Tíminn - 05.02.1978, Side 21

Tíminn - 05.02.1978, Side 21
Sunnudagur 5. febrúar 1978 21 Árnað heilla 17.9.77 voru gefin saman i hjóna- band af sr. Þóri Stephensen i Dómkirlcjunni Jófriður A. Hall- dórsdóttir og Sigurður Jónsson heimili Rauðalæk 55, R. (ljósm.st. Gunnars Ingimars. Suðurveri) 24.9.77 voru gefin saman f hóna- band af sr. Frank M. Halldórs- syni i Neskirkju Ingibjörg Þor- finnsdóttir og Guðmundur Þor- björnsson, heimili Meistaravöll- um 9, R. (Ljósm.st. Gunnars Ingimars. Suðurveri) 17.9.77 voru gefin saman i hjóna- band af sr. Sigurði H. Guðjóns- syni Langholtskirkju Helga Andreasen og Sigurður Jóhanns- son heimili Garðarsbraut 67, Húsavík (Ljósm.st. Gunnars Ingimars Suðurveri) 8.10.77 voru gefin saman i hjóna- band i Þjóðkirkjunni i Hafnarf. af sr. Garðari Þorsteinssyni Ragn- heiður Ingadóttir og Úlfar Sigur- jónsson, heimili öldugötu 35, Hafnarf. (Ljósm.st. Gunnars Ingimars. Suðurveri) 3. sept. 1977 voru gefin saman i hjónaband af sr. Brynjólfi Gisla- syni I Stafholtskirkju Herdis Tómasdóttir og KrLstján GuS- mundsson, heimili Nesvegi 13, Grundarfirði. (Ljósm.st. Gunn- ars Ingimars. SuJ>urveri) 17.9.77 voru gefin saman i hjóna- band af sr. Siguröi Hauki Guð- jónssyni i Langholtskirkju Friða Björk Gunnarsdóttir og Aðal- steinn Gottskálksson. Heimili Hólavegi 11, Dalvik. (Ljósm.st. Gunnars Ingimars. Suðurveri) Árni tsleifsson Var lengi búinn að ganga með þá hugmynd — segir Árni ísleifsson, tónlistarkennari, sem flutti til Egilsstaða i fyrrahaust Ég var lengi búinn a'ð'ganga með þá hugmynd að flytja út á land, og loks lét ég verða af þvi fyrir ári siðan, sagði Arni Is- leifsson tónlistarkennari i við- tali við Timann á Egilsstöðum nýlega. Ég lauk prófi úr söng- kennaradeild Tónlistarskólans árið 1971 og hafði þá strax hugs- að mér að flytja út á land. Var þá með það i huga að flytja til Sauðárkróks en af þvi varð ekki. Sfðan var ég um kyrrt i Reykja- vík þar til i fyrraháust að ég flutti hingað til Egilsstaða. Vissulega komu ýmsir staðir til greina, eftir að ég hafði ákveðið að flytja, en það sem réði úrslit- um var, að ég þekkti skólastjóra tónlistarskólans hér, Magnús Magnússon, og vildi ég gjarnan starfa með honum. Hér á Egilsstöðum er mjög gott að vera. Maður finnur ekki tiTneinnar einangrunar, enda eru hér miklir möguleikar á ferðum f allar áttir. T.d. eru daglegar ferðir til Reykjavikur. Auk þess er hér mjög fallegt og vfðsýnt og loftslagið er miklu betra en i Reykjavik. Bæði er loftið tærara og einnig er það mun þurrara en i Reykjavik. Arni sagði að tónlistarlif væri gott á Héraði. Vel væri búið að tónlistarskólanum en þar stunda 80 nemendur nám. Þá væru tveir kórar starfandi og mikið væri um annað félags- starf. Fólkið lifði lika heilbrigðu lifi, t.d. stundaði það gönguferð- ir og aðra útiveru. Á Egilsstöðum er starfandi dixieland hljómsveit undir stjórn Arna. I henni eru 10 hljómlistarmenn og æfa þeir vel og reglulega. Nokkrum sinnum hefur hljómsveitin spilað opin- berlega m.a. hélt hún kabarett ásamt leikfélaginu og Tónkórn- um, sem syngur undir stjórn Magnúsar Magnússonar skóla- stjóra tónlistarskólans. Og i blaðinu Austra á Egilsstöðum sáum við að hljómsveitin hefur auglýst að hún muni gangast fyrir grimudansleik laugardag- mn 11. marz n.K. í íetagsheimil- inu Valaskjálf. Þá greindi Arni okkur frá þvi, að á Egilsstöðum er starfandi dansflokkur sem heitir „Fiðr- ildin”. Þetta er gömludansa- klúbbur, sem einnig hefur á að skipa sýningarflokk. I honum eru á milli 20 og 30 manns, og sýnir flokkurinn undir stjórn Þráins Skarphéðinssonar. Á sið- ■ asta ári fór flokkurinn i sýn- ingarferð til Noregs og i sumar hefur flokknum verið boðið til Búlgaríu. Að lokum sagði Árni, að sér likaði mjög vel að búa úti á landi og vildi hann nota tækifærið til að hvetja aðra borgarbúa til að gera slikt hið sama og hann hefði gert. — Ég hef sagt félög- um minum að drifa sig i að sækja um stöður úti á landi, og oft bendi ég þeim á, að einn af mörgum stórum kostum þess að búa á litlum stöðum er, að þar þarf maður aldrei að hlaupa á eftir „strætó”. MÓ Félagar í dixielandhljómsveit Arna Isleifssonar á æfingu. Tfmamynd MÓ

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.