Fréttablaðið - 30.07.2006, Síða 47
ATVINNA
SUNNUDAGUR 30. júlí 2006 29
Starfslaun
listamanna
Hér með eru auglýst til umsóknar starfslaun
listamanna sem úthlutað verður árið 2007,
í samræmi við ákvæði laga nr. 35/1991 með
áorðnum breytingum.
Starfslaunin eru veitt úr fjórum sjóðum, þ.e.:
1. Launasjóði rithöfunda
2. Launasjóði myndlistarmanna
3. Tónskáldasjóði
4. Listasjóði
Umsóknir einstaklinga, ásamt fylgigögnum, skulu berast
skrifstofu Stjórnar listamannalauna, Hallveigarstöðum,
Túngötu 14, 101 Reykjavík, á þar til gerðum eyðublöðum
fyrir kl. 17:00 mánudaginn 2. október 2006.
Ef umsókn er send í pósti gildir póststimpill.
Umsóknir skulu auðkenndar “Starfslaun listamanna
2007” og tilgreindur sá sjóður sem sótt er um laun til.
Heimilt er að veita starfslaun úr Listasjóði til stuðnings
leikhópum enda verði þeim varið til greiðslu starfslauna til
einstakra leikhúslistamanna.
Umsóknir leikhópa til Listasjóðs fyrir einstaka leikhúslista-
menn, ásamt fylgigögnum, skulu berast skrifstofu Stjórnar
listamannalauna, Hallveigarstöðum, Túngötu 14, 101
Reykjavík, á þar til gerðum eyðublöðum fyrir kl. 17.00
mánudaginn 2. október 2006. Ef umsókn er send í pósti
gildir póststimpill. Umsóknir skulu auðkenndar “Starfs-
laun listamanna 2007 - leikhópar”.
Með umsókn skulu fylgja upplýsingar um náms- og
starfsferil, verðlaun og viðurkenningar. Jafnframt skal fylgja
greinargerð um verkefni það sem liggur til grundvallar
umsókninni ásamt upplýsingum um hve langan starfstíma
er sótt um og rökstuðningi fyrir tímalengd. Þessir þættir
skulu að jafnaði liggja til grundvallar ákvörðun um
úthlutun starfslauna
Athugið að hafi umsækjandi áður hlotið starfslaun verður
umsókn hans því aðeins tekin til umfjöllunar að hann
hafi skilað Stjórn listamannalauna skýrslu um störf sín í
samræmi við ákvæði 4. gr. laga um listamannalaun nr.
35/1991 með áorðnum breytingum.
Umsóknareyðublöð fást á vef Stjórnar listamannalauna
www.listamannalaun.is og á skrifstofu stjórnarinnar að
Hallveigarstöðum, Túngötu 14, 2. hæð.
Umsóknarfrestur rennur út mánudaginn 2. október nk.
Stjórn listamannalauna
28. júlí 2006
– Mest lesið
Þetta gæti tekið tíma
Er fasteignin þín ekki í mest lesna fasteignablaðinu?
Þegar hægist um á fasteignamarkaði er mikilvægara en nokkru sinni að auglýsa
á besta staðnum. Samkvæmt nýjustu könnun Gallup* lesa 40% fleiri Íslendingar á
aldrinum 25–49 ára Allt-fasteignir en Fasteignablað Morgunblaðsins. Vertu viss
um að eignin þín nái athygli sem flestra!
*Samkvæmt könnun Gallup, maí 2006
F
í
t
o
n
/
S
Í
AF
í
t
o
n
/
S
Í
A
ALLT SEM fiIG VANTAR ER Á VISIR.IS/ALLT
... sem flig vantar í
n‡ja húsnæ›i›
F
í
t
o
n
/
S
Í
A