Tíminn - 09.04.1978, Blaðsíða 18

Tíminn - 09.04.1978, Blaðsíða 18
18 Sunnudagur 9. apríl 1978 Sunnudagur 9. apríl 1978 19 Maöur er nefndur Sveinn Gamalielsson. Þeir sem hafa gaman af þvi aö skilgreina menn og skipa þeim i hópa eftir hneigðum þeirra,viöhorfi til lifs- ins eða störfum sem þeir hafa unnið myndu sennilega verða i nokkrum vandræðum með Svein. Hann er sveitamaður, verkalýðs- sinni, raunhyggjumaður og starf- samur á vettvangi hins rúmhelga dags, en dulhyggjumaður i hina röndina, sannfæröur um að álfar séu til og telur sig meira aö segja hafa átt viðþá ýmisleg samskipti. „Hálfgerður bóndi” Þetta sem nú hefur verið sagt, ætti aö nægja til þess aö réttlæta þann verknað undirritaðs aö sitja fyrir Sveini, þarsem vitaö var að leið hans lá, og biðja hann um viötal fyrir Timann. ,,Um hvað ætlar þú svosem að tala við mig, góði? ’ ’ spurði Sveinn og yppti öxl- um. — Ég hélt að af nógu væri að taka. Spurningin væri aðeins, hvort hann hefði tima og nenn- ingu til þess að sitja fyrir svörum hjá blaöamanni. „Jæja, viö get- um hitzt á morgun og séð til hverniggengur,” sagði Sveinn og þar meövar björninn unninn. Viö hittumst daginn eftir eins og talaö hafði verið um og tókum tal saman. Arangurinn er eftirfar- andi greinarkorn. Fyrst i stað var farið með löndum. — Er það ekki rétt sem mig minnir, aö þii sért Svarfdælingur að uppruna, Sveinn? — JU, rétter þaö. Égfæddistaö Hamri i Svarfaðardal. Sá bær stendur aö austan verðu i daln- um, nyrzt. Þegar komið er frá Akureyri og beygt inn i dalinn er Hamar fyrsti bær til vinstri, vest- ar Hálsár sem farið er framhjá. — Þegar ég var fjögurra ára fluttist ég meö foreldrum minum að Hjaltastöðum i Skiðadal. Þar var ég önnur fjögur ár, en aö þeim liðnum var enn flutt og nú að Skeggsstööum i Svarfaðardal og þar ólst ég upp eftir það. Ég var ekki nema ellefu ára þegar ég kom aðSkeggsstööum, og átti þar heima þangað til ég fluttist alfar- inn úr dalnum, svo ég tel mig allt- af þaðan þótt fyrstu bernskuspor min liggi annars staðar. Skeggs- staðir eru að austan verðu i daln- um, nærri miöjum dal, um það bil þrjá kilómetra fyrir innan Velli. — Bjóst þú kannski einhvern tima i Svarfaðardal? — Nei, aldrei gerði ég það, en þó tel ég mig alltaf háKgeröan bónda, og ég held, að i eöli minu sé ég fyrst og fremst bóndi. Ég fylgist alltaf náiö með málefnum bænda, og svo þykir mér gaman að sveitastörfum, að mér hefur ailtaf fundizt ég mega til með að eiga kartöflugarö hér fyrir sunn- an. Meira að segja hér fyrr á ár- um, ámeöanég vareinhleypur og ókvæntur, átti ég alltaf kartöflu- garð — bara til þess að fá aö sýsla^ viö þetta. Ég gaf kartöflurnar,~ heldur en þurfa að neita mér um að róta i moldinni. Þessi árátta hefur fylgt mér fram á þennan dag, og gerir það sjálfsagt á meöan égdreg önd um barka. Ég kaupi alltaf Frey og ég varö áskrifandi aö Búnaðarritinu þeg- ar ég var í bændaskólanum á Hól- um. Það rit hef ég keypt slöan. Samkeppnin var hörð — stelpurnar ekki nema fimm... — ÞU hefur þá stundaö nám á Hólum? — Já, ég fór þangaö haustiö , 1934. Þá var Steingrimur heitinn Steinþórsson skólastjóri þar. En seinni veturinnminn á Hólumvar Kristján Karlsson skólastjóri. Það var fyrsta skólaárið sem hann gegndi þvi embætti. Fyrra árið sem ég var i skólanum, var„ Steingrimur mikið suður i Reykjavik, þar sem hann vann að þvi að semja hið svokallaöa^ Rauðku-álit, sem margir kannasr sjálfsagt við. Þvi var Björn Simonarson yfirkennari i raun og „Okkar verður lestin lík....” veru skólastjóri þennan vetur, svona i framkvæmdinni.þótt hin formlega ábyrgð væri á herðum Steingrims og sjálfur kom hann norður, þegar próf tóku að nálg- ast og annaöist undirbUning og framkvæmd þeirra. — Hvernig þótti þér að vera á Hólum? — Þaö var i einu oröi sagt dásamlegur timi. Mér var það ný og kærkomin reynsla aö sitja á skólabekk og kynnast mörgu sem ég þekkti ekki áður né vissi aö væri til. Nokkrir skólabræðra minna voru úr Eyjafirði eins og ég ogsömuleiðis austan úr Þing- eyjarsýslu. Við sem vorum af þeim slóðum, fórum oftum vetur- inn á heimaslóöir okkar og geng- um þá Heljardalsheiði sem er á milli Hjaltadals og Svarfaðar- dals. Viö vorum að sjálfsögðu heima um jólin og áður en viö skilduin og hver fór heim til sin til þess að njóta jólahelginnar og fridaganna kom okkur saman um aö hittast á fremsta bæ i Svarfaöardal þegar friiö væri Utiygista þar um nóttina og halda siöan til Hóla daginn eft- ir.Þettafóreinsogtil var stofnað, við komum tveir aö Atlastööum i Svarfaðardal eins og ákveðiö hafði verið um klukkan sjö aö kveldi.en þá voru félagar okkar ekki komnir þangað og sást ekk- ert til þeirra. Veður var hið fegursta,logn og tunglsljós, snjór yfir öllu og heiðskirt. Það var þvl ekki amalegt að vera á feröfVÍð vorum á skiðum og ungir og hraustir. Við vissum aö þetta kvöld áttiaö vera ball á Hólum og fórum nU aö spyrja bóndann á Atlastöðum hvort okkur myndi ekki óhætt aö halda á heiðina þó aö komið væri undir kvöld. Okkur var mikið áhugamál að komast á ballið, þvi að á Hólum voru á milli þrjátiu og fjörutlu - strákar en ekki nema fimm stelpur svo að samkeppnin var hörð. Ef við færum strax eða þvi sem næst myndum við ná ballinu þvi að skiðafæri var gott. Bóndi svaraöi þvi til að ekki væri Utlit fyrir neina veðurbreytingu og ef veörið spilltist ekki væri okkur óhæthen fleira lagði hann ekki til þessara mála. Hins vegar var hUsmóðirin dálitið áhyggjufull yfir þessu tiltæki okkar, að ætla að leggja á heiðina, svona undir nótt. — Þiö hafið samt ekki látið letj- ast? — Nei, þaö var nú ööru nær. Hugurinn bar okkur hálfa leið. Heljardalsheiði er að visu brött og erfið uppgöngu þeim megin sem snýr að Svarfaðardal en eftir aö viö vorum komnir upp hjá Stóruvöröu sem er á há-heiðinni mátti heita að við þyrftum ekki að hafa fyrir öðru en að standa á löppunum, þvi að skiðin runnu Hólar I Hjaltadal. Þar stundaði Sveinn Gamalielsson nátn á unga aldri, og undi hag sinum hið bezta. Ómetanlegt veganesti — En þá er þaö önnur spurning og alvariegri: Þú hefur auðvitað farið i skólann á Hólutn af þvi að þú vildir veröa bóndi? — Ekki vil ég segja að ég hafi veriðbúinn aö fastákveöa hvað ég vildi verða þegar ég fór að Hól- um. Astæður þess að ég brá á þetta ráð eru miklu nærtækari. Jafnaldrar minir og nágrannar höfðu margir fariö aö Hólum og mig langaði að fara að dæmi þeirra. Enn fremur var hitt að heima fyrir var ekki völ á neinni fræðslunema barnaskólanum, en þarna eygði ég tækifæri til þess aö gera tvennt i einu: Llta i kringum mig i heiminum og afla mér um leið einhverrar þekkingar um- fram þá sem ég hafði þegar hlot- ið. —Það er lfka sannast mála að veran á Hólum varð mér ákaflega notadrjúg, þóttégyrðiekki bóndi. Það er engu iikara en að utanað- komandi atvik ráöi lifsbraut okk- ar meira en við sjálf. Hinuneita ég ekki, að þegar ég lit um öxl finnst mér stundum að — Spjallað við Svein Gamelíels- son um skólavist hans á Hólum, störf að félags- málum og kynni hans af huldum vættum Sveinn Gamalielsson sjálfkrafameð okkurniðuri' móti. Heiöin er ekki nærri eins brött Hjaltadals-megin,þarna var allt á kafi i snjó, við þaulkunnugir og höfðum þar að auki simalinuna til þess aö styðjast við. Okkur var þvi alls engin hætta búin. Ekki höföum viö skiðabindinga eins og þá sem nú tiðkast. heldur að- eins ól þvert yfir ristina. Ef viö dyttum var hætta á þvi að skiöin, annað hvort eða bæði, losnuöu frá okkur og rynnu sina leið og þá var voöinn vis, þau myndum við Timamynd Gunnar. aldrei sjá framar. En við kunnum ráö viö þessu. Það var siður okk- ar allra.stráka sem æföum okkur á skiðum i brattlendi á þessum árum að bora gat i skiðanefiö fremst hnýta þar i langt snæri gera stóra lykkju á hinn enda . snærisins og halda fast i hana, þegar við renndum okkur eða bregða lykkjunni um Ulnliðinn. Með þessu móti úorum viö vissir um að týna ekkk skiðunum, þótt við dyttum og lósnuðum Ur tá- bandinu. — Þessu heillaráði fylgdum viö auðvitað nU enda gekk ferðin heim aö Hólum eins og bezt varö á kosið. — Komuzt þiö svo á bailið? — Já viö vorum komnir I Hóla klukkan tólf um nóttina og þá var enn eftir mestur hluti ballsins þvi að þau stóðu lengur þá en nú á dögum. — En hvernig gekk svo sam- keppnin, þegar á balliökom? Tók þaö þvi aö leggja þetta á sig? — Samkeppnina? Já hUn gekk ágætlega. Fyrirhöfn okkar borgaði sig margfaldlega — og svo skulum við ekki tala meira um það. 1 Svarfaöardal. Hér, I þessari faliegu, norðlenzku sveit, eru æskuslóöir Sveins Gamalielssonar. Sklöadalur gengur suöur úr Svarfaöardal. Þar er fagurt og búsældar- legt um aö litast. Bærinn sem sést, er Dæli i Skiðadal. Kirkjan á Völium I Svarfaðardal. knattspyrna og hrossakjötsáthafi verið helztu athafnir oldcar Hóla- sveina á þessum árum. Ég gleymi aldrei fyrstu ferð minni heim aö Hólum haustið 1934. Ég fór sem leið liggur yfir Heljardalsheiði og kom þar af leiðandi fyrst að Skriðulandi i Kolbeinsdal. A Skriðulandi bjó þá fræðimaöurinn og öölingurinn Kolbeinn Kristinsson. Það var komið kvöld og ég spurði hvort ekki væri hægt að lána mér hest yfir ána Kolku en yfir hana þurfti ég vitanlega að komast. Nei, bölvaöir klárarnir eru hin- um megin við ána svaraði Kol- beinn. ÞU skalt bara fara úr sokk- um og skóm, þegar þú veður yfir ána, það er betra fyrir þig heldur en að ganga i blautum sokkum þaðsemeftir er leiöarinnar, bætti hann við. Maöurinn talaði svo vingjarnlega og hann verkaöi svo vel á mig að ég man það glöggt enn þann dag i dag. En ekki grunaði mig þá að þessi maður, sem ég bað að lána mér hest,væri prófdómarii skólanum, þarsem ég ætlaði að fara að stunda nám og hissa varö ég.þegar hann birt- ist andspænis mér við prófborð i fyllingu timans. En ég varð ekki fyrir vonbrigðum. Þvi oftar sem fundum okkar Kolbeins bar saman og þvi betur sem ég kynnt- ist honum þann tim a.sem ég var á Hólum þvi betur likaði mér við hann. Hann er einn þeirra góðu manna sem aldreierof mikið af i veröldinni. En svo ég viki aftur að verunni á Hólum og þeirri þekkingu sem ég öölaðistþar, þá er mér næst að halda að hin félagslegu viöhorf hafi orðiö mér drýgst veganesti. A Hólum voru málfundir al- gengir, og þar var talað um allt milli himins og jarðar: stjórnmál verkalýösmál, menningarmál — að ekki sé minnzt á sjálf land- búnaöarmálin,sem voruauövitað númer eitt eins og gefur aö skilja, þar sem saman voru komnir ungir menn, sem allir voru að nema bUfræði. Ég held mér sé óhætt að fullyrða aö við höfum allir fengið meiri og minni innsýn i alla þessa málaflokka og um mig er það aö segja,aö áhugi á þeim og löngunin til þess að fylgjast með þvi sem er aö gerast áhinum ýmsu sviðum þjóöfélags- ins hefurfylgtmérfram á þennan dag. Hlæi þeir sem hlæja vilja — Þú nefndir menningarmál— og sjálfur ert þú upp runninn i sögufrægri sveit. Last þú ekki Svarfdælu þegar þú varst ungur? — Jú, hvort þaö nú var. Is- lendingasögurnar voru lesnar aftur og aftur, og af sjálfu sér leiddi að ég las Svarfdælu spjald- anna á milli, ekki einu sinni, heldur oft. — Trúðir þú henni? — Ja, trúöi og trúði ekki. Það er i eðli minu að taka flestum hlutum með varúö og trúa helzt ekki neinu i blindni. Klaufi i Svarfdælu gekk aftur, og þaö er svo um munaði, en ég er litiö gefinn fyrir drauga og afturgöng- ur. Aftur á móti trúi ég þvi statt og stöðugt, að álfar séu til. Helgi magri var kristinn, eins og menn vita, og nefndi bæ sinn Kristnes, en þegar mikið lá við, sneri hann sér til Þórs. Ég vil snúa þessu við. Ég trúi á álfa, og hef löngum átt vingott viö þá, en ef mikið er i hUfi, leita ég til Krists. — Er álfabyggð i Svarfaðar- dal? — Já, og hún mikil. — Sást þú álfa þar? — Nei,égsáþáekki,enég vissi vel af þeim. Ef ég þurfti aö fá svör viö einhverju sérstöku, spuröi ég bara álfana, og það stóö ekkert á svarinu. Þetta geri ég enn I dag með góöum árangri. Mér er sama, hvort nokkur trUir mér eða ekki, — og hlæi þeir sem hlæja vilja — en svona er þetta: Þaö er bjargföst skoöun min, að álfar séu til, og að menn geti komizt i samband við þá, ef þeir vilja og reyna. — En veiztu hvernig álfarnir lita út, fyrst þú hefur aldrei séð þá? — Nei, þaö veit ég ekki, og ég get meira að segja bætt þvi við, aö þessar verur, sem ég kalla álfa, geta vel veriö allt öðru visi en þeir álfar, sem þjóösögurnar okkar lýsa. Kannski eru þetta framliðnir menn, eöa einhver gersamlega óþekkt tegund lif- vera. Mannleg þekking nær ákaf- lega skammt, og þaö er meira en meðalheimska að afneita þvi sem menn skilja ekki og vita ekki nokkurn skapaðan hlut um. 1 Svarfaöardal er mikiö af hól- um og klettum, smáum og stór- um, ekki sizt fyrir ofan bæinn á Skeggsstöðum, enda var þar allt morandi af álfum, þegar ég var aö alast þar upp, og er það sjálf- sagt enn. Alfabyggð i ; Kópavogi — En rofnaði samband þitt viö þessar huldu vættir ekki, þegar þú komst hingað i þéttbýlið og skarkalann? — Nei, ekki nú alveg. Þar sem ég bý i Kópavoginum, er allt kvikt og krökkt af álfum. — Jæja? Og ég sem á líka heima i vesturbænum i Kópa- vog-i! — Hvaö sakar það? Ég held álfarnir geri þér ekki mikiö! En ég get sagt þér, að þegar ég var að byggja þar, ofarlega við Kópa- vogsbrautina, þá var þar svo gifurlegur fjöldi álfa, að verkfær- in okkar voru alltaf að týnast. Það leið varla svo dagur, að við týndum ekki hamri, naglbit, hefli eða sög. Fyrst i stað leituðum viö að þessu dyrum og dyngjum, en án árangurs. Þá varð ég þess áskynja, aö álfarnir voru að byggja þarna rétt hjá okkur, og þegar þá vanhagaöium verkfæri, gripu þeir áhöldin okkar. En álfar eru skilvisir, og ég sagði viö vinnufélaga minn,aövið skyldum ekki vera að eyða tima i að leita að þvi sem týndist svona, þvi yrði skilað innan skamms. Þetta fór lika svo, og brást aldrei. Við hætt- um alveg að leita, þegar eitthvað hvarf, og það var segin saga, að hinn týndi hlutur lá á miðju gólfi, fyrir augunum á okkur, áður en langt var um liöiö. Ef honum var ekki skilað áöur en vinnu lauk sama daginn og hann haföi veriö fenginn að láni, mátti ganga að honum visum, þegar við komum til vinnu morguninn eftir. Það þarf enginn aö óttast aögeröir álfa,sem hefur við þá vinsamleg og góö samskipti. — Vinnufélagi minn var ekki meira en svo trú- aður á þetta fyrst i stað, en varð þó að viðurkenna þaö að lokum. Við týndum aldrei verkfæri allan timann sem bygging hússins stóð yfir. — Álfarnir standa með mér, og ég meö þeim. Það er mergur- inn málsins. — Jæja, þú bendir mér á byggðina þeirra, ef við verðum einhvern tima samferöa um Kópavoginn. — Já, það skal ég gera, enda er það minnstur vandinn. Að visu skemmdist álfabyggðin dálltiö, þegar véltæknin var að gera Borgarholtsbrautina að „finni” götu hérna um árið, en mér tókst að vara álfana við, svo þeir höföu ráðrúm til þess að færa sig, og voru við öllu búnir, þegar sprengingar og djöfulgangurinn tóku til að láta jörðina skjálfa. — Segðu mér nú citt: Hvernig ferð þú aö þvi að tala viö álfana? — Já, þúvilt vita það, —en þaö segi ég þér ekki, lagsmaður, þvl að þaö er hernaðarleyndarmál, — leyndarmál á milli mln og álf- anna. Hvað heldur þú lika að al- mennir blaöalesendur hafi með slika vitneskju að gera? Þeir væru ekki neinu bættari, svo viö skulum heldur fara að tala um eitthvaö annað. — Jæja, eins og þú vilt. Eitthvaö hefur þú verið búinn að dveljast hér fyrir sunnan, þegar þú fórst aö byggja húsiö I Kópa- voginum? — Ég kom hingað fyrst árið 1935, og fór þá að vinna á Vífils- staðabúinu hjá Birni Konráðs- syni. Svo fór ég norður og var seinni veturinnminn á Hólum, en að Hólaverunni lokinni fór ég suður öðru sinni og hélt áfram aö vinna á Vifilsstööum. Það tognaði úr verunni þar, ég var allmörg ár á Vifilsstöðum hjá Birni Konráös- syni og undi þar hag minum ljóm- andi vel. Björn reyndist mér ágætur húsbóndi og hinn bezti drengur, og mér leiö ljómandi vel á Vifilsstööum, þótt ekki væri þar álfabyggð i grenndinni, svo ég yrði var við. Ég fékk hundrað og tiu krónur i kaup á mánuöi, og þótti mjög gott, enda kostaði brennivinsflaskan ekki nema fimm krónur þá, — ef viö höfum þá vöru fyrir viömiðun. — Auk þess var svo fritt fæöi og húsnæöi, og það drýgöi tekjurnar auövitaö mjög mikið. ,,Mér rann kalt vatn milli skinns og hörunds — Svo áttir þú eftir að verða verkalýössinni i Reykjavik? — Já, og þaö er dálitið at- hyglisvert, hvernig ég öðlaðist þá miklu samúö meö verkalýð og öllu vinnandi fólki, sem hefur fylgt mér um áratugi. Og það er bezt að ég segifrá þessu hér, fyrst viö erum aö rabba saman um liöin ár. Ég var staddur sem ferðamaö- ur i Reykjavik haustið 1932, þá tuttugu og tveggja ára gamall. Einn daginn sem ég var hér að þvi sinni, vissi ég ekki fyrr til en ég var allt i einu staddur þar sem fjöldi manna barðist upp á lif og dauða, og notuðu sumir bera hnú- ana, en aörir hvaö sem hönd á festi. Þetta var nóvemberslagur- inn, svokallaði, bardaginn 9. nóvember 1932. Mér varð star- sýnt á þessi ósköp, en tók auðvitaö ekki þátt i neinu sem fram fór. Ég sá, hvar menn voru bornir i burtu, alblóöugir og ég játa, aðmér rann kaltvatn á milli skinns og hörunds. Ég fór aö spyrja sjálfan mig.hvort það gæti átti sér staö, að þessir fátæklegu verkamenn, sem ég sá þarna, ættu sök á slikum ófriöi. Upp frá þessum degi hefur vinnandi fólk til sjávar og sveita átt samúö mina og athygli óskipta. Ég hef reynt að fylgjast meö kjörum þessog éghef viljaö veröa að liði I baráttu almenningsfyrir betra og menningarlegra lifi. — Hefur þú ekki tekiö þátt I störfum Alþýöusambands ts- lands? — Jú, mér skolaöi meira aö segja inn i miðstjórn Alþýðusam- bandsins árið 1960. Þar kynntist ég mörgum mönnum, sem sumir voru skoðanabræöur minir, en aörir á öndveröum meiöi i stjórn- málum. En þaö tókst góður kunn- ingsskapur með mér og þeim, og ég á góðar minningar um sam- starfiö við alla þessa menn, hvort sem skoöanaágreiningur var meiri eða minni. Vistvar oft deilt, en þetta starf var að minnsta kosti aldrei leiðinlegt. Þó aö eitt- hvaö hitnaöi i mönnum og hnútur flygju um borð á einhverjum kvöldfundinum, þá voru allir óskemmdir af þvi og jafngóðir kunningjar morguninn eftir. Þetta segi ég að sé hinn rétti fé- lagsmálaandi, og reyndar er ég þeirrar skoöunar, aö flestum mönnum veröi óbærilegt að starfa til lengdar aö félagsmál- um, ef þeir ala með sér þykkju og andúö og geta helzt ekki talað viö þá sem eru þeim ósammála. Samvinnumaður — Svohefurþú lika tekið þátt i beinu stjórnmálastarfi? — Já, það er rétt. Ég er búinn aö starfa lengi i Framsóknar- flokknum, og málefni samvinnu- hreyfingarinnar hafa alltaf verið mér mjög hugleikin. — En finnst þér ekki mikil vinna að fást við féiagsmál og sitja kannski á fundum fram á næturað afloknu löngu ogströngu dagsverki á allt öörum vett- vangi? — Jú, félagsstörf eru ákaflega timafrekogoftasterfið.Menn eru gjarna kallaöiráfundimeðlitlum eöa engum fyrirvara,en þó er það kannski ekki það versta. Allir menn sem sinna félagsmálum aö einhverju ráöi, verða aö hafa tima til þess að kynna sér þau mál, sem þeim er ætlaö aö fjalla um. En það getur kostaö mikinn lestur og veröur iðulega ekki gert nema á löngum tima. Þetta veröa allir að hafa I huga, sem ætla sér að taka þátt i einhvers konar fé- lagsmálastarfi. — Segöu mér aö lokum, Sveinn: Hvaö heldur þú aö þér hafi þótt skemintilegast af þvi sem þú hefur fengizt viö um dag- ana? — Það ernú margt. Mér þykir flestskemmtilegt.sem éggeri, og ég hef sem betur fer alltaf veriö sæmilega glaðlyndur. En ef ég á að reyna að svara spurningu þinnibeint, þáheldégaö mérhafi þótt félagsmálastörf skemmtileg- ust allra verka. Það er ákaflega gaman að kynnast og vinna með mörgum og ólikum mönnum, þvi aö langoftast eru slik kynni ánægjuleg. Auðvitað erum við mennirnir misjafnir. Við róum og sláum hver með si'nu lagi. En mér hefur oft orðið hugsað til þess, sem ágætur maður sagði um þá, sem báru finni flik og fleiri i vösum lykla en hann sjálfur: Ökkar verður lestin lik á lokadaginn mikla. —vs

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.