Tíminn - 03.02.1978, Blaðsíða 23
Föstudagur 3. febrúar 1978
23
fflokksstarffið.
Kópavogur
Framsóknarfélögin i Kópavogihaldasitt árlega Þorrablót laug-
ardaginn 4. feb. n.k. Hefst með borðhaldi kl. 19. Nánari upplýs-
ingar og miðasala i simum 40739 Kristján, 40435 Ragnar, 40656
Sigurður, 41228 Jóhanna. Ú Guðmundur G. Þórarinsson flytur
ávarp. Jón Gunnlaugsson skemmtir. — Stjórnin.
ísfirðingar —
Félagsmálanámskeið
í byrjun næsta mánaðar mun Magnús Ólafsson, blaðamaður og
formaður SUF, koma til Isafjarðar og halda þriggja kvölda fé-
lagsnámskeið.
Námskeiðið er öllum opið, og eru þeir sem áhuga hafa á að taka
þátt i namskeiðinu, beðnir að láta Einar Hjartarson i Fagra
hvammi simi 3747, vita sem allra fyrst.
Magnús mun vera hér og i nágrannakauptúnum i um það bil 10
daga og þá boða til funda á Flateyri, Þingeyri, Bolungavik og
Suðureyri.
Aðalfundur FUF í Reykjavík
Aðalfundur FUF i Reykjavik verður haldinn fimmtudaginn 9.
febrúar að Seljabraut 54 (húsi Kjöts og fisks).
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Lagabreytingar.
Vakin skal athygli á að framboð til embætta á vegum félagsins
skulu hafa borizt stjórn félagsins minnst viku fyrir aðalfund
samkvæmt 11. grein laga FUF.
Stjórnin.
SUF-stjórn
Stjórnarfundur verður haldinn dagana 4. og 5. febrúar að
Rauðarárstig 18 og hefst kl. 13.00 laugardaginn 4. febrúar. SUF
SUF-arar
Hádegisverðarfundur verður þriðjudaginn 7.
febrúar kl. 12.00 að Rauðarárstig 18.
Umræðuefni: Stóriðja og orkumál. Fram-
sögumaður Páll Pétursson, alþingismaður.
Félag Framsóknarkvenna
í Reykjavík
Aðalfundur félagsins verður haldinn fimmtudaginn 9. febrúar
n.k. kl. 20,30 að Rauðarárstig 18, kaffiteriu.
Fundarefni. Venjuleg aðalfundarstörf.
önnur mál. Fjölmennið. Stjórnin.
Akranes
Framvegis verður skrifstofa framsóknarfél. opin alla þriðju-
daga kl. 21-22
Stuðningsfólk er hvatt til að lita inn.
Bæjarfulltrúar verða til viðtals á skrifstofunni á sama tima.
Framsóknarfélögin
Skaftfellingar
Leikfélagið i Vik i Mýrdal, sýnir Hart i
bak, eftir Jökul Jakobsson i félagsheimili
Seltjarnarness, laugardaginn 4. febrúar,
kl. 8,30.
Mætum öll.
Skaftfellingafélagið
hljóðvarp
Föstudagur
3. febrúar
7.00 Morgunútvarp Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05. Fréttir kl. 7.30,8.15 (og
forustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.50.
Morgunstund barnanna kl.
9.15: Þorbjörn Sigurðsson
les sögu af Ódisseifi i endur-
sögn Alan Bouchers, þýdda
af Helga Hálfdanarsyni.
Tilkynningar kl. 9.30. Þing-
fréttirkl. 9.45. Létt lög milli
atriða. Það er svo margtkl.
10.25: Einar Sturluson sér
um þáttinn. Morguntónleik-
arkl. 11.00: Shmuel Ashke-
nasi og Sinfónfuhljómsveit
Vínarborgar leika Fiölu-
konsert nr. 1 op. 6 eftir
Paganini, Heribert Esser
stj./ Sinfóniuhljómsveitin i
Cleveland leikur „Dauða og
ummyndun”, sinfóniskt ljóð
eftir Richard Strauss, Ge-
orge Szell stj.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir.
Tilkynningar. Við vinnuna:
Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Maður
uppi á þaki” eftir Maj Sjö-
wall og Per Wahlöö Ólafur
Jónsson les þýðingu sina
(4).
15.00 Miðdegistónleikar
Studio-hljómsveitin i Berlfn
leikur „Aladdin”, forleik
op. 44 eftir Kurt Atterberg,
Stig Rybrant stjórnar. Willy
Hartmann og Konunglegi
danski óperukórinn syngja
tónlist úr leikritinu „Einu
sinni var” eftir Lange-Mull-
er. Konunglega hljómsveit-
in i Kaupmannahöfn leikur
með, Johan Hye-Knudsen
stjórnar Konunglega fi'l-
harmoniusveitin i Lundún-
um leikur polka og fúgu úr
óperunni „Schwanda” eftir
Weinberger, Rudolf Kempe
stjórnar.
15.45 Lesin dagskrá næstu
viku
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veöurfregnir).
16.20 Popp.
17.30 Útvarpssaga barnanna:
„Upp á lif og dauða” eftir
Ragnar Þorsteinsson Björg
Arnadóttir les (6).
17.50 Tónleikar. Tilkyriningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Viðfangsefni þjóðfélags-
fræða Dr. Þórólfur Þór-
lindsson lektor flytur erindi
um framlag félagsfræðinn-
ar.
20.00 Nýárstónieikar danska
útvarpsins Flytjendur:
Sinfóniuhljómsveit útvarps-
ins, Rony Rogoff, Charles
Senderovitz, Gunnar Tag-
mose og Arne Karecki fiðlu-
leikarar, og Jörgen Ernst
Hansen orgelleikari. a.
Konsert i h-moll fyrir fjórar
fiðlur og strengjahljóðfæri
eftir Antonio Vivaldi. b. Þrir
sálmaforleikir eftir Die trich
Buxtehude. c. Konsert i
a-moll fyrir fiölu og
strengjahljóðfæri eftir Jo-
hann Sebastian Bach. d.
Prelúdia og fúga i e-moll
eftir Nicolaus Bruhns. e.
Konsert i d-moll fyrir tvær
fiðlur og strengjahljóöfæri
eftir Bach.
21.00 Gestagluggi Hulda Val-
týsdóttir stjórnar þættinum.
21.55 Kvöldsagan: „Sagan af
Dibs litla” eftir Virginiu M.
AlexineÞórir S. Guöbergs-
son les þýðingu sina (8).
22.20 Lestur Passiusálma
Guðni Þór Ólafsson nemi i
guðfræðideild les (10).
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
22.50 Afangar Umsjónar-
menn: Asmundur Jónsson
og Guðni Rúnar Agnarsson.
23.40 Fréttir. Dagskrárlok.
sjonvarp
Föstudagur
3.febrúar
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Eldvarnir á vinnustað 1
þessari fræðslumynd er
sýnt, hvernig ber að varast
og hvað að gera, ef eldur
kviknar. Þulur Magnús
Bjarnfreðsson.
20.50 Kastljós (L) Þáttur um
innlend málefni. Umsjónar-
maður Ómar Ragnarsson.
21.50 Niðursetningurinn Kvik-
mynd frá árinu 1951 eftir
Loft Guðmundsson ljós-
myndara. Leikstjóri er
Brynjólfur Jóhannesson, og
leikur hann jafnframt aðal-
hlutverk ásamt Bryndisi
Pétursdóttur og Jóni Aöils.
Myndin er þjóðlifslýsing frá
fyrri timum. Ung stúlka
kemur á sveitabæ. Meðal
heimilismanna er niður-
setningur, sem sætir illri
meðferð, einkum er sonur
bónda honum vondur. A
undan Niðursetningnum
verður sýnd stutt, leikin
aukamynd, semnefnist Sjon
er sögu ríkari. Aðalhlutverk
leika Alfreð Andrésson og
Haraldur A. Sigurðsson.
23.00 Dagskrárlok.
Leikrit sem áætlað er að flytja í febrúar og marz
9. febrúar:
„Júlia Summer” eftir John
Whitewood. Þýðandi: Aslaug
Arnadóttir. Leikstjóri: Brynja
Benediktsdóttir. Flutt af Leik-
félagi Akureyrar.
16. febr.: „Fornar dyggðir” eft-
ir Guðmund G. Hagalin. Leik-
stjóri: Steindór Hjörleifsson.
23. febr.:
„Sheppey” eftir W. Somerset
Maugham. Þýðandi: Hjörtur
Halldórsson. Leikstjóri: Baldvin
Halldórsson. Áður flutt 1965.
2. marz:
„Einkalif” eftir Noel Coward.
Þýðandi: Sigurður Grimsson.
Leikstjóri: Benedikt Árnason.
9. marz:
„Kertalog” eftir Jökul Jakobs-
son. Leikstjóri: Stefán Baldurs-
son.
16. marz:
„Konungsefnin” eftir Henrik
Ibsen. Fyrri hluti. Þýðandi: Þor-
steinn Gi'slason. Leikstjóri: Gisli
Halldórsson. Aðurflutt 1967 en nú
endurtekið i tilefni af 150 ára af-
mæli Ibsens 20. marz.
23. marz:
„Konungsefnin” eftir Henrik
Ibsai. Siðari hluti.
30. marz:
„Refurinn” eftir D.H.
Lawrence. Þýðandi og leikstjóri:
Ævar R. Kvaran.
0 Greinargerð
talinn fram til skatts. Hefir svo
verið frá upphafi. Um það er
skattyfirvöldum fullkunnugt. A
þetta reyndi 1976, þegar skatt-
stjóri Vestfjarðaumdæmis bætti
bifreiðastyrk við tekjur þing-
manns. Þingmaðurinn kæröi og
tók rikisskattanefnd kæru hans til
greina með úrskurði 13. april 1976
og visaði til D-liðs 10. gr. laga nr.
68/1971, sem segir, að endur-
greiðsla, sem skattgreiöandi fær,
ef hann verður að vera um stund-
arsakir fjarverandi frá heimili
sinu vegna starfa i almennings-
þágu, teljist ekki til tekna. Þess
má geta, að fyrir 1964 var hálft
þingfararkaup skattfrjálst.
Unnið er nú að þvi að gera ná-
kvæman samanburð á kaupi og
kjörum þingmanna á Islandi og á
öðrum Norðurlöndum. Mun sá
samanburður birtur innan tiðar.
Alþingi, 1. dag febrúarmánaðar
1978.
Þingfararkaupsnefnd.
0 Gjaldeyrir
færslur til fólks, sem var að fara
til annarra landa innan tveggja
daga, og til námsmanna, sem
áttu samþykkta yfirfærslu.
Yfirfærslur vegna vöruinn-
flutnings þurftu sérstakt sam-
þykki gjaldeyrisyfirvalda og
sömuleiöis allar gjaldeyrisyfir-
færslur aðrar en þær er greint
hefur verið frá hér að framan.
Undir venjulegum kringum-
stæðum eru gjaldeyrisyfirfærslur
til fólks, sem er að fara utan, af-
greiddar, þótt brottförin sé ekki
fyrr en eftir allt upp i fimm daga.
® Kvikmyndir
hæð 2 milljónir króna og hefði
það verið samþykkt einróma á
fundi Menntamálaráðs á mánu-
dag. Styrkurinn er veittur til að
Agúst ljúki kvikmyndun hand-
rits sins, sem hann nefnir Litil
þúfa. Agúst er þritugur Reyk-
vikingur, sem hefur nýlega lok-
ið fjögurra ára námi við'
National Film skólann i Bret-
landi. Hann hefur gert tvær
kvikmyndir sem sýndar hafa
verið i islenzka sjónvarpinu,
Saga úr striðinu og Vinur minn
Jónatan. Þá hefur hann einnig
gert myndina Lifeline til Cathy,
sem er lokaverkefni hans frá
National Film skólanum.
Wim Wenders, gestur hátið-
arinnar, sem hingað er kominn
með fjórar beztu myndir sinar,
ávarpaði næstur setningargesti.
Hann sagði að það væri sér mik-
ill heiður og ánægja að koma
hingað með myndir sinar og
væri islenzkum kvikmynda-
gerðarmönnum án efa mikil
uppörvun i hátiðinni. Hann lýsti
yfir ánægju sinni yfir að heyra
að lagt hefði verið fram stjórn-
arfrumvarp til laga um að aö-
stoða islenzka kvikmyndagerð
og benti á i þvi sambandi, að
þýzk kvikmyndagerð hefði þá
fyrst risið upp úr öskustónni
fyrir fimm árum, er hún fékk
opinbera aðstoð. Wenders mælti
sérstaklega með tveim mynd-
um, sem væru á sýningaskrá
hátiðarinnar. Strozek Herzogs
og mynd Cassavetes, sem hann
taldi frábæra. Setningunni lauk
með þvi að nýjasta kvikmynd
Wenders, Ameriski vinurinn
var sýnd.
0 Vopnafjörður
framleiðslutæki, sem i landi eru.
Hins vegar leyfði sjávarútvegs-
ráðherra þessu skipi að vera hér
og taka mikið hráefni frá verk-
smiðjum, sem stæðu verkefna-
lausar i landi.
Annars var gott hljóð i Vopn-
firðingum, sem viö hittum um
helgina. Mannlif var þar gott og
félagslif með þvi bezta, sem þar
hefur verið. Sæmundur Stein-
grimsson sagði, að þar hefði verið
meira um leiksýningar en áður og
margskonar klúbbstarfssemi
væri blómleg. Þá'væri spilað og
teíft og fjölmennt þorrablót var
haldið viku áður en þorrinn byrj-
aði. En það var nú gert vegna
þess að þá var engin vinna i
loðnubræðslunni og von manna
var að þar færi að hefjast vinna.
En þegar bræðsla stæði yfir gætu
verKsmiðjumennirnir ekki komið
á þorrablótið, og þvi heföi verið
talið bezt að flýta þvi.