Tíminn - 03.02.1978, Side 10
10
Föstudagur 3. febrúar 1978
Kynning á ungum framsóknarmönnum
c
Þróttmikið starf fram-
sóknarmanna í Norður-
landskj ördæmi eystra
— rætt við Odd Helgason,
starfsmann félaganna
Oddur Helgason hefur veriö
ráöinn starfsmaöur fram-
sóknarfélags Akureyrar og
Kjördæmissambands fram-
sóknarmanna i Noröurlands-
kjördæmi eystra. Akveöiö er aö
hann starfi á skrifstofunni á
Akureyri, a.m.k. fram yfir
kosningar i vor. Oddur er Reyk-
vikingur og hefur búiö þar
þangaö til hann fluttist noröur
nú eftir áramótin og tók viö
þessu starfi. Hann hefur starfaö
mikið aö feröamálum, m.a. var
hann við gestamóttöku á Hótel
Sögu i fimm ár, og einnig hefur
hann ferðazt um landiö meö
feröamönnum og veitt þeim
margháttaöa aöstoö. Hann lauk
stúdentspróf i frá Mennta-
skólanum i Reykjavik og stund-
aöi siðan nám i viöskiptafræöi i
tvö ár. Á ferð um Akureyri ný-
lega tók SUF slöan Odd tali og
spurði fyrstaö hverju hann væri
aöailega aö vinna?
— Það fer mikið af minum
tima i að undirbúa fjölmarga
fundi og samkomur, sem eru á
dagskrá hjá okkur i vetur. Jafn-
framt vinn ég við að fara yfir
spjaldskrá félaganna og bæta
inn á eftir þvi sem fleiri bætast i
félögin. Auk þessa er markvisst
unnið að undirbdningi þeirra
tveggja kosninga, þ.e. alþingis-
kosninga og bæjarstjórnarkosn-
inga, sem framundan eru.
Hafið þiö skipuiagt ákveðna
fundaáætlun?
— Já, það má segja, og við
höfum lagt áherzlu á að halda
fundi um sem fjölbreyttust mál-
efni, þar sem við fáum sérfræð-
inga á hinum ýmsu sviðum til
þess að mæta. Þannig vonumst
viðtil þessaðgeta lagt veruleg-
an skerf i hina almennu bæjar-
og þjóðmálaumræðu hér á
Akureyri.
Eru þessir fundir vel sóttir?
— Hingað til hafa þeir verið
mjög vel sóttir, og ekki er nokk-
ur ástæða til að ætla að svo verði
ekki einnig hér eftir. Til dæmis
héldum viö nýlega fjölmennan
fundum skipulagsmál bæjarins.
Var hann mjög vel sóttur og
þótti takast hið bezta.
Þá er ákveðið að Sigurður Óli
Brynjólfsson bæjarfulltrúi skýri
fjárhagsáætlun bæjarins á fundi
nú eftir helgina, og má þar einn-
ig búast við fjölmenni. (Viðtalið
var tekið i siðustu viku, þannig
að þessi fundur hefur nú verið
haldinn).
Eru þessir fundir ykkar öllum
opnir eöa eru þeir aöeins fyrir
framsóknarmenn?
— Okkar auglýstu fundir eru
öllum opnir og viljum við hvetja
sem flesta til að mæta og kynna
sér málin af eigin raun.
Hvernig veröur staöiö aö röö-
un frambjóöenda á lista fram-
sóknarmanna til kjörs I bæjar-
stjórn Akureyrar?
— Það hefur verið ákveðið að
það fari fram skoðanakönnun
um röðun manna á listann.
Þessi skoðanakönnun fer fram
þriöja til fimmta marz, að báð-
um dögum meðtöldum, og mega
allir stuðningsmenn flokksins
taka þátt i henni. Það verður
kosið um sex efstu sæti listans
og frestur til að skila framboð-
um er til sjöunda febrúar.
Væntanlegir frambjóðendur
þurfa að hafa meðmæli 20
flokksbundinna framsóknar-
manna á Akureyri til þess að
gefa kost á sér i þessa skoðana-
könnun.
Hvernig lízt þér á aö hlutur
framsóknarm anna verö'i i
bæjarstjórnarkosningunum á
Akureyri i vor?
— Ég er bjartsýnn og tel að
hlutur okkar manna eigi að
verða góður. Hér hafa verið
miklar framkvæmdir og mikill
vöxtur i bæjarfélaginu og hafa
framsóknarmenn staðið i
fylkingarbrjósti fyrir þessari
miklu uppbyggingu. Þvi vænti
ég að Akureyringar vilji veita
þeim umboð til að fara áfram
með stjórn mála i bæjarfélag-
inu.
Nú eru þrir framsóknarmenn
i bæjarstjórninni. Við stefnum
ákveðið að þvi að vinna á i
næstu kosningum og fá fjóra
fulltrúa kjörna i komandi kosn-
ingum. Málefnastaðan er mjög
sterk eins og ég sagði áðan, og
þvi vinnum við hiklaust að
þessu takmarki.
En hvernig lizt þér þá á stöö-
una i komandi alþingiskosning-
um ?
— Framsóknarflokkurinn hef-
ur mjög sterka málefnastöðu i
komandi kosningum. Minna má
á að allar götur siðan fram-
sóknarmenn komust I rikis-
stjórn 1971 hefurverið stöðug
uppbygging um allt land, at-
vinnuástand orðið tryggara en
áður var og allur fólksflótti
heyrir sögunni til.
Norðurlandskjördæmi Q'stra
hefur ekki orðið útundan i þess-
ari þróun. Hér hefur fólki fjölg-
að mikið og jafnvel meir en viöa
annars staðar. Byggðin hér er
þvi þróttmeiri en hún hefur
nokkru sinni áður verið.
Jafnframt má minna á harða
og einarða afstöðu framsóknar-
manna i landhelgismálinu, og
það get ég fullyrt að það voru
framsóknarmenn, sem áttu
stærstan þátt i að við höfum nú
unnið fullnaðarsigur I þvi máli.
Þessi sigur kemur til með að
gera okkur Islendingum marg-
falt auðveldara að lifa i okkar
fagra og góöa landi.
Þvi vona ég að sem flestir
landsmenn styðji Framsóknar-
flokkinn i komandi kosningum
og stuðli með þvi að áframhald-
andi eflingu landsbyggðarinnar
og framsókn þjóðarinnar allrar.
Er starfsemi framsóknarfé-
laganna mikil hér i kjördæm-
inu?
— Starf allra framsóknarfé-
laga hér er i örum vexti. Sér-
staklega á þetta við um stærri
staðinaeins og Akureyri, Dalvik
og Húsavik. A öllum þessum
stöðum hefur verið unnið mikið
starf, og er nú verið að efla það
enn meir.
Kemur þú til meö aö feröast
milli féiaganna eöa veröur þú
eingöngu hér á skrifstofunni?
— Það er nú ekki fullákveðið
enn hvort það verður ég eða ein-
hver annar, sem ferðast um
kjördæmið til að aðstoöa við
margs konar kosningaundir-
búning. En það verður gert eftir
þvi sem unnt er að koma því við,
en ákveðið er að skrifstofan
verði stööugt opin, þannig að ef
ég verð eitthvað i ferðalögum,
verður annar maður að vera á
skrifstofunni.
Hver telur þú brýnustu verk-
efnin i islenzkum stjórnmálum
um þessar mundir?
— Efnahagsmálin eru mál
málanna nú eins og svo oft áður.
Ég tel að nú verði að leggja
fram ákveðnar tillögur um það
á hvern hátt leysa megi þau og
fylgja þessum tillögum fast eft-
ir.
Ég vil minna á, að árið 1974
lagði Framsóknarflokkurinn
fram itarlegartillögur um lausn
efnahagsvandans. Þessar til-
lögur voru mjög góðar, en þvl
miður náöist ekki samstaða um
þær,hvorki i vinstri stjórninni né
i þeirri stjórn, sem mynduð var
með stjálfstæðisflokknum að
loknum kosningum. Ég er hins
vegar sannfærður um að ef
þessar tillögur hefðu verið sam-
þykktar strax vorið 1974 hefðum
við aldrei lént i jafn miklum
efnahagsvanda og við höfum
verið i að undanförnu.
Er pólitiskur áhugi ungs fólks
mikill hér um slóðir?
— Vissulega mætti hann vera
meiri, og fleira ungt fólk þyrfti
að starfa innan framsóknarfé-
laganna hér. Ástæðan fyrir
þessu er jafnvel sú að hér á
Akureyri er ekki starfandi sér-
stakt félag fyrir ungt fram-
sóknarfólk.
Hins vegar munum við leggja
áherzlu á að fá ungt fólk til þess
að gefa kost á sér i þeirri
skoðanakönnun, sem nú á að
fara fram fyrir bæjarstjórnar-
kosningarnar, og einnig má
benda á að i fjórða sæti á lista
Framsóknarflokksins hér i
kjördæminu fyrir alþingiskosn-
ingarnar er aðeins 23 ára gam-
all maður.
MÓ.
swhsst
llliilllliiiiiillilllliiiiiiiiiiiiilliiiiiiiiiiiiiiillflllli
nliiiiiiiiii lllhiii
Umsjónarmenn: Magnús Ólafseon
Ómar Kristjónsson