Fréttablaðið - 28.06.2006, Blaðsíða 34
MARKAÐURINN 28. JÚNÍ 2006 MIÐVIKUDAGUR4
F R É T T I R
10,3%
Nafnávöxtun síðustu 3 ár, 10,3% á ári.*
SJÓÐUR 11 – GÓÐIR
ÁVÖXTUNARMÖGULEIKAR
Hentar þeim vel sem vilja fjárfesta
eða spara til langs tíma og eiga
öruggan sparnað fyrir.
Þú getur fjárfest í áskrift eða keypt fyrir
staka upphæð. Farðu á www.glitnir.is
og kláraðu málið.
Sjóður 11 er verðbréfasjóður skv. lögum nr. 30/2003 um verðbréfasjóði
og fjárfestingarsjóði. Rekstrarfélag sjóðsins er Glitnir Sjóðir hf.
Útboðslýsingu og útdrátt úr útboðslýsingum má nálgast í útibúum
Glitnis eða á www.glitnir.is/sjodir.
*Ávöxtun í fortíð er ekki ávísun á ávöxtun í framtíð.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
6
20
8
Eggert Þór Aðalsteinsson
skrifar
Erfiður ársfjórðungur er að baki hjá Mosaic
Fashions, sem rekur tískuverslunarkeðjurnar
Coast, Karen Millen, Oasis og Whistles, en stjórn-
endur félagsins líta bjartsýnir fram á veginn. Eitt
stærsta verkefnið framundan er samruni Mosaic
og Rubicon Retail sem er regnhlíf yfir Shoe Studio
Group, Principles og Warehouse. „Þetta er gríðar-
lega mikilvægur sóknarleikur hjá okkur og gerir
félagið að stórum þátttakanda á þessum markaði,“
segir forstjórinn Derek Lovelock. Mosaic mun
nærri tvöfaldast við samrunann, reka 1.700 eigin
verslanir í 27 löndum og hafa 12.500 starfsmenn á
sínum snærum.
Sameinað félag verður þriðji stærsti smásal-
inn með kvenfatnað á Bretlandseyjum á eftir
Arcadia (TopShop/Dorothy Perkins) og New
Look með sex kvenfatamerki og sjö skómerki.
Áreiðanleikakönnun stendur nú yfir en Lovelock
vonast til þess að eftir tvo til þrjá mánuði gangi
félögin tvö í eina sæng. Í máli Richards Glanville,
fjármálastjóra Mosaic, á kynningarfundi kom
fram að eigendur Rubicon myndu annars vegar fá
peninga og hins vegar hlutabréf en nákvæm skipt-
ing lægi ekki enn fyrir.
Sameinað félag er metið á um 80 milljarða
króna og gerir það að áttunda verðmætasta félag-
inu í Kauphöll Íslands.
Hagnaður Mosaic Fashions var 800 þúsund pund
á fyrsta ársfjórðungi, eða sem svarar 110 milljón-
um króna, og jókst um þriðjung frá fyrra ári. Velta
samstæðunnar nam 98,4 milljónum punda (13,3
milljörðum króna) á sama tíma og jókst um ellefu
prósent á milli ára. Framlegðarhlutfallið lækkaði
úr 12,7 prósentum niður í 10,3 prósent.
Markaðsaðstæður voru erfiðar vegna óhentugs
veðurfars á Bretlandsmarkaði og svo skilaði unga
fólkið, sem eltir tískuna, sér ekki í þeim mæli
sem vonast hafði verið en það er stærsti kúnna-
hópurinn. Það olli birgðasöfnun, fyrst og fremst
hjá Oasis sem telur um 40 prósent af heildarveltu
Mosaic Fashions og lækkaði bæði sala og framlegð
hjá Oasis-verslunum. Hins vegar var mikil sölu-
aukning hjá Karen Millen (+18%) og Coast (+45%)
en þau eru samanlagt svipuð að stærð og Oasis.
Bætt veðurfar hefur skilað sér í aukinni sölu á
öðrum ársfjórðungi.
Vaxtarbroddur Mosaic Fashions liggur á alþjóð-
legum mörkuðum en sala jókst um þriðung á
fyrsta ársfjórðungi rekstrarársins samanborið við
sama tímabil í fyrra. Nú er svo komið að 34 pró-
sent af veltu samstæðunnar kemur erlendis frá
sem er með því hæsta sem þekkist hjá breskum
smásölukeðjum og koma vörumerki félagsins við
sögu í 847 verslunum í 33 löndum. „Við höfum
lagt á okkur mikla vinnu til gera okkur kleift
að vaxa erlendis og taka stöðu á ýmsum svæð-
um. Karen Millen hefur náð frábærum árangri á
erlendum mörkuðum og sækir enn í sig veðrið,“
segir Lovelock. Stefnt er að því að fjölga Karen
Millen-verslunum í Þýskalandi og Bandaríkjunum
auk þess sem vöxtur í Austur-Evrópu er fyrirhug-
aður á næstunni. Stefnt er að því að opna 54 nýjar
verslanir í Bretlandi á þessu ári og 47 verslanir á
öðrum mörkuðum.
DEREK LOVELOCK, FORSTJÓRI MOSAIC FASHIONS Eftir sam-
runann við Rubicon rekur félagið 1.700 verslanir í 27 löndum. Karen
Millen hefur gengið sérstaklega vel í útrásinni.
Verður þriðja stærsta
kvenfatakeðja Bretlands
Aðeins Arcadia og New Look verða stærri en Mosaic í sölu
á tískufatnaði til kvenna. Aukin umsvif eru á erlendum mörk-
uðum, einkum hjá Karen Millen, en dró úr sölu hjá Oasis.
Sameining bresku matvörukeðj-
anna Nisa og Costcutter er í
uppnámi eftir að smærri hlut-
hafar í Nisa sendu stjórnend-
um fyrirtækisins bréf þar sem
sameiningunni var mótmælt.
Kaupthing Banki fjármagnar
viðskiptin sem sögð eru nema
27,5 milljörðum íslenskra króna
auk þess að ráða einhverjum
hluta bréfa í sameinuðu fyrir-
tæki.
Samtök smærri hluthafa í
NISA segja sameininguna skuld-
setja fyrirtækið um of auk þess
sem stjórnendur fái óeðlilega
stóran hlut í sameinuðu fyrir-
tæki. Mark nokkur Proudfoot
fer fyrir smærri hluthöfum,
en sá er kunnur fyrir að hafa
kært matvörurisann Tesco fyrir
breska samkeppniseftirlitinu.
Stjórn NISA hefur þó rétt
fram sáttahönd og hefur boðið
smærri hluthöfum fimmtíu og
eitt prósent í sameinuðu fyrir-
tæki, en áður stóð til að hlutur
þeirra yrði um fjörutíu prósent.
Hlutur stjórnenda verður um
þrjátíu prósent. - jsk
Sameining matvörukeðja í biðstöðu
Kaupthing banki fjármagnar 27,5 milljarða samning breskra matvörukeðja.
VERSLUN COSTCUTTER Í YORK Samtök
smærri hluthafa í Nisa telja sameiningu við
Costcutter ekki fýsilega. Kauthing Banki
fjármagnar viðskiptin.
Greiðslukortavelta í maí nam
rúmum 58 milljörðum króna og
hefur aukist um 12,6 prósent frá
fyrra mánuði samkvæmt tölum
frá Seðlabanka Íslands.
Greiðslukortavelta innan-
lands nam tæpum 54 milljörðum
og jókst um fjór-
tán prósent milli
mánaða. Veltan
hefur hins vegar
dregist saman um
0,7 prósent miðað
við maí í fyrra.
Greiðslukortavelta
erlendis dróst lítil-
lega saman í maí.
Fram kemur á vef greining-
ardeildar KB banka að greiðslu-
kortavelta hafi aukist um 0,9
prósent miðað við sama tíma
í fyrra, en í apríl síðastliðnum
hafi vöxtur
g r e i ð s l u -
kortaveltu
hins vegar
verið nei-
k v æ ð u r
um tæp
sex pró-
sent. Þetta
þykir gefa
v í s b e n d -
ingu um að heldur hafi hægst á
einkaneyslu. - jsk
Hægir á
einkaneyslu
GREIÐSLUKORT
Greiðslukortavelta í maí nam 58 millj-
örðum króna.
Moskva er dýrasta borg heims
samkvæmt nýrri könnun ráð-
gjafafyrirtækisins Mercer
Human Resource. Seoul, höfuð-
borg Suður-Kóreu, varð í öðru
sæti, Tókýó í því þriðja og Hong
Kong í fjórða. Lundúnir eru
fimmta dýrasta borg heims.
Meginástæða þess að Moskva
stökk úr fjórða sætinu í toppsætið
milli ára er hækkun fasteigna-
verðs í borginni segir í skýrslu
Mercer. Þá hefur mikil verðbólga
í Rússlandi áhrif.
Skýrsla Mercer nær yfir
hundrað fjörutíu og fjórar borg-
ir í sex heimsálfum og metur
kostnað við meira en tvö hundr-
uð þætti. Könnunin tekur ekki til
Reykjavíkur.
Asuncion, höfuðborg Paragvæ,
er ódýrasta borg heims, rúm-
lega þrefalt ódýrari en Moskva.
Austur-þýska borgin Leipzig er
ódýrasta borg Evrópu.
Kaupmannahöfn er í áttunda
sæti listans og Ósló í því tíunda,
ásamt New York. - jsk
Moskva er dýrust borga
Þrefalt dýrara er að búa í Moskvu en
Asuncion í Paragvæ. 2006 2005
1. 4. Moskva (Rússlandi)
2. 5. Seoul (Suður-Kóreu)
3. 1. Tókýó (Japan)
4. 9. Hong Kong (Kína)
5. 3. Lundúnir (Bretlandi)
6. 2. Osaka (Japan)
7. 6. Genf (Sviss)
8. 8. Kaupmannahöfn (Danm.)
9. 7. Zürich (Sviss)
10. 10. Ósló (Noregi)
Heimild: Mercer Human Resourcing
D Ý R U S T U B O R G I R
H E I M S
Væntingavísitala Gallup hækk-
aði um 4,3 prósent milli maí
og júní og stendur nú í 100,8
stigum. Vísitalan hefur lækkað
um tuttugu og sjö stig frá ára-
mótum.
Um 25,3 prósent neytenda
telja efnahagsástandið gott en
24,8 prósent telja það slæmt. Í
sama tíma í fyrra taldi helm-
ingur neytenda ástandið gott en
einungis þrettán prósent sögð-
ust svartsýnir.
Fram kemur á vef greining-
ardeildar Glitnis að þessi nið-
urstaða komi ekki á óvart í ljósi
aukinnar verðbólgu, veikingar
krónunnar, lækkunar hlutabréfa-
verðs, hækkandi vaxta, mikils
viðskiptahalla og neikvæðrar
umræðu um efnahagslífið.
Um fjörutíu prósent neyt-
enda telja að efnahagsástandið
verði verra eftir sex mánuði en
einungis fimmtán prósent telja
það verða betra. - jsk
Neytendur á
báðum áttum