Fréttablaðið - 30.07.2006, Blaðsíða 6
6 30. júlí 2006 SUNNUDAGUR
2 fyrir 1 til
Ítalíu / Króatíu
19. júlí
frá kr. 19.990
Heimsferðir bjóða ótrúlegt
tilboð á síðustu sætunum til
Króatíu í ágúst. Króatía hefur
svo sannarlega slegið í gegn hjá
Íslendingum. Þú bókar og
tryggir þér sæti og 4 dögum
fyrir brottför færðu að vita hvar
þú gistir.
Stökktu til
Króatíu
9. ág st
frá kr. 49.990
Verð kr.
49.990
Netverð á mann, m.v. tvo
fullorðna með 2 börn,
2-11 ára, í íbúð í viku.
Flug, skattar, gisting og
íslensk fararstjórn.
Verð kr.
59.990
Netverð á mann, m.v. 2
í herbergi/stúdíó/íbúð í viku.
Flug, skattar, gisting og íslensk
fararstjórn.
SKÁK Grænlandshátíð Hróksins
verður haldin í fjórða skipti í
næstu viku. Efnt verður til fjölda
viðburða og mörg þorp heimsótt.
Hápunktur hátíðarinnar verður
IV. Alþjóðlega Grænlandsmótið í
Tasiilaq, dagana 5. og 6. ágúst.
Hrókurinn og Flugfélag Íslands
hafa staðið saman að landnámi
skáklistarinnar á Grænlandi frá
árinu 2003 þegar fyrsta skákmótið
í sögu Grænlands var haldið í
Qaqortoq á Suður-Grænlandi. Um
sjötíu manna sendinefnd kom frá
Íslandi, skipuð stórmeisturum,
íslenskum áhugamönnum, skóla-
fólki, og fulltrúum fyrirtækja og
fjölmiðla. Í mótslok var Skáksam-
band Grænlands stofnað að frum-
kvæði Hróksins.
Öll árin hefur verið efnt til
fjölda viðburða í tengslum við
hátíðina, allt frá listsýningum til
knattspyrnuleikja. Markmið Hróks-
ins og Flugfélags Íslands, auk þess
að breiða út skáklistina, er að efla
tengsl þjóðanna.
Fjölmargir standa að hátíðinni,
meðal annars Kalak, vinafélag
Íslands og Grænlands, Barnaheill,
Rauði krossinn, Kátu biskuparnir
í Hafnarfirði, skákfélag stúdenta
við HR og fleiri.
Íslenski leiðangurinn leggur af
stað frá Reykjavíkurflugvelli um
hádegisbil á morgun. - sdg
Fjórða Grænlandshátíð Hróksins og Flugfélagsins:
Kynna skáklistina
á Grænlandi
GLAÐIR SKÁKUNNENDUR Hér er teflt úti í blíðvirði í Tasiilaq á Grænlandi.
VEIÐIÞJÓFNAÐUR Veiðifélag Hafra-
lónsár hefur kært tvo félaga sem
strengdu net í leyfisleysi í Hafra-
lónsá á þeirra eigin landareign.
„Það er í gildi netaveiðibann og
bann við veiðum svona nærri
árósum,“ segir Marínó Jóhanns-
son, bóndi í Tunguseli og formað-
ur Veiðifélagsins. „Leigutakarnir
tveir á silungasvæðinu eru reiðir
yfir þessari uppákomu. Við vonum
að þetta hafi ekki fráhrindandi
áhrif á viðskiptavini.“
Hafralónsá er austarlega í
Þistilfirði, nálægt Þórshöfn, og
þykir góð laxveiðiá. Áin er í eigu
Veiðifélags Hafralónsár og voru
meintir veiðiþjófar meðal leigu-
sala árinnar. - sgj
Veiðiþjófnaður í Hafralónsá:
Strengdu net
í leyfisleysi
VÖRUMERKI Grétar Ingi Grétars-
son, lögfræðingur hjá Einka-
leyfastofunni, segir vörumerkja-
lög sjaldnast klippt og skorin.
„Þegar ruglingshætta er metin
þarf að meta heildarmyndina og
það þarf alltaf að setja sig í spor
neytandans. Aðalspurningin er
hvort neytandinn geti látið blekk-
ast af þessu eða ekki.“
Hann segir vörumerkjaskrán-
ingu eingöngu taka til orðsins
sem skráð er, en hún geti undir
vissum kringumstæðum helgað
beygingarmyndir orðsins. „Það
er eitthvað sem er metið í hverju
máli fyrir sig,“ segir Grétar Ingi
Grétarsson. - sþs
Lögfræðingur um vörumerki:
Heildarmynd
þarf að meta
VÖRUMERKI Mjólka íhugar að kæra
Osta- og smjörsöluna fyrir að nota
orðið Feta á sínar afurðir án leyfis.
Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir
að vörumerkið Feti sé lögform-
lega skráð og í eign Mjólku, og
fyrirtækið íhugi nú að krefjast
þess að Osta- og smjörsalan hætti
að nota orðið Feta á umbúðir sínar
þar sem það sé beygingarmynd
orðsins Feti.
Ólafur Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Mjólku, segir að í
ljósi ásakana Osta- og smjörsöl-
unnar um að Mjólka reyni að
blekkja neytendur með því að
herma eftir umbúðum Osta- og
smjörsölunnar, hafi forsvarsmenn
Mjólku ekki séð sér annað fært en
að skoða þetta mál.
Hann nefnir einnig að Grikkir
hafi hlotið alþjóðlega viðurkenn-
ingu á því að þeir eigi vörumerkið
Feta, og Mjólku sé kunnugt um að
stjórnvöld þar í landi hyggi á
aðgerðir gegn þeim framleiðend-
um sem nota vörumerkið á sínar
vörur í óleyfi.
„Okkar notkun á orðinu Feta á
ekkert skylt við orðið Feti, þetta
er bara hártogun vegna þess að
við höfum bent þeim á að þeir séu
að stæla okkar umbúðir,“ segir
Magnús Ólafsson, forstjóri Osta-
og smjörsölunnar. „Við höfum gert
könnun á þessu fetamáli eftir að
dómur féll í Evrópudómstóli og
teljum okkur vera í fullum rétti að
nota orðið.“ - sþs
Mjólka íhugar að kæra Osta- og smjörsöluna fyrir brot á vörumerkjalögum:
Segjast eiga vörumerkið Feta
GRÍSKUR FETAOSTUR Framkvæmdastjóri
Mjólku segir notkun Osta- og smjörsöl-
unnar á orðinu Feta vera beygingarmynd
orðsins Feti, sem sé eign Mjólku.
BJÖRGUN Sjómaður var hætt kom-
inn í fyrrinótt þegar vél bilaði í
bát hans. Var sjómaðurinn einn
um borð þegar atvikið átti sér stað
en bátinn rak í átt að Helguvíkur-
bjargi.
Kallaði maðurinn eftir aðstoð
björgunarsveita og náði bátur
Slysavarnarfélagsins Landsbjarg-
ar úr Keflavík að koma taug í bát-
inn áður en illa fór. Var hann dreg-
inn í land og varð manninum ekki
meint af. - öhö
Sjómaður hætt kominn:
Báturinn á reki
eftir vélabilun
Utanríkismálanefnd fundi Þing-
flokkur Vinstri grænna skorar á íslensk
stjórnvöld að gera allt sem í þeirra valdi
stendur til að stöðva frekari manndráp
og eyðileggingu í Líbanon. Þingflokkurinn
hefur óskað eftir því við forseta Alþingis
að utanríkismálanefnd komi saman til að
ræða þá stöðu sem nú er uppi.
UTANRÍKISMÁL
Lýsir yfir sigri Andrés Manuel López
Obrador lýsti því yfir í síðustu viku að
hann væri forseti Mexíkó, jafnvel þótt
enn hafi ekki verið með óyggjandi hætti
skorið úr því hvort hann eða Felipe
Calderón hafi borið sigur úr býtum í
kosningunum fyrr í þessum mánuði.
MEXÍKÓ
KJÖRKASSINN
Ert þú fylgjandi birtingu
álagningaskráa?
Já 68%
Nei 32%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Ætlar þú á útihátíð um
verslunarmannahelgina?
Segðu skoðun þína á Vísi.is
LAUNAMÁL Dæmi eru um að ungt
fólk sem vinnur í kvöld- eða
helgarvinnu fái greitt svokallað
jafnaðarkaup og fái þannig ekki
þau laun sem það á rétt á sam-
kvæmt kjarasamningum. Þrír
fyrrum starfsmenn Bónusvídeó í
Spönginni hafa staðfest við Frétta-
blaðið að greiðslur hafi verið með
þessum hætti hjá leigunni.
„Launamál heyra undir hverja
leigu fyrir sig. Hins vegar
munum við skoða þau ef í ljós
kemur að brotið sé á starfsmönn-
um,“ segir Þorvaldur Þorláksson,
framkvæmdastjóri Bónusvídeó-
keðjunnar. Hann segir að það sé
stefna Bónusvídeó að greiða laun
samkvæmt gildandi kjarasamn-
ingum hverju sinni.
Núverandi rekstraraðili Bónus-
vídeó í Spönginni, sem tók við
fyrir um mánuði, hvorki játaði né
neitaði að brotið hefði verið á
starfsmönnum en vildi ekki tjá sig
frekar um málið.
Fréttablaðið hefur undir hönd-
um launaseðil frá einum starfs-
mannanna en á hann vantar upp-
lýsingar um tímakaup og
vinnustundafjölda. Launagreið-
endum ber að láta þessar upplýs-
ingar koma fram á launaseðlum.
Þannig getur starfsfólk sjálft
fylgst með að ekki sé verið að
brjóta á því. Það er hins vegar
erfitt þegar upplýsingar vantar á
launaseðilinn, eins og er í þessu
tilfelli.
„Þegar fólk er að vinna um
kvöld og helgar er öll hætta á að
jafnaðarkaupið sé komið undir
lágmarkskjör. Fólk verður því að
gæta þess að fara vel yfir launa-
seðlana sína um hver mánaða-
mót,“ segir Snorri Kristjánsson
hjá kjarasviði VR.
Ekkert er til í kjarasamningum
sem heitir jafnaðarkaup, en það
var endanlega afnumið árið 2004.
Hins vegar hafa einhver fyrirtæki
haldið sig við það og þá samið við
starfsmenn sína.
Snorri segir að fólk verði að
gæta að því að jafnaðarkaupið sé
að lágmarki yfir þeim töxtum sem
kjarasamningar segja til um. Ef
svo er ekki eigi fólk að gera
athugasemdir, annað hvort við
vinnuveitendur sína eða hafa sam-
band við stéttarfélög.
hnefill@frettabladid.is
Ekkert til í kjarasamningum
sem heitir jafnaðarkaup
Fyrrverandi starfsmenn Bónusvídeó í Spönginni segjast hafa fengið jafnaðarkaup fyrir kvöld- og helgar-
vinnu. Launaseðlar innihéldu ófullnægjandi upplýsingar. Framkvæmdastjóri Bónusvídeó segir stefnu fyrir-
tækisins að greiða laun samkvæmt kjarasamningum. VR segir að fólk verði að fara vel yfir launaseðla sína.
BÓNUSVÍDEÓ Í SPÖNGINNI Dæmi eru um að starfsfólki sé greitt jafnaðarkaup en vinni að mestu á kvöldin og um helgar. FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN
SVEITARSTJÓRNARMÁL Samfylkingin
lagði fram tillögu í borgarráði í
liðinni viku um að kannaðar yrðu
leiðir til að koma á þráðlausri
nettengingu um alla Reykjavíkur-
borg. Málinu var frestað í bili, en
nái það fram að ganga munu
fartölvunotendur með tilskilinn
búnað geta komist á netið hvar
sem er í borginni, án fyrirhafnar.
Dagur B. Eggertsson, oddviti
Samfylkingar, segir borgina eiga
að vera í fararbroddi í þessum
málum í heiminum.
Björn Ingi Hrafnsson, formað-
ur borgarráðs, segir sjálfsagt að
skoða málið en kanna þurfi ýmis
álitaefni þessu tengd. - sgj
Tillaga fyrir borgarráði:
Þráðlaust net
um alla borg