Fréttablaðið - 30.07.2006, Blaðsíða 45
ATVINNA
SUNNUDAGUR 30. júlí 2006 27
TæknimaðurSmith & Norland, Nóatúni 4, vill sem fyrst ráða tæknimann
(rafeindavirkja eða
rafvirkja) til starfa í þjónustudeild fyrirtækisins.
Starfið felur í sér viðgerðir og þjónustu á síma-
búnaði sem og öðrum veikstraumsbúnaði,
afgreiðslu varahluta, símsvörun og ýmis önnur
störf á þjónustuverkstæði okkar.
Leitað er að röskum og sjálfstæðum rafeindavirkja
eða rafvirkja sem hefur mikinn áhuga á þjónustu
og mannlegum samskiptum.
Góð enskukunnátta er æskileg.
Góð framkoma, snyrtimennska og reglusemi
eru skilyrði.
Um er að ræða gott framtíðarstarf hjá traustu
og framsæknu fyrirtæki.
Þeir sem áhuga hafa á þessu starfi eru beðnir að senda
umsókn til Smith & Norland með upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf fyrir miðvikudaginn 9. ágúst.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu Smith & Norland
og þau má einnig nálgast á heimasíðu fyrirtækisins,
www.sminor.is.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál
og öllum umsóknum verður svarað.XEIN
N
-
SN
0
6
07
0
02
Gripið & greitt vantar sölumann í þjónustu við
stærri viðskiptavini, s.s. mötuneyti, útgerðarfélög,
stóreldhús og veisluþjónustu. Við leitum að
öflugum sölumanni vönum fyrirtækjamarkaði
í fjölbreytt og skemmtilegt starf.
Nánari upplýsingar veitir Vigdís Gunnarsdóttir
í síma 575 2200 eða vigdis@gg.is.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Besti
sölumaðurinn
óskast!
Starfsmaður íþróttamiðstöðvar
Um er að ræða starf í íþróttamiðstöð Álftaness, frá
1. ágúst 2006. Unnið er á tvískiptum vöktum og annan
hvern laugardag. Starfið felst í léttum þrifum,
afgreiðslu og gæslu á börnum í sundi og í búnings-
klefum íþróttamiðstöðvar, ásamt öðrum þeim störfum
sem forstöðumaður kann að fela viðkomandi.
Leitað er að karlkyns starfsmanni vegna gæslu í karlaklefa.
Starfið innifelur samskipti við unga sem aldna og er gefandi fyrir
félagslega sinnað fólk.
Nánari upplýsingar er að fá hjá Stefáni Arinbjarnarsyni íþrótta- og
tómstundafulltrúa í síma: 565 2511 eða 821 5005. Einnig er tekið við
fyrirspurnum á netfang: stefan@alftanes.is
Starfsmaður í félagsmiðstöð
Um er að ræða starf frá 1. september 2006. Unnið er í
eftirmiðdaginn og á kvöldin, virka daga. Um er að ræða
starf með unglingum í frístundum þeirra.
Leitað er að drífandi fólki 20 ára og eldra, með reynslu af barna- og
unglingastarfi. Hæfniskröfur eru þekking og hæfni í leiklist, tónlist,
verkmenntun, tómstundum og/eða öðru félagsstarfi.
Nánari upplýsingar gefur Unnur Björk Arnfjörð forstöðumaður
félagsmiðstöðvarinnar í síma 821 5017 eða á netfanginu
fjoreggid@alftanesskoli.is