Fréttablaðið - 28.06.2006, Blaðsíða 48
MARKAÐURINN 28. JÚNÍ 2006 MIÐVIKUDAGUR18
F Y R S T O G S Í Ð A S T
Hvað gerir Tryggingardeild
útflutnings?
Tryggingardeild útflutnings
(TRÚ) veitir ábyrgðir til
útflutningsfyrirtækja og banka
til varnar viðskiptalegri og/eða
stjórnmálalegri áhættu.
Hvað þýðir það fyrir fyrirtæki að
fá ábyrgð frá TRÚ?
Það þýðir að fyrirtækið er búið
að kaupa sér
tryggingu fyrir
því að ef erlendi
kaupandinn
greiðir ekki sam-
kvæmt samningi
þá fær það allt
að 90% tjónsins
bætt.
Hvaða skilyrði
þurfa fyrirtæki
eða verkefni að
uppfylla til að
TRÚ komi að
málum?
Það er skilyrði
að um sé að ræða
útflutning á
íslenskri vöru eða
þjónustu og svo
þarf verkefnið
að sjálfsögðu að
standast áhættu-
mat.
Kemur TRÚ að
verkefnum á svo-
nefndum ótrygg-
um svæðum í
heiminum, svo sem þróunarlönd-
um, eða í Austur-Evrópu?
Já, þar hafa íslensk fyrirtæki
einmitt mikla þörf fyrir okkar
þjónustu því að stjórnmálaleg
áhætta er þar umtalsverð í
sumum löndum.
Hvað er stjórnmálaleg áhætta í
útflutningsverkefnum?
Stjórnmálaleg áhætta er sú
áhætta sem tengist landi kaup-
andans og efnahagsástandi
þess. Dæmi um stjórnmálalega
áhættu er ef stjórnvöld lýsa
yfir almennri greiðslustöðvun
í landinu, ef stjórnvöld koma í
veg fyrir gjaldeyrisútstreymi úr
landinu, stríð, innanríkisdeilur
og náttúruhamfarir.
Hefur TRÚ þurft að bæta tjón
vegna viðskipta- eða stjórnmála-
legra áfalla sem dunið hafa yfir
útflutningsverk-
efni?
Já, það hefur komið
fyrir tvisvar sinn-
um. Í báðum tilvik-
um var um að ræða
lán sem íslenskir
bankar höfðu lánað
erlendu kaupendun-
um með ábyrgð frá
TRÚ.
Hver er munurinn
á þjónustu TRÚ og
MIGA?
MIGA veitir
ábyrgðir þegar
íslensk fyrir-
tæki fjárfesta á
erlendri grundu
en einungis gegn
stjórnmálalegri
áhættu. TRÚ veitir
ábyrgðir bæði gegn
viðskiptalegri- og
stjórnmálalegri
áhættu og bæði
vegna útflutnings-
verkefna og fjár-
festingarverkefna.
Hvað kostar ábyrgð frá TRÚ?
Ekkert eitt svar er til við spurn-
ingunni en algengt er að þókn-
un sé á bilinu 1 til 2,5% á ári.
Auðveldast er að svara spurn-
ingunni með því að segja að því
meiri áhætta sem talin er vera í
verkefninu því hærri er þóknun-
in og að sama skapi, þeim mun
minni áhætta – þeim mun lægri
þóknun.
TRÚ hefur bætt tjón
banka í tvígang
T Ö L V U P Ó S T U R I N N
Til Ingibjargar
H. Þráinsdóttur,
sérfræðings á tryggingardeild
útflutnings hjá
Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins.
„Við vonumst til að þessi fundur
ýti undir að leitað verði aðkomu
okkar að fjárfestingarverkefnum
sem kunna að vera áhættusöm
vegna ytri stjórnmálaaðstæðna í
landinu þar sem þau fara fram,“
segir Keith Martin, yfirmaður á
markaðssviði MIGA, Multilateral
Investment Guarantee Agency,
undirstofnunar Alþjóðabankans.
Á kynningarfundi viðskipta-
þjónustu utanríkisráðuneytis-
ins á mánudag kynnti stofnun-
in starfsemi sína, en hún veitir
einkafyrirtækjum sem fjárfesta í
þróunarlöndum og Austur-Evrópu
ábyrgð fyrir pólitískum áföllum,
styrjöldum, óvæntum hömlum á
gjaldeyrisyfirfærslum og eigna-
upptöku stjórnvalda. Stofnunin
hefur ekki enn komið að verk-
efnum Íslendinga, en hefur feng-
ið nokkrar fyrirspurnir. „Við
getum uppfyllt ákveðna þörf
fyrir ábyrgðir þar sem hér eru
ekki opinberir sjóðir sem veita
ábyrgðir vegna slíkra verkefna
líkt og tíðkast í sumum stærri
ríkjum.“
Auk Keiths Martins var komin
frá MIGA Elena Palei, einn
yfirmanna greiðslu- og grein-
ingardeildar stofnunarinnar. Þá
var á fundi viðskiptastofnunar
utanríkisráðuneytisins einnig
kynnt starfsemi tryggingardeild-
ar útflutnings (TRÚ) sem rekin
er undir hatti Nýsköpunarsjóðs
atvinnulífsins, en hlutverk TRÚ
er að veita ábyrgðir gegn við-
skiptalegri- og stjórnmálalegri
áhættu með það að markmiði að
efla íslenskan útflutning.
Martin og Palei lögðu áherslu
á að þótt MIGA væri í raun að
selja tryggingar á svæðum þar
sem tryggingafélög ættu erfitt
með að bjóða ásættanleg kjör þá
væri stofnunin ekki rekin með
gróðasjónarmið að leiðarljósi
heldur væri hlutverk hennar að
ýta undir erlenda fjárfestingu
með því að bjóða ábyrgðir til
bæði fjárfesta og lánveitinga
og þannig væri stutt við þróun
og vöxt nýmarkaða í heiminum.
Ljóst er þó að þjónustan er kostn-
aðarsöm. Til dæmis má nefna að
þegar umsókn vegna nýrrar fjár-
festingar er komin á
rekspöl þarf að greiða
s taðfest ingargja ld
sem nemur 10.000
bandaríkjadölum. Það
er þó endurgreitt komi
til þess að verkefni
sé hafnað við nánari
skoðun og dregið frá endanlegu
tryggingargjaldi verði af aðkomu
MIGA. Svo fer eftir áhættumati
hversu kostnaðarsöm ábyrgðin er,
en að sögn Keiths Martins hleyp-
ur gjaldið á 0,3 til 1,5 prósentum
af fjárfestingunni árlega. „En
það getur reyndar orðið hærra,
jafnvel allt upp í 2,5 prósent
segjum af fjárfestingu við jarð-
hitavirkjun í Afríkuríki þar sem
borgarastyrjöld er yfirvofandi og
stjórnvöld í ofanálag óvinveitt,“
bætir hann við, en áhættumat
og ábyrgðir stofnunarinnar eru í
grunninn til af fernu tagi. Veittar
eru ábyrgðir gegn gengisáhættu
þar sem fjármunum fæst ekki
skipt úr gjaldmiðli landsins þar
sem fjárfest er, eða vegna ann-
arra hindrana í þeim efnum. Þá
eru veittar ábyrgðir gegn eign-
arnámi yfirvalda eða annarra
einhliða aðgerða sem rýra fjár-
festingu fyrirtækja, vegna stríðs
og borgaralegs óróa en þar eru
talin með skemmdar- og hryðju-
verk af pólitískum toga, og svo
vegna samningsrofs stjórnvalda
við fjárfesta. MIGA tekur hins
vegar ekki á sig ábyrgðir vegna
viðskiptaáhættu.
„Hins vegar má líkja ábyrgð-
um MIGA við bifreiðatryggingu
sem dregur úr líkunum á því
að bíllinn lendi í óhappi,“ segir
Keith Martin og bendir á að með
aðkomu undirstofn-
unar Alþjóðabankans
fái verkefni ákveðinn
gæðastimpil, auk þess
sem MIGA hafi á að
skipa her sérfræðinga
og lögfræðinga sem
aðstoði við úrlausn
mála sem upp kunna að koma
til þess að forða því að verkefni
fari forgörðum og greiða þurfi út
ábyrgðir. Frekari upplýsingar um
verkefni, umfang og umsóknar-
ferli MIGA er svo að finna á vefn-
um ipanet.net, en Martin og Palei
kynntu líka ábyrgðir fyrir smærri
fjárfestingar (Small Investment
Program), þar sem umsóknar-
ferlið er ekki jafnþunglamalegt
og ekki þarf að reiða fram stað-
festingargjald.
Ingibjörg Hrund Þráinsdóttir
kynnti svo TRÚ og lagði áherslu
á að stofnunin hefði ekkert með
sprotafyrirtæki eða útrás fyrir-
tækja að gera heldur gæfi út rík-
isábyrgðir vegna útflutnings. Á
því sviði taldi hún ábyrgðir TRÚ
heldur hentugri en MIGA vegna
þess að þær næðu einnig til við-
skiptalegrar áhættu. Frekari upp-
lýsingar um TRÚ má finna á vef
Nýsköpunarsjóðs, nsa.is.
JÚLÍUS HAFSTEIN Júlíus er forstöðumað-
ur viðskiptaþjónustu utanríkisráðuneytisins
en á hennar vegum eru reglulega haldnir
kynningarfundir til að koma að upplýsing-
um um mál tengd viðskiptum í útlöndum.
MARKAÐURINN/STEFÁN
MIGA ábyrgist fjárfestingar á
ótryggum svæðum heimsins
Multilateral Investment Guarantee Agency (MIGA) kynnti starfsemi sína
á fundi viðskiptaþjónustu utanríkisráðuneytisins á mánudag. Óli Kristján
Ármannsson sat fundinn, þar sem einnig var kynnt starfsemi tryggingar-
deildar útflutnings hjá Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins.
KEITH MARTIN OG ELENA PALEI RÆÐA VIÐ JÚLÍUS HAFSTEIN Martin og Palei, sem eru fulltrúar MIGA, kynntu sérstaklega tryggingar
sem sniðnar eru að þörfum smærri fjárfesta, en þar hefur umfang og kostnaður verið minnkaður og afgreiðslutími styttur. MIGA hefur ekki
enn komið að fjárfestingum Íslendinga en fengið nokkrar fyrirspurnir. MARKAÐURINN/STEFÁN
M Á L I Ð E R
Tryggingar
fjárfestinga
í útlöndum
Markmál
Þýðingar og skjalagerð
Aðsetur í ReykjavíkurAkademíunni - Hringbraut 121
www.markmal.is - markmal@markmal.is - S: 660 5003