Tíminn - 07.02.1978, Qupperneq 1
Slöngur — Barkar — Tengi
GISTING
MORGUNVERÐUR
SIMI 28866
Það var lítið að gera i gjaldeyrisdeild Landsbankans að Laugavegi 77 er Röbert Ijósmyndari Tlmans
leit þar við I gær, og smellti af þessari mynd. Gengisskráning var engin.
31. tölublað—Þriðjudagur 7. febrúar 1978—62. árgangur
■
Þessa mynd tók Róbert i blíöviðrinu á dögunum og sýnir hún okkur,
að ef áhuginn er fyrir hendi þarf ekki að leita langt til að fullnægja
honum. A.m.k. lætur stúikan á myndinni ekki hugsanir um lyfturn-
ar og fljóðljósin uppi i Biáfjöllum eða öðrum skíðalöndum i ná-
grenni Reykjavikur baga sig og rennir sér hæstánægð á sklöunum
sinum utan vegar. Og það er um að gera að notfæra sér dagsbirtuna
þar til sólin hverfur á bak við sjóndeildarhringinn og myrkrið skell-
Gengisskráning felld niður:
Væntanlegar gengis-
breytingar undir 20%
GV —Hér i gjaldeyrisdeildinni
hefur verið ósköp rólegt i dag,
enda er deildin lokuð og ekki af-
greiddar nema undanþágur,
þannig að fólki er gefinn kostur
á gjaldeyri að viðbættu trygg-
ingarfé umfram siðasta gengi.
Maður skyldi ætla, að væntan-
leg gengisbreyting verði undir
20%, þvi annars væri ekki hægt
að gera þessa „deponeringu”
upp, sagði Sigurður Blöndal að-
stoðarforstöðumaður gjald-
eyrisdeildar Útvegsbankans i
viðtali við blaöið i gær.
Að sögn Sigurðar hefur þessi
aðferð, að gefa fólki kost á að
greiða viðbótar-tryggingarfé
sem næst væntanlegu gengi, á
meðan að gengi er ekki skráð,
verið iðkuð áður fyrir gengis-
breytingar. 1 gær var aðeins af-
greiddur ferðamannagjaldeyrir
og nauðsynjavörur, en ekki eru
likur á að þetta vari lengi, því að
samkvæmt þeim upplýsingum,
sem blaðið telur áreiðanlegar,
verður frétta af aðgerðum rikis-
stjórnarinnar i gengismálum að
vænta á miðvikudag eða
fimmtudag.
Um helgina ákvað stjórn
Seðlabankans, að gengisskrán-
ing yrði felld niður frá og með
gærdeginum og fer hér á eftir
fréttatilkynning Seðlabankans:
„Seðlabankinn hefur að höfðu
samráði við viðskiptaráðuneyt-
ið og gjaldeyrisviðskiptabank-
ana ákveöið, að gengisskráning
verði felld niður frá og með opn-
un bankanna mánudags-
morguninn 6. febrúar n.k.
Ráðstöfun þessi er talin nauð-
synleg vegna þess óvissu-
ástands, sem skapazt hefur i
gengismálum vgna væntan-
legra aðgerða i efnahagsmál-
um.
A meðan gengið er óskráð
munu gjaldeyrisviðskipta-
bankarnir, þegar brýn nauðsyn
krefur, gefa viðskiptavinum
kost á gjaldeyri að viðbættu
tryggingarfé umfram siðasta
gengi, sem skráð var, gegn
bráðabirgðakvittun. Slik við-
skipti verði siðan gerð upp á
fyrsta opinbera gengi, sem
skráð verður eftir að regluleg
gjaldeyrisviðskipti hafa verið
tekin upp á ný.”
3. umferð-
in róleg
Alþýðusamband íslands:
Hugsanlegar efnahags
aðgerðir leiði til átaka á
vinnumarkaðinum
KEJ — Þriðja umferð Reykja-
vikurskákmótsins fór fram i gær
og var yfirbragð umferðarinnar
fremur rólegt. Athyglin beindist
einkum að skák Horts og Friðriks
en sú skák varð átakaminni en
menn áttu almennt von á.
Ilvorugur stormeistarinn r'eyndi
verulega fyrir sér og lauk skák-
inni með stórmeistarajafntefli
eftir 25 leiki.
Skák Lombardy og Guðmundar
Sigurjónssonar var skemmtileg
og tvisýn. Guðmundur virtist
lengi hafa sóknarmöguleika en
erfitt með að færa sér þá i nyt.
Skák Jóns Arnasonar „g Smejkal
vakti athygli en var jafnteflisleg
þegar hún fór i bið.
Úrslit þriðju umferðar urðu
annars þessi: Ogaard — Kucmin
(0:1), Larsen — Helgi Ólafsson
(1:0) Miles — Polugaevsky
(1/2:1/2) Hort — Friðrik
(1/2:1/2) Lombardy — Guðmund-
ur Sigurjónsson (biðskák eftir 53
leiki), Browne — Margeir Péturs-
son (1:0) Jón L. Arnason —
Smejkal (biðskák).
GV— Er Snorri Jónsson, varafor-
seti Alþýðusambands Islands var
i gær spurður um afstöðu Alþýðu-
sambandsins til þeirra efnahags-
aðgerða rikisstjórnarinnar, sem
nú virðast vera i uppsiglingu,
sagði hann að afstöðu ASI væri
bezt lýst i ályktun miðstjórnar-
innar á fundi s.l. fimmtudag, en
þar segir m.a.: „Miðstjórn Al-
þýðusambands íslands vill i sam-
bandi við þær umræður, sem nú
fara fram um efnahagsmál og
hugsanlegar efnahagsaðgerðir
minna á ályktun, sem gerð var á
sambandsstjórnarfundi 26. nóv.
sl. en þar segir svo m.a.:
„Kjarasamningarnir frá sl.
vori voru að sjálfsögðu gerðir i
trausti þess að við þá yrði staðið i
einu og öllu af rikisvaldinu og
samtökum atvinnurekenda.
Bregðist það, hafa þessir aðilar
fyrirgert þvi trausti.sem til þeirra
hefur verið borið sem heiðarlegra
viðsemjenda og það þvi fremur,
sem engar forsendur samning-
anna hafa breytzt til hins lakara
frá þvi er þeir voru undirritaðir.
Ef svo færi hlyti það að leiða til
mikilla átaka á vinnumarkaðin-
um, sem myndu magna allan
efnahagslegan vanda og auka enn
á verðbólgu. Sambandsstjórnin
hlýtur þvi að vara bæði rikisvald-
ið og atvinnurekendur mjög al-
varlega við þvi að hrófla i nokkru
við þeim skuldbindingum sem
samningarnir fela i sér.” ”
Reykj avíkur-
skákmótið
Á bls. 5 eru frásagnir af tveim
fyrstu umferðum Reykjavikur-
skákmótsins. 1 2. umferð vakti
skák þeirra Friðriks og Larsens
mesta athygli,enda var ótviræður
yfirburöasigur Friðriks glæsileg-
asta afrek, sem unnið var á þeim
vettvangi s.l. sunnudag. Sagt er
,frá skákinni og leikirnir birtir.