Tíminn - 03.02.1978, Page 11
Föstudagur 3. febrúar 1978
11
BÆNDUR
Flugfélag Austurlands
Áætlunarflug hafið
Mó — Egilsstöðum — í gær fór
flugvél frá Flugfélagi Austur-
lands í fyrsta áætlunarflug sitt til
Seyðisfjarðar, en félagið hefur
ákveðið reglubundið áætlunarflug
tvisvar i viku milli Egilsstaða og
Seyðisfjarðar. Binda Seyðfirðing-
ar miklar vonir við þessa sam-
göngubót. Sem kunnugt er hefur
oft verið erfitt fyrir þá að brjótast
i illviðri og ófærð yfir Fjarðar-
heiði.
Flugfélag Austurlands flýgur
nú til sjö staða á Austurlandi og á
næstunni er áætlað að hefja
áætlunarflug til Breiðdalsvikur
og Fáskrúðsfjarðar. Flugið er i
tengslum við Flugfélags Islands
til Egilsstaða svo menn eiga að
komast samdægurs milli hinna
ýmsu áætlunarstaða Flugfélags
Austurlands og Reykjavikur.
Félagið á nú tvær flugvélar og
tekur önnur niu farþega en hin
fimm. Tveir flugmenn starfa hjá
félaginu en formaður stjórnar
Flugfélags Austurlands er Guð-
mundur Sigurðsson héraðslæknir.
íslenzki fiskiskipa-
stóllinn 893 skip
-11 skip bættust við fiskiskipastólinn árið 1977
GV — „Islenzk þilfarsfiskiskip
eru nú 893 að fjölda til og samtals
101.239 brl. að stærð. Allur is-
lenzki fiskiskipastóllinn var 1.
janúar 1977 882 skip samtals
97.156 brl. Þilfarsfiskiskipum
hefur þvi fjölgað um 11 skip á ár-
inu og fiskiskipastóllinn stækkað
um 4.083 brl.” Þetta kemur fram i
formála Hjálmars R. Bárðarson-
ar siglingamálastjóra að ,,Skrá
yfir islenzk skip 1978” sem
Siglingamálastofnun rikisins
hefur nú nýlega gefið út. Skráin
er sem áður miðuð við 1. janúar.
I eigu Islendinga voru 73 skut-
togarar 1. jan. 1978, samtals
35.445 brl. Siðutogarar voru 5
samtals 2.997 brl. Alls eru is-
lenzkir togarar nú 78 talsins sam-
tals 38.442 brl. A árinu 1977
fjölgaði islenzkum skuttogurum
um 12 og er þvi islenzki togara-
flotinn niu skipum og 1.579 brl.
stærri en fyrir ári siðan. I for-
málanum er þess getið að i þess-
ari skipaskrá séu aðeins fimm
siðutogarar eftir sem slikir eins
og áður segir en i reynd verða
aðeins tveir eiginlegir siðutogar-
ar á skrá yfir islenzk skip en þeir
eru: Ársæll Sigurðsson II Hf-12 og
Rán Gk-42. Tveimur á að breyta i
nótaskip, Þormóði Goða RE og
Júpiter RE og sá þriðji hefur
iegið lengi ónotaður i höfn, Harð-
bakur EA.
Elzta skip á skrá er smiðað ár.ið
1905. Það er 3 brl. þilfarsbátur
sem áður var opinn en sett var á
þilfar 1976 og komst þannig á skrá
yfir islenzk fiskiskip.
Skip smiðuð 1945 og fyrr eru nú
aðeins 90 skip samtals 3.182 brl. af
alls 1001 skipum samtals 188.544
brl. Af þessum skipum eru 668
skip alls 160.670 brl. smiðuð árið
1960 og siðar og 319 skip samtals
75.646 brl eru smíðuð árið 1970 og
siðar. Ekki er þó kunnugt um
smiðaár 11 litilla fiskiskipa sem
eru 82 brl samtals að stærð og
eins annars skips 11 brl. að stærð.
Skip i smiðum 1. ianúar
1978
Erlendis voru i smiðum um
siðustu áramót 5 skip samtals
áætluð um 3.220 brl. Þetta voru 2
skuttogarar innan við 500 brl. i
smiðum i Noregi og 3 nótaveiði-
skip (tvö 550brl. og eitt 1.200brl) i
Sviþjóð.
Innanlands voru um áramótin
umsamin og i smiðum 15 skip alls
áætlað samtals um 2.418 brl. að
stærð. Af þessum skipum eru 7
stálfiskiskip (minni en 500 brl) 5
tréskip (50 brl og minni) og 3
fiskiskipúrtrefjaplastefni um 15
brl að stærð (i smiðum á Skaga-
strönd).
dráttarvé/ar ti/ afgreiðslu strax
40 hestafla á kr. 880.000
65 hestafla á kr. 1.170.000
85 hestafla á kr. 2.370.000
Nú er rétti tíminn til að kaupa
VE14BCI3G
Sundaborg 10 — Símar 8-66-55 óí 8-66-80
Gerið
reyfarakaup
V
ÚTSÖLU-
MARKAÐUR
o
í Iðnaðarhúsinu
við Hallveigarstíg
Iðnaðarhúsinu
Utsölu-
markaðinum
lýkur á
morgun
Opið til ki. 7 í dag
og hádegis á morgun
í Iðnaðarhusinu