Fréttablaðið - 28.06.2006, Blaðsíða 80
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
The pursuit of perfection
FJARLÆGÐINA
Þegar Lexus IS250 ber þig mjúklega eftir veginum og þú finnur aflið,
sem þér er gefið, verður fjarlægðin nálæg. Fyrr en varir ertu kominn á
áfangastað og líður eins og þú hafir aldrei lagt af stað. Innrétting,
munaðarþægindi og tæknibúnaður, sem tekur öðru fram, eru umgjörð
um líf þeirra sem vilja ná langt. Á Lexus IS250 verður fjarlægur
draumur að veruleika.
Sjáðu, snertu og prófaðu Lexus IS250. Við erum sannfærðir um að
niðurstaðan verður gagnkvæm virðing. Það mun ef til vill koma þér á
óvart en við sáum það fyrir. Við gerum nefnilega sömu kröfur til
lúxusbíla og þú og njótum þess að tvinna saman afl og hugvit.
Verð frá 4.320.000 kr.
ÞÚ SNERTIR
Nýbýlavegi 6 Kópavogur Sími 570 5400 www.lexus.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
33
32
3
06
/2
00
6
������������������������������
������������������������������
��������������
�������
����������
����
������������
�������������� �
����������
�����������������
Um daginn sá ég nýtt mynd-band með Nelly Furtado.
Lagið heitir Maneater eins og
gamall slagari með Hall og Oates.
Þetta lag er allt hálfundarlegt. Það
er drungalegt, ómelódískt og afar
óeftirminnilegt. Nelly spratt fram
á sjónarsviðið fyrir sex árum og
gerði garðinn frægan með mörgum
góðum lögum. Þá gerði hún líka
skemmtileg myndbönd þar sem
hún var lífsglöð og kát. Í því
fyrsta, sem gert var við lagið I‘m
Like a Bird, var hún tolleruð eins
og hver annar MR-ingur. Þetta var
allt öðruvísi stelpa en óþekktar-
ormurinn Pink eða kyntáknið
Kelis sem komu fram á svipuðum
tíma.
NÚ virðist sem Nelly hafi ekki
lengur viljað vera káta stelpan
heldur falla frekar inn í hópinn –
nema þetta tengist slæmu viðtök-
unum sem annar diskurinn hennar
fékk. Nú hefur hún líklega ætlað
sér að duga eða drepast og því var
líka nýr upptökustjóri fenginn til
starfa. Í nýja myndbandinu dansar
Nelly töffaralega í hópi annars
ungs fólks og býður upp á
klassískar skylduæfingar sem
poppurum er uppálagt að sýna í
myndböndum. Nelly tekst til að
mynda afar vel upp í fyrrnefndum
hópdansi sem og bol-lyftunni þar
sem magavöðvar verða að sjást,
vilji viðkomandi poppari ná góðum
stigafjölda.
ÖÐRUM skylduæfingum gæti
Nelly ætlað að bregða fyrir sig í
myndböndunum við næstu smelli
en það sem við gætum átt von á er
til dæmis stóladansinn, eins og
Pussycat Dolls og Britney Spears
kunna svo vel, sýning á flottum
gsm-síma, eins og þau 50 Cent og
Jennifer Lopez hafa staðið fyrir,
og síðast en ekki síst upptalning
merkjavara. Þar hefur Gwen
Stefani náð hæstu hæðunum, þar
sem hún nefnir oftast eigið fata-
merki. „Love, Angel, Music,
Baby,“ heyrist hún syngja í
nokkrum laga sinna. Það er runan
sem L.A.M.B. stendur fyrir en svo
nefnist tískumerki Gwen.
NÚ þyrfti að bjóða upp á sérstakan
þátt með tónlistarmyndböndum
þar sem þulur útskýrir fyrir áhorf-
endum allt það sem ber fyrir augu,
svo þeir geri sér grein fyrir
skylduæfingunum og því þegar
tónlistarmenn þora að fara eigin
leiðir. Við þurfum að læra að meta
áhættu, svo sem eins og þegar
Coldplay býður upp á dans ungs
manns við nær aldargamla konu
og gott ef þau eru ekki bæði í g-
strengjum. Það er ekki skylduæfing.
Það er frumleiki.
Skylduæfingar í
poppinu
AUGL†SINGASÍMI
550 5000