Tíminn - 07.02.1978, Page 19
Þriðjudagur 7. febrúar 1978
19
Páll Líndal:
„Fagnaöarefni að málið er
komið í hendur manna sem
hafa vit og dómgreind,,
Þegar mér þann 3. febrúar
barst í hendur fréttatilkynning
ásamt syrpu af gögnum frá
skrifstofu torgarstjóra dags. 3.
febrúar 1978, var klukkan tæp-
lega 17.00. Þessi tilkynning
hefur verið meira og minna birt
i dagblöðum.
1. Það kom i ljós að maður
sem hefur verið samstarfs-
maður minn lengi og að ég hélt
góður vinur, Jón G. Tómasson
skrifstofustjóri borgarstjórnar
virðist hafa sent alla syrpuna,
sem ætlað er að sverta mig á
undan til dagblaðanna, senni-
lega um kl. 15.00. Hann veit sem
er að það er ekki auðvelt að
koma við svari i blöðum undir
kvöld á föstudegi. Það átti sem
séað minu mati að nota helgina
til að ósannindin i fréttatil-
kynningunni gróðursettust vel i
hugum manna.
2. Éghafði þegarsamband við
Björn Jóhannsson fréttastjóra
Morgunblaðsins og bað hann að
koma i blaðið athugasemd fiá
mér og hét hann þvi. Það toforð
var ekki efnt. Ég hef ekki tök á
að sanna þetta frekar en annað
sem sagt er i sima. Hins vegar
hef ég enga ástæðu til að kenna
honum um. Einhver virðisthafa
kippt i spotta. Kæruna á borgar-
endurskoðanda afhenti ég aftur
á móti Styrmi Gunnarssyni að
viðstöddum Kjartani Gunnars-
syni formanni Heimdallar. Mig
minnir að ég hafi lika ámálgað
þetta við Styrmi.
Hefði ég satt að segja haldið
að athæfi það,sem ég kærðiánn-
brot i læstar hirzlur minar undir
forustu borgarstjórans i
Reykjavik hefði ef til vill þótt
fréttaefni á borð við fréttatil-
kynninguna frá Jóni Tómassyni
sem er á útsiðu Morgunblaðsins
með stærsta letri en kæra min
erhálffalin á 5.siðu við hliðina á
bilaauglýsingu.
3. Næsti áfangastaður minn i
dreifingu á kæru minni var
Þjóðviljinn. Þar hitti ég tJlfar
Þormóðsson blaðamann og lét
hann fá ljósrit af bréfi þvi sem
ég hafði óljósar fregnir af að
væri til og hef minnzt á. Bréfið
hljóðar á þessa leið:
Um skipulag
„Hallærisplans”.
Fyrir nokkrum dögum
skrifuðum við bréf til borgar-
stjórnarinnar og óskuðum eftir
að hún frestaði þvi að afgreiða
mál sem borgarráðið hafði
samþykkt bæði með mótatkvæði
og alls konar fyrirvörum frá
a.m.k. tveim mönnum i ráðinu.
Orsökin til að við fórum að
skrifa þetta bréf var aðallega sú
að við álitum að einn eða fleiri
embættismenn hefðu sagt bæði
borgarráði og skipulagsnefnd
ósatt frá undirbúningi og gangi
málsins. Þess vegna væri sjálf-
sagt að fresta málinu. Þessi
ósannindi getum við sannað.
Það átti með pukri að svikjast
aftan að okkur. Við álitum að
eigandi Aðalstrætis 9 hafi notað
allan þann byggingarrétt sem
hann á. Við bentum á að þetta
væri ólöglegt þvi það striddi
móti gildandi skipulagi i
Reykjavik. Þróunarstjórinn tel-
ur allt i lagi með vinnubrögðin i
viðtali við Visi á laugardaginn
og bæti þvi við að við kunnum
náttúrlega ekkert i lögum.
Zophonias Pálsson skipulags-
stjóri hefur lýst annarri skoðun
og trúum við honum betur.
Sama lét Aðalsteinn Júliusson
skrifa i fundargerð skipulags-
nefndarinnar i júli s.l. ár. Um
lagakunnáttu okkar Þróunar-
stjóra verður kannski skorið úr
fyrir dómstólum á sinum tima.
Við ætlum að minnsta kosti ekki
að gefast upp i þessu máli.
Margt fleira mætti segja um
framkomu þeirra sem stjórna
skipulaginu á bak við tjöldin en
það mun biða betri tima.
Af þvi að borgarstjórnin
frestaði afgreiðslu málsins bara
hálfan mánuð er okkur afskap-
lega nauðsynlegt að fá að kynna
okkur gögnin sem borgarráð og
aðrir hafa byggt afstöðu sina á.
Það hlýtur hreint og beint að
flokkast undir mannréttindi.
Ég fór þvi til borgarstjóra
strax á föstudagsmorgun til að
biðja um að fá gögnin tafar-
laust. Fyrsti maður i viðtals-
tima og næstur á undan mér var
sjálfur Ragnar Þórðarson og
fræddi mig án þess að ég bæði
um ýmislegt fróðlegt um sam-
skipti sin við yfirmenn skipu-
lagsmálanna.
Borgarstjóri sagði fulltrúa
sinum sem heitir ólafur Jóns-
son að ég ætti að fá umbeðin
gögn. Mér var sagt að ég mætti
koma kl. 3. Ég var viðstaddur
þegar Ólafur tók við fyrirmæl-
um borgarstjóra.
Þegar ég kom aftur til að
sækja gögnin kl. 3.30 voru engin
gögn til og beið ég til kl. rösk-
lega 4. ólafur gerði allt sem
hann gat til að hjálpa mér.
Þróunarstjóri var „týndur”
engin gögn fundust i Þróunar-
stofnuninni, þegar þangað var
hringt.þeir bentu á skjalasafnið
i Austurstræti. Ólafur hafði at-
hugað það. Þeir sem þar eru
sögðuað Þróunarstofnunin væri
nýbúin að fá öll gögnin. Ólafi
tókst með dugnaöi að fá eitthvað
hrafl hjá teiknistofu Gests i
Garðastræti, og ársskýrslu
skipulagsnefndarfrá Skipulags-
stjóra i Skúlatúni 2. Þetta er allt
sem éghefifengið og i dag er 24.
janúar.
Mér er ekkert ánægjuefni að
þurfa að kæra svona háttarlag
fyrir borgarráði en okkur þykja
þessi vinnubrögð svoleiðis að
það sé skylda okkar. Borgarráð
er blekkt, fyrirmæli borgar-
stjóra hundsuð, skjöl látin
hverfa og embættismennirnir
„týnast”. A meðan þetta ger-
ist eru að renna út möguleikar
okkar til að gæta hagsmuna
okkar.
Ætlar æðsta stjórn höfuð-
borgarinnar að láta svonalagað
liðast? Viö gerum enn kröfu um
að staðið veröi við loforð
borgarstjóra — að við fáum að
kynna okkur öll gögnin frá
þróunarstofnununni og ein-
hverjum samvizkusömum og
kurteisum manni eins og Ólafi
Jónssynlsem við treystum full-
komlega verði falið að afgreiða
gögnin I okkar hendur.
Ég efast ekki um að hann
muni staðfesta að hér sé rétt
greint frá okkar samskiptum.
Með vinsemd og virðingu
f.h. eigenda Aðalstrætis 8-16
Þorkell Valdimarsson
Hvort bréfritarar eru nú
ánægðir með þau gögn sem þeir
hafa fengið veit ég ekki en það
er ekki ofmælt að með tillögunni
um Hallærisplanið sé verið að
fjalla um hundruð milljóna og
einhverjir hljóta að hagnast
mjögmikiðá því að fá allt i einu
margfalda nýtingu á lóðum i
Miðbænum. Það þekkja allir
lóðaverðið þar. í fréttatil-
kynningu Jóns G. Tómassonar
er talað „um óljósar aðdróttanir
i garð borgaryfirvalda” I
sambandi við þetta mál.
Hverjar eru þær?
4. Það er athyglisvert að i
fréttatilkynningunni eru hvergi
nefndir heimildarmenn. Þaö er
sagt að ég hafi „neitað van-
skilum”. Hver segir það? Siðan
hafi ég greitt umræddar fjár-
hæðir. Stendur það I bókhald-
inu? Ekki kannast ég viö að
hafa greitt borgargjaldkera
neitt 9. des.
5. Enn stendur: „Var honum
tjáð af borgarstjóra að endur-
skoðunardeild óskaði eflir að
gera leit að skjölum i herbergi
hans og honum gefinn kostur á
aðvera viðstaddur sem hann af-
þakkaði”. Ekki kannast ég við
þetta, og ekki var ég beðinn um
lykla að hirzlum.
6. Svo segir að ég hafi veitt
móttöku bifreiðastæðagjöldum
að fjárhæö kr. 5.069.729 sem
ekki hafi verið skilað i borgar-
sjóð. „Inn á þessa fjárhæð
greiddi Páll Líndal 9., 14. og 15.
des. samtals kr. 1.973.704. Ég
greiddi enga peninga i borgar-
sjóð 14. og 15. des. frekar en 9.
des.
7. Ég er sakfelldur hvað eftir
annað opinberlega af einum
æðsta embættismanni borgar-
innar fyrir að ekki sjáist að
Fjármálaráðuneytið
Auglýsing
Sendimaður óskast til starfa allan dag-
inn fyrir fjármála-, félagsmála- og
dómsmálaráðuneyti.
Æskilegt er að hann hafi réttindi til
aksturs létts bifhjóls.
Lágmarksaldur 15 ára.
Umsóknir sendist fjármálaráðuneýti
fyrir 15. febrúar n.k.
Fjármálaráðuneytið,
3. febrúar 1978
Evenrude
vélsleði
til sölu, árg. 1976, ekinn
2.500 km.
Upplýsingar gefur
Halldór Guðmundsson,
Magnússkógum, Dala-
sýslu, sími um Ásgarð.
Ritstjórn, skrifstofa og afgreiðsia
greiðslum frá mér hafi verið
skilað I borgarsjóð. Ekki reynir
þessi maður að leiðrétta þetta
þótt hann telji nú að rangt sé
eftir sér haft. Þarf ekki óhlut-
dræga rannsókn og dóm, áður
en slikt er gert?
8. Um viðtal mitt við borgar-
stjóra vil ég ekki f jölyrða meira
en orðið er. slikur var ofsinn i
honum, að ég hef aldrei séð
þennan dagfarsprúða mann i
slikum ham. Mér fannst þvi rétt
aðbiðjast lausnar eins og kunn-
ugt er. Ég hafði ámálgað við
hann oftar en einu sinni.að ég
hefði hug á að hætta i minu
starfi, svo að það var mér siður
en svo óljúft að hætta, þótt ég
hefði kosið að það yrði með öðr-
um hætti sbr. bréf mitt til
borgarráðs.
9. Sú staðhæfing að ég hafi
ekki sinnt tilmælum endur-
skoðunardeildar um að koma og
gera grein fyrir málum eftir áð
égfékk skýrslu endurskoðunar-
deildar að kvöldi 31. jan., eru
visvitandi ósannindi.Ég trúi þvi
ekki að Bergur Tómasson haldi
þvi fram, enda stendur ekkert
um það i bréfi hans dags. 2.
febrúar . Að morgni 3. feb., áður
en fréttatilkynningin er send út
bað ég sérstaklega fyrir skila-
boð til Bergs og borgarstjóra að
ég væri tilbúinn að mæta hjá
þessari svokölluðu stjórn endur-
skoðunardeildar strax eftir
helgi. Ég hafði nokkru áður
verið beðinn af borgarendur-
skoðandaaðaðstoða hann við að
reyna að skilja greinargerð upp
á 22 siður. Voru þar skráðar yfir
300 húsbyggingarallar götur frá
1965. Ég kom strax næsta morg-
un (14. jan.) og útskýrði málið
fyrir honum en það held ég að
hafi tekið nær 3 klst.
10. Mérer sem.sagt fagnaðar-
efni að þetta mál skuli nú komið
ihendur manna sem ég hef alla
ástæðu tiiað haida að hafi vit og
dómgreind. Ég hefði ekki viljað
liggja undir þvi alla ævi að
„málinu” hafi verið stungið
undir stól, mér hlift o.s.frv. af
borgarráði og „vinum minum.”
11. Þessi grein er orðin alltof
löng en hún er aðeins brot af þvi
sem ég gæti sagt af lifinu i
Austurstræti 16 frá 1949. Það er
ekki ómerkur þáttur af sögu
Reykjávikur.
12. Aðlokum vil ég segja þetta
og beini þá máii minu til mins
gamla húsbónda Gunnars
Thoroddsen.sem er félagsmáia-
ráðherra og þar með yfirmaður
seitastjórnarmála i landinu.
Getur hann látíð það viðgang-
ast að æðstu stjórnendur
borgarinnar brjóti opinberlega
stjórnarskrá landsins og
hegningarlög? Getur maöur
sem hefur tekið sina verð-
skuldaða doktorsgráðu út á
„friðhelgi einkalifs” látið það
viðgangast, að bæði ég undir-
ritaður og mitt fólk þurfi vikum
saman aðliggja undir ofsóknum
óvandaðra manna i borgarkerf-
inu. Þær ofsóknir eru náttúrlega
kostaðar af fé okkar allra Reyk-
vikinea.
Reykj av ik 5. febrúa r
Páll Lindal
STÁLHÚSGAGNAGERÐ
STEINARS HF.
Hversvegna að
burðast með
allt í fanginu
fötu.sfenibb, þvottaefni og flr.
Hvað með tveggja fötu skruggukerru,
sem eyðirengu. kemst yfir 20 km/klst.
og erótrúlega lipur í umferðinni?