Tíminn - 05.02.1978, Blaðsíða 14
Sunnudagur 5. febrúar 1978
14
Ein eldflaugin tilbúin til þess að koma gervihnetti á loft.
17. mai í vor skaut vesturþýzka
geimrannsóknarstofnunin
OTRAG á loft fyrstu eldflaug
sinni I Shabahéraði i Zaire. Fáir
vissu áður, að vesturþýzka
ríkisstjórnin hafði komið sér
fyrir inni i miðri Afriku á þann
hátt, sem hún hefur gert. Hún
hefur fengið til umráða griðar-
legt landsvæði, sem aö flatar-
máli er hvorki meira né minna
en hálft Vestur-Þýzkaland og
lagt tugi milljarða i þetta fyrir-
tæki og markmiöið er þátttaka i
kapphlaupinu um geiminn.
. Sagan af þvi, hvernig
'.Vestur-Þjóðverjar hafa tekið á
leigu tiunda hluta af Zaire likist
mest æsilegri sögu hugmynda-
riks höfundar. OTRAG er að
nafni til hlutafélag, sem tekur
að sér að skjóta á loft gervi-
hnöttum i friðsamlegum til-
gangi. Arið 1974 fékk það i hend-
ur stórmikið fé úr visindasjóð-
um, sem þýzkarikið ræður yfir.
Stjórnarformaöur hlutafélags-
ins heitir dr. Kurt H. Debus, og
var á sinum hægri hönd hins
fræga manns, Werner von
Braun. Forstjóri er Lutz
Kayser, þrjátiu og átta ára, og
hefur lengi helgaö sig rannsókn-
um á eldflaugum.
Hin nánu tengsl hlutafe'lags-
ins og þýzka rikisins birtast
einnig i þvi, að sama dag og
fyrstu eldflauginni var skotið á
loft i Zaire, var utanrfkisráð-
herra Vestur-Þýzkalands, Hans
Dietrich Genscher, staddur i
Shabahéraði, sagður á leið til
fundar við Móbútú forseta, er
fékk við það tækifæri sem svar-
ar einum milljarði islenskra
króna til styrktar landi sinu.
Aður höfðu þeir Lutz Kayser
og Móbútú samið sin á milli, og
var samningurinn undirritaöur I
marzmánuði 1977. Þar er kveðiö
á um það, að OTRAG fengi á
leigu hundraö þúsund ferkiló-
metra lands i austurhluta Zaire
og greiddi eitthvaö um fimmtán
milljarða islenzkra króna i
leigu. Allt starfslið félagsins
skyldi undanþegið sköttum og
skyldum i Zaire og njóta að auki
sömu friðhelgi og réttinda og
starfsfólk sendiráða. OTRAG
má ákveða á eigin spýtur,
hverjir koma inn á þetta svæði,
sem er nokkurn veginn jafnstórt
Islandi, og Zairestjórn skuld-
batt sig til þess aö hlutast ekki
til um neitt, er þar færi fram.
Auk peninganna hefur það
auðsjáanlega blindað Móbútú,
að land hans yrði frægt af þvi,
að þar skyldi eiga að reisa
fyrstu skotpalla eldflauga i
Afriku. En hann er einn þeirra
afrisku þjóðhöfðingja, sem
stjórnar landi og lýð eins og allt
sé einkaeign hans. Hirð sú, sem
hann : hefur um sig, lifir i mikl-
um munaði og er frek til fjár, en
mikill hluti þjóðarinnar er van-
nærður og sums staðar er fólkið
á hungurmörkum.
Einmitt i Shabahéraði kom til
uppreisnar siðast liðið vor, og
þá lýsti Carter Bandarikjafor-
seti Móbútú sem nánum vini
Vesturlanda, er ekki mætti
verða fyrir skakkaföllum. En
Nathanael Mbúmba, sem
stjórnaði uppreisninni, kallaði
stöðvar Þjóðverja bækistöð til
liðveizlu við Suður-Afrikustjórn
og þátt i viðleitni vestrænna
rikja til aö umkringja þau lönd i
sunnanverðri Afriku er viidu
fara sinar götur.
Fullyrt er, að stöðvarnar i
Shaba hafi þegar verið notaðar
af vestur-þýzka varnarmála-
ráðuneytinu til þess að prófa
ýmsar gerðir eldflauga. Slik
vopn má ekki smiða eða fara
með i Vestur-Þýzkalandi sjálfu
samkvæmt sáttmála þeim frá
1954, er kenndur er við Lundúni
og Paris. En þarna er leið fund-
in til þess að fara kring um
hann.
Fréttaritari Reuters i
Brússel, JamesFollys, staðhæf-
ir, að Vestur-Þjóðverjar hafi i
smiðum kjarnorkuvopn, sem
komizt af með litla hleöslu.
Þetta er samstæða margra
litilla flauga, sem hver um sig
getur gerbreytt um það bil eins
ferkilómetra svæði. Þess háttar
vopn segir hann, að reyna eigi i
Zaire. En friðarrannsóknar-
stofnunin i Stokkhólmi, SIRPI,
Kenningin:
Að hætta að framleiða
Hjá einu dagblaðanna
íslenzku er sú kenning í
hávegum höfð að hætta
að framieiða hér uppi á
isaköldu landi, að
minnsta kosti að hætta
framleiðslu á land-
búnaðarvörum.
Blaðið hefur að sjálf-
sögðu margsannað kenn-
inguna vísindalega og þá
eðlilega gengið út frá al-
þjóðlegu framleiðslu-
ástandi jafnt sem is-
lenzku. T.d. hefur komið
fram að verðlækkanir á
korni og soyabaunum
stuðlaði á sínum tíma að
offramleiðslu í heimin-
um, einkum á mjólkur-
afurðum, og ennfremur
að aukinni búfjárfram-
leiðslu. Þar á ofan hefur
það sýnt sig að aðeins 460
milljónir manns búa vió
alvarlegan matarskort ,,í
þessum bezta heimi allra
heima". Árlega blindast
auk þess um 100 þúsund
börn vegna A-vítamín-
skorts.
Það er því Ijóst, eins og
blaðið réttilega segir, að
heiminum verður ekki
betur bjargað af Islands
hálfu en þannig að ís
lendingar hætti allri
framleiðslu landbúnað-
arvara.
y Ekki skal því þó neitað
að alltaf öðru hverju
heyrast hjáróma raddir
sem ekki eru á hinni einu
réttu skoðun. Þessar
raddir eru algengastar í
dagblaðinu Tímanum,
segja menn, en heyrast
þó víðar og nú siðast í riti
Landverndar: ,,Fæðubú-
skapur". Segir þar á ein-
um stað: ,,Hér á íslandi
var uppi mikill hávaði
fyrir 1-2 árum um að
jafnvel leggja niður mat-
vælaframleiðslu hér, en
flytja inn kjöt, mjólk o.fl.
i skiptum fyrir málma.
Eins og ástandið er í
heiminum núna, lætur
þetta nærri sjáífsmorðs-
hugleiðingum. Vonandi
bíða mannkyns betri tím-
ar, svo að við getum veitt
okkur að flytja út dýra
málma fyrir ódýr mat-
væli."
Þrátt fyrir slík mót-
mæli stendur hinn sanni
málstaður óhaggaður eft-
ir. Því má heldur ekki
gleyma að ótal margt
fleira en hér hefur verið
nefnt skýtur stoðum und-
ir nauðsyn þess að hætta
að framleiða á íslandi.
T.d. má nefna að grund-
völlur mundi þannig
skapast fyrir verulega
fjölgun i stétt heildsala,
þ.e.a.s. með auknum inn-
flutningi. Fjölgun heild-
sala og aukinn innflutn-
ingur er enda líf snauðsyn
essari þjóð. Ekkertannað
mundi fremur stuðla að
eyðslu umframgjaldeyr-
is, en við höf um nú ekkert
betra við hann að gera en
geyma hann á reikning-
um i erlendum bönkum.
Að lokum skal á það bent
að þegar bændur yrðu all-
ir atvinnulausir mundi
spenna og samkeppni á
vinnumarkaði vera úr
sögunni. Slíkt mundi aft-
ur stuðla að lægri launum
hjá verkafólki, og um
nauðsyn þess geta allir
verið sammála.
Hér með telst kenning
dagblaðsins íslenzka vera
sönnuð þ.e. að bændur
verða að hætta að fram-
leiða, Aðeins með því
móti verður öllum lang-
tímamarkmiðum náð.
Þannig verður stuðlað að
atvinnuleysi, kauplækk-
unum auknum innflutn-
ingi, minni útflutningi og
pinulitið minni fram-
leiðslu og meira hungri ,,í
þessum bezta heimi allra
heima".
KUBBUR