Tíminn - 28.02.1978, Qupperneq 5
Þriöjudagur 28. febrúar 1978
„Veröum að gæta
hlutley sisreglna’ ’
— segir Hjörtur Pálsson dagskrárstjóri,
vegna mótmæla frá launþegasamtökum um
orðafarsbreytingar i auglýsingu frá þeim
SST—Blaðinu hefur borizt ljós-
rit af bréfi til útvarpsstjóra
Andrésar Björnssonar, frá
launþegasamtökunum undir-
ritað af Snorra Jónssyni f.h.
ASl, Kristjáni Thorlacius, f.h.
BSRB, og Jóni Hannessyni f.h.
Launamálaráðs BHM, en þar er
mótmælt orðalagsbreytingum á
auglýsingu frá launþegasam-
tökunum, sem lesin var i út-
varpi á föstudagskvöld. Auglýs-
ingin var um opna fundi á veg-
um launþegasamtakanna um
,, kjaraskerðinguna”.
Sfðan segir orðrétt i bréfinu:
„Þegar auglýsingin var lesin
kom i ljós að orðalagi hennar
hafði verið breytt án nokkurs
samráðs við auglýsendur, þann-
ig a að fundarefni væri efna-
hagsráðstafanir rikisstjórnar-
innar. Þetta er beinlinis efnis-
leg rangfærsla á auglýsingunni,
þvi að fundarefni eraðeins hluti
af efnahagsráðstöfunum rikis-
stjórnarinnar, þ.e. sjálf kjara-
skerðingin sem af þeim leiðir.”
Timinn sneri sér vegna bréfs
þessatil HjartarPálssonar dag-
skrárstjóra útvarps, þar sem
útvarpsátjóri var fjarverandi.
Hjörtur sagði, að strangar regl-
ur giltu um auglýsingar i út-
varpi. Þegar skera þyrfti úr um
endanlegt orðalag væri léita'ð
úrskurðar útvarpsstjóra. I
umræddu tilviki á föstudags-
kvöld hefði hann ekki verið við
og þvi hafði starfsmaður á aug-
lysingadeild útvarps leitað eftir
áliti Guðmundar Jónssonar,
framkvæmdastjóra útvarps,
þar sem sýnt þótti, að orðalag i
auglýsingunni þætti of fúllyrð-
, ingakennt. Að sögn Hjartar
hafði Guðmundur þá samband
við Harald Steinþórsson hjá
BSRB og gerði honum grein fyr-
ir, að breyta þyrfti orðalagi i
auglýsingunni til samræmis við
reglur um auglýsingar. Féllst
Haraldur á það frekar en að
auglýsingin yrði ekki lesin með
upprunalegu orðalagi.
Og þvi varð úr, að auglýsingin
var lesin með breyttu orðalagi,
sagði Hjörtur Pálsson að lokum.
99
Fjölskyldan” sýnd á Akureyri
GV — Leikfélag Dalvikur hefur
sýnt finnska leikritið „Fjölskyld-
an” eftir Claes Andersen á Dalvik
við mjög góðar undirtektir og •
mikla aðsókn. Næstkomandi
laugardag og sunnudag 4. og 5.
marz verður leikritið sýnt i sam-
komuhúsinu á Akureyri. Siðar er
fyrirhugað að sýna leikritið viðar
á Norðurlandi.
Leikstjóri að sýningunni er
Saga Jónsdóttir, leikmynd er eftir
Jón Þórisson og lýsingu annaðist
Magnús Axelsson.
Atriði úr leikritinu
„Fjölskyldan” i hlutverkun-
um eru Dagný Kristjáns-
dóttir, Inga Matthiasdóttir
og Lovisa Sigurgeirsdóttir.
HeUdaraflinn rúmlega
255 þús. lestir c Loðnuveiðar *|
ÝíjrY
GV—Siðastliðið laugardagskvöld
var heildaraflinn frá byrjun
loðnuvertiðar 255.682 lestir og
samkvæmt skýrslum Fiskifélags
tslands er nú vitað.um 72 skip er
fengið hafa einhvern afla. A sama
tima i fyrra var heildaraflinn
samtals 346.142 lestir, og þá
höfðu 80 skip fengið einhvernafla.
Vikuafli siðastliðinnar viku viar
samtals 58.359 lestir.
Aflahæstu skipin I vikulokin
voru:
1. Gisli Árni RE 375 9964 lestir.
Skipstjórar eru Eggert Gisla-
son og Sigurður Sigurðsson.
2. BörkurNK 122 9495lestir.
3. örn 8888 lestir
4. Pétur Jónsson RE 8488lestir.
5. Vikingur AK 100 7864 lestir
Loðnu hefur verið landað á 18
stöðum auk bræðsluskipsins Nor-
glo bal, og mestu hefur'verið land-
að á Seyðisfirði, samtals 35.897
lestum og Siglufirði 33.294 lestum
og á Eskifirði 31.419 lestum.
' "44? *‘iw'
Bókamarkaðurinn
' HÚSI IÐNAÐARINS VIÐ
INGÓLFSSTRÆTI
Finnsk Maria mey.
Norræna húsið
Fyrirlestúr^um
ikona í Finn-
landi i kvöld
FI. — Finnski listfræðingurinn
Aune Jaaskinen flytur fyrirlestur
iNorræna húsinu þriðjudaginn 28.
febrúar kl. 20:30 um ikona I Finn-
landi og sýnir litskyggnur. Aune
Jaaskinen er fædd 1931 I Kirjála-
héraöi og komst þar i kynni við
rússnesku rétttrúnaðarkirkjuna
og sérkennilega kirkjulist hennar
m.a. helgimyndir-ikona. Aune
Jaaskinen lagði stund á listasögu(
sérstaklega helgimyndafræði við
Heisingforsháskóla og viðar, —
Iauk þar magisterprófi 1965 og
doktórsprófi við Helsingforshá-
skóla 1971 þar sem hún er nú
dósent. Aune Jaaskinen dvelst
hér á landi frá 26. febrúar til 4.
marz.
VESTUR-ÞYSKU
SÓLGLERAUGUN
1978
PRIMETTA
Ennþá einu sinni kemur
PRIMETTA með algjöra nýjung
- og sólgleraugu í sérflokki
PRIMETTA
DOMU
HERRA
BARNA SÓLGLERAUGU
Hið fullkomna úrval ,78 sker sig úr
vegna fjölbreytni í lögun og litum
og gæðum sólgleraugnanna.
PRIMETTA
UMBOÐIÐ
Tískugleraugun 1978
H.A. Tulinius
heildverslun
Símar 11451 og 14523
argus