Tíminn - 07.02.1978, Blaðsíða 24
-------------—
ftmmw
Þriðjudagur 7. febrúar 1978
-
18-300
Auglýsingadeild
Tímans.
HREVFILL
Sfmi 8 55 22
■-
Sýrö éik
er sigild
eign
ftCiOG«1
TRÉSMIDJAN MEIDUR
SÍDUMÚLA 30 - SÍMI: 86822
------ ^
Búvísindadeildar
HEI — A hátiðafundi er haldinn
var I Kændaskólanum á Hvann-
eyri laugardaginn 4. janúar s.l.
kom fram m.a. i ræðu land-
búnaðarráðherra, Halldórs E.
Sigurðssonar, að nú á næstu
dögum yrði lagt fram frumvarp
til laga um búnaðarfræðslu i
landinu. Nefnd sem f eru Jónas
Jónsson, Friðjón Þórðarson,
Ingólfur Jónsson og Páll
Pétursson, hefur starfað að
endurskoðun á núgildandi lög-
um og aðstoðað við gerð frum-
varpsins. Er ætlazt til, að lög
um búnaðarf ræðslu verði nú
fastari i formi en verið hefur.
Búnaðarfræðslan verður i einni
og sömu stofnun, en i tveim
deildum. Búvisindadeild verður
á háskólastigi og krafizt
súdentsprófs eða samsvarandi
menntunar.
Ráðherra talaði einnig um
hvað uppbyggingin hefur verið
ör á Hvanneyri og hvað skólinn
væri orðinn snar þáttur i öllu lifi
héraðsins. Glöggt hafi komið i
ljós, hvaö mikils virði það sé að
hafa slikar menntastofnanir úti
á landsbyggðinni.
Þessi hátiðarfundur á Hvann-
eyri var haldinn i' tilefni þess, að
Búvisindadeild skólans hefur nú
starfað i þrjátiu ár. Gestir voru
margir af forystumönnum
bændasamtakanna i landinu,
skólastjórar og kennarar á
Hvanneyri, bæði fyrrverandi og
Lög um búnaðarfræðslu væntanleg:
Hátíðarfundur í
tilefni 30 ára
afmælis
núverandi og nýir og gamlir
nemendur Bændaskólans og Bú-
vis indadeildar.
Fundarstjóri var Magnús B.
Jónsson, skólastjóri. Guðmund-
ur Jónsson, fyrrverandi skóla-
stjórisagði m.a. i ræðu, að hon-
um leiddist að heyra, er talað
væri um, að hér þyrfti að stofna
fullkominn búnaðarháskóla.
Eiginlega mætti segja, að þetta
væri tvöföld vitleysa. Enginn
skóli værieðayrði nokkurn tima
fullkominn. En búnaðarháskóli
væri til nú þegar, svo hann
þyrfti ekki að stofna. Kandidat-
ar frá Hvanneyri hafa stundað
sérnám i búvisindum við er-
lenda háskóla og er það m.a. til
marks um þá viðurkenningu,
sem framhaldsskólinn á Hvann-
eyri hefur hlotið nú þegar.
Bjarni Arason formaður nem-
endasambands framhaldsdeild-
arog einn af nemendum I fyrsta
árgangi, lýsti þvi, hve geysileg-
ur munur væri á námsaðstööu
nú og þegar skólinn byrjaði. Þá
varð nám að miklu leyti að fara
fram i fyrirlestraformi, þvi
námsbækur vantaði.
Jón Gislason talaði fyrir hönd
núverandi nemenda Búvisinda-
deildar. Sagðist hann fagna
þeirri lagasetningu, sem nú
væri I vændum. Hann var
ánægður með skólastarfið, en
kvað þó vanta meiri tækjakost
til skólans og hærri fjárveit-
Halldór E. Sigurðsson, landbúnaðarráðherra flytur ræðu á afmælishátið Búvisindadeildar
að Hvanneyri.
ingu.
Gunnar Bjarnason, fyrrver-
andi kennari á Hvanneyri,
minntist erfiðleikanna við að
hefja kennslu i framhaldsdeild-
inni fyrir þrjátiu árum, þegar
flest vantaði er til þeirrar
kennslu þurfti. Einnig sagðist
hann hafa orðið fyrir vonbrigð-
um, er Rannsóknarstofnun
landbúnaðarins var reist á
Keldnaholti. Hún ætti að vera á
Hvanneyri. Búvisindadeildin
þyrfti að hafa góða aðstöðu til
rannsókna og eðlilegast væri, að
landbúnaðarrannóknir færu
fram uppi i sveit en ekki I borg.
Gunnar Guðbjartsson, form.
Stéttarsambands bænda flutti
hamingjuóskir til deiidarinnar,
og færði henni þakkir bænda-
samtakanna fyrir að bæta
menntun þeirra, er starfa að
málefnum landbúnaðarins.
Einnig vildi Gunnar vara við, að
búnaðarfræðslan einangraðist i
skólakerfinu, eins og raunin
hefði þvi miður orðið á með hús-
mæðraskólana, heldur yrði i
beinum tengslum við almenna
skólakerfið.
Ragnar Olgeirsson þakkaði
samskipti skólans og borg-
firzkra bænda, sem hann taldi
ávallt hafa verið mjög góð og
bændum i héraðinu ómetanleg.
A milli atriða söng Samkór
Hvanneyrar, góður kór, sem
skipaður er kirkjukór og nem-
endum á Hvanneyri. Að lokum
voru bornar fram góðar veiting-
ar.
Arang-
urslaus
fundur
Vikuaflinn:
Tæplega 35
af loðnu
þús. lestir
— 28 skip með 10
þús. lestir á sunnudag
KEJ — Fundur I deilu blaða-
manna og blaðaútgefenda stóð
hjá sáttasemjara frá klukkan tvö
til hálf niu i gærdag og miðaöi iit-
ið i samkomulagsátt.
Eins og fram hefur komið i
fréttum veittu blaðamenn stjórn
Blaðamannafélags Islands rétt til
verkfallsboöunar i allsherjarat-
kvæðagreiðslu á föstudag og
laugardag. Verkfall hefur enn
ekki veriö boðað.
GV — A miðnætti siðastliðinn
laugardag var heildarloðnuaflinn
orðinn 81.498 lestir, afli 58 skipa,
en á sama tima i fyrra var
heildaraflinn samtals 149.060 lest-
ir, og þá höfðu 69 skip fengið ein-
hvern afla, samkvæmt skýrslum
Fiskifélags Islands. Vikuafli
siðastliðinnar viku var samtals
34.705 lestir. Loðnu hefur verið
landað á 10 stöðum auk bræðslu-
skipsins Norglobal og mestu hef-
ur veriö landað á Siglufirði, sam-
Innbrotsþjófur
staðinn að verki
Ætlaði á brott með hljómflutn-
ingstækin þegar eigandinn kom að
SJ —t gærdag brauzt ungur mað-
ur inn i mannlausa ibúð við Sig-
tún. Tók hann til við aö búa um
hljómflutningstæki og fleira dót i
plastpoka og var að ferðbúast
þegar húsráðandi kom honum að
óvörum og kvaddi lögreglu á vett-
vang. Innbrotsþjófurinn tók til
fótanna, en var ekki kominn burt
úr hverfinu þegar Reykjavlkur-
lög^eglan ók hann uppi. Lög-
reg.umennirnir töldu að maður-
inn hefði ef til vill neytt lýfja.
Hann var i gæzlu lögreglunnar i
nótt, og verður mál hans tekið
fyrir hjá rannsóknarlögreglu
rikisins i dag.
Þessi maður mun hafa gengið
úr skugga um að enginn væri
heima i ibúðinni og talið sér
óhætt. Astæða er til að benda fólki
á að búa svo um útidyrahurðir að
ekki sé barnaleikur að brjótast
inn.
tals 27.810 lestum og Raufarhöfn
18.434 lestum.
Aflahæstu skipin i vikulokin
voru: lestir
l.OrnKE 13 4049
2. Gisli Árni RE 375 3942
3. Börkur NK 122 3732
4. Pétur Jónsson RE 69 3213
5. GrindvikingurGK606 3125
A sunnudag höfðu 28 skip aflað
10.300 lesta, sagði okkur Guðjón
Friðgeirsson hjá lo’ðnunefnd, en
siðdegis i gær höfðu sex skip til-
kynnt um 1660 lesta afla til loðnu-
nefndar. Veður var slæmt I fyrri
nótt á miðunum, en i gær voru
horfúr á batnandi veðri. 1 gær var
1550 lestum landað i Norglobal, en
hann hefurnú fært sig nær miðun-
um, og er nú staddur við Snarpa-
staðanúp á Axarfirði.
Krafla:
Álags-
prófanir
bráðlega
FI — Aflvélin við Kröfluvirkjun
var látin ganga i tæpa tvo klukku-
tima á sunnudaginn, en i gær var
hún keyrð mest allan daginn. Að
sögnGunnars Inga Gunnarssonar
tæknifræðings hafa allar prófanir
gengið samkvæmt áætlun og
verður hægt að byrja á álags-
prófunum fljótlega. Gufan sem
notuð er i þessum tómagangi
kemur úr holum 9, 7 og 11.
Timann vantar fólk til
blaðburðar i eftirtalin
hverfi:
Háteigsvegur
Suðurlandsbraut
Hátún
Miðtún
SÍMI 86-300