Fréttablaðið


Fréttablaðið - 30.07.2006, Qupperneq 61

Fréttablaðið - 30.07.2006, Qupperneq 61
SUNNUDAGUR 30. júlí 2006 25 Postulín, glös og hnífapör – fyrir brúðhjón og betri veitingahús R V 62 10 Opn una rtím i í ve rslu n RV : Mán udag a til föstu daga frá k l. 8:0 0 til 18:0 0 Laug arda ga f rá kl. 1 0:00 til 1 4:00 Föstudag 21. júlí kl. 20 uppselt Laugardag 22. júlí kl. 20 uppselt Sunnudag 23. júlí kl. 15 aukasýning Sunnudag 23. júlí kl. 20 uppselt Föstudag 28. júlí kl. 20 örfá sæti laus Laugardag 29. júlí kl. 20 örfá sæti laus Sunnudag 30 júlí kl 15 aukasýning Sunnudag 30. júlí kl. 20 nokkur sæti laus Föstudagur 4. ágúst kl. 20 Laugardagur 5. ágúst kl 20 Sunnudagur 6. ágúst kl. 15 Sunnudag 6. ágúst kl. 20 Laugardagur 19. ágúst kl 20 Tvíréttaður kvöldverður og leikhúsmiði kr. 4300 - 4800.-Söngmenn Karlakórs Reykjavíkur leggja upp í söngferðalag um Þýskaland og Austurríki eftir helg- ina og mun kórinn halda ferna tón- leika í ferðinni. Kórinn mun koma fram á opnunarhátíð alþjóðlegrar söngráðstefnu í Salzburg auk þess að syngja í dómkirkjunni þar í borg og við messu í Stephansdom í Vín. Með í för verða sópransöngkon- an Sigrún Hjálmtýsdóttir og Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleik- ari. Stjórnandi kórsins er Friðrik S. Kristinsson. Á efnisskrá tónleikanna verða bæði íslensk og norræn kórlög auk sígildra verka eftir meistarana Rossini, Verdi, Mozart, Schubert, Beethoven, Bruckner og Grieg. Þess má geta að í austurrísku borginni Graz munu kórfélagar hitta Pál Pampichler Pálsson, fyrr- verandi kórstjóra Karlakórs Reykjavíkur. - khh Meginlandið bíður KARLAKÓR REYKJAVÍKUR Á faraldsfæti um Evrópu. HVAÐ? HVENÆR? HVAR? JÚLÍ 27 28 29 30 31 1 2 Sunnudagur ■ ■ TÓNLEIKAR  13.30 Friðrik Vignir Stefánsson organ- isti heldur tónleika í Grundarfjarðarkirkju.  15.00 Tónleikar í Skálholtskirkju. Bachsveitin leikur verk eftir Locatelli, Quantz og Mozart. Leiðari er Kati Debretzeni.  16.00 Tónlistarhátíð í Reykholti. Hljómsveitin Virtuosi di Praga flytur verk eftir Respighi, Dvorák og Samuel Barber. Stjórnandi er Oldrich Vleck.  16.00 Stofutónleikar á Gljúfrasteini, Píanóleikarinn Jón Sigurðsson verk eftir W. A. Mozart, Richard Strauss, J. S. Bach og W. A. Rossi.  17.00 Eitt hundruðustu sumartónleikar Akureyrarkirkju. Fram koma Margrét Bóasdóttir sópran og Björn Steinar Sólbergsson orgelleikari en auk þeirra leikur Nicole Vala Cariglia á selló.  20.00 Bine Bryndorf, prófessor í org- elleik við Konunglega Tónlistarháskólann í Kaupmannahöfn heldur tónleika í Hallgrímskirkju í tilefni af Alþjóðlegu orgelsumri.  20.30 Margret Ponzi sópransöngkona og Marco Belluzzi orgelleikari halda tón- leika í Akraneskirkju.  21.00 Hljómsveitin Blue Brazil leikur á Kringlukránni. ■ ■ LEIKLIST  16.00 Einleikurinn Úti bíður and- lit á glugga eftir Halldóru Malín Pétursdóttir er sýndur í gamla póst- húsinu á Borgarfirði eystri. Önnur sýning kl. 17.30. Um þessar mundir eru sjötíu ár liðin frá upphafi borgarastyrjaldarinnar á Spáni. Þann 17. júlí risu nokkrir herforingjar af hægri vængnum, undir for- ystu Francisco Franco, upp gegn ríkisstjórn hins unga lýðveldis landsins og innan við viku síðar höfðu þeir tryggt sér stuðning Mussolinis á Ítalíu og Hitlers í Þýskalandi. Hrikaleg borgarastyrjöld, sem stóð í þrjú ár, var hafin. Frjálslyndir og vinstrisinnar í allri Evrópu skynjuðu Spánarstríðið þar af leiðandi sem fyrsta alvöru möguleikann til að stöðva framrás fasismans í álfunni. Og sennilega hefur ekkert stríð á 20. öld verið rithöfundum og menntamönnum á Vesturlöndum jafn mikil herhvöt. Það var beinlínis vakn- ing meðal þeirra, ekki síst á Englandi þar sem menn höfðu megna skömm á hlutleysisafstöðu bresku ríkisstjórnarinnar. Hver um annan hvöttu skáld og rithöfundar starfsbræður sína og landa til að taka afstöðu og gengu margir á undan með góðu fordæmi og lögðu lýðveldinu lið með því að gerast félagar í Alþjóðaherdeildunum svonefndu. Ljóðskáldið Stephen Spender lýsti því yfir, í sönnum krossferðaranda, að nú væri hafin barátta ljóss og myrkurs í Evrópu. Áður en árið var liðið höfð eitt þúsund manns munstrað sig í þessar sveitir og voru menntamenn í miklum meirihluta. Óhermannleg fylking Þetta hefur ekki verið hermannleg fylking sem að miklu leyti var skipuð skáldum og rithöfundum, en hugsjónakrafturinn var þeim mun meiri. Sumir guldu fyrir með lífi sínu, einsog Christopher Cauldwell og Julian Bell, bróðir Virginu Woolf, aðrir særðust lífshættulega einsog George Orwell. Meira að segja jafn ómilitarískur maður og eitt helsta ljóðskáld Breta á öldinni, W. H. Auden, lét sig dreyma um að leggja lýðveldinu lið, þó ekki væri nema með því að aka sjúkrabíl. Enn voru þeir höfundar sem fóru til Spánar þar sem styrjöldin varð þeim uppspretta stórbrotinna skáldsagna, einsog Ernest Hemingway (Hverjum klukkan glymur) og André Malraux (Vonin). Meðal fjölmargra annarra skálda sem fóru til Spánar voru jafn ólíkir höfundar og Ilja Ehrenburg og Arthur Koestler, Erika Mann (dóttir Tómasar) og Dorothy Parker. Íslenskir vinstrimenn létu sig spænsku borgarastyrjöldina miklu varða og hvöttu til stuðnings við lýðveldisstjórnina, þeirra á meðal Halldór Lax- ness sem átti leið um Spán um það leyti sem stríðið hófst, og var vitni að því þegar hermenn fasista misþyrmdu stjórnmálamanni úr hópi spænskra lýðveldissinna. Og þrír Íslendingar fóru til Spánar til að berjast með alþjóða- sveitunum. Þeir voru reyndar ekki rithöfundar en einn þeirra, Hallgrímur Hallgrímsson, skrifaði seinna bók um för sína: Undir fána lýðveldisins. Endurminningar frá Spánarstyrjöldinni. Og það var meðal annars á reynslu og frásögn hans sem Álfrún Gunnlaugsdóttir byggði nýlega skáldsögu sína, Yfir Ebrófljótið. Tálsýnir krossfaranna En skáldakrossferðin varð ekki sigursæl. Franco og liðsmenn hans fóru með sigur af hólmi og héldu völdum mörgum áratugum lengur en hinir ítölsku og þýsku bandamenn þeirra. Og margir þeirra rithöfunda sem komust heim voru kalnir á hjarta, einsog sjá má af frægri bók Orwells, Homage to Catalonia. Það var einkum innbyrðis sundrung lýðveldissinna og harðsvíruð framganga sovétkommúnista gagnvart pólitískum andstæðingum á vinstri væng sem varð þeim áfall. Orwell hafði gengið til liðs við andstalíníska vinstriflokkinn POUM og upplifði ósköpin sjálfur. Í nýlegri úttekt vitnaði breska blaðið Independent til orða hans úr fyrrnefndri bók: „Ég held að það sé ekki hægt að vera nokkrar vikur á Spáni án þess að glata mörgum tálsýnum. Og hvað varðar blaðaskrifin um að þetta hafi verið stríð í þágu lýðræðisins eru þau hreinn blekkingaleikur.“ Franco er löngu allur og lýð- ræðið stendur traustum fótum á Spáni. En eftir krossfarana liggur andlegt herfang þeirra, fjöldi merkra bókmenntaverka um hörmungar styrjaldarinn- ar. Og enn standa óhögguð þau orð sautjándu aldar skáldsins John Donne, sem Hemingway sótti bókartitil sinn í: „Dauði sérhvers manns smækkar mig, af því ég er íslunginn mannkyninu; spyr þú því aldrei hverjum klukkan glymur, hún glymur þér.“ Halldór Guðmundsson Skáldakrossferðin HALLDÓR GUÐMUNDSSON > SKRIFAR UM BÓKMENNTIR Aðalsteinn Ingólfsson listfræð-ingur verður með leiðsögn um sýninguna „Kraftur heillar þjóðar“ í Gerðarsafni, Listasafni Kópavogs, í dag en henni lýkur nú um helgina. Sýningin geymir einstakt safn verka málarans Jóhannesar S. Kjarvals sem eru í eigu Landsbankans. Fjölmarg- ir gestir, bæði innlendir og erlendir, hafa lagt leið sína á safnið enda um einstakt tæki- færi að ræða að sjá þessi verk en um síðustu helgi komu yfir 100 manns og hlýddu á fróðleik Aðalsteins um sýninguna. Leiðsögnin hefst kl. 15 en safnið er opið til kl. 17. Aðgangur að sýningunni er ókeypis. - khh Sýningu að ljúka LANDSLAGS OG PORTRETTMYNDIR Úrval verka málarans í eigu Lands- bankans. Píanóleikarinn Jón Sigurðsson leikur á stofutónleikum á Gljúfra- steini í dag og verður enginn svik- inn af smá bíltúr í Mosfellssveit- ina því Jón mun leika fjölbreytta af fjölbreyttri efnisskrá sem spanna mun vítt svið tónlistar- sögunnar. Meistararnir Mozart, Strauss og Bach munu heyrast og auk þess vals eftir W. A. Rossi. Jón Sigurðsson lærði hjá Helgu Laxness á sínum tíma en hann hefur haldið fjölda einleikstón- leika og komið fram með mörg- um af færustu hljóðfæraleikurum og söngvurum á Íslandi auk þess að leika inn á hljómplötur. Hús Halldórs Laxness og Auðar konu hans á Gljúfrasteini er opið alla daga nema mánudaga en þar er lögð áhersla á að sýna heimili og vinnustað Halldórs eins og það var í sinni tíð. Fjölmörg listaverk prýða húsið, meðal annars verk eftir Svavar Guðnason, Nínu Tryggvadóttur og Jóhannes Kjar- val. Sumartónleikar á sunnudög- um hafa fest sig í sessi í safninu og hafa fjölmargir þekktir lista- menn komið þar fram í sumar. Tónleikarnir hefjast sem fyrr klukkan 16.00. - khh Flygillinn í stofunni JÓN SIGURÐSSON Leikur á Steinway-flygilinn í stofu skáldsins. MYND/HÖRÐUR SVEINSSON 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI 17. ágúst - kl. 20:00 - laus sæti 18. ágúst - kl. 20:00 - laus sæti 24. ágúst - kl. 20:00 - laus sæti 25. ágúst - kl. 20:00 - laus sæti
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.