Fréttablaðið - 28.06.2006, Blaðsíða 38
MARKAÐURINN 28. JÚNÍ 2006 MIÐVIKUDAGUR8
F R É T T A S K Ý R I N G
Eignarhaldsfélagið Stoke Holding keypti
árið 1999 sextíu og sex prósenta hlut í
enska knattspyrnufélaginu Stoke City.
Kaupverðið var um 1,1 milljarður íslenskra
króna. Auk þess var tekið rúmlega 340
milljóna króna lán í nafni Stoke Holding.
Í upphafi ríkti mikil bjartsýni; aðdáendur
Stoke tóku íslensku fjárfestunum fagn-
andi og veifuðu þúsundum íslenskra fána
á fyrsta heimaleik liðsins eftir kaupin.
Fimmtudaginn síðastliðinn var hluthöfum
formlega tilkynnt um sölu á eignarhlut
Stoke Holding og að félaginu yrði í kjöl-
farið slitið. Fundurinn, sem haldinn var á
Grand hóteli í Reykjavík, var fásóttur; þrír
stjórnarmenn í Stoke Holding létu sjá sig,
auk framkvæmdastjórans, níu almennra
hluthafa og blaðamanns.
Peter Coates, stjórnarmaður og fyrr-
um eigandi Stoke, keypti eignarhlut
Íslendinganna á tæpa 620 milljarða, auk
greiðslna er velta á framtíðargengi liðsins.
Gunnar Þór Gíslason, fyrrverandi stjórnar-
formaður, kvaðst þó síður búast við því að
þær greiðslur skiluðu sér að undanskildum
tæpum 69 milljónum króna sem væntan-
legar væru að lokinni áreiðanleikakönnun.
Kaupsamningur Íslendinganna og
Coates er nokkuð flókinn. Fram kom í máli
Gunnars Þórs að gangi allt upp megi hlut-
hafar vænta allt að níutíu prósenta af nafn-
virði hlutafjár. Til að svo verði þarf Stoke
City að komast upp í ensku úrvalsdeildina
innan fimm ára og halda sér þar í það
minnsta eitt tímabil. Þá fær Stoke Holding
helming af söluvirði fjögurra leikmanna,
Íslendingsins Hannesar Sigurðssonar
meðal annarra, fari svo að þeir verði seldir
frá Stoke City. Loks gat Stoke Holding átt
von á skaðabótum vegna gjaldþrots sjón-
varpsfyrirtækisins ITV Digital. Nú er hins
vegar ljóst að af því verður ekki.
„Menn skulu ekki búast við meira en
þrjátíu prósentum af nafnvirði hlutafjár.
Restin er vonarpeningur,“ sagði Gunnar
Þór, sem talaði hreint út á hluthafafund-
inum.
Stoke Holding, sem skráð er í
Lúxemborg, verður formlega viðhaldið
næstu fimm árin til að taka við hugs-
anlegum greiðslum. Félagið verður síðan
formlega lagt niður. Stjórnarmönnum í
Stoke Holding verður fækkað úr sjö í
þrjá; eftir sitja þeir Gunnar Þór, Magnús
Kristinsson og Júlíus Bjarnason. Hlutafé
í félaginu verður minnkað um þrjátíu pró-
sent. Framkvæmdastjóri Stoke
Holding er sem fyrr Lárus
Sigurðsson.
KEYPTI VEGNA GAUJA ÞÓRÐAR
Stærstu hluthafar í Stoke Holding eru
Kaupthing Luxembourg SA, KB banki
og Magnús Kristinsson fjárfestir úr
Vestmannaeyjum. Um fimm prósent af
heildarhlutafé KB banka í Stoke Holding
var selt á almennu hlutafjárútboði á geng-
inu 1,3. Fagfjárfestar keyptu á genginu
1,0.
Af þessu má vera ljóst að gangi spá
Gunnars Þórs eftir fá smærri fjárfestar,
sem keyptu á genginu 1,3, um tuttugu og
þrjú prósent upphaflegrar fjárfestingar
aftur í vasann.
Þeir fáu hluthafar sem létu sjá sig á
fundinum voru greinilega ósáttir og töldu
sig jafnvel illa svikna. Einn hafði sig áber-
andi mest í frammi og greip hvað eftir
annað fram í fyrir Gunnari Þór. „Við feng-
um aldrei neinar upplýsingar um hvern-
ig reksturinn gengi. Maður lagði fullt af
peningum í þetta og fékk ekki einu sinni
skitinn boðsmiða að launum. Ég keypti bara
vegna Gauja Þórðar, en hann staldraði ekki
lengi,“ sagði maðurinn og vísaði til Guðjóns
Þórðarsonar, fyrrverandi landsliðsþjálfara
sem þjálfaði Stoke City fyrst um sinn eftir
kaup Íslendinganna.
Gunnar Þór Gíslason kvaðst gera sér
grein fyrir því að menn hefðu orðið fyrir
vonbrigðum. Öllum hefði verið ljóst að um
var að ræða áhættufjárfestingu, sem því
miður hefði ekki gengið upp. Hann bað
fundarmenn um að setja hlutina í sam-
hengi. „Ef menn hefðu keypt í DeCode á
sama tíma sætu þeir uppi með tíu prósent
nafnvirðis. Hér getum við vænst þrjátíu
prósenta. Þannig má segja að kaup á bréf-
um í Stoke hafi verið þrisvar sinnum betri
fjárfesting en í DeCode.“
Gunnar Þór taldi einkum fjórar ástæður
fyrir því að fjárfestingin gekk ekki upp.
Félagið hefði fyrir það fyrsta verið of dýru
verði keypt. „Ef við hefðum haft þolin-
mæði til að bíða í tvo mánuði hefði
verðið lækkað. Menn voru bara
ekki tilbúnir til þess.“
Í annan stað hefði gjaldþrot
sjónvarpsfyrirtækisins ITV
Digital komið afar illa við Stoke,
eins og flest neðri deildar félög á
Englandi. Öruggar tekjur vegna
sjónvarpsréttar hefðu horfið eins og hendi
væri veifað. Þá sagði Gunnar Þór að félagið
hefði eytt of löngum tíma í annarri deild,
en Stoke komst upp árið 2001 og spilaði
því í þrjú ár í annarri deild (C-deild) ensku
knattspyrnunnar.
Loks sagði Gunnar Þór áætlanir um að
kaupa unga og efnilega íslenska leikmenn
og selja þá síðan áfram með hagnaði hefðu
ekki gengið sem skyldi. Þeir Íslendingar
sem komu til félagsins hefðu ekki verið
betri en þeir sem fyrir voru. „Það var
enginn hagnaður af íslensku leikmönn-
unum. Það sem helst gekk vel voru leik-
mannaviðskipti með erlenda leikmenn, þá
seldum við marga hverja með hagnaði.“
Gunnar Þór sagði þó ekki endilega við leik-
mennina sjálfa að sakast. Á tímabili hefði
starfað knattspyrnustjóri hjá félaginu sem
hreinlega vildi ekki íslenska leikmenn.
„Kannski voru það okkar helstu mistök að
láta Tony Pulis ekki fara fyrr.“ Tony Pulis
tók við starfi knattspyrnustjóra af Guðjóni
Þórðarsyni.
DRAUMURINN UM ÚRVALSDEILDARSÆTIÐ
Gunnar Þór Gíslason gegndi starfi stjórn-
arformanns knattspyrnufélagsins Stoke
City í sjö ár. Á þeim árum má segja að
gengi félagsins hafi verið upp og ofan.
Stoke komst upp í fyrstu deild vorið 2001
og vann bikarkeppni neðri deildar liða ári
áður. Stoke bjargaði sér naumlega frá falli
á fyrsta ári sínu í fyrstu deildinni en hefur
síðan siglt lygnan sjó um miðja deild.
Félagið hefur á þessum sjö árum
haft þrjá knattspyrnustjóra. Samningur
Guðjóns Þórðarsonar var ekki endurnýjað-
ur eftir þriggja ára starf. Englendingurinn
Tony Pulis tók við af Guðjóni en honum
og íslensku stjórnarmönnunum kom ekki
saman og var látinn fara. Gamli hollenski
landsliðsmaðurinn Johan Boskamp stýrði
skútunni síðustu tvö tímabilin.
Gunnari Þór var tíðrætt um þá gríð-
arlegu fjárhagslegu gjá sem er milli liða
sem spila í ensku úrvalsdeildinni og neðri
deildar liðanna. Ávinningur af því að vinna
sér sæti í úrvalsdeildinni væri gríðarlegur
en oft er talað um að sætið eitt og sér sé
um þriggja milljarða króna virði. Gunnar
upplýsti fundarmenn um að á þarsíðasta
tímabili hefði verið ákveðið að láta slag
standa og leggja allt í sölurnar; dýrir leik-
menn hafi verið keyptir og meira fé lagt til
launamála. Allt hafi hins vegar komið fyrir
ekki og liðið endað um miðja deild, þrátt
fyrir góða byrjun.
Eftir nýliðið tímabil hafi ákvörðun verið
tekin um að selja hlut Stoke Holding í félag-
inu. Til þess að halda rekstrinum áfram eitt
tímabil til viðbótar hefði þurft að safna
um þrjú hundruð milljónum króna. Hins
vegar væri þrautinni þyngra að nálg-
ast lánsfé og menn hefðu ekki verið
tilbúnir að leggja frekar fé í félagið.
„Það var í raun einföld ákvörðun að
leita kaupanda,“ sagði Gunnar Þór.
Hann sagði að yfir árin hefðu bor-
ist nokkrar fyrirspurnir um kaup á
Stoke City en aldrei neitt sem hefði
freistað. Gunnar sagðist telja
að tilboð Peter Coates
hefði verið vel ásættan-
legt miðað við hvernig
komið var.
Var Stoke bara djók?
Stoke Holding seldi nýlega eignarhlut sinn í enska knattspyrnufélaginu Stoke City. Mikil eftirspurn var
eftir bréfum í félaginu á sínum tíma og íslensku fjárfestunum var fagnað sem hetjum í Stoke on Trent.
Smærri fjárfestar brosa þó ekki lengur enda fá þeir tæpan fjórðung upphaflegrar fjárfestingar útgreidd-
an. Sala félagsins var útlistuð fyrir hluthöfum og tilkynnt um slit Stoke Holding á tíu manna lokuðum hlut-
hafafundi á Grand hóteli. Jón Skaftason sat fundinn og varð ekki var við lófaklapp að honum loknum.
ÍSLENDINGUNUM FAGNAÐ Á BRITANNIA-LEIKVANGINUM Þúsundum íslenskra fána var veifað á fyrsta
heimaleik Stoke City eftir yfirtöku Íslendinganna. Þessi patti var greinilega hæstánægður með nýju eigendurna.
GUÐJÓN ÞÓRÐARSON Í FULL-
UM SKRÚÐA Greinilegt var
að margir smærri hluthafa
keyptu í Stoke Holding
vegna Guðjóns.
„Maður lagði fullt af
peningum í þetta og
fékk ekki einu sinni
skitinn boðsmiða
að launum. Ég
keypti bara
vegna Gauja
Þórðar, en
hann staldr-
aði ekki
lengi,“ sagði
einn.
GUNNAR ÞÓR GÍSLASON, FYRRVERANDI
STJÓRNARFORMAÐUR Gunnar Þór
gegndi stöðu stjórnarformanns allt
frá 1999. Hann sagði Stoke
hafa verið áhættufjárfest-
ingu sem því miður hefði
ekki gengið sem skyldi.