Tíminn - 05.02.1978, Side 3
Sunnudagur 5. febrúar 1978
3
örninn
— konungur islenzkra fugla.
Örninn
í hættu
Varp misfórst i .21 hreiðri
af 28
i fréttatilkynningu frá Fugla-
verndunarfélagi íslands eru
margar fróölegar upplýsingar
um afkomu islenzka arnarins.
Fullorðnir ernir um áramótin
1977—78 voru 67,ungir ernir 23 og
10 ungar komust upp sumarið
1977, eða alls 100 fuglar. Um ára-
mótin 1976—77 voru þeir 116.
Arnarhjón verptu á 28 stöðum á
landinu, en varpið misfórst af
ýmsum orsökum hjá 21 pari.
örninn er með viðkvæmustu
varpfuglum landsins og þolir ekki
ónæði um varptimann. Aðálskil
yrði þess að varp heppnist, er aö
enginn umgangur sé um svæðið
frá aprilbyrjun til júniloka.
Flest voru arnarhreiður árið
1880 eða 84 en fæst árið 1966, þrjú
hreiður, en þá var stofninn innan
við 40 fuglar.
Stjórn félagsins hvetur til hófs i
útrýmingarherferð gegn varg-
fugli. Staðreynd sé að veiðibjöllu
hafi ekki fjölgað siðustu ár, og
fari Islendingar að nýta betur
fiskúrgang en hingað til, fækki
veiðibjöllu sjálfkrafa. Jafnvel er
álit sumra, að þær aðferðir, sem
notaðar eru, séu gagnslausar til
minnkunar stofnsins.
Vi'sindamenn telja lika vafa-
samt að stærð veiðibjöllustofns-
ins hafi áhrif á fjölda æðarfugla,
heldur ráðist það af æti.
Stjórn félagsins óttast að villi-
mink fjölgi með aukinni minka-
rækt. Muni það draga mjög úr
varpi margra fugla, jafnvel sé
hætta á Utrýmingu sumra teg-
unda.
Banaslys
á Reyk i anesbraut
SJ — Um tvöleytið aðfararnótt
laugardags varð banaslys á
Reykjanesbraut i Njarðvik. Bif-
reið frá Varnarliðinu var ekið á 21
árs gamlan mann úr Reykjavik
og mun liann hafa látizt sam-
stundis. Bifreiðin var á leið til
Reykjavikur og maðurinn var á
akbrautinni þegar slysið varð.
Nánar var ekki vitað um máisat-
vik i gærmorgun. Þá hafði ekki
náðst i aðstandendur unga
mannsins og þvi er ekki unnt að
skýra frá nafni hans.
Hópferðabíll valt
undir Ingólfsfjalli
SJ— Um ellefuleytið á föstudags-
morgun fauk 54 manna hópferða-
bifreið út af þjóðveginum undir
Ingólfsfjalli i glerhálku. Bifreiðin
varfullsetín af unglingum á leið til
Skálholts. Bifreiðarstjóranum
tókst á siðustustunduað forða þvi
að bilnum hvolfdi með þvi að
beygja út af veginum.
Lögreglan á Selfossi kom á
vettvang og selflutti fólkið til Sel-
foss og siðan voru fengnir bilar til
að flytja það á áfangastað.
Nokkrir unglinganna fóru á
sjúkrahúsið til athugunar, en
engir hlutu alvarleg meiðsl og
fengu þeir allir að fara þaðan
samdægurs.
Bifreiðin náðist upp sama dag.
Auglýsið í TIMANUM
Lif i menningunni á Bildudal
Sjómaður gefur
út kvæðabók
um menn og málefni,
togaravist, ástir, vín
og fleira
SJ — Menningarilf er með
bióma á Biidudai um þessar
mundir. Eftir nokkra daga
keinur út Ijóðabókin „Bíldudals
grænar baunir” eftir Hafliða
Þórð Magnússon höfundgaman-
leiksins Sabinu, sem Litli leik-
klúbburinn á Isafirði sýndi á
Vestfjörðuin og i Noregi fyrir
nokkrum árum og Leikféiag
Akureyrar hafði einnig á sinni
efnisskrá. Bók Hafliða er gefin
út i 500 eintökum, prentuð i
Odda. 1 bókinni eru einnig skop-
teikningar og ljósmyndir eftir
Ilafliða. f
— Ástæðan fyrir þvi að ég
réðst i útgáfuna var sú, að ég
var oft beðinn um söngtexta og
gamanbragi, sem fólk hefur
heyrt eftir mig. Ég lét þá frétt
berast að ég hyggðist gefa út
þessi hugverk min, og svo
margir höfðu áhuga á að eignast
þau, að ég sá að óhætt var að
ráðast i útgáfuna, en hún er
fyrst og fremst ætluð Bilddæl-
ingum heima og heiman, en þó
hafa bragir minir borizt viðar,
og jafnvel hefur borizt beiðni
um bókina austan af landi.
— 1 bókinni eru aðallega gam-
anvisur, sem hafa verið sungn-
ar gegnum árin um ástandið hér
á Bildudal, menn og málefni,
séð i skoplegu ljósi. Þá eru text-
ar úr leikritunum Sabinu, Gisla
Súrssyni, sem leikinn var i
Menntaskólanum á Isafirði á
sinum tima, og söngleikjunum
Paradisarbæ og Stinu Vóler, en
sá siðastnefndi hefur enn ekki
verið settur á svið.
— Þarna eru lika togarabrag-
ir frá þvi ég var i Reykjavik, en
ég var nokkur ár á togara, sem
gerður var út þar syðra. Sumir
þessara söngtexta voru mikið
sungnir i Þórskaffi á þessum
Kjartan Magnússon tónlistar-
kennari
Úr leikriti Hafliða, Paradfsarbær I uppfærslu Leikfélagsins Baldurs
á Bildudai 1975.
Hafliði Þórður Magnússon höf-
undur Bildudals grænna bauna.
tima. Einnig yrki ég um ástir og
vin. Eitthvað fleira er kannski i
bókinni, sem gæti kallazt kvæði.
Hafliði er að nokkru leyti al-
inn upp á Bildudal og fluttist
siðan þangað aftur 1967. Hann
hefur stundað margs konar
vinnu, einkum þó sjómennsku
og er nú á rækjubát.
Hann byrjaði ungur að fást
við skriftir, og þegar hann var
16 ára kom út eftir hann ung-
lingabókin Siðasti rauðskinninn
undir dulnefninu Hafþór. Einnig
fékk hann 1. verðlaun fyrir smá-
söguna Hefnd i keppni, sem
timaritið örninn efndi til.
Hafliða er fleira til lista lagt.
Hann hefur leikið á harmóniku á
dansleikjum, tekur þátt i leik-
starfsemi, málar og teiknar
skopmyndir.
Bók Hafliða verður ekki seld i
bókaverzlunum. Hún kostar
4000 kr.
Skjaldhamrar sýndir —
karlakór stofnaður
Leikfélagið á Bildudal er nú
að æfa Skjaldhamra eftir Jónas
Arnason, sem farið hefur mikla
sigurför milli leikfélaga hér á
landi og beggja vegna Atlants-
hafs.
Tónlistarkennari kom fyrir
nokkru til Bildudals og er mikill
áhugi á tónlistarstarfi á staðn-
um. Hann heitir Kjartan
Magnússon og kennir á gitar,
flautu, pianó og fleiri hljóðfæri.
Nýlega er komin út eftir hann
kennslubók i gitarleik. Kjartan
æfir kirkjukórinn og verið er að
koma á fót karlakór á Bildudal.
Kvikmyndin „Bóndi” hlýtur
góða dóma
Islenzka kvikmyndin ,,Bóndi”
eftir Þorstein Jónsson hefur nú
verið sýnd i sjónvarpi á öllunj
Norðurlöndum nemá Danmörku,
Nú siðast var hún sýnd undir
nafninu ,,lsland — samfélag á
breytingaskeiði” i sænska sjón-
varpinu, sunnudaginn 15. janúar
á bezta dagskrártima.
1 kynningu sænska sjónvarps-
ins á myndinni sagði meðal
annars: „Bóndi er nafnið á kvik-
mynd eftir' islenzkan heimilda-
myndahöfund, Þorstein Jónsson.
Við fylgjumst með lifi sveitafjöl-
skyldu, sem býr við erfið skilyröi
i hrikalegu islenzku landslagi.
Þrátt fyrir slæm lifsskilyrði, sem
tengjast skertri arðsemi vegna
iðnvæðingarinnar, vilja þau ekki
hætta að yrkja jörðina.
Þetta er ein af sjaldséðum
heimiléakvikmyndum, »em
Sýningin vafeti talsverða
athygli ef dæma má af þvi, að
sjónvarpsáhorfandi Dagens
Nyheter hafði hana efst á blaði
þeirra dagskrárliða sem hann
í Sviþjóð
Cr kvikmynd Þorsteins Jóns-
sonar, „Bóndi”.
ætlaði að sjá þá helgi.
Samkvæmt bréfi frá Frank
Hirschfeldt dagskrárstjóra hjá
sænska sjónvarpinu fékk kvik-
myndin góða dótna og sendi hann
aem dcmi greia eftir
bíadet 0. janúar: **"
Tvö samfélög.
Þó Island teljist til
Norðurlandanna er það samt ekki
næsti nágranni og i sjónvarpinu
hefur maður ekki fengið að vita
margt um lifið á eynni. Það getur
auðvitað stafað af þvi, að
íslendingar sjálfir hafi verið sein-
ir til að notfæra sér þennan nýja
miðil. Hvað sem þvi liður kom
ljós punktur þaðan á sunnudags-
kvöldið var.
Stutta heimildarmyndin um
Guðmund og stóru fjölskylduna
hans var einföld og heiðarleg
skissa af örlögum nokkurra
manneskja. Ekki var mörgum
orðum eytt i að lýs.a eða greina,
aðalpersónan sjálf var hrjúfur
kumrandi maður og textinn var
knappur svo að til fyrirmyndar
var. Þrátt fyrir þessa fjarveru
texta eins og hann tiðkast var
örlögum fólksins lýst á skýran
hátt.”
Kvikmyndin „Bóndi” var sýnd
i Fjalakettinum i febrúar 1976 vi6
mikla aðsókn og siöan i tslenzka
sjóavarpMHi i páafeHaa aaaw ir.
A Matmii gefat ishanftagnai
kostur á að sjá þessa mynd i
flokki islenzkra kvikmynda sem
sýndar verða á kvikmynda-
hátiðinni laugardaginn 11.
febrúar kl. 13.00—17.00.