Tíminn - 07.02.1978, Síða 2
2
Þriöjudagur 7. febrúar 1978
hafa blíðk-
að Sadat
Washington/Reuter. Carter
Bandarikjaforseti hefur talið
egypzkaforsetann Anwar Sadat á
að vera þolinmóður við ísraels-
menn og reyna að auka likurnar á,
að viðræður milli deiluaðila i Mið-
austurlöndum hefjistað nýju. Að-
stoðarutanrikisráðherra Banda-
rikjanna á að fara til Miöaustur-
landa eftir um það bil 10 daga til
að reyna að miðla málum og fá
Sadat til að taka upp að nýju
stjórnmálaviðræðurnar, sem fóru
út um þúfur i siðasta mánuði.
Sadat fór til Washington með
það i huga að fá Carter til að
neyða Israelsmenn til frekari til-
slakana. I tilkynningu frá Hvita
húsinu sagöi hins vegar, að fyrir
orð Carters væri Sadat nú horfinn
frá þessu ráði. I tilkynningunni
sagði, aö Carter væri nú ljósara
en áður, hvers vegna Sadat teldi
tsraelsmenn ósveigjanlega i við-
horfi sinu til friöarsamninganna,
en itrekaði að Bandarikjanienn
teldu sig i hlutverki vinar beggja
aðila og tækju á sig ábyrgðina
sem þvi fylgdi.
Sadat hélt fund með leiðtogum
bandariskra Gyðinga i gær-
morgun, og hélt ræðu hjá samtök-
um fjölmiðla sfðar um daginn.
Sadat var óvenju alvarlegur og
þögull er hann kom frá sveitasetri
forseta til Hvita hússins.
Datt og
hlaut andlits-
meiðsl
SJ — Slys varð á laugardags-
kvöldið i „gömlu ferjunni” á
Akranesi sem notuð var áður við
sementsflutninga, en nú er verið
aðrifa. Ungur Akurnesingur, sem
unnið hefur við niðurrifið lagði
leið sina um borð og datt þar og
meiddist á andliti. Hann fór á
sjúkrahúsið á Akranesi, en var
siðan sendur til Reykjavikur til
frekari læknisaðgerða.
Joshua Nkomo:
Fylgjandi
þjóðarat-
kvæðagreiðslu
Joshua Nkomo
Carter
telur sig
Lusaka/Reuter. Ródesiski
skæruliðaforinginn Joshua
Nkomo sagði i gær, að hann aö-
hylltist frjálsar kosningar sem
hluta af viðleitninni til að koma á
friði i Ródesiu. Nkomo sagði á
fundi með fréttamönnum, að
skæruliðar myndu að visu fallast
á vopnahlé, en vera viðbúnir að
verja öryggi ibUa Zimbabwe
(Ródesiu) á meðan á kosningum
og stjórnarfarsbreytingum stæði.
„Fólkið mun hins vegar velja
sér leiðtoga, þeir sem voru leið-
togar kirkjunnar verða það
áfram, stjórnmálaleiðtogar og
ættflokkahöfðingjar munu sitja
aðvöldum, sé það vilji þjóöarinn-
ar” sagði Nkomo. í þessari yfir-
lýsingusinni mun Nkomo liklega
hafa átt við séra Sithole, Muzor-
ewa biskup og ættarhöfðingjann
Chirau, sem eru foringjar þjóð-
ernissinnaflokka, en hafa ekki
skæruliða bak við sig.
Nkomo sagði ennfremur, að
Sameinuðuþjóðirnarættuað taka
þátt i stjórnarfarsbreytingunni i
Ródesiu, þegar valdið verður flutt
Ur höndum 268 þúsunda hvitra
manna i hendur 6,5 milljóna þel-
dökkra. Hann tilgreindi þó ekki
nánar hver aðild S.Þ. yrði.
Nkomo fullyrti einnig í gær, að
11.200 málaliðar berðust með
stjórnarhernum i Ródesiu við
þjóðernissinnaða skæruliða. í
málaliðahernum kvað hann vera
600 tsraelsmenn, 4.500 Suð-
ur-Afrikumenn, 2.300 Banda-
rikjamenn, 2.000 Breta, 1.800
Frakka og allmarga Þjóðverja og
Portúgala. Nkomo sagði aðal-
bækistöðvar málaliðanna vera i
Zambesi-dalnum, en þar er von á
sókn frá Zambiu. Skæruliða-
hreyfing Nkomos hefur aðal-
stöðvar i Zambiu, en landamæri
Zambiu og Ródesiu liggja saman
720 kilómetra og skiptir Zam-
besi-áin löndum. ■
Audi I0OS-LS..................... hljóökútar aftan og frainan
Austin Mini............................hljóökútar og púströr
Hedford vörubíla.......................hljóökútar og púslrör
Bronco 6og 8 cyl.......................hljóökútar og púströr
Chevrolet fólksbila og vörubila........hljóökútar og pústriir
Ilatsun disel — I00A — I20A — 1200—
1600— 140— 180 ........................hljóökútar og púströr
Chrysler franskur......................hljóökútar og púströr
t'itroen (1S...........................hljóökútar og púströr
l)odge fólksbila.......................hljóökútar og púslrör
D.K.W. fólksbila.......................hljóökútar og púströr
Kiat 1100 — 1500 — 124 —
125 — 128 — 132 — 127 — 131 ........... hljóökútar og púströr
Kord. aineriska fólksbila..............hljóökútar og pústriir
Kord Concul Corlina 1300— 1600.........hljóökútar og púströr
Kord Kscort............................hljóökútar og púströr
Kord Taunus 12M — 15M — 17M — 20M .. hljóökútar og púströr
llillnian og Cominer fólksb. og sendib... hljóökútar og púströr
Austin (íipsy jeppi....................hljóökútar og púströr
Internatiþiial Scout jeppi.............hljóökútar og púströr
Hússajeppi (iAZ 60 ....................Iiljóökútar og púströr
\\ illvs jeppi og Wagoner..............hljóökútar og púströr
Jeepster V6 ...........................hijóökútar og pústriir
l-a<ia.................................lútar framan og aftan
Landrover hensin og disel..............hljóökúlar og púströr
Ma/da 616og 818........................hljóökútar og púströr
Ma/.da 1300 ...........................hljóökútar og púströr
Mazda 020 .......................hljóökútar franian og aftan
Mercedes Ben/ fólksbila 180 — ioo
200 — 220 — 250 — 280..................hljóðkutar og púströr
Mercedes Benz vörubila ................hljóökútar og púströr
Moskwitch 103 — 408—112 ...............hljóökútar og púströr
Morris Marina l,3og 1.8 ...............hljóökútar og pústriir
Opel Rekord og Caravan.................hljóökútar og púströr
Opel Kadett og Kapilan................hljóökútar og púströr
l’assat .........................hljóökútar framan og aftan
Reugeot 204 — 404 — 505 ..............hljóökútar og púströr
Rambler American og Classic ..........hljóökútar og púströr
Range Rover...........liljóökútar framan og aftan og púströr
Renault R4 — R6 — R8 —
H 10— R 12 — R 16 ....................hljóökútar og púströr
Saab «6og 99..........................hljóökútar og púströr
Scania Vabis 1.80 — 1.85 — 1.B85 —
1.110 — I.BllO — I.B140...........................hljóökútar
Simca folksbila.......................Iiljóökútar og púströr
Skoda fólksbila og stalion.............hljóökútar og púströr
Sunbeam 1250 — 1500 ................. hljóökútar og púströr
Taunus l ransit bensin og disel.......hljóökútar og pústriir
Tovota fólksbila og station...........hljóökútar og pustriir
Vauxhall íólksbila.....................hljóökútar og púströr
Volga fólksbíla........................hljóðkútar og púslrör
Volkswagen 1200 — K70 —
1300— 1500 ............................hljóðkútar og púströr
Volkswagen sendiferöabila.........................hljóökútar
Volvo fólksbila .......................hljóðkútar og púströr
\olvo vörubila K84 — 85TD —
N8S — KSS — \86 — K 86 —
NS6TD — KsiiTD og K89TD ..........................hljoökútar
Bif reiðaeigendur, athugið aö þetta er allt á mjög
hagstæöu veröi og sumt á mjög gömlu verði.
Geriö verósamanburö áóur en þifr festió kaup
annars staöar.
Bílavörubúðin Fjöðrin h.f.
Skeifan 2 simi 82944
Púströraupphengjusett í flestar gerðir
bifreiða.
Pústbarkar flestar stærðir.
Púströr í beinum lengdum 1 !/<♦ 'il 3 1/2"
Setjum pústkerfi undir bíla/ sími 63466.
Sendum í póstkröfu um land allt.
Sómalskir hermenn gera við gamlan sovézkan skriðdreka. A meðan berast Eþíópiumönnum stöðugt ný
vopn. ^
Sómalíumenn á und-
anhaldi í Ogaden
Madawein, Eþiópía/Reuter.
Sómalskir skæruliðar eru nú á
undanhaldi frá nokkrum stöðvum
kringum hina hernaöarlega
mikilvægu borg Harar, eftir að
eþiópiski flugherinn hóf mikla
sóknásvæðinu.Þessifrétt er höfð
eftir yf irmanni úr sómalska hern-
um. Sómalski foringinn, Jama
Ali, sagði að skæruliðar hefðu
orðiö aöhörfa á nokkrum stöðum,
vegna gifurlegra árása flughers
og stórskotaliðs, sem að sögn Ali
er stjórnaö af sovézkum og
kúbixiskum hernaöarráðgjöfum.
Sómölsku skæruliöarnir hafa
barizt i fjöllunum kringum
Harar viö Gara Marda skaröiö,
sem er einn mikilvægasti staður-
inn i striðinu i Ogaden eyðimörk-
inni. Sómalski foringinn neitaði
þvi þó að Gara Marda hefði fallið
i hendur Eþiópiumönnum, en
vegurinn frá Harar til Jijiga ligg-
ur um skarðið, og er aðalaðflutn-
ingsleið fjallaborgarinnar.
Eþiópiumönnum berast nú
skips- og flugfarmar af nýjum
sovézkum vopnum og hyggjast nú
ná Ogaden eyðimörkinni á sitt
vald meðgagnsókn. Sómalir náöu
mestum hluta svæðisins á sitt
vald á siðustu sex mánuðum. Tal-
ið er, að loftárásirnar eigi að
veikja lið Sómaliumanna, áður en
sókn landhers Eþiópiumanna
hefst, en þá mun eiga að reka
Sómalíumenn til baka af svæðinu.
Fréttir frá Mógadishu herma,
að sendimenn vestrænna rikja i
höfuðborg Sómaliu hafi veriö
kallaðirtil utanrikisráðuneytisins
iannaðskiptiðáþremdögum. Er
þetta taiið benda til þess, að ótti
Sómaliustjórnar við innrás frá
Eþiópiu hafði aukizt.
Bandarikjamenn og aðrar vest-
rænar þjóðir hafa hingað til neit-
aö að styrkja striðsaðila i Ogad-
en-eyðimörkinni. Talið er að
Sovétmennséuekki ákveðnir i að
leyfa Eþiópiumönnum að halda
sókninni áfram inn i Sómaliu.
i