Fréttablaðið - 30.07.2006, Blaðsíða 65
SUNNUDAGUR 30. júlí 2006 29
FÓTBOLTI Indriði Sigurðsson hefur
gert svokallaðan áhugamanna-
samning við KR og verður á morgun
væntanlega gengið formlega frá
félagaskiptum frá belgíska félag-
inu Genk til KR. Indriði mun þó
ekki geta leikið með KR-ingum
gegn Fylkismönnum annað kvöld
en ætti að getað komið inn í liðið
fyrir næsta leik.
Hluti af samkomulaginu er að
ef Indriði fær tækifæri til að
reyna sig hjá erlendu liði mun KR
ekki standa í vegi fyrir honum.
Baldur Stefánsson, stjórnarmaður
KR Sports, sagði þetta hið besta
mál fyrir báða aðila. „Á meðan að
hann er að finna sér félag erlendis
þá fær hann tækifæri til að æfa og
spila með okkur. Það væri jafnvel
möguleiki að útsendarar erlendra
liða kíki á hann í leik með KR.“
Á miðnætti annað kvöld lokar
félagaskiptaglugginn hér á landi
og því ekki seinna vænna. Indriði
varð samningslaus í vor og reyndi
fyrir sér hjá ensku liðunum
Southampton og Ipswich, en án
árangurs. Hann lék síðast með KR
árið 1999 áður en hann hélt út til
Noregs í atvinnumennsku. Þar lék
hann með Lilleström áður en hann
gekk til liðs við Genk. Hann er 25
ára gamall og hefur leikið flesta
leiki íslenska landsliðsins undan-
farin ár. - esá
Indriði Sigurðsson kominn á heimaslóðir í Vesturbæinn:
Indriði Sigurðsson semur við KR
INDRIÐI SIGURÐSSON Klæðist senn búningi
KR. Hér er hann á landsliðsæfingu í fyrra.
FRÉTTABLAÐIÐ
FÓTBOLTI Þór Akureyri vann í gær
mikilvægan sigur á Haukum í
botnslag í 1. deildinni, 3-2. Eftir
þennan sigur eru bæði lið með tólf
stig í áttunda og níunda sætinu
eða jafnmörg og KA sem á reyndar
leik inni. Í neðsta sætinu er
Víkingur Ólafsvík með átta stig
eftir markalaust jafntefli gegn
Leikni á föstudag. Framarar eru
hins vegar í toppsætinu og náðu
tíu stiga forskoti á Þrótt með 3-1
sigur á KA á föstudag,
Það var Ingi Hrannar Heimis-
son sem skoraði sigurmark Þórs-
ara í gær úr vítaspyrnu á lokamínútu
leiksins. Þór komst í 2-0 með mörk-
um frá Ármanni Pétri Ævarssyni
og Daða Kristjánssyni. Ómar Karl
Sigurðsson skoraði þá tvö mörk
fyrir Hauka og jafnaði metin áður
en Þór fékk víti undir lokin.
- egm
Einn leikur í 1. deild í gær:
Þór sigraði
Hauka í gær
BARÁTTA Kristján Ómar Björnsson, leik-
maður Hauka, er hér í baráttu við Lárus
Orra Sigurðsson, spilandi þjálfara Þórs.
FORMÚLA Finninn Kimi Raikkönen
verður á ráspól í þýska kappakstr-
inum sem fer fram á Hockenheim-
brautinni í dag. Þetta er í fyrsta
sinn í ár sem Raikkönen verður
fremstur á ráspól en Fernando
Alonso og Michael Schumacher
hafa nánast einokað það sæti á
tímabilinu. Schumacher varð
annar í tímatökunum. - esá
Formúlan í Þýskalandi:
Kimi á ráspól
KIMI RAIKKÖNEN Náði bestum árangri í
tímatökunum í gær. NORDIC PHOTOS/GETTY
GOLF Sigmundur Einar Másson
hefur átta högga forystu á næstu
menn á Íslandsmótinu í höggleik
sem fer fram á Urriðavelli en
lokahringurinn verður leikinn í
dag. Tryggvi Valtýsson náði
reyndar að minnka forystuna í tvö
högg í gær en fór illa að ráði sínu
á lokaholum dagsins.
Ragnhildur Sigurðardóttir og
Helena Árnadóttir eru jafnar fyrir
lokadaginn en Ragnhildur lék á 72
höggum í gær og jafnaði þar með
vallarmet Önnu Lísu Jóhannsdóttur
sem hún hafði sett fyrr um daginn.
Hlynur Geir Hjartarson úr GS
setti einnig vallarmet í gær, af
hvítu teigunum, er hann lék á 67
höggum. - esá
Íslandsmótið í golfi:
Tvö vallarmet
FÓTBOLTI Landsliðsmarkvörðurinn
Árni Gautur Arason stóð í marki
Vålerenga sem tapaði 3-2 á útivelli
fyrir Odd Grenland í norsku
úrvalsdeildinni. Olof Hvidén-
Watson skoraði sigurmark leiks-
ins þegar þrjár mínútur voru til
leiksloka. Liðin voru jöfn að stigum
fyrir leikinn en Vålerenga er nú í
sjötta sæti deildarinnar.
Í sænsku deildinni gerðu Djur-
gården og Örgryte 2-2 jafntefli en
Kári Árnason sat allan leikinn á
varamannabekk Djurgården sem
er í fjórða sæti þar í landi. - egm
Norski og sænski boltinn:
Árni fékk þrjú
mörk á sig
KÖRFUBOLTI Íslenska kvennalands-
liðið í körfubolta, skipað leikmönn-
um átján ára og yngri, vann í gær
góðan sigur á liði Finna í B-deild
Evrópumótsins sem fer fram í
Finnlandi. Leiknum lauk með 79-
76 sigri íslenska liðsins og sem
fyrr fór Helena Sverrisdóttir fyrir
sínu liði en hún skoraði 31 stig í
leiknum, gaf þrjár stoðsendingar
og tók sex fráköst. Bryndís
Guðmundsdóttir skoraði sextán
stig og María Ben Erlingsdóttir
þrettán.
Ísland mætir Írlandi í dag í
lokaleik sínum á mótinu og mun
með sigri sennilega tryggja sér
tíunda sæti mótsins. - esá
U-18 lið kvenna í körfubolta:
Sigur á Finnum