Fréttablaðið - 30.07.2006, Side 60
30. júlí 2006 SUNNUDAGUR
Níels Hafstein og Magnhild-
ur Sigurðardóttir starf-
rækja Safnasafnið á Sval-
barðsströnd við Eyjafjörð
þar sem íslensk alþýðu- og
nútímalist er höfð í háveg-
um. Safnið hefur hingað til
verið heima hjá þeim hjón-
um en nú er verið að auka
húsakostinn allverulega.
„Við vorum orðin hálfþreytt á
þessum gesti í íbúðarhúsinu,“
segir Níels sposkur og á þar við
Safnasafnið sem þau hjónin settu
á stofn árið 1995. Þau hafa búið á
Svalbarðsströnd síðan 1998 og
haldið þar sjötíu sýningar á
alþýðu- og nútímalist. „Þetta safn
var stofnað gagngert til þess að
safna alþýðumyndlist íslensku
þjóðarinnar,“ útskýrir Níels. „Við
vorum sjálf búin að safna býsna
lengi og ferðuðumst á sínum tíma
um landið og keyptum listaverk.
Margir þessara listamanna voru
og eru ekki hátt skrifaðir og verk
þeirra lítils metin, sumir bjuggu
við fordóma og lítilsvirðingu.
Síðar þurftum við húsnæði til þess
að kynna þetta fyrir almenningi
og opinberum aðilum til þess að
fólk áttaði sig á þeim fjársjóðum
sem eru að glatast.“
Safneigin telur nú ríflega 3.000
listaverk en eins og Níels bendir á
eru mörg þeirra eftir listafólk sem
fæstir þekkja. „Merkilegustu
munirnir eru oft eftir þá sem eng-
inn þekkir.“ Meðal verkanna má
finna úrval teikninga eftir Ingvar
Ellert Óskarsson og verk Svövu
Skúladóttur, styttur eftir Sæmund
Valdimarsson og málverk Valdi-
mars Bjarnfreðssonar.
Söfnunin hefur undið talsvert
upp á sig því Níels útskýrir að eig-
inkona sín sé orðin ötull brúðu-
safnari og eigi nú um 1.100 brúður
sem verða áfram til sýnis í íbúðar-
húsi þeirra ásamt einstöku safni
ævintýralegra leikfanga sem þau
hafa einnig ástríðu fyrir að safna.
Miklar framkvæmdir standa
nú yfir á Svalbarðsströnd. Gamla
samkomuhúsið, sem er heimili
hjónanna, verður tengt með við-
byggingu við Kaupfélagshús Sval-
barðseyrar sem búið er að flytja á
lóðina og þegar safnið verður
opnað aftur næsta vor verður fer-
metratalan komin upp í tæplega
700.
„Við ætlum að opna með 20
sýningum í 10 sýningarrýmum
að meðtöldum útisýningum,“
segir Níels stoltur. „Hingað til
höfum við verið með ellefu sýn-
ingar á ári. Í nýja húsinu verður
listaverkageymsla, skrifstofur
og anddyri með kaffibar, safnbúð
og sýningarsalir auk fræðslu-
bókasafns. Í Kaupfélagshúsinu
verður salur og endurgerð af
einni elstu kvenfataverslun sem
stofnuð var í Reykjavík. Við feng-
um innréttingar og efni úr versl-
un Ásgeirs G. Gunnlaugssonar og
Co. sem var opnuð í Austurstræti
1 árið 1907 og eigum fyrir tals-
vert af munum sem tengjast
kvenlegri iðju.“
Í tengslum við svokallaða Sval-
barðsstrandarstofu verður einnig
aðstaða fyrir fræðafólk og nem-
endur sem vilja kynna sér sögu
eða málefni sem tengjast svæðinu
með möguleika á sýningarhaldi
afraksturs rannsóknarinnar í
Safnasafninu.
Með þeim hjónum starfar öfl-
ugur hópur sem unnið hefur að
uppbyggingu safnsins undanfarin
misseri. Ragnheiður Ragnarsdótt-
ir arkitekt teiknar viðbygginguna
og hannar útlit svæðisins en mynd-
listarmennirnir Harpa Björns-
dóttir og Magnús Pálsson hafa
einnig veitt liðsinni sitt.
Svalbarðsströnd er rétt fyrir
utan Akureyri og eins og Níels
áréttar tekur aðeins sjö mínútur
að renna þangað úr höfuðstað
Norðurlands. „Fallegasta útsýni á
landinu og engin ljós á leiðinni,“
segir hann kíminn að lokum.
kristrun@frettabladid.is
Skjólshús fyrir íslenska alþýðulist
STÓRHUGA BRAUTRYÐJENDUR Níels Hafstein á Safnasafninu sem stofnað var gagngert til þess að safna alþýðumyndlist íslensku þjóðarinnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA.IS
ÚR SAFNEIGNINNI Safnasafnið á nú yfir
3.000 listaverk eftir marga vanmetna en
stórmerka listamenn. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA.IS
Nú hyllir undir enn eina byltinguna í prentiðnaðinum. Dugmiklir
vísinda- og markaðsmenn hafa lagt höfuð sín í bleyti í sama balann
og diktað upp maskínu sem prentar heilu ritin á undrahraða. Líkja
menn þessari uppfinningu við espressókaffivélar sem finnast á
ófáum íslenskum eldhúsbekkjum og hafa leyst af hólmi uppáhell-
inguna enda töfra þær fram kaffibolla á augnabliki, svo næmar
eru þessar vélar að þær nýjustu hrökkva víst í gang við tilhugsunina
eina.
Með einu handtaki geta lesendur framtíðarinnar eignast eintak
af allra handa bókum því þessi litla vél prentar bækurnar eftir
pöntunum og skilar 300 síðna doðranti, með litprentaða kilju-
kápu, innbundinni á innan við þremur mínútum. Ef bókaútgefendur
og bóksalar taka höndum saman og fagna uppfinningunni má búast
við að starfsmenn bókaverslana þurfi aldrei framar að paufast um
með bakverk eða önnur álagsmeiðsl.
Vikuritið Newsweek greinir frá því að verið sé að prófa þessa
expressó-útgáfuvél í banka einum í bandaríska höfuðstaðnum og
að bókasafnið í Alexandríu í Egyptalandi hafi í hyggju að festa kaup á
gripnum með haustinu.
Expressó útgáfa á leiðinni
BÆKUR Í VÖKVAFORMI? Töluvert lager-
rými sparast ef bækur verða prentaðar
á staðnum.
Sjötta ljóðabók Þórs Stefánssonar
er komin út hjá Deus-útgáfunni.
„Ljóðin í þessari bók eru öll í
bundnu máli en titillinn er kominn
til af því að ég hafði hugsað mér
að hægt væri að syngja þau,“ segir
Þór og getur þess að þegar sé búið
að semja lög við tvö ljóðanna og
gefa þau út á hljómdiski. Þór
kveðst hafa ort á sínum unglings-
árum en tekið upp þráðinn aftur á
síðari árum. „Ég hef gaman af því
að leita í bragina,“ segir hann.
„Ljóðin mín fjalla um allt milli
himins og jarðar
eins og nöfn
þeirra bera með
sér,“ segir Þór
en í bókinni eru
til dæmis ljóð
sem bera heitin
„Kettir og blóm“
og „Bandið rokk-
ar feitt“.
Bókin fæst í
öllum helstu bóka-
verslunum. - khh
Leitað í bragina
NÝ BÓK EFTIR ÞÓR STEFÁNSSON
Kápumynd hannar málarinn Sigurður
Þórir.
Partí í poka!
Með sérhannaða vasa fyrir
farsíma og MP3 spilara. Bæði
tækin geta tengst innbyggðum
hátölurum bakpokans.
Verð fyrir Og1
viðskiptavini
7.900 kr.
Verð fyrir eigendur
Vodafone live! síma
9.900 kr.
Almennt verð
12.900 kr.
Nokia 6230i
Tilboðsverð: 24.900 kr.
Verð áður: 28.900 kr.
Vodafone live!
20% afsláttur
af öllum handfrjálsum búnaði
Vantar þig síma?
Án handa!
menning@frettabladid.is
„Í eldlínu báðir standa
og skiptast þá jafnan á
að bjarga hvor öðrum úr vanda
sem herjar þá báða á.
Ræningjadrasl og lýður
Láka oft skjóta á
en Láki samt snöggur sem skugginn
að klappa þeim hausinn á.“
Hallbjörn Hjartarsson samdi lagið um Lukku Láka við texta Jóns Víkingssonar. Lagið
kom meðal annars út á plötunni Kántrý 7: það besta árið 1994.
Aðsóknarmesta sýning
síðasta leikárs!
Drepfyndinn
gamanleikur í Reykjavík!
Miðasala er þegar hafin!
Miðasala í síma 551 4700 // opið 13:00-17:00 // www.midi.is //Austurbæjarbíó – Snorrabraut 37
Laugardaginn 12. ágúst kl. 20:00
Föstudaginn 18. ágúst kl. 20:00
Laugardaginn 19. ágúst kl. 20:00
Laugardaginn 26. ágúst kl. 19:00
Laugardaginn 26. ágúst kl. 22:00
Á ÞAKINU