Fréttablaðið - 09.07.2006, Qupperneq 14
9. júlí 2006 SUNNUDAGUR14
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkis-
atburði, stórafmæli og
útfarir í smáletursdálkinn
hér til hliðar má
senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma
550 5000.
BARBARA CARTLAND RITHÖFUND-
UR (1901-2000) FÆDDIST ÞENNAN
DAG.
„Mér hefur allt fundist
konur torskildar. Ég skil
þær ekki almennilega.
Aðallega út af því hve fáar
konur halda sig við
sannleikann.“
Barbara Cartland var einn af
vinsælustu ástarsagnahöfundum allra
tíma. Hún var tíður gestur í
fjölmiðlum í Bretlandi þar sem hún
ræddi um hin ýmsu málefni, jafnan
klædd í bleikt.
Anne fæddist þann 12. júní
árið 1929 í Frankfurt í Þýska-
landi en foreldrar hennar
voru gyðingar. Fljótlega
eftir að nasistar komu til
valda flutti fjölskylda Anne
til Amsterdam í Hollandi.
Þegar nasistar réðust inn í
Holland árið 1941 fór Anna
í skóla fyrir gyðinga og um
sumarið árið 1942 fór fjölskyldan í felur
í bakherbergi á skrifstofu Ottos föður
hennar. Þar var hún í felum þangað til
að Gestapo fann þau þann fjórða ágúst
árið 1944.
Fjölskyldan var flutt í búðir til Wester-
bork í Hollandi og þaðan í Auschwitz
fangabúðirnar í Póllandi í september
sama ár. Anna og systir hennar
voru fljótlega fluttar í aðrar
fangabúðir, Bergen-Belsen í
Þýskalandi og þar dóu þær úr
flekkusótt í mars 1945. Móðir
Önnu dó í byrjun janúar sama
ár en faðir hennar slapp lif-
andi úr Auschwitz búðunum.
Á felustað fjölskyldunnar
fannst dagbók Anne sem lýsir
lífi fjölskyldunnar þau rúmu tvö ár sem
hún var í felum. Dagbókin hefur verið
gefin út á yfir fimmtíu tungumálum
og er Anne eitt þekktasta fórnarlamb
helfararinnar. Í dagbók sína skrifaði
Anne meðal annars, „þrátt fyrir allt, þá
trúi ég enn á að fólk sé raunverulega
gott í hjarta sínu.“
ÞETTA GERÐIST 9. JÚLÍ
Anne Frank fór í felur
AFMÆLI
Þorgerður Guðný
Guðmundsdóttir er
áttræð
Bryndís Schram er
68 ára
Íslenski safnadagurinn er haldinn
hátíðlegur í dag en þá bjóða söfn lands-
ins upp á ýmislegt skemmtilegt eins og
nýjar sýningar eða ókeypis aðgang. Í
Hafnarfirði er deginum fagnað með
því að bjóða landsmönnum á Byggða-
safnið og í Pakkhúsið þar sem verða
þrjár sýningar.
„Við erum með hernámssýningu
þar sem við gerum fyrst og fremst
hernámi Breta á Íslandi skil og erum
með bragga þar sem við sjáum bæki-
stöðvar þeirra,“ segir Karl Rúnar
Þórsson, sagnfræðingur á Byggða-
safni Hafnarfjarðar. Karl segir að
þegar hermennirnir hafi fyrst komið
til Hafnarfjarðar hafi þeir búið í tjöld-
um en fljótlega var farið að reisa
bragga í bænum. „Við erum með búnað
breskra hermanna sem að við fengum
frá Bretlandseyjum af því að við erum
að vinna þessa sýningu í samstarfi við
breskt sýningarfyrirtæki,“ segir
Karl.
„Síðan erum við með fasta sýningu
safnsins sem segir sögu Hafnarfjarðar
í máli og myndum alveg frá landnámi
og til okkar tíma. Við fjöllum meðal
annars um sjávarútveginn en Hafnar-
fjörður byggðist upp á sjávarútvegi. Á
þessari sýningu fjöllum við um bæði
báta og útgerðina og svo færum við
okkur yfir í þilskipin, vélbátana og
skuttogarana. Náttúrulega var fyrsti
togarinn sem var gerður út á Íslandi
gerður út frá Hafnarfirði,“ segir Karl,
en einnig verður fjallað um atvinnulífið
og félagslífið svo eitthvað sé nefnt.
„Svo er það leikfangasýningin, þar er
eiginlega hugmyndin sú að það séu
komin jól og það sé búið að taka utan
af jólapökkunum og við sjáum þarna
leikföng kannski svipuð og þau sem
krakkarnir léku sér með í gamla
daga.“
Þeir sem heimsækja Hafnarfjörð-
inn geta líka séð Sívertsenhúsið og
Siggubæ en þar sést hvernig Hafnfirð-
ingar bjuggu á árum áður. Sívertsen-
húsið er heimili yfirstéttarfjölskyldu
frá 19. öld en húsið byggði Bjarni
Sívertsen kaupmaður í Hafnarfiði.
Siggubær er hins vegar heimili alþýðu-
fjölskyldu, húsið er frá árinu 1902 og
er mjög lítið. Það var Sigríður Erlends-
dóttir sem bjó þar lengst og er húsið
nefnt eftir henni, en þar bjó þriggja
manna fjölskylda til að byrja með og
leigði út eitt herbergið til þess að eiga
fyrir byggingarkostnaði.
Safnadagurinn hefur verið haldinn
í nokkur ár en að honum standa Þjóð-
minjasafn Íslands, Listasafn Íslands
og Náttúrufræðistofnun Íslands ásamt
öllum öðrum söfnum landsins.
gudrun@frettabladid.is
ÍSLENSKI SAFNADAGURINN: HALDINN HÁTÍÐLEGUR UM ALLT LAND Í DAG
Frítt inn á hafnfirsku söfnin
KARL RÚNAR ÞÓRSSON Á BYGGÐASAFNI HAFNARFJARÐAR Ein af sýningunum sem boðið er upp á í Firðinum er „Jæja eru þeir þá komnir“ sem sýnir
hernám Breta í seinni heimsstyrjöldinni, en í Hafnarfirði bjuggu hermennirnir í bröggum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALGARÐUR
LEGSTEINAR
OG FYLGIHLUTIR
Í MIKLU ÚRVALI
Þökkum auðsýnda samúð vegna andláts og
útfarar okkar ástkæru móður, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
Valgerðar Jónsdóttir
Kórsölum 3, áður Rauðagerði 44.
Bestu þakkir til starfsfólks 11G og 11B Landspítala við
Hringbraut fyrir yndislega hjálp í veikindum hennar.
Einnig viljum við þakka Jóhönnu Birgisdóttur lækni og
heimahlynningu krabbameinsfélagsins fyrir hlýhug og
hjálp á undanförnum árum.
Guðný Eygló Valtýsdóttir
Hulda Berglind Valtýsdóttir Haraldur Sigurðsson
Erla Sólrún Valtýsdóttir Tryggvi Þór Agnarsson
Ágúst Ómar Valtýsson
Reynir Bergmann, Víðir Bergmann, Hlynur Bergmann, Þór,
Valgerður, Sigurður Valtýr, Elísabet Lára, Katrín Guðrún,
Guðbjartur Ægir, Ásgeir Örn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir, fóstra, tengdamóðir, amma
og langamma,
Þórunn Guðmunda Eiríksdóttir
Hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð, Kópavogi,
verður jarðsungin mánudaginn 10. júlí kl. 15 í
Grafarvogskirkju.
Smári Ragnarsson Erla Kristín Svavarsdóttir
Magnús S. Jónsson Þórhildur M. Gunnarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra sem auðsýndu
okkur samúð og hlýhug vegna andláts og
útfarar elskulegs föður okkar, tengdaföður,
afa og langafa,
Engilberts Hannessonar
frá Bakka í Ölfusi.
Jóhanna Engilbertsdóttir, Páll Jóhannsson,
Valgerður Engilbertsdóttir, Garðar Guðmundsson,
Svava Engilbertsdóttir, Gunnlaugur Karlsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á hjúkrunarheimilinu
Eir og hjartadeild 14 E Landspítala – háskólasjúkrahúsi.
Elsku móðir, tendamóðir og amma,
Sigrún Hjördís Eiríksdóttir,
andaðist föstudaginn 7. júlí á hjúkrunarheimilinu
Víðinesi. Jarðarförin verður auglýst síðar.
Haraldur Gunnarsson Lilja Hólm Ólafsdóttir
Eiríkur Haraldsson
Ólafur Aron Haraldsson.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda
samúð og vinarhug við andlát og útför
Ólafs Jóns Sigurjónssonar.
Börn, barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför elskulegs föður
okkar, tengdaföður, mágs, afa og langafa,
Leifs Sigurðssonar
rennismíðameistara, Sogavegi 168,
Reykjavík.
Guðmundur Ingi Leifsson Elín Einarsdóttir
Sigurður Leifsson Margrét Árný
Sigursteinsdóttir
Elías Halldór Leifsson Margrét Jónsdóttir
Guðrún Kristófersdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.