Tíminn - 28.02.1978, Side 1

Tíminn - 28.02.1978, Side 1
Myndin er tekin i Skútudal I febrúar i fyrra og sýnir svæQffl þar sem snjóflóð hefur nú falliö og húsin sem geyma hitaveitu dælurnar. Timamynd: MÓ Hafizt handa við við- gerðir á hitaveituút- búnaði í Skútudal í dag GV — Það er vonandi að hafizt verði handa við viðgerðir ein- hvern tima á morgun, en við- gerð mun taka um tvo sólar- hringa sagði Snorri Björn Sigurðsson bæjarritari á Siglu- firði i viðtali við Timann i gær. í gærkvöldi var von á snjóblásara frá Skagafirði til Siglufjarðar og var allt útlit fyrir að hann færi strax fram i Skútudal, þar sem veður var orðið skaplegt á Siglufirði i gærkveldi. Tölu- verðan tima tekur að ryðja snjónum frá og er 5-6 metra snjólag yfir svæðinu i Skútudal. Siðdegis i gær fóru tveir menn fram i Skútudal til að kanna skemmdir á hitaveituútbúnaði Siglufjarðarbæjar, sem urðu er snjóflóð féll i Skútudal um 11 leytið á sunnudag. — Það er allt ónýtt i kringum varadæluna en aðaldælan er sæmilega heilleg og ætti að vera hægt að koma henni i gang án mjög mikillar fyrirhafnar, sagði Snorri Björn. Allur bærinn ofan Eyrarinnar á Siglufirði hefur nú verið tengdur við hitaveitu en þar eru um 3-400 hús. Að sögn Snorra Björns var i gær búið að búa þannig um 150-200 hús, að þeim ætti ekki að vera hætta búin vegna upphitunarleysis. — Það hefur aldrei verið nein hætta á manntjóni og það er ljóst að hætta á eignatjóni er næsta litil þó að einhverjar frostskemmdir verði, sagði Snorri Björn. Almannavarnanefnd Siglu- fjarðar hefur skipulagt allar að- gerðir til úrbóta á þvi ástandi sem nú hefur skapazt i Siglu- fjarðarbæ. 1 fjarveru bæjar- stjórans er Snorri Björn for- maður nefndarinnar, og sagði hann að nefndin hefði fyrst komið saman á fund kl. 3 á sunnudag^ hálftima eftir að fregnir höfðu borizt um snjó- flóðið. Þá var ákveðið að senda flokk manna til að kanna betur skemmdirnar. Slökkvilið og björgunvarsveit bæjarins voru þá kölluð út svo og iðnaðar- menn, til að tengja þau hús við oliukyndingu, þar sem oliu- kyndingarkerfi voru fyrir og tappa vatni af ofnum, þar sem engri kyndingu varð við komið. Kl. 8 á sunnudagskvöld var aftur fundur i almannavarnar- nefndinni þar sem ákveðið var að ganga i öll hús og kanna ástandið. I gærmorgun var snjókoma á Siglufirði og yfir 10 stiga frost og reyndist þvi ekki hægtað senda vinnuflokk fram i Skútudal til að hefja viðgerðir. „Treysti þeim ekki lengur”, — segir Steinunn Finnbogadóttir sem hefur sagt sig úr Samtökum frjálslyndra og vinstri manna FI — Einn af stofnendum Sam- taka frjálslyndra og vinstrimanna Steinunn Finn- bogadóttir hefur sagt sig úr Sam- tökunum og telst þaö tii tiöinda. Steinunn var i framkvæmda- stjórn Samtakanna, borgarfull- trúi fyrir þau og nú um skeiö varaborgarfulltrúi. Steinunn sagöi, þegar Timinn baö hana i gær að staðfesta þessa frétt, aö ákvöröun sina heföi hún ekki tek- ið umhugsunar- né átakalaust, og lengi hefði hún haldið i þá von, aö til hennar þyrfti ekki aö koma. Aöalástæöuna kvað hún þá aö Samtökin sigldu ekki undir upp- haflegum fána málefnaiega séð og treysti hún þeim ekki lengur. — Ég starfaði heilshugar i Samtökunum og stóð lengi vel af mér brim og bylji, sagði Stein- unn. — Og ég vil leggja á það áherzlu, að tvö.meginbaráttumál flokksins i upphafi, þ.e. þörfin á stórmannlegri pólitik en hér rikir, svo og þörfin á meiri samstöðu meðal vinstri manna, eiga enn fullan rétt á sér og sizt minni en Steinunn Finnbogadóttir. þegar Samtökin voru stofnuð. Ahugi minn er og sá sami. Hins vegar tel ég ekki skilyrði fyrir vinnu rnina lengur, enda hef ég misst trúna á að framantalin málefni verið leyst á vettvangi Samtakanna. Steinunn var að þvi spurð, hvert hún stefndi nú. Hló hún við og sagðist fyrst og fremst vera með sjálfri sér og stefndi ekkert annað. Stefnan væri sú, að fylgja málstað, sem hún hefði haft trú á og vildi enn að ætti framangang. Steinunn var að þvi spurð að lokum, hvort henni fyndist betra að vinna með körlum eða konum I stjórnmálaheiminum og kvað hún engan eðlismun á þvi. — Við erum öll jafn ólik, hvort sem við erum karlar eða konur En djúpstæð viðhorf almenhings til starfa kvenna á félagsmálasviðinu eru allt önnur en til starfa karla á sama sviöi og þau viðhorf breyt- ast ekki nema á löngum tima. Ríkisstjórnin: Farið verði að lögum Á fundi rikisstjórnar- innar i gærmorgun, þar sem fjallað var um hvatningu meirihluta stjórnar BSRB og launa- málaráðs BHM til starfsmanna rikisins um að leggja niður vinnu i marzbyrjun til að mót- mæla lögum um ráðstafanir i efnahags- málum var eftirfarandi ályktun gerð: „Rikisstjórnin telur að hvatning og þátttaka af hálfu starfsmanna rikisins i ólöglegu verk- falli sé með öllu ósam- rýmanleg þeim trúnaðarskyldum sem á starfsmönnum rikisins hvila. Að óreyndu vill rikis- stjórnin treysta þvi að starfsmenn rikisins/taki ekki þátt i ólöglegu verkfalli og itrekar yfir- lýsingu fjármála- ráðherra i fréttatilkynn- ingu 24. febr. sl., að farið verði að lögum varðandi viðurlög þ.á.m. frádrátt á launum vegna óheimilla fjarvista starfsmanna.” Vona að sem fæstir félagsmenn brjóti segir formaður Verzlunarmanna- félags Reykjavíkur FI — Forráöamenn Verzlunar- mannafélagsins munu ekki beita sér fyrir óiöglegum verk- fallsaögeröum I. og 2. marz. Þátttöku sina i verkfallinu verður hver og einn að gera upp við sjálfan sig, sagöi Magnús L. Sveinsson formaöur Verzlunar- mannafélags Keykjavikur i samtali viö Timann I gær. — Viö teljum alrangt aö hvetja fólk til að brcyta gegn landslögum, sagði Magnús ennfremur, þrátt fyrir mikla óánægju meö inn- grip rikisstjórnarinnar i kjara- sam ningana. Magnús sagðist ekki vita annað eftir fund með stjórn og trúnaðarráði Verzlunarmanna- félagsins i siðustu viku en að menn væru almennt á móti' ólöglegum aðgerðum og teldu þær óhæfu. Það mætti lika minna á að þetta væri ekki I fyrsta sinn sem rikisstjórn ógilti kjarasamninga með löggjöf. Svo hefði verið árið 1974 og þá hefðu samtök launafólks kyngt bitanum. Magnús kvaðst vera á móti lögunumyen hefði alls ekki leyfi til þess að hvetja fólk til ólöglegra aðgerða og myndi ekki gera það. — Persónulega óska ég þess að sem fæstir félagsmenn brjóti landslögl. og 2. marz vis- vitandi, þrátt fyrir óánægju þeirra, sagði hann að lokum. ísraelsmenn vilja breytingar á til- lögum Egypta - Atherton til Kairó með gagntilboð Jerúsalem/Réuter Stjórn Israels hafnaði i gær siöustu tillögum Egypta i friðarumleitununum milli Israeísmanna og Egypta og fengu sérlegum sendimanni Bandarikjastjórnar, Alfred Atherton, gagntilboð-i hendur sem hann á að flytja til Kairó. Opinberar heimildir i Jerúsalem hermdu að afstaða Egypta til yfirlýsingar um stefnumið væri nú harðari en á utanrikisráö- herrafundinum, sem leystist upp i Jerúsalem i siðasta mánuði. Menachem Begin forsætisráð- herra sagði fréttamönnum að hægt væri aö semja um ýmsa hluta tillögunnar, ein grein henn- ar væri samhljóöa israelsku til- lögunni, en nauðsyn bæri til að breyta öðrum greinum meira og minna. Atherton og fsraelsku leiðtog- arnir vildu ekki fjalla náiö um einstök atriði tillagnanna, en Begin kvað fulla ástæðu til að ætla að viðræður myndu halda áfram. Atherton mun halda til Egyptalands i dag og snýr ef til vill til baka á fimmtudag. Atherton kvaðst ekki vilja gefa hverjum fundi með leiðtogum Egyptalands og Israels einkunn og telja þá annað hvort árangurs- rika eða gagnslausa. Hann viður- kenndi aö breitt bil væri milli hugmynda stjórna rikjanna, en hvorugur aðilinn hefði talað um að hafna tillögum hins. Banda- riski sendimaðúrinn 'sag'ði' áð bæöi Israelsmenn og Egyptar legöu hart að sér við aö reyna að brúa bilið og eyða þvi sem á milli ber til að samningar megi takast Israelsmenn taka þvi enn sem fjarstæðu að þeir verði á brott frá herteknu svæðunum, en það er ein helzta krafa Egypta.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.