Fréttablaðið - 30.07.2006, Síða 30
ATVINNA
12 30. júlí 2006 SUNNUDAGUR
Viðamiklar breytingar
urðu á úthlutun atvinnu-
leysisbóta um síðustu
mánaðamót með gildis-
töku nýrra laga.
Samkvæmt nýju lögunum
geta atvinnulausir sótt um
tekjutengdar atvinnuleysis-
bætur sem nema 70 pró-
sentum af heildarlaunum á
ákveðnu viðmiðunartíma-
bili en þó aldrei hærri en
185.400 kr. á mánuði.
Útborgun atvinnuleysis-
bóta breytist á þann hátt að
greitt verður fyrir einn
mánuð í einu sem nær yfir
tímabilið 20. til 19. næsta
mánaðar. Greitt verður út
fyrsta virka dag hvers mán-
aðar. Þann 1. ágúst verður
greitt fyrir tímabilið 1.-19.
júlí og 1. september verður
greitt fyrir tímabilið 20.
júlí-19. ágúst. Reglubund-
inni hálfsmánaðarlegri
stimplun hefur verið hætt
og í staðinn koma regluleg
samskipti við ráðgjafa.
Bótatímabil styttist einnig
úr fimm árum í þrjú ár.
Atvinnuleysisbætur eru
nú tekjutengdar. Fyrstu tíu
daga atvinnuleysis eru
greiddar út grunnatvinnu-
leysisbætur sem eru frá 1.
júlí kr. 110.015 á mánuði
m.v. 100% bótarétt. Eftir
þann tíma taka við tekju-
tengdar atvinnuleysisbætur
í þrjá mánuði sem eru reikn-
aðar 70% af heildarlaunum
á ákveðnu viðmiðunartíma-
bili en þó aldrei hærri en kr.
185.400 á mánuði. Þeir sem
sóttu í fyrsta sinn um
atvinnuleysisbætur 15. nóv-
ember 2005 eða síðar og eru
skráðir atvinnulausir 1. júlí
2006 geta samkvæmt nýjum
lögum sótt um tekjutengdar
atvinnuleysisbætur uppfylli
þeir skilyrði laganna. Þeir
sem kjósa að nýta sér þenn-
an rétt þurfa að sækja um
það fyrir 1. september 2006.
Eftir þann tíma fellur þessi
réttur niður.
Með nýju lögunum verða
gerðar meiri kröfur til
þeirra sem skráðir eru
atvinnulausir og fá greidd-
ar atvinnuleysisbætur um
virka atvinnuleit, að barna-
gæsla sé fyrir hendi og að
upplýsingum um allar
breytingar á vinnufærni
atvinnuleitanda sé komið
strax til Vinnumálastofnun-
ar.
Kröfur um virka
atvinnuleit
Nauðsynlegt er að fylgjast vel með atvinnuauglýsingum.
FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
FULLT STARF OG HLUTASTÖRF
10-11 óskar eftir duglegu og jákvæðu starfsfólki
í verslanir sínar á höfuðborgarsvæðinu.Við óskum
eftir starfsfólki í stöður vaktstjóra og þurfa umsækj-
endur að vera 20 ára. Einnig eru lausar stöður
almennra starfsmanna og þurfa umsækjendur að
vera 18 ára á árinu. Hjá okkur er andinn góður,
félagslíf er virkt og taka starfsmenn verslana vel á
móti nýliðum. Við bjóðum upp á margskonar vaktir,
sem geta hentað með skóla, eða annari vinnu. Um
er að ræða dagvaktir, kvöldvaktir og næturvaktir.
Umsækjendum er bent á að hægt er að sækja um
beint í verslunum okkar eða þá að senda inn
umsókn á netinu.
Umsóknum er hægt að skila á vefnum
www.10-11.is
- vi› rá›um
Skógarhlí› 12 • 105 Reykjavík • Sími 520 4700 • www.hagvangur.is
N‡ og glæsileg húsgagnaverslun, sem selur
vöndu› og falleg húsgögn, óskar eftir a›
rá›a til sín verslunarstjóra.
Verslunarstjóri
Helstu verksvi›:
Sölumennska/afgrei›sla í verslun.
Mannaforrá› yfir ö›ru sölufólki.
A› halda versluninni snyrtilegri og
a›la›andi.
Upprö›un í verslun.
Yfirumsjón me› lagerhaldi.
Samskipti vi› birgja erlendis.
Öll önnur störf sem falla til í versluninni.
Hæfniskröfur:
Vanur söluma›ur.
Fórnfús í starfi.
Hæfni í mannlegum samskiptum.
Áhugi á hönnun og húsgögnum.
Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is
fyrir 7. ágúst nk.
Númer starfs er 5744.
Uppl‡singar veitir Elísabet Sverrisdóttir.
Netfang: elisabet@hagvangur.is
Þjónustumenn í Garðabæ.
Kælismiðjan FROST ehf. óskar eftir að ráða þjónustu-
menn til framtíðarstarfa í starfsstöð sinni í Garðabæ.
Æskilegt er að umsækjendur:
- hafi reynslu af vinnu við kælikerfi,
- 2.-3. stig vélstjórnar, vélfræði-, eða sambærilega
menntun,
- geti unnið sjálfstætt,
- hafi góða þjónustulund,
Starf þjónustumanna er fjölbreytt og felst m.a. í
uppsetningu nýrra kælikerfa og breytingum og við-
haldi á eldri kerfum, reglubundinni þjónustu, fjar-
gæslu, og upptektum á kerfishlutum.
Kælismiðjan FROST ehf. rekur tvær starfsstöðvar;
á Akureyri og í Garðabæ.
Áhugasamir hafi samband við þjónustustjóra í
Garðabæ:
Charles Ó. Magnússon
Miðhrauni 22b
210 Garðabæ
Sími: 464 9450 / 897 8941
netfang: charles@frost.is
Kælismiðjan Frost ehf.
frost@frost.is * www.frost.is
Furðufi skar ehf. reka meðal annars
Kokkana veisluþjónustu, fi skborðin í
Hagkaupum og Osta og sælkeraborðið í
Hagkaupum Kringlunni.
Leitum eftir manneskju til að vera yfi r
og sjá um Osta- og Sælkeraborðið
í Hagkaupum Kringlunni.
Starfssvið:
• Innkaup og pantanir
• Starfsmannahald/mönnun vakta
• Laga brauð ofl . sem lagað er á staðnum
• Afgreiðsla úr Osta- og sælkeraborði
Nauðsynlegt er að umsækjendur hafi mikinn áhuga á mat
og matargerð eða séu fagmenntaðir.
Áhugasamir sendið tölvupóst á kokkarnir@kokkarnir.is eða
hringið í síma 511-4466 milli kl 9 og 17 á virkum dögum.
Furðufi skar ehf
Fiskislóð 81a,101 Reykjavík
Nokkur góð ráð
MÖRGUM ÞYKIR ERFITT AÐ MÆTA Í ATVINNUVIÐTAL. MEÐ ÖRLITL-
UM UNDIRBÚNINGI ÆTTI AÐ VERA HÆGT AÐ MINNKA STRESSIÐ.
1. Kynntu þér fyrirtækið vel.
Skoðaðu heimasíðu þess og
reyndu að afla þér upplýsinga
um stefnu fyrirtæksisins og
starf. Það getur líka verið
gagnlegt að tala við einhvern
sem hefur unnið hjá fyrir-
tækinu til þess að fá innsýn
í starfið.
2. Farðu í huganum í gegnum
þær spurningar sem vinnu-
veitandinn gæti spurt þig að.
Hvernig ætlarðu að svara?
3. Mundu að þú mátt líka
spyrja spurninga. Ekki vera
hrædd/ur við að spyrja út í
starfið eða fyrirtækið - það
sýnir að þú hefur áhuga
á starfinu.
4. Vertu snyrti-
lega klædd/ur,
þá líður þér
betur með sjálfa/n þig og
verður afslappaðri. Mundu
samt að glata ekki þínum
eigin stíl. Ekki fara í dragt
og háa hæla ef það er ólíkt
þínum hefðbundna klæðn-
aði. Vertu þú sjálf/ur.
5. Slakaðu á. Mundu að
þetta er eftir allt saman bara
atvinnuviðtal.