Tíminn - 28.02.1978, Qupperneq 14

Tíminn - 28.02.1978, Qupperneq 14
14 Þriðjudagur 28. febrúar 1978 GEORGE WOOD....hinn snjalli markvörður Everton, átti stórleik gegn Manehester City. Heppnin með Forest áCarrow Road... Tottenham lenti í basli með Orient — og tryggði sér jafntefli á elleftu stundu Tottenham tókst ekki að auka forystu sina i 2. deild þrátt fyrir að þeir ættu heimaleik á móti Ori- ent, meðan Bolton átti erfiðan Uti- leik i Stoke. Leik Stoke og Bolton lauk mcð markalausu jafntefli. en Tottenham lenti i mesta basli með að ná jafntefli á móti Orient. Eftir markalausan fyrri hálfleik skoraði Mayo fyrir Orient snemma i seinni hálfleik, og það var ekki fyrr cn rétt fyrir leikslok að Colin Lee tókst að jafna metin fyrir Spursog ná þannig dýrmætu stigi, sem heldur Tottenham tveimur stigum ofan við Bolton, en Tottenham hcfur leikið tveim- ur leikjum meira en Bolton. Southampton vann mikilvægan sigur á Sheffield United á The Dell i Southampton, 2-1. Sigur- markið kom ekki fyrr en á siðustu miniítu leiksins og skoraði það Phil Boyer eftir sendingu frá MacDougall. MacDougall hafði skorað fyrsta mark leiksins i fyrri hálfleik eftir sendingu frá Boyer, en Franks jafnaði fyrir Sheffield liöið skömmu fyrir hlé. Black- burnvann góðansigur á Oldham, 4-2, og komu öll mörkin i seinni hálfleik. Mörk Blackburn gerðu McGriven, Parkes, Brotherstone og eitt markanna var sjálfsmark, en mörk Oldham gerðu þeir Tayl- or og Valentine. Nicholasskoraði mark C. Palace gegn Fulham, en Evanson jafnaði metin fyrir Ful- ham. Sigurmark Mansfield á móti Hull gerði Foster. — O.O. 1. deild 12. deild Birmingh.-Aston V. 1-0 Blackb.-Oldham 4-2 Leeds-Wolves 2-0 Brighton-Sunderl. 2-1 Leic ester-Wolves 1-0 Bristol R.-Charlt. 2-2 Uverp.-Man.Utd. 3-1 Cardiff-Blackp. 2-1 Man. City-Everton 1-0 Fulham-C'.Palace 1-1 M iddlesbr.-IIerby 3-1 M ansfield-IIull 1-0 Newc.-Ipswich 0-1 Millwall-Burnley 1-1 Norwic h-Nott. For. 3-3 Notts-Luton 2-0 Q.P.R.-Bristol C. 2-2 Southampt.-Sheff. Utd. 2-1 W BA-Coventry 3-3 Stoke-Bolton 0-0 West Ham-Arsenal 2-2 Tottenham-Orient 1-1 STAÐAN þar sem Nottingham Forest náOi þriggja marka forskoti gegn Norwich, en var svo heppið að tapa ekki Þaö voru ekki margir á Carrow Road i Norwich, sem gáfu liði Nor- wich nokkra von i ieiknum á móti Nottingham^er Nottingham náöi þriggja marka forystu á sjö minútna kafla í fyrri hálfleik. Liðið spilaöi eins og meisturum sæmir og mörk frá Whithe, Barrett og O’Neill komu stöðunni i 3-0 fyrir Forest, greinileg vinningsstaða. En leikmenn Nor- wich voru ekki á þeim buxunum að gefast upp, og áöur en yfir lauk höfðu þeir jafnað metin og voru óheppnir að skora ekki sigurmarkið á siðustu minútum leiksins. Ryan skoraði fyrsta mark Norwich I lok fyrri hálfleiks eftir að Barrett hafði handleikið knöttinn innan vitateigs, og mörk með tveggja minútna millibili frá þeim Colin Suggett og Keith Robson, sem lék þarna sinn fyrsta leik með Norwich, gerðu draum Nottingham um bæði stigin að engu. Forysta Nottingham I deildinni er nú fjögur stig, en þeir eiga leik inniyfir næstu liö. Það var eiginlega skaði að Everton skyldi tapa leiknum fyrir Manchester City á Maine Road, þar sem markvörður þeirra, Georg Wood, hafði varið hreint ótrúlega vel allan leikinn. 1 hálf- leik var staðan 0-0, einkum vegna markvörzlu Wood, sem hvað eftir annað greip snilldarlega inn I leikinn. En hann réði ekki við skalla Brian Kiddi seinni hálfleik og Manchester City fór með bæði stigin af hólmi, sem var mjög sanngjarnt þegar á tækifærin er litið, en o'réttlátt gagnvart Wood, sem einn hafði næstum náð öðru stiginu úr leiknum. Liverpool og Manchester United léku hreint frábæra knatt- spyrnu i grenjandi rigningu á Anfield i Liverpool. Bæði liðin léku sóknarknattspyrnu eins og hún gerizt bezt i Englandi og markverðir beggja liða björguðu oft á tiðum á ótrúlegan hátt Gra eme Souness skoraði sitt fyrsta mark fyrir Liverpool á 35. minútu leiksins eftir góðan undirbúning McDermott, og er tiu minútur voru liðnar af seinni hálfleik, skoraði Ray Kennedy annað mark Liverpool eftir mistök hjá McQueen i vörn Manchester liðs- ins. En rétt eftir þetta skoraði Sammy Mcliroy með góðu skoti úr þröngu færi og staðan varð 2-1. Bæði liðin byggðu upp skemmti- legar sóknarlotur það sem eftir var leiksins, og ein slik hjá Liver- pool bar árangur, er fjórar minútur voru til leiksloka. Þá lék Notth. For. 28 18 7 3 52:18 43 Tottenham 30 15 12 3 62:30 42 Heigway á Jimmy Nicholl einu sinni sem oftar i leiknum og lagði al, en knötturinn vildi ekki i netið fyrr en 30 sekúndum fyrir leiks- Man.City 29 17 5 7 56:30 39 Bolton 28 17 6 5 45:24 40 knöttinn út á Jimmy Case, sem lok, er David Crossskoraði fyrir Everton 29 15 8 6 54:33 38 Southampt.29 16 7 6 47:31 39 lætur ekki slikt færi sér úr greip- West Ham og jafnaði þannig i 2-2. Liverpool 28 15 6 7 38:21 36 Brighton 29 14 9 6 45:30 37 um ganga, og fast skot hans réð West Ham náði þannig mikilvægu Arsenal 29 14 7 8 38:26 35 Blackburn 28 14 8 6 41:36 36 Roche i marki United ekki við, 3-1 stigi i baráttunni um fallið, og Leeds 28 13 8 7 44:34 34 Oldham 29 11 10 8 37:35 32 sigur Liverpool. McQueen verður Arsenal náði mikilvægu stigi i Coventry 28 13 7 8 53:46 33 C. Palace 28 10 10 8 39:34 30 greinilega mikill styrkur fyrir lið baráttunni um það að komast i WBA 27 10 9 8 39:35 29 Blackpool 19 11 7 11 45:39 29 United þrátt fyrir að mistök hans Evrópukeppni á næsta keppnis- Norwich 28 9 10 8 36:43 29 Luton 30 10 8 12 39:36 28 hafi leitt til eins af mörkum timabili. A. Villa 27 11 6 10 30:26 28 Sunderl. 28 8 11 9 48:45 27 Liverpool. Q.P.R.náði tveggja marka for- Middlesb. 28 10 8 10 31:38 28 Bristol R. 29 8 11 10 32:41 27 Middlesbroughhefur blómstrað ystu á móti Bristol City iseinni Man. Utd. 28 11 5 12 45345 27 Fulham 27 9 8 10 37:32 26 að undanförnu, eða allt frá þvi að hálfleik, er liðin mættust á Loftus Bristol C. 30 9 11 11 37:38 27 Charlton 27 9 8 10 41:48 26 Souness yfirgaf liðið. Við það Road i vesturhluta London. Stan Derby 27 9 8 10 33:41 26 Sheff. Utd. 28 10 6 12 41:52 26 virðist hafa losnað um aðra leik- Bowles skoraði fyrra mark Ipswich 28 9 7 12 30:36 25 Orient 28 6 12 10 30:34 24 menn liðsins, þeir treysta nú Q.P.R. úr vitaspyrnu og lagði siö- Chelsea 28 8 9 11 32:44 25 Notts C. 27 8 8 11 37:42 24 meira á s > sjálfa, en áður fyrr an seinna markið, er Martyn Birmingh. 28 10 4 14 37:45 24 Cardiff 28 8 8 12 38: 55' 24 lögðu þeir allt sitt traust á Busby skoraði i upphafi seinni W olv es 28 fr 8 13 33:41 23 Stoke 26 8 7 11 26:29 23 Souness, Mills skoraði fyrir hálfleiks. En þá komu I ljós miklir West Ham 29 6 8 15 35:48 20 Hull 28 G 9 13 24:30 21 ,,Boro” i fyrri hálfleik, en Gerry veikleikar I vörn Q.P.R., og leik- QPR 28 4 11 13 30:45 19 Mansfield 28 6 8 : 14 : 35:5Ý 20 Daly jafnaði metin fyrir Derby menn Bristol liðsins gátu hvað Leicester 29 3 9 17 13:44 16 Bur nley 29 6 8 15 27:48 20 snemma i seinni hálfleik, en eftir annað farið óáreittir i gegn Newcastle 16 6 2 18 29:48 14 Miilwaíl 27 4 11 12 34:38 19 Craggs og Mahoney skoruðu sið- um vörnina og mörkin hlutu að FRANKIE GRAY...kom Leeds á bragðið gegn Clfunum. an mörk fyrir Middlesbrough, og lokastaðan varð 3-1 þeim i vil, mjög réttlátur sigur. West Hamog Arsenal áttust við i hörkuleik á Upton Park i austur- hluta London. McDonald skoraði tvivegis skömmu fyrir hlé fyrir Arsenal, og hafði Arsenal þvi 2-0 forystu i hálfleik. En Alan Taylor minnkaði muninn i 1-2, er seinni hálfleikur var nýhafinn. Við þetta mark tviefldust leikmenn West Ham, sem fram að þessum tima höfðu verið óvenju slakir. Sókn- arloturnar buldu á marki Arsen- koma. Það var ’aðeins góðri markvörzlu Parkes i marki Q.P.R. að þakka, að þau urðu ekki fleiri en tvö, og Q.P.R. náði þannig öðru stiginu úr leiknum. Gerry Gow skoraði fyrra mark City, en Sweeney seinna markið. Það var mikill markaleikur á The Hawthornes i West Brom- wich, er heimaliðið WBA keppti við Coventry. Aður en yfir lauk höfðu bæði liðin skorað þrivegis og þar að auki átt ótal önnur marktækifæri. Mörk WBA i leikn- um gerðu þeir Trewick (2) og Wile, en Coop, Vallace og Beck skoruðu mörk Coventry. Lið WBA leikur mjög skemmtilega knatt- spyrnu og kæmi ekki á óvart þó að þeir léku úrslitaleikinn i bik- arkeppninni i ár. Leikur Newcastle og Ipswich á St. James Park i Newcastle þótti mjög slakur og gaf vel til kynna stöðu liðanna i deildinni um þess- ar mundir. Clive Woods skoraði eina mark leiksins fyrir Ipswich i seinni hálfleik, og Newcastle er nú komið á botn 1. deildar, en staða Ipswich lagaðist aðeins við þennan sigur eftir fimm tapleiki i •eildinni i röð. Leedsátti i miklu basli með lið Chelsea á Elland Road i Leeds. Það var ekki fyrr en a áiðasta korteri leiksins, að leikmenn fundu réttu leiðina i mark Chel- | sea, er Frank Gray skoraði. Er j um fimm minútur voru til leiks- loka skoraði svo Tony Currie annað mark Leeds og sigur þeirra varð 2-0, sanngjarn sigur, sem leikmenn Leeds urðu að berjast mikið fyrir. Birmingham tókst að vinna sig- ur á Aston villa á St Anrew’s i Birmingham, 1-0. Aston Villa var mun betri aðilinn i leiknum, en það eru mörkin sem tala, og af þeim gerði Birmingham eitt, en Villa ekkert, þannig að bæði stig- in foru til liðs Birmingham, kær- komið stig i baráttunni um fallið. Trevor Francis skoraði markið seint i seinni hálfleik. Leicester skoraði sitt annað mark á árinu 1978 I deildinni, er Wolves kom i heimsókn á Filbert Street. Dugði þetta mark Leicest- er til sigurs, og við þann sigur fór liðið úr botnsæti deildarinnar. Þann vafasama heiður hefur nú lið Newcastle. Leicester var mun betri aðilinn i leiknum við Wolves, en það háir leikmönnum mjög hve illa þeim gengur að nýta tækifærin, sem þeir skapa sér. Goodwin skoraði eina mark leiksins fyrir Leicester er skammt yar til leiksloka, en likurnar á áfram- haldandi dvöl i 1. deild eru ekki miklar, aðeins 13 leikir eftir, og úr þeim þarf lið Leicester að ná a.m.k. 18 stigum, ef þeir ætla að gera sér einhverjar raunhæfar vonir um að halda sér i deildinni. Ó.O.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.