Fréttablaðið - 30.07.2006, Page 64
28 30. júlí 2006 SUNNUDAGUR
sport@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
JÚLÍ
27 28 29 30 31 1 2
Sunnudagur
■ ■ LEIKIR
18.00 ÍA og FH mætast í Lands-
bankadeild karla í fótbolta.
■ ■ SJÓNVARP
11.30 Formúlan á Rúv. Bein
útsending frá þýska kappakstrinum.
21.40 Íslandsmótið í golfi á Sýn.
Bein útsending frá lokadeginum.
21.40 Helgarsportið á Rúv.
23.45 MÍ í frjálsum á Rúv.
Samantekt frá móti helgarinnar.
HANDBOLTI Fram verður í F-riðli
Meistaradeildar Evrópu í hand-
bolta en í gær var dregið í riðla.
Það er ekki hægt að segja annað
en að Fram hafi fengið sannkallað-
an drauma drátt en með þeim í
riðli verða Celje Pivovarna Lasko
frá Slóveníu úr fyrsta styrkleika-
flokki, Gummersbach frá Þýska-
landi úr öðrum flokki og svo að
öllum líkindum Sandefjord frá
Noregi.
„Það er stórkostlegt að fá
tækifæri til að etja kappi við
Gummersbach sem er náttúrulega
stórveldi í þýskum handbolta. Svo
gerir það þetta enn skemmtilegra
að liðið er með tvo fyrrum leik-
menn Fram,“ sagði Guðmundur
Guðmundsson, þjálfari Fram, sem
var í skýjunum með dráttinn í
gær.
Alfreð Gíslason er nýtekinn við
þjálfun liðsins og með því leika
síðan íslensku landsliðsmennirnir
Guðjón Valur Sigurðsson, Róbert
Gunnarsson og Sverrir Björnsson.
Þeir tveir síðarnefndu eru fyrrum
leikmenn Fram en Sverrir lék með
Safamýrarliðinu á síðustu leiktíð,
en gekk nýlega til liðs við
Gummersbach á stormasaman
hátt eins og frægt er orðið. Fyrsti
leikur Fram verður einmitt á
heimavelli gegn Gummersbach og
má reikna með stútfullri Laugar-
dalshöll en leikurinn fer fram á
tímabilinu 30. september til 1.
október.
Fram leikur heimaleiki sína
gegn Gummersbach og Celje
Lasko að öllum líkindum í Laugar-
dalshöllinni en leikurinn gegn
Sandefjord gæti farið fram í
íþróttahúsi félagsins í Safamýri.
„Við erum fyrirfram kannski ekki
taldir líklegir til afreka í þessum
riðli. Celje Lasko er mjög sterkt
lið sem hefur verið í fremstu röð
undanfarin ár og Gummersbach
er náttúrulega frábært lið. En við
tökum þátt í þessari keppni til að
ná árangri, ekki bara til að vera
með. Það verður síðan að koma í
ljós hvernig okkur reiðir af, við
erum með ungt lið og það hafa
verið umtalsverðar breytingar á
liðinu. Við þurfum að púsla saman
nýrri vörn og því erfitt að meta
styrk liðsins í svona alþjóðlegum
bolta.“
Guðmundur er strax farinn að
hlakka til að mæta Gummersbach
og segir að ekki sé hægt að ímynda
sér skemmtilegri leik. Alfreð Gísla-
son tekur í sama streng. „Liðin úr
okkar styrkleikaflokki voru dregin
síðust og þegar ég var búinn að sjá
riðlana vonaðist ég strax til þess að
við myndum lenda í þessum F-riðli
og það er frábært að það hafi orðið
að veruleika,“ sagði Alfreð sem
vonast eftir hörkustemningu þegar
hans menn mæta á klakann.
elvargeir@frettabladid.is
Stórkostlegt tækifæri
Framarar verða í riðli með Gummersbach í Meistaradeild Evrópu í handbolta
en dregið var í gærmorgun. Tveir fyrrum Framarar spila með Gummersbach.
HVER SKRIFAÐI HANDRITIÐ? Varnarmaðurinn sterki Sverrir Björnsson fær að etja kappi við
sína fyrrum félaga í Fram í Meistaradeildinni en hér er hann í leik með félaginu í fyrra.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FÓTBOLTI Eiður Smári Guðjohnsen
lék sinn fyrsta leik með Evrópu-
meisturum Barcelona er liðið
mætti danska liðinu AGF í Árósum
á föstudagskvöldið. Eiður var ekki
í byrjunarliðinu en kom inn á í
síðari hálfleik og átti heiðurinn að
þriðja og síðasta marki liðsins en
þeim dönsku tókst ekki að komast
á blað.
Eiður átti skot að marki sem
markvörður danska liðsins varði
en síðan fór boltinn í varnarmann
AGF og í netið. Leikurinn þótti
heldur bragðdaufur en Eiður
Smári komst vel frá sínu. Hann
lék einn í stöðu framherja hjá
Barcelona. Frank Rijkaard, þjálfari
liðsins, ákvað að gefa mörgum
ungum leikmönnum tækifæri en
eins og gefur að skilja var mikið
um skiptingar hjá báðum liðum.
Þjálfari danska liðsins var þó heldur
duglegri en Rijkaard en alls komu
23 leikmenn AGF við sögu í leikn-
um.
Eiður Smári var vel studdur á
áhorfendapöllunum af nokkrum
leikmönnum U-17 liðs Vals í
kvennaflokki, sem tekur þátt í
svokölluðu Football-Festival móti
í Árósum þessa dagana. Eiður
Smári gekk sérstaklega upp að
Valsstúlkum eftir leikinn og
þakkaði þeim stuðninginn og
komuna.
Mikill áhugi var meðal danskra
fjölmiðla á liði Barcelona og var
Eiður Smári spurður hvort hann
þekkti vel til landa síns sem þar til
fyrir skömmu lék með liði AGF. Sá
var Helgi Sigurðsson og sagðist
Eiður kannast vel við kauða.
„Ég spilaði marga leiki með
Helga og hann er kómískur
karakter,“ sagði Eiður Smári í létt-
um dúr. „Hann myndi gera næstum
hvað sem er til að skora mark.
Hann gat hlaupið endalaust.
Skemmtilegur persónuleiki, bæði
innan vallar og utan,“ sagði Eiður
og brosti.
Lið Barcelona heldur áfram
æfingaferð sinni og heldur næst
til Bandaríkjanna.
- esá
Eiður Smári Guðjohnsen var vel studdur af Valsstúlkum í Árósum á föstudag:
Eiður Smári lék vel í sínum fyrsta leik
TAKK FYRIR STUÐNINGINN Eiður Smári þakkar Valsstúlkunum og öðrum áhorfendum fyrir
stuðninginn eftir leikinn á föstudag. FRÉTTABLAÐIÐ/OLE NIELSEN
GOLF Kylfingurinn Heiðar Davíð
Bragason úr Kili er nú staddur í
Lettlandi þar sem hann er að taka
þátt í móti í Riga. Mótið er hluti af
sænsku mótaröðinni í golfi en
Heiðar lék vel í gær eða á 69 högg-
um sem er þremur höggum undir
pari vallar. Hann er því samtals á
tveimur höggum undir pari og
komst í gegnum niðurskurðinn
fyrir lokadaginn sem verður í dag.
54 holur eru leiknar á mótinu.
- egm
Sænska mótaröðin í golfi:
Heiðar Davíð
lék vel í gær
HEIÐAR DAVÍÐ Gekk vel í Lettlandi í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FÓTBOLTI Keppni í skoska fótboltan-
um hófst í gær og byrjuðu meistar-
arnir Glasgow Celtic af krafti með
4-1 sigri á heimavelli gegn
Kilmarnock. Majiej Zurawski skor-
aði fyrsta mark tímabilsins en
hann skoraði tvö mörk fyrir Celtic
í gær. Miðjumaðurinn Jiri Jarosik
skoraði í sínum fyrsta mótsleik
fyrir Celtic en hitt mark liðsins
gerði Shunsuke Nakamura beint úr
aukaspyrnu.
Allir hinir leikir gærdagsins
enduðu með 2-1 útisigri. St Mirren
vann Inverness, Hearts vann
Dunfermline og Falkirk vann
Dundee. - egm
Skoski fótboltinn í gær:
Titilvörn Celtic
byrjar á sigri
Íslenski boltinn er ... góður.
Hafnarfjörður er ... frábær bær.
Randers er ... gott lið.
Óli Jó er ... stórkostlegur.
Af hverju eru svona margir Danir í FH?
Af því að Íslendingum og Dönum semur
svo vel.
Íslenska sumarið er ... kaldara en það
danska.
Tommy, Allan, Allan eða Peter?
Hef bara spilað með Tommy Nielsen
og Allan Borgvardt þannig að ég segi
þeir.
Kaffi eða te?
Kaffi, takk.
Íslenskt lamb eða dönsk skinka?
Dönsk skinka.
Besta knattspyrnulið heims?
Real Madrid.
Besti knattspyrnumaður heims?
Fernando Redondo frá Argentínu, þegar
hann var upp á sitt besta.
Zidane eða Materazzi?
Zidane, án nokkurs vafa.
MEÐ DENNIS SIIM60 SEKÚNDUR
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR Engin Íslands-
met voru sett á fyrri keppnisdegi
á meistaramóti Íslands í frjálsum
íþróttum í gær. Góður árangur
náðist þó í mörgum greinum en
Sveinn Elías Elíasson úr Fjölni og
Silja Úlfarsdóttir fögnuðu bæði
sigri í hundrað metra hlaupi sem
og fjögur hundruð metra hlaupi.
Jónas Hlynur Hallgrímsson náði
mjög góðum árangri í spjótkasti
er hann kastaði yfir sjötíu metra.
MÍ í frjálsum íþróttum:
Fyrri keppnis-
degi lokið
SVEINN ELÍAS ELÍASSON Vann tvær greinar
í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
SIGURVEGARAR Á MEISTARAMÓTI
ÍSLANDS Í GÆR
100 METRA HLAUP KARLA:
SVENN ELÍAS ELÍASSON, FJÖLNI 10,89 SEK.
110 METRA GRINDAHLAUP KARLA:
JÓN ARNAR MAGNÚSSON, FH 15,28 SEK.
400 METRA HLAUP KARLA
SVEINN ELÍAS ELÍASSON, FJÖLNI 49,19 SEK.
1500 METRA HLAUP KARLA
KÁRI S. KARLSSON, BRBLK. 4:00,46 MÍN.
3000 METRA HINDRUNARHLAUP KARLA:
STEFÁN GUÐMUNDSS., BRBLK. 9:55,26 MÍN.
4 X 100 METRA BOÐHLAUP KARLA
SVEIT FH 43,71 SEK.
HÁSTÖKK KARLA:
ÖRN DAVÍÐSSON, SELFOSSI 1,93 M
LANGSTÖKK KARLA:
HALLDÓR LÁRUSSON, UMFA 7,17 M
SPJÓTKAST KARLA
JÓNAS H. HALLGRÍMSSON, FH 70,58 M
SLEGGJUKAST KARLA:
BERGUR INGI PÉTURSSON, FH 60,03 M
100 METRA HLAUP KVENNA:
SILJA ÚLFARSDÓTTIR, FH 12,11 SEK.
100 METRA GRINDAHLAUP KVENNA:
VILBORG JÓHANNSDÓTTIR, UMSS 14,87 SEK.
400 METRA HLAUP KVENNA
SILJA ÚLFARSDÓTTIR, FH 56,50 SEK.
1500 METRA HLAUP KVENNA
ÍRIS ANNA SKÚLAD., FJÖLNI 4:47,02 MÍN.
4 X 100 METRA BOÐHLAUP KVENNA
SVEIT BREIÐABLIKS 48,91 SEK.
LANGSTÖKK KVENNA
SIGURBJÖRG ÓLAFSDÓTTIR, BRBLK 5,85 M
SPJÓTKAST KVENNA:
ÁSDÍS HJÁLMSDÓTTIR, ÁRMANNI 49,60 M
SLEGGJUKAST KVENNA:
AÐALHEIÐUR VIGFÚSD., BRBLK. 47,66 M
STANGARSTÖKK KVENNA:
FANNEY TRYGGVADÓTTIR, ÍR 3,40 M
FÓTBOLTI Íslandsmeistarar FH eiga
möguleika á að ná tólf stiga for-
skoti í Landsbankadeildinni í
kvöld er þeir leika gegn ÍA á Skag-
anum. Athygli er vakin á því að
leikurinn er klukkan 18, en hann
var færður aðeins fram vegna tón-
leika hljómsveitarinnar Sigur
Rósar sem verða í Reykjavík í
kvöld.
Þetta er annar leikur tólftu
umferðar en ef ÍA nær sigri kom-
ast þeir upp úr fallsæti. Liðið þykir
spila stórskemmtilegan sóknar-
bolta eftir að Arnar og Bjarki
Gunnlaugssynir tóku við stjórninni
og má búast við hörkuleik í kvöld,
en FH-ingar töpuðu gegn ÍA á úti-
velli í deildinni í fyrra. Garðar Örn
Hinriksson dæmir leikinn. - egm
Landsbankadeildin í kvöld:
FH heimsækir
ÍA í kvöld
DYRING SKALLAR Úr fyrri viðureign liðanna
í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
> Birgir náði sér ekki á strik
Birgir Leifur Hafþórsson, kylfingur
úr GKG, náði sér ekki á strik í gær á
áskorendamóti í Wales en þar lék hann
á þriðja keppnisdegi
eftir að hafa
komist í gegnum
niðurskurðinn
daginn
áður. Birgir lék
á 76 höggum, fimm
yfir pari vallarins
og var samtals á
fjórum yfir pari eftir
gærdaginn og sat í
51.-59. sæti, fimmtán
höggum á eftir efsta
manni. Sem fyrr vantaði
nokkuð upp á stöðug-
leikann í leik Birgis Leifs,
en hann fékk þrjá fugla og
fimm skolla auk þess sem
hann fékk þrefaldan skolla á
17. braut.
Ólöf María slapp í gegn
Kylfingurinn Ólöf María Jónsdóttir slapp
naumlega í gegnum niðurskurðinn á
móti á sænsku mótaröðinni í golfi í gær.
Hún lék í gær á þremur höggum yfir pari
og var samtals á átta yfir eftir fyrstu tvo
hringina en hún var, ásamt sex öðrum
kylfingum, á slakasta skorinu til að
komast í gegnum niðurskurðinn. Ólöf
María var í 33.-39. sæti á mótinu og
heldur áfram keppni í dag.