Fréttablaðið - 30.07.2006, Side 63

Fréttablaðið - 30.07.2006, Side 63
Chris Cornell, söngvari og laga- höfundur Audioslave, Soundgar- den og Temple of The Dog, mun flytja aðallag Casino Royale, nýj- ustu James Bond-myndarinnar sem frumsýnd verður í nóvember. Lagið, „You know my name“, er samið í samvinnu við Bond-laga- smiðinn David Arnold. Engu mun- aði að Cornell hefði neitað að gera Bond-lagið því honum líkaði ekki við Pierce Brosnan í nýjustu mynd- unum. Eftir að hafa séð grófa klippingu af myndinni með Daniel Craig í aðalhlutverki snerist honum hugur. „Ég var ekki viss um hvort þetta væri góð hugmynd, því ég er ekki mikill aðdáandi síð- ustu mynda. Svo heyrði ég að það yrði nýr leikari, Daniel Craig, sem væri Bond. Og hann er allt öðru- vísi,“ sagði Craig við VH1, en hann flaug til Prag í Tékklandi þar sem upptökur stóðu yfir til að sjá fyrstu útgáfuna af myndinni. „Hún kom mér rosalega á óvart. Hún er ólík öllum hinum myndunum. Craig er alvöru leikari og það eru alvöru tilfinningar í henni. Hann er manneskja af holdi og blóði og mun gjörbreyta hvernig fólk lítur á persónuleika Bond,“ sagði Craig. Cornell er nú kominn í hóp listamanna á borð við Madonnu, Sheryl Crow, Paul McCartney og Wings, Tom Jones, Tinu Turner og Duran Duran sem flutt hafa Bond-lög. Hins vegar eru fáir flytjendurnir sem eru einnig höf- undarnir að lögunum, en McCartn- ey og Wings, Crow og Madonna hafa auk Cornells verið lagahöf- undar Bond-laganna. „Ég hef alltaf verið mjög hrifin af verkum Chris, bæði sem laga- höfundi og sem listamanni, og hafði vonað að einhvern tímann myndi ég finna réttu myndina til að veita honum innblástur,“ sagði Lia Vollack, starfsmaður Colombia Pictures. „Tónlistin hans er bæði innileg og hörð. Þetta er fullkomin viðbót fyrir Daniel Craig og Casino Royale.“ Bond-lagið í höndum Cornell CHRIS CORNELL Cornell er hljómsveitarmeðlimur Audio- slave og hinnar sálugu Soundgarden. Eins og kunnugt er ætlar Playboy- fyrirsætan og leikkonan Pamela Anderson að ganga í það heilaga með rokkaranum Kid Rock í St. Tropez á laugardaginn. Gestalistinn er ekki af verri endanum en þar má finna nöfn eins og Cindy Crawford og Paris Hilton. Einnig mun tískuljósmyndar- inn David LaChapelle vera brúðar- sveinn og Jim Carrey verður við- staddur. Ekki verður hefðbundin brúðarveisla að athöfninni lokinni en fyrirhuguð er risastór veisla á Nikki Beach þar sem eflaust mun vera mikið um dýrðir. Parið ætlar að halda fimm athafnir til að fagna því að það hefur gengið í það heilaga. Giftist fimm sinnum PAMELA ANDERSON Gengur í það heilaga um helgina í St.Tropez með rokkaranum Kid Rock. Jack Sparrow og félagar hans í Pirates of the Caribbean: Dead Man’s Chest, fara vel af stað í kvikmyndahúsum á Íslandi en myndin var frumsýnd á miðviku- dag. Aldrei hafa fleiri mætt á kvikmynd á frumsýningardag á virkum degi en rétt innan við 5.000 manns sáu myndina á miðviku- daginn. Á föstudagsmorgun höfðu um 10.000 manns mætt á myndina frá því að sýningar hófust og upp- selt hefur verið á allar kvöldsýn- ingar í bíóhúsunum. Myndin hefur fengið ágætis dóma heima og erlendis en greinilegt er að Jack og félagar hafa eitthvað til að bera sem lokkar áhorfendur að. Sjóræningjarnir slá í gegn SJÓRÆNINGJARNIR Johnny Depp sér um að myndin sé nógu kúl, Keira Knightley færir myndinni kynþokka og Orlando Bloom bætir við krúttlegheitum. UMFJÖLLUN [TÓNLIST] Partísveit Bobby Gillespie er sér á báti. Þetta er ein af fáum sveitum sem geta gefið út plötu án þess að hlustandinn viti fyrirfram hvað bíður hans. Fyrsta plata sveitar- innar var alls ekki svo langt frá The Jesus and Mary Chain sem Bobby trommaði með áður. Hann sló þó ekki í gegn fyrr en með dansklúbbalaginu Loaded, sem hann fylgdi svo eftir með gospel- popplaginu Movin´on Up og hippa- laginu Higher then the Sun en þau var öll að finna á meistarastykk- inu Screamadelica. Sú plata seld- ist í milljónum eintaka í Bretlandi og víðar. Bobbie hamraði járnið meðan það var heitt, setti sig í Mick Jagger gírinn og sló aftur í gegn með Rolling Stones(lega) laginu Rocks en síðan þá hefur hann borið á borð allt frá hörðustu big-beat elektróník til keyrslu- rokks. Nú er engu líkara en að Bobby og félagar hafi uppgötvað blús- hunda á borð við Howlin Wolf, Muddy Waters, Chuck Berry eða Sonny Boy Williamson. Áhrif frá Keith Richards eru líka enn áber- andi því Riot City Blues er full af slide-gíturum, blúslegu kassa- gítarspili, honky-tonk píanói og kunnuglegum krókum. Opnunar- lagið Country Girl skartar til að mynda harmonikku og mandólíni sem er kannski óður til bluegrass- tónlistar þó lagið sé bara venju- legt blúsrokk. Það væri auðveld- lega hægt að dansa línudans við þetta lag sem og reyndar önnur á þessari plötu. Öll lögin eru sniðin fyrir partíið nema Little Death og Sometimes I Feel So Lonely sem eru bæði á niðurtúrnum. Í Little Death stelur Bobby bassalínunni úr The End með The Doors og semur annað lag utan um hana en það tekst alveg ágætlega hjá honum. Síðar- nefnda lagið minnir örlítið á Neil Young, sérstaklega þegar stelpu- kórinn syngur viðlagið. Bobby er nokkuð skemmtileg- ur tónlistarmaður sem starfar svolítið eins og leikari sem getur algjörlega orðið að þeirri persónu sem hann er að túlka. Í þetta skipt- ið er Bobby blúsari og Riot City Blues virkar sem gjörsamlega hrein blús-kántríplata. Og sem slík er hún alveg bara sæmileg. Að sama skapi neyðast aðdáendur Primal Scream að sætta sig við að á hverri plötu hljómar Primal Scream eins og ný hljómsveit. Birgir Örn Steinarsson Blúsrokk partí PRIMAL SCREAM: RIOT CITY BLUES Niðurstaða: Á nýjustu plötu Primal Scream er að finna stuðandi blúsrokk. Bobby Gillespie setur sig örlítið aftur í hlutverk Mick Jagger og er í feikna stuði. DANIEL CRAIG Var ástæða þess að Cornell vildi semja lagið fyrir næstu Bond-mynd.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.