Fréttablaðið - 28.06.2006, Side 64
28. júní 2006 MIÐVIKUDAGUR28
menning@frettabladid.is
!
N† VÖRU- OG fiJÓNUSTU-
SKRÁ Á VISIR.IS/ALLT
... sem flig vantar í
n‡ja húsnæ›i›
Kl. 20.00
Hljómsveitin Narodna Musika
leikur á Café Cultura í Alþjóða-
húsinu við Hverfisgötu. Eldfjör-
ug tyrknesk, búlgörsk og grísk
tónlist sem fær fólk á fætur.
> Ekki missa af...
hljómsveitinni Ham á
Nasa annað kvöld. Hin
geðþekku prúðmenni
í ísfirska slagarabandinu
9/11‘s verða sérstakir
gestir kvöldsins.
ljósmyndasýningu
Andrésar Kolbeins-
sonar í Ljósmyndasafni
Reykjavíkur. Svart/hvítar
mannlífs- og borgarmyndir
frá litríkum tíma.
sumartónleikum í Bláu
kirkjunni á Seyðisfirði.
Eitthvað fyrir alla á mið-
vikudagskvöldum í sumar,
fleygið fjarstýringunni
og opnið eyrun.
Félagarnir Björn Thooddsen, Gunnar Þórðarson og
Jón Rafnsson í Guitar Islancio munu leika á þrennum
tónleikum í Japan í þessari viku. Útgáfufyrirtækið
Aljjos Music í Yokohama hefur milligöngu um
tónleikana í samvinnu við Japan Iceland Society en
fyrirtækið samdi nýlega um útgáfu þriggja hljóm-
platna með Guitar Islancio í Japan.
Fyrsta platan, Scandinavian Songs, er þegar komin
í verslanir og eru tónleikarnir nú hugsaðir til þess
að styrkja útgáfu Guitar Islancio enn frekar í Japan
og verður virtum tónlistarblaðamönnum ásamt
fulltrúum útvarps- og sjónvarpsstöðva boðið á
hljómleika Guitar Islancio og á fund listamanna og
útgefenda.
Tónlist tríósins er nú í útvarpsspilun í þremur
heimsálfum og er þess getið í fréttatilkynningu
frá útgefanda þeirra, Zonet útgáfunni, að tríóið sé
verðugur fulltrúi íslensks tónlistarlífs á erlendum
vettvangi og að framganga þeirra á erlendri grund
hafi opnað dyr fyrir öðrum íslenskum listamönnum,
til dæmis hafi íslenskir tónlistarmenn átt fulltrúa á
hverju hausti á hinni árlegu kínversku alþjóðlegu
listahátíð í Shanghai, síðan Guitar Islancio riðu þar
fyrstir á vaðið.
TRÍÓIÐ GUITAR ISLANCIO Stórir í Japan?
Leika fyrir japanska aðdáendur
Sumarsýning Listasafns Reykja-
víkur á Kjarvalsstöðum er saman-
sett úr verkum í eigu safnsins og
veitir hún innsýn í íslenska lista-
sögu allt frá því um aldamótin
1900 til dagsins í dag. Fagurfræðin
var höfð til hliðsjónar við val á
verkunum og kemur fram í frétta-
tilkynningu að hefðbundin lista-
söguleg viðmið hafi verið látin
víkja fyrir samhljómi verkanna í
sölum safnsins.
Á sýningunni birtast helstu við-
fangsefni íslenskra myndlistar-
manna, en sérstök áhersla er lögð
á málverk. Margir af helstu
málurum þjóðarinar eiga verk á
sýningunni, þar á meðal Helgi
Þorgils Friðjónsson, Jón Stefáns-
son, Hringur Jóhannesson og
Georg Guðni, auk þess sem nokkur
verk eru eftir listamenn sem vinna
með aðra miðla, til dæmis eftir
Sigurð Guðmundsson.
Um þessar mundir er einnig
sýningaröð í norðursal Kjarvals-
staða sem sérstaklega er ætluð
börnum. Verkin á þeim sýningum
má finna í bókinni Skoðum myndlist
sem kom út í vor en nú geta áhuga-
samir gestir á öllum aldri séð verk
Errós, Gunnlaugs Scheving,
Katrínar Sigurðardóttur og Krist-
ínar Jónsdóttur í safinu.
Kjarvalsstaðir eru opnir alla
daga frá kl. 10-17 en sumarsýning-
in stendur til 17. september.
-khh
Sögulegur þverskurður
SJÁLFSMYND EFTIR HELGA ÞORGILS FRIÐJÓNSSON Fróðleg og margbrotin sumarsýning á
Kjarvalsstöðum.
Íslendingar hafa löngum
verið viðkvæmir fyrir sjálf-
um sér og líkar ekki alltaf
það sem misglöggir erlendir
gestir láta út úr sér og frá
sér um menningu og stað-
hætti hérlendis.
Sagnfræðingurinn Sumarliði Ísleifs-
son þekkir þessa viðkvæmni býsna
vel, enda hefur hann um árabil
rannsakað skrif erlendra manna
um Ísland og í fyrirlestri sínum í
bókasal Þjóðmenningarhússins í
dag mun hann fjalla um þær
ímyndir og hugmyndir. Fyrirlest-
urinn markar opnun sýningar í
Þjóðmenningarhúsinu sem nefnist
„Í spegli Íslands,“ en þar er fjallað
um slík skrif og saga þeirra rakin
allt til 16. aldar. Sumarliði kallar
erindið „Carta Marina og ímyndir
Íslands,“ og mun hann fjalla um
kort eitt sem Svíinn Olaus Magnus
teiknaði á fyrri hluta 16. aldar en
þar dregur hann ekki aðeins upp
myndir af löndunum heldur greinir
einnig frá ýmsu sem hann telur
sig vita um þau.
„Ég velti því fyrir mér hversu
góð heimild kortið er um Ísland,
um staðhætti hér, örnefni og
náttúrufyrirbæri og annað slíkt.
Einnig er forvitnilegt að kanna
þær hugmyndir sem koma fram á
kortinu um land og þjóð - uppruna
þeirra hugmynda, hversu lengi
þær hafa enst og hvort þær séu
ljóslifandi enn þann dag í dag,“
segir Sumarliði.
Sumarliði útskýrir að teiknar-
inn hafi aldrei stigið fæti hér á
land, en ásamt því að gera kortið
skrifaði hann líka þúsund síðna
bók sem fjallar um sögu Norður-
landanna og þar á meðal Íslands.
„Sennilega er hvatinn að baki
þessu framtaki hans að Magnus
var síðasti sænski katólski biskup-
inn og var landflótta í Róm á þess-
um tíma og þar suður frá voru
menn að spyrjast fyrir um
Norðurlöndin.“ Hann verður var
við ranghugmyndir um Norður-
löndin og tekur á vissan hátt að
sér að leiðrétta misskilning um
sína heimahaga og þar með um
Ísland. „Hann aflar sér upplýs-
inga hér og þar og hefur greini-
lega haft aðgang að öðrum ritum
um Ísland en hann hefur tæplega,
þótt það sé ekki vitað, haft neinn
íslenskan heimildamann.“
Sumarliði segir að kortið sé
merkilegt fyrir margra hluta sakir,
til dæmis sé það mjög fallegt. „Út
frá mínum rannsóknum er það líka
forvitnilegt vegna þeirra ímynda
sem þar birtast. Það sýnir tvenns
konar öfgar - annars vegar furðu-
eyjuna Ísland, þar sem paradísar-
eyjan birtist, og hins vegar hin
slæma eyja. Frá sjónarhóli nútíma-
manna er sérkennilegt að birta
þær á sama kortinu.“
Sumarliði telur að kortið hafi
haft mikil áhrif á hugmyndir
útlendinga um Ísland og þar af
leiðandi áhrif á sjálfsskilning
Íslendinga en áréttar jafnframt að
slíkur skilningur verði til í víxl-
verkun og eigi sér flóknar en
forvitnilegar hugmyndasögulegar
rætur.
Erindið flytur Sumarliði í
hádeginu í dag en sýningin sjálf
stendur til 13. ágúst.
kristrun@frettabladid.is
ER GESTS AUGAÐ GLÖGGT? Teikning af Brúará sem birtist í bókinni Travels in the Island of
Iceland eftir George Steuart Mackenzie er kom út árið 1811.
SUMARLIÐI ÍSLEIFSSON SAGNFRÆÐINGUR
Ræðir um ímyndir og hugmyndir erlendra
manna um Ísland. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Uppruni ímyndar Íslands
Fyrr á dögum tíðkaðist að flytja
þjóðlögin við strengjaundirleik en
annað kvöld verða sérstakir tón-
leikar í Stykkishólmskirkju þar
sem Gerður Bolladóttir sópran-
söngkona, Hlín Erlendsdóttir
fiðluleikari og Sophie Schoonjans
hörpuleikari munu flytja þjóðlög í
nýjum útsetningum fyrir rödd og
strengi.
Yfirskrift tónleikanna er „Fagurt
er á Fjörðum“ og samanstendur
efnisskráin af veraldlegum og
trúarlegum þjóðlögum. Veraldlegu
lögin voru útsett af Ferdinand
Rauter fyrir píanó en verða flutt af
hörpu. Trúarlegu lögin eru útsett af
Önnu Þorvaldsdóttur í tilefni
þessara tónleika en á næstu vikum
er væntanlegur diskur frá þeim
stöllum með sama nafni.
Tónleikarnir í Stykkishólms-
kirkju hefjast kl. 20.30, en á föstu-
dagskvöldið munu þær halda aðra
tónleika á Hólum í Hjaltadal. -khh
GERÐUR BOLLADÓTTIR, HLÍN ERLENDSDÓTTIR OG SOPHIE SCHOONJANS Þjóðlög í nýstár-
legum en gamaldags útsetningum.
Víst er fagurt á fjörðum