Tíminn - 07.02.1978, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 7. febrúar 1978
7
Útgefandi Framsóknarflokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar:
Þórarinn Þórarinsson (ábm.), og Jón Helgason. Rit-
stjórnarfulltrúi: Jón Sigurðsson. Auglýsingastjóri: Stein-
grimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmda-
stjórn og auglýsingar Siðumúla 15. Simi 86300.
Kvöldsimar blaðamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20.00:
86387. Verð i lausasölu kr. 90.00 Askriftargjald kr. 1700 á
mánuði.
Blaðaprent h.f.
Verður komið í veg
fyrir atvinnuleysi?
Það er ljóst af afkomu útflutningsatvinnuveganna
um þessar mundir að stöðvun vofir yfir mörgum
greinum þeirra, eins og t.d. hraðfrystihúsunum og
ullariðnaðinum, ef ekki verður neitt gert til að
styrkja stöðu þeirra, annað hvort með gengislækk-
un eða annarri tilsvarandi ráðstöfun. Það er jafn-
framt ljóst,að slik ráðstöfun kemur að litlu gagni, ef
ekki verða gerðar jafnhliða ráðstafanir til að draga
úr hinum öru vixlhækkunum verðlags og kaup-
gjalds sem eru hraðvirkari hér en i nokkru öðru
landi og eru meginorsök hins hraða verðbólguvaxt-
ar hérlandis. Slikar ráðstafanir er unnt að gera án
teljandi kjaraskerðingar fyrir láglaunafólk, en hins
vegar verða þeir sem betur eru settir, að taka á sig
nokkra aukabyrði
En er slik byrði of mikil til að koma i veg fyrir
stöðvun helztu útflutningsgreinanna, en af þvi
myndi ekki aðeins leiða atvinnuleysi vegna stöðv-
unar þeirra, heldur myndi fylgja þvi samdráttur,
sem fljótlega leiddi til stöðvunar i öðrum atvinnu-
greinum og hraðvaxandi atvinnuleysis ?
Þeir , sem risa kunna gegn slikum ráðstöfunum,
eru i raun að berjast fyrir þvi að hér komi til sög-
unnar vaxandi atvinnuleysi með öllu þvi böli sem
þvi fylgir. Þeir eru ekki heldur að berjast fyrir lág-
launafólk, þvi að það mun að mestu halda sinu. Þeir
eru að berjast fyrir þá, sem eru betur settir, en þó
mun hagnaður þeirra reynast minni en enginn, þvi
að vaxandi atvinnuleysi mun bitna á þeim með
ýmsum hætti ekki siður en öðrum.
Krónufjöldinn
Sá maður, sem ekki telur nauðsynlegt að draga úr
verðbólguvextinum, mun vandfundinn. Þegar hins
vegar kemur að þvi að gera ráðstafanir til að draga
úr honum, breytist þetta viðhorf iðulega. Þá virðast
ýmsir fara að reikna, hvort þetta fækkar krónun-
um, sem viðkomandi fær, og afstaðan oft látin ráð-
ast af þvi. En menn athuga ekki, að það er ekki
krónufjöldinn, sem segir alla söguna. Hvers virði er
t.d. það að fá nú70-80% fleiri krónur en fyrir ári síð-
an, þegar raunveruleg kaupgeta hefur sennilega
ekki aukizt me'ira en 5-6% ?
En þannig heldur þetta áfram, ef ekki er reynt að
draga úr hinum öru vixlhækkunum verðlags og
kaupgjalds. Þær rýra fyrst og fremst verðgildi
krónunnar, en tryggja ekki kaupmáttinn nema að
litlu leyti.
Botnleysa
Lúðvik Jósepsson er glöggur maður. Þó hefur það
slys hent hann sem nýkjörinn formann Alþýðu-
bandalagsins að bera fram efnahagstillögur, sem
hann skilur ekki sjálfur. í þær vantar nefnilega
sjálfan botninn eða það höfuðatriði, hvernig eigi að
tryggja rekstur útflutningsatvinnuveganna. Til
þess nægir ekki lækkun á söluskatti, ef atvinnuveg-
irnir eru skattlagðir i staðinn. Þá er það tekið aftur
með annarri hendinni sem gefið er með hinni. Lúð-
vik ætti að lesa þingræðúr sinar þegar hann var i
rikisstjórn. Þá myndi honum verða ljóst hvilik
dæmalaus botnleysa tillögur hans eru.
Lúðvik mun hafa tekið nauðugur við forrriennsk-
unni i Alþýðubandalaginu. Hann hefur bersýnilega
fundið á sér, að þvi starfi gæti fylgt óraunsær til-
löguflutningur, eins og þegar er komið á daginn.
Þ.Þ.
ERLENT YFIRLIT
Örlög Sadats verða
ráðin í Washington
Sáttatilraun hans er að fara út um þúfur
Sadat
ÞAÐ ER álit ýmissa frétta-
skýrenda, sem bezt fylgjast
með málum, að Carter Banda-
ríkjaforsetiogstjórn hans hafi
pólitísk örlög Sadats Egypta-
landsforseta i hendi sér. Allt
benti til þess, að sú sáttatil-
raun Sadats, sem hann hóf
með hinni óvæntu heimsókn
sinni til Jerúsalem i nóvember
siðastliðnum, sé í þann veginn
að fara út um þúfur, þar sem
tsraelsstjórn undir forustu
Begins hef ur ekki boðið neinar
teljandi tilslakanir, heldur
miklu frekar fært sig upp á
skaftið, eins og aukið landnám
Israelsmanna á vesturbakk-
anum svonefnda, þykir merki
um. Fari sáttatilraun Sadats
þannig út um þúfur, má hann
reikna með auknum erfiðleik-
um heima fyrir og vaxandi
fjandskap annarra Araba-
þjóða. Liklegasta afleiðingin
er sú, aö honum verði steypt af
stóli.
Eina von Sadats er sú, að
Bandarikjastjórn beiti
Israelsmenn auknum þrýst-
ingi og fái þá til að slaka það
mikil til, að Sadat geti haldið
viðræðum áfram á viðunandi
hátt. Margt bendir til, að Cart-
er og samstarfsmenn hans
treysti sér ekki til aö beita Be-
gin slikum þrýstingi, heldur
reyni þeir frekar að beita
Sadat þrýstingi. Komi hann
tómhentur heim frá Washing-
ton, hefur hann naumast um
annað að velja en að slita við-
ræðunum við Begin. Vilji
Carters til málamiðlunar er
ótviræður, en flokkur hans á
mikið undir hinum fjársterku
Gyðingum i Bandarikjunum.
Fyrir þeirri staðreynd hafa
leiðtogar demókrata hvað
eftir annaö beygt sig. Hins
vegar hafa Gyöingar minni
áhrif i flokki repúblikana og
þess vegna væri rikisstjórn
þeirra liklegri til þess að geta
leyst þessa deilu en rikisstjórn
demókr ata.
SADAT dvelst nd i Bandarikj-
unum, en hann fór þangað i
boði Carters. Carterbauðhon-
um að heimsækja sig 23. janú-
ar siöastl. þegar viðræöur
milli stjórna Israels og
Egyptalands virtust komnar i
strand vegna þess, að Israels-
stjórnhafði ekki fallizt á nein-
ar teljandi tilslakanir, en hins
vegar gert ráðstafanir til aö
færa út svokallað landnám
Israelsmanna bæði á Sinai-
skaga og vesturbakkanum.
Sadat taldi rétt aö þiggja boð
Carters i trausti þess, að hann
fengi Carter til að beita
Israelsstjórn meiri þrýstingi.
Jafnframt ákvað hann að nota
þetta ferðalag sitt til að afla
sáttastefnu sinni aukins fylgis
erlendis. Sadat hóf feröalag
sitt siðastliðinn fimmtudag og
kom við i Marokkó á vestur-
leiðinni og ræddi við Hassan
konung, sem hefúr verið sá
þjóðhöfðingi Araba, sem veitt
hefur sáttatilraun Sadats ein-
dregnastan stuðning. Til Was-
hington kom Sadat á föstudag
og dvaldist með konu sinni i
Camp David á laugardag og
sunnudag i boði Cartershjón-
anna. Þar ræddu þeir Carter
itarlega um sáttatilraun
Sadats, en litið verður ráðið af
niðurstöðu þeirra viðræðna af
þeirri yfirlýsingu, sem þeir
birtu að þeim loknum. A
mánudaginn flutti Sadat er-
indi I National Press Club og
svaraði fyrirspurnum blaða-
manna. 1 dag mun hann ræða
viö þingmenn og ýmsa áhrif-
amenn og halda svo heimleiðis
frá Washington á morgun. A
heimleiðinni mun hann koma
við i London, Paris, Bonn, Vin,
Búkarest og Róm og leita
stuðnings rikisstjórna þar við
sáttastefnu sina. Alls mun
hann i þessu ferðalagi heim-
sækja átta lönd á þrettán dög-
um.
BERI þetta ferðalag Sadats
ekki teljandi árangur, er staða
hans orðin mjög veik. Einkum
mun það reynast honum ör-
lagarikt, ef hann kemur tóm-
hentur frá Bandarikjunum,
einsog áður segir. Þau Araba-
rikin, sem eru honum andvig-
ust, eins og Irak, Alsir, Sýr-
land, Libýa og Suður-Jemen,
munu þá herða áróður gegn
honum. Þau Arabariki, sem
hafa fylgt eins konar hlutleys-
isstefnu, eins og Saudi-Arabia,
Jórdania og Kuwait, munu
verða honum andstæöari en
áður. Þá má búast við að and-
staðan gegn honum heima
fyrir muni magnast. Valda-
skeið hans getur þá brátt
runnið á enda.
Vafalaust gerir Begin sér
þetta vel ljóst. Hann hefur
hagnazt mikið pólitiskt á
sáttatilraun Sadats. Hann
treystir á hernaðarlega yfir-
burði tsraels, ef sáttatilraunin
fer út um þúfur. Siðar meir
kynni þó tsraelsmenn að iðra
þess að hafa ekki notað þetta
tækifæri til samkomulags við
Araba.
—Þ.Þ.
Sadat og Hassan konungur á flugvellinum i Marokkó.