Tíminn - 07.02.1978, Qupperneq 9
Þriðjudagur 7. febrúar 1978
9
á víðavangi
Undir sóknarmerki
framleiðslu
stefnunnar
Tómas Arnason alþingis-
maður ritar forystugrein sið-
asta tölublaðs Austra, og nefn-
ist hún „Framleiðslustefnan
— framleiðslukeðjan.” Titill-
inn er í senn táknrænn og lær-
dómsrikur. Frá upphafi hafa
Framsóknarmenn lagt á það
megináherzlu, að framleiðsl-
an og framieiðsian ein getur
verið undirstaða lif skjaranna.
Fésýsla og viðskipti byggist á
þvi að framleiðslugreinarnar
skili af sér lifsgæðum sem
verða til skiptanna, og þjón-
ustugreinarnar hvQa á þeirri
forsendu að framleiðslu-
stéttirnar hafi bolmagn til
þess að leita eftir þjónustu við
þvi verði sem hún verður
keypt.
Framleiðslustefnan er enn
fremur einn af hyrningar-
steinum samvinnustefnunnar,
en hún felur það i sér að menn
taki höndum saman um fram-
leiðslu, úrvinnslu og þjónustu
við sannvirði. Hagsmunir
launamannsins verði þannig
samtvinnaðir aukinni og
bættri framleiðslu og stjórn-
un, en kröftum ekki sóað i
stéttaþófi.
Hafi einhvern tima eitthvað
borið á milli i afstöðu félags-
hyggjumanna og verkalýðs-
hreyfingarinnar til viðbragða
við efnahagsvanda, þá er þvi
um að kenna að forysta verka-
lýðshreyfingarinnar hefur á
tiðum fallið i þá freistni að
heimta skammgóðan vermi
krónutöluhækkana án þess að
hafa hliðsjón af þeim lifsgæð-
um sem eru til skiptanna. Við-
horf stuðningsmanna fram-
leiðslustefnunnar hefur þá
verið á hinn bóginn það, að
launþegunum væri það hag-
stæðast að kaupmátturinn yk-
ist við aukna og bætta fram-
leiðslu, þannig að meira og
betra kæmi til skiptanna.
Hlutverk verkalýðs-
hreyfingarinnar verður þá að
standa vörð um það að laun-
þegarnir fái sinn réttmæta
skerf af heildinni, og af sjálfu
leiöir að hlutverk hennar
verður þá með ööru að taka
þátt i stamstarfi um æskilega
hagþróun annars vegar og
eðUIegan vöxt samneyzlu og
félagslegrar þjónustu, freinur
en að einblfna á sem mesta
einkaneyzlu og stundareyðslu.
Megln
áfangar
i forystugrein Tómasar
Arnasonar er fyrst vikið að
nokkrum megináföngum sið-
ustu ára. Hann segir:
„Baráttu islendinga fyrir
útfærslu fiskveiðilögsögunnar
er nú lokið meö fullum sigri.
Þegar litið er til baka er ljóst
að oft var boginn spenntur til
hins itrasta og verulegar
áhættur teknar. Það mun nú
flestra manna mál, að gifta
hafi ráðið orðum og athöfnum
þeirra, sem úrsUtaráð höfðu
um framvindu málsins.
Það þarf ekki mörg orð um
þann ávinning, sem við höfum
af útfærslunni. Við ráðum
sjálfir um hagnýtingu fiski-
stofnanna og eigum færafiski-
fræðinga til ráðgjafar, þótt
öllum sé ljóst, að enn er
vitneskjan um lifriki hafsins
engan veginn tæmandi.
SamhUða baráttunni fyrir
landhelginni höfum við verið
að byggja öflugan flota fiski-
skipa. Að gerð allri eru fiski-
skipin nýtiskuleg og tækja-
búnaðurinn og hagræðing eins
og best verður á kosið, enda
þarf engum blöðum um það að
fletta, að mjög mikiö álag
fylgir fiskveiðum kring um ts-
land allan ársins hring.”
Siðan vikur Tómas að þeirri
miklu uppbyggingu sem átt
hefur sér staö i undirstöðu-
iðnaðinum, frystiiðnaöinum,
um land allt, en þaðan er þess
að vænta að á næstu árum
renni vaxandi arður til þjóöar-
innar til þess að bæta lifskjör
fólksins. Hann segir:
„Segja má aö á þessu ári
verði að mestu lokið við bygg-
ingu og endurbætur á frysti-
húsunum á landsbyggðinni.
Mörg glæsileg fiskiðjuver hafa
veriö að taka tH starfa undan-
farið og nokkur eru á loka-
stigi. Hér á Austurlandi er
þessari uppbyggingu senn lok-
ið og veldur hún straumhvörf-
um i meðferð og möguleikum i
vinnslu sjávarafla svo og allri
aðstöðu og afkomu þeirra,
sem starfa við þessi atvinnu-
tæki.
Miklum fjármunum hefir
verið varið i alla þessa fjár-
festingu m.a. hafa verið tekin
mikil erlend lán. Vonandi skil-
ar þessi fjárfesting svo mikl-
um verðmætum að lánsféð
verðigreitt upp i samræmi við
lánaskilmála.
A árinu 1977 nam útflutn-
ingsverðmæti sjávarafurða 81
miljarði. Framleiðslan mun
hafa aukist um 13-14% m.a.
vegna góðrar loðnuveiöi og
sildveiði. Hér hefur einnig
komið til aukinn þorskafli og
betri hagnýting hans i fisk-
iðjuverunum.”
Loka
hlekkirnir
Meðþessum stórstigu fram-
förum hefur atvinnulífið og
þar með lif fólksins úti um
landiö tekið stakkaskiptum á
siðustu árum undir sóknar-
merki framleiðslustefnunnar.
En með aukinni og bættri
framleiðslu þarf ekki siður að
huga að lokahlekki fram-
leiðslukeöjunnar, markaðin-
um, þar sem fullunnin varan
mætir neytandanum. Um það
efni segir Tómas Arnason að
lokum:
„Fjórði hlekkurinn I þessari
keðju sem he'r hefir verið rak-
in, er svo markaöurinn fyrir
islenskar sjavarafurðir.
Framsýnir menn hafa byggt
upp sterkan markaö fyrir
sjávarafurðir i Bandarikjun-
um. Þetta er langbesti
markaður veraldarinnar fyrir
sjávarafurðir og ber að kapp-
kosta að efla hann og tryggja.
Markmiðið á að vera að is-
ienskar sjávarafurðir séu
bestar sinnar tegundar I viðri
veröld.
Þá þurfum við einnig aö
byggja upp markaði I vel-
megunarlöndum Evrópu, svo
sem á Bretlandseyjum og
meginlandinu. Enginn vafi er
á þvi að þar leynast möguleik-
ar til þess að þróa verulega
markaði fyrir fullunnar
sjávarvörur. Markaðir Aust-
ur-Evrópu eru okkur og verð-
mætir, þótt velmegun þeirra
landa hafi ekki náð þvi stigi að
geta greitt hæsta verð fyrir
fullunna vöru.
Auk þessa verðum við að
leggja áherslu á og hafa augun
opin fyrir mörkuðum fram-
tiðarinnar i öilum heimshlut-
um.”
JS
Skýrsla til Verðlagsráðs
um loðnuverðsákvarðanir
a nágrannalöndunum
GV — Fulltrúánefnd sjávarút-
vegsins og sjávarútvegsráðu-
neytisins, sem fyrir rúmri viku
hélt til þriggja nágrannalanda til
að kynna sér hvernig staðið er að
loðnuverðsákvörðunum þar, kom
til Islands i gær. Að sögn Óskars
Vigfússonar, formanns Sjó-
mannasambands tslands, er það
samkomulag innan nefndarinnar
aðskýraekki frá þeim viðræðum,
sem þeir áttu við fulltrúa sjávar-
útvegsins i Færeyjum, Noregi og
Danmörku, fyrr en skýrslugerð
um viðræðurnar verður lokið.
Óskar átti von á þvi að skýrslan
yrði lögð fyrir Verðlagsráð
sjávarútvegsins i vikunni.
Ferð þessi var farin i framhaldi
af þeim loforðum, sem forsætis-
ráðherra gaf fulltrúum loðnusjó-
manna i viðræðum við þá i janú-
ar. Loðnuverðið er uppsegjanlegt
frá og með miðvikudegi i næstu
viku, 15. febrúar.
Reynt að fá skip
til Bíldudals
SJ — Við erum að reyna að fá
leiguskip i stað Hafrúnar, sagði
Jakob Kristinsson framkvæmda-
stjóri Fiskvinnslunnar á Bildu-
dal, — en ákveðin niðurstaða hef-
ur ekki fengizt ennþá. Við ætlum
aðreyna aö fá skip sem er svipað
að stærð og Hafrún eða um 200
tonn
Hafrún strandaði sem kunnugt
er á Arnarfirði i siðustu viku.
Skipið er nú uppi i fjöru á Bildu-
dal og unnið er að þvi að þétta
skipið svo hægt verði að koma þvi
i slipp i Reykjavik. Sjór komst i
vélarrúm skipsins og fellur nú inn
i það og úr þvi á sjávarföllum.
Steinanes er nú eina skipið sem
landar hjá Fiskvinnslunni það er
150 tn. Bæði skipin voru á linu-
veiðum. Hráefnið sem þauöfluðu
var tæplega nægilegt, og féll
dagur og dagur úr vinnu hjá Fisk-
vinnslunni. Að öðru leyti hefur
verið nægileg vinna á Bildudal i
vetur. Hálfdán var ruddur i gær,
mánudag, og þvi fært til Patreks-
fjarðar.
Tek að mér
að leysa út vörur fyrir innfiytjendur, með
l-2ja mánaða greiðslufresti.
Þeir sem hafa áhuga, leggi tilboð inn á
afgreiðslu blaðsins, merkt, Fyrirgreiðsla.
Laus staða
Laus er til umsóknar staða læknis við heilsugæslustöð i
Hveragerði. Staðan veitist frá 1. mars n.k.
Umsóknir ásamt upplýsingum um fyrri störf sendist
ráðuneytinu fyrir 25. febrúar n.k.
Heilbrigðis- og
t^yggingamálaráðuneytið
2. febrúar 1978
Auglýsið í TÍMANUM
\fcentanlegir vinrángshafar
Þeir, sem misstu af
miðakaupum fyrir 1. flokk, hafa nú
tækifæri til að tryggja sér miða.
Hæsti vinningur er 2 milljónir
eða 10 milljónir á Trompmiða.
Gleymið ekki að endurnýja!
Dregið verður föstudaginn 10. febrúar.
2. flokkur
9 @ 2.000.000.- 18.000.000,-
9 — 1.000.000,- 9.000.000,-
18 — 500.000- 9.000.000,-
207 — 100.000,- 20.700.000-
306 — 50.000,- 15.300.000,-
8.163 — 15.000,- 122.445.000,-
8.712 194.445.000-
36 — 75.000.- 2.700.000.-
8.748 197.145.000.-
HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS
Hæsta vinningshlutfall í heimi!