Tíminn - 05.02.1978, Síða 27

Tíminn - 05.02.1978, Síða 27
Sunnudagur 5. febrúar 1978 IJlilMili 27 Rauði krossinn Merkjasala f Aö Silungapolli 1975. 1 m ' 1 " *v" 1' ..... .: V 1 GM gUI : ri ;É n r JHT 19 Stjórn Reykjavikurdeildar RKÍ vill minna borgarbúa á merkja- sölu Rauða krossins sem verður á öskudag að venju. Agóði af merkjasölunni i Reykjavik fer m.a. til kaupa á sjúkrabil en deildin hefur keypt 3 nýja sjúkrabila á sl. 2 árum sem kostað hafa um 12 millj. króna. Nú er verið að kaupa nýjan sjúkrabil en endurnýjun bilanna þarf að vera ör, þar sem þeir eru i stöðugum ferðum eða um 30 ferð- um á dag að jafnaði. Af annarri starfsemi deildar- innar viljum við minna á starf- rækslu sumardvalaheimilis fyrir Reykjavikurbörn sem á undan- förnum árum hefur verið að Sil- ungapolli en lengst af i Laugarási i Biskupstungum en sú starfsemi er með aðstoð borgaryfirvalda. Nú er i ráði að hefja aftur heim- sendingu máltiða til aldraðra og öryrkja og vonandi getur sú starf- semi aftur hafizt innan skamms og verður þá nánar tilkynnt. Það sem nefnt hefur verið og eins námskeið i skyndihjálp og aðhlynningu sjúkra i heimahús- um kostar allt fjármuni sem safnað er með ýmsum hætti m.a. með árlegri merkjasölu. Enn er leitað til borgarbúa að þeir taki sölubörnum vel, þegar þau bjóða merkin til sölu. Talsvert á annað hundrað sjálf- boðaliðar úr Kvennaskólanum og Húsmæðraskóla Reykjavikur hafa nú og á undanförnum árum hjálpað sjálfboðaliðum úr Reykjavikurdeild og kvennadeild hennar við merkjasöluna á ösku- dag. Við viljum að lokum hvetja for- eldra til að leyfa börnum sinum að selja merkin og sjá til þess,að þau séu hlýlega búin, ef kalt verður i veðri. Sölubörn fá 10% sölulaun og þau söluhæstu fá auk þess bóka- verðlaun. Verð merkjanna er kr. 200.- Afhending merkjanna verður viðs vegar um borgina i skólum og verzlunum — athugið aug- lýsingu i þriðjudagblöðunum. ROMA -RA ÐSETT/Ð er stilhreint, fallegt og vandað. Aklæði eftir eigin va/i. Komið og skoðið húsgagnaúrvalið Við eigum eflaust það sem hentar Verið velkomin! SMIDJUVEGI6 SIMl 44541 Nýr Gangleri Timaritið „GANGLERI”, sið- aría hefti 51. árgangs, er komið út. Meðal efnis eru greinarnar: Sálfræði og heimspeki Plotinusar, eftir Dr. Erlend Haraldsson, sál- fræðing, Hvað er esóterismi?, eft- ir Sigvalda Hjálmarsson, Molar úr fræðum Jungs, eftir Sverri Bjarnason, og Kundalini, eftir Geir Agústsson. Þá er þýdd grein eftir Alan W. Watts, er nefnist Veruleiki endurfæðinganna, og fjallar um hina fornu kenningu um endurfæðingu, skoðaða frá óvenjulegu sjónarmiði, grein eftir hinn þekkta atómvisindamann i Bandarikjunum, Dr. Fritjof Capra, sem byggð er á bók hans — The Tao of Physics- og nefnd er Búddhismi i eðlisfræði nútimans. Af öðru efni má nefna tvær greinar eftir Daniel Goleman: — Um dáleiðslu þar sem sýnt er fram á að dáleiðsla er ekki lengur úthrópuð sem svikabrögð, heldur hafi hún hlotið viðurkenningu sem fullgild lækningaaðferð, og— Leyndardómurinn um mesta dávald okkar tima —, þar sem sagt er frá Milton Erickson, ein- um mesta snillingi, sem nú er uppi i lækninga-dáleiðslu. — Ýmislegt fleira efni er i ritinu. Gangleri er gefinn út af Guðspekifélagi Islands i 2300 eintökum, sem nær öll fara til fastra áskrifenda. — Þó má fá rit- ið i lausasölu hjá bókaverzlun Snæbjarnar i Reykjavik. BÆNDUR SÚG- þurrkun Eins og undanfarin ár smíðar Landssmiðjan hina frábæru H-12 og H-22 súgþurrkunarblásara Bldsararnir hafa hlotið einróma lof bænda fyrir afköst og endingu Sendið oss pantanir yðar sem fyrst LANDSSMIÐJAN Reytgaxik Auglýsingadeild Tímans Ritstjórn, skrifstofa og afgreiðsla

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.