð nánast í stað. Heildareignir samstæðunnar námu 11,6 milljörðum króna í árslok og eigið fé var um 3,7 milljarðar, þannig að eiginfjár- hlutfall var rétt undir 32 prósent- um. Í árslok átti Ker yfir níutíu prósent hlutafjár í Olíufélaginu en Olíufélagið skipti um eigendur snemma á árinu þegar fjárfestar undir forystu Benedikts og Ein- ars Sveinssona keyptu allt hluta- féð. Nam kaupverðið um sautján til átján milljörðum króna eftir því sem næst verður komist. Félagið hefur nú gefið út skuldabréf fyrir 3,5 milljarða króna að nafnvirði sem bera 6,5 prósent raunvexti. Upphæðin verður notuð til að endurfjár- magna eldri skuldir félagsins. Glitnir er umsjónaraðili útboðs- ins. - eþa Íslensk erfðagreining er langt komin með að þróa lyf við astma upp úr lyfi sem upphaflega var ætlað að fást við Parkinson-sjúkdóm. Í gær voru kynntar niður- stöður rannsóknar sem fram fór hér á landi meðal 160 sjúklinga. Tilraunalyfið CEP-1347 hefur jákvæð áhrif á ýmsa þætti lungna- starfsemi og á bólguþátt sem teng- ist astma án alvarlegra aukaverk- ana. Þetta kemur fram í kynningu Íslenskrar erfðagreiningar á helstu niðurstöðum úr fyrstu próf- unum fyrirtækisins á lyfinu, en upplýst var um niðurstöðurnar í gær. Lyfið var upphaflega þróað af alþjóðlega lyfjafyrirtækinu Cephalon við Parkinson-sjúkdómi og tóku yfir þúsund manns þátt í prófunum Cephalon á lyfinu við þeim sjúkdómi. „Niðurstöður erfðarannsókna Íslenskrar erfða- greiningar hafa hins vegar sýnt að bólguferlið sem lyfið hefur áhrif á gegnir mikilvægu hlutverki í astma. Því hófu fyrirtækin sam- starf um frekari þróun á lyfinu við astma,“ segir í tilkynningu Íslenskrar erfðagreiningar, en prófanir meðal íslenskra astma- sjúklinga hófust í maí í fyrra. Þar var um að ræða tvíblinda rannsókn með þátttöku 160 sjúk- linga, en þeim var skipt í fjóra jafnstóra hópa þar sem þrír fengu misstóra skammta af lyfinu og sá fjórði lyfleysu til viðmiðunar. Hvorki þátttakendur né stjórnend- ur rannsóknanna vissu fyrirfram hvaða meðferðarflokki hver þátt- takandi tilheyrði. Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir útlit fyrir að erfðafræðirannsókn- ir fyrirtækisins á astma hafi leitt það að mikilvægu lífefnaferli í sjúkdómnum og að lyfið, sem upp- haflega var þróað við allt öðrum sjúkdómi, hafi þau áhrif sem von- ast hafi verið til á það ferli. „Afskaplega spennandi er að vera komin þetta langt í að þróa lyf við jafn algengum sjúkdómi og astma. Við kynntum niðurstöðurnar fyrir samstarfsaðila okkar í lok síðustu viku og við hlökkum til að ræða við þá um hvernig við getum notað þessar jákvæðu niðurstöður við frekari prófanir,“ segir hann og bætir við að á síðustu árum hafi fyrirtækið náð góðu forskoti í erfðarannsóknum á algengum sjúkdómum. „Markmiðið hefur verið að nota niðurstöður þeirra til að þróa ný lyf. Sú vinna hefur gengið afskaplega vel undanfarið og ég held að fá fyrirtæki séu að fást við jafn spennandi verkefni í lyfjaþróun. Mjög ánægjulegt er að geta núna í annað sinn kynnt jákvæðar niðurstöður úr prófun- um á sjúklingum á lyfi sem við erum að þróa á grundvelli erfða- rannsókna.“ olikr@frettabladid.is KÁRI STEFÁNSSON Forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar segir að jákvæðar niðurstöður prófana sem hér fóru fram á tilraunalyfinu CEP-1347 hafi verið kynntar fyrir samstarfsaðila fyrirtækisins í lok síðustu viku og við taki frekari prófanir. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL Hlakkar til að vinna að frekari prófunum á lyfinu Danska fasteignafélagið Keops, sem er að stórum hluta í eigu Baugs, hefur skrifað undir sam- komulag um kaup á 37 skrifstofu- byggingum í Finnlandi, Noregi og Svíþjóð fyrir 1,5 milljarða danskra króna eða nítján millj- arða króna. Alls eru þetta 151 þúsund fer- metrar að flatarmáli á besta stað miðsvæðis í nokkrum borgum í löndunum þremur. Markmiðið með fjárfesting- unni er að miðla þessum fast- eignum áfram til vel stæðra við- skiptavina Keops og verður því verkefni lokið á yfirstandandi reikningsári. Seljandi er Europ- ean Property og eru kaupin háð fjármögnun. Nordea er stærsti leigjandi að þessum skrifstofum en 68 pró- sent leigutekna koma þaðan. - eþa Keops kaupir 37 skrifstofubyggingar KEOPS KAUPIR 37 SKRIFSTOFUBYGGINGAR Kaupverð nemur nítján milljörðum króna. Bandaríkjadalur hefur verið að styrkjast gagnvart evru og jeni að undanförnu en búist er við að stýrivextir bandaríska seðlabank- ans hækki um fjórðung úr pró- sentustigi, í 5,25 prósent í þessari viku. Það yrði sautjánda vaxta- hækkunin frá því að vaxtahækk- unarferlið hófst á árinu 2004. Sérfræðingar spá því að vextir verði jafnvel hækkaðir enn frek- ar til að draga úr verðbólguþrýst- ingi. Væntingar um hækkun vaxta hafa leitt til lækkunar hlutabréfa- verðs en S&P 500-vísitalan lækk- aði í síðustu viku þriðju vikuna í röð. Vísitalan hefur lækkað um sex prósent frá því að hún náði fimm ára hámarki þann 5. maí. - eþa Dalurinn styrkist OLÍUFÉLAGIÐ JÓK HAGNAÐ SINN Í FYRRA Hagnaður jókst úr 672 milljónum í 883. Olíufélagið græddi 883 milljónir í fyrra MARKAÐSPUNKTAR Verð á áli hefur lækkað um 23 prósent frá því það náði hámarki um miðjan maí. Tonn af áli kostaði 242.000 krón- ur fyrir rúmum mánuði en stendur nú í 186.000 krónum. Greiningardeild Glitnis segir álverð engu að síður hátt miðað við verðþróun undanfarinna ára. Greiðslukortavelta í maí nam 58,3 milljörðum króna og hefur aukist um 12,6 prósent frá fyrri mánuði að raunvirði. Greiningardeild KB banka segir aukninguna mega rekja til vaxtar í innlendri veltu. Útlit er fyrir 0,6 prósenta hækkun vísi- tölu neysluverðs á milli júní og júlí, að sögn greiningardeildar Glitnis. Gangi spáin eftir mun verðbólgan mælast 8,6 prósent sem er fjarri 2,5 prósenta verðbólgumarkmiði Seðlabankans.Umsjón: nánar á visir.is Bjarna í formanninn Kenningasmiðir á spjallsíðunni Málefnin hafa sett fram þá tilgátu að Bjarni Ármannsson, forstjóri Glitnis, verði næsti formaður Framsóknarflokks- ins og muni leiða flokkinn til fyrirheitna lands- ins. Telja þeir að Bjarni hafi verið helgrænn frammari frá því að Finnur Ingólfsson og Þorsteinn Ólafsson gerðu hann að forstjóra FBA árið 1997 og nú liggi beinast við að fara í stjórnmálin eftir að hafa komist klakklaust í gegnum margan slaginn í viðskiptalífinu. Samkvæmt sömu frásögnum mun jafnvel framsóknarblóð hafa runnið í æðum Bjarna er hann starfaði fyrir Vöku á háskólaárunum en hing- að til hafa félagsmenn Vöku verið taldir hallir undir Sjálfstæðisflokk- inn. Sá sem tæki við sprota Bjarna hjá Glitni væri enginn annar en Þórður Már Jóhannesson, fyrrver- andi forstjóri Straums-Burðaráss. Kalt brennivín Það á ekki af Baugsmönnum að ganga þessa dagana en allar hreyfingar á breska hlutabréfamarkaðnum eru túlkaðar sem svo að Baugur komi þar við sögu. Síðast var fyrirtækið bendl- að við Morrison og oft er fullyrt að Baugur hafi augastað á Woolworths- verslunarkeðjunni. Baugur hefur neitað því að hafa átt hlutdeild í miklum viðskiptum sem urðu með bréf í Morrison í þarsíðustu viku. Orðuðu breskir fjölmiðlar það svo að Baugsmenn hefðu kæft orðróminn í fæðingu með því að hella köldu brennivíni yfir hann. KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf] ICEX-15 5.566 +0,04% Fjöldi viðskipta: 241 Velta: 4. milljónir HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis 63,50 +0,79% ... Alfesca 3,91 +6,54%... Atorka 6,20 +2,48% ... Bakkavör 44,50 -0,67% ... Dagsbrún 5,78 +0,00% ... FL Group 17,60 -1,12% ... Flaga 3,80 -0,52% ... Glitnir 17,70 +0,00% ... KB banki 746,00 -0,27% ... Lands- bankinn 21,20 +1,44% ... Marel 70,70 +0,86% ... Mosaic Fashions 16,20 +3,19% ... Straumur-Burðarás 18,70 -1,06% ... Össur 108,00 -1,82% MESTA HÆKKUN Alfesca +6,54% Mosaic +3,19% Atorka +2,48% MESTA LÆKKUN Össur -1,82% Atlantic Petroleum -1,42% Icelandic -1,19% Peningaskápurinn ...
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.