Fréttablaðið - 30.07.2006, Side 47

Fréttablaðið - 30.07.2006, Side 47
ATVINNA SUNNUDAGUR 30. júlí 2006 29 Starfslaun listamanna Hér með eru auglýst til umsóknar starfslaun listamanna sem úthlutað verður árið 2007, í samræmi við ákvæði laga nr. 35/1991 með áorðnum breytingum. Starfslaunin eru veitt úr fjórum sjóðum, þ.e.: 1. Launasjóði rithöfunda 2. Launasjóði myndlistarmanna 3. Tónskáldasjóði 4. Listasjóði Umsóknir einstaklinga, ásamt fylgigögnum, skulu berast skrifstofu Stjórnar listamannalauna, Hallveigarstöðum, Túngötu 14, 101 Reykjavík, á þar til gerðum eyðublöðum fyrir kl. 17:00 mánudaginn 2. október 2006. Ef umsókn er send í pósti gildir póststimpill. Umsóknir skulu auðkenndar “Starfslaun listamanna 2007” og tilgreindur sá sjóður sem sótt er um laun til. Heimilt er að veita starfslaun úr Listasjóði til stuðnings leikhópum enda verði þeim varið til greiðslu starfslauna til einstakra leikhúslistamanna. Umsóknir leikhópa til Listasjóðs fyrir einstaka leikhúslista- menn, ásamt fylgigögnum, skulu berast skrifstofu Stjórnar listamannalauna, Hallveigarstöðum, Túngötu 14, 101 Reykjavík, á þar til gerðum eyðublöðum fyrir kl. 17.00 mánudaginn 2. október 2006. Ef umsókn er send í pósti gildir póststimpill. Umsóknir skulu auðkenndar “Starfs- laun listamanna 2007 - leikhópar”. Með umsókn skulu fylgja upplýsingar um náms- og starfsferil, verðlaun og viðurkenningar. Jafnframt skal fylgja greinargerð um verkefni það sem liggur til grundvallar umsókninni ásamt upplýsingum um hve langan starfstíma er sótt um og rökstuðningi fyrir tímalengd. Þessir þættir skulu að jafnaði liggja til grundvallar ákvörðun um úthlutun starfslauna Athugið að hafi umsækjandi áður hlotið starfslaun verður umsókn hans því aðeins tekin til umfjöllunar að hann hafi skilað Stjórn listamannalauna skýrslu um störf sín í samræmi við ákvæði 4. gr. laga um listamannalaun nr. 35/1991 með áorðnum breytingum. Umsóknareyðublöð fást á vef Stjórnar listamannalauna www.listamannalaun.is og á skrifstofu stjórnarinnar að Hallveigarstöðum, Túngötu 14, 2. hæð. Umsóknarfrestur rennur út mánudaginn 2. október nk. Stjórn listamannalauna 28. júlí 2006 – Mest lesið Þetta gæti tekið tíma Er fasteignin þín ekki í mest lesna fasteignablaðinu? Þegar hægist um á fasteignamarkaði er mikilvægara en nokkru sinni að auglýsa á besta staðnum. Samkvæmt nýjustu könnun Gallup* lesa 40% fleiri Íslendingar á aldrinum 25–49 ára Allt-fasteignir en Fasteignablað Morgunblaðsins. Vertu viss um að eignin þín nái athygli sem flestra! *Samkvæmt könnun Gallup, maí 2006 F í t o n / S Í AF í t o n / S Í A ALLT SEM fiIG VANTAR ER Á VISIR.IS/ALLT ... sem flig vantar í n‡ja húsnæ›i› F í t o n / S Í A

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.