Tíminn - 09.04.1978, Blaðsíða 26
26
Sunnudagur 9. apríi 1978
SKOÐANAKONNUN SOUNDS:
Ritchie Blackmore
Stevie Nicks
Nútíminn ★ ★
Jón rotni & klámbyss-
urnar komu vel út
STRANGLERS BEZTA NYJA HLJOMSVEITIN
Nýlega voru birt úrslit vin-
sældakosninga I enska tónlistar-
bla&inu Sounds. Um 5000 manns
kusu I þetta skipti, þannig aö óvlst
er hversu mikiö mark er takandi
á þessum kosningum.
Bezta plata si&asta árs að mati
lesenda Sounds var ,,Never Mind
the Bollocks” með punk-hljóm
sveitinni Sex Pistols. Sex Pistols
átti einnig þrjár af tiu beztu
smáskifum siðasta árs I þessum
kosningum. Það sem undarlegast
er viö þessi úrslit er, að á lista,
sem blaðiö Melody Maker birti
fyrir skömmu yfir hæstu plötur
slðasta árs, komust. plötur ekki á
blaö og var þó birtur langur listi!
Annars er það áberandi i þessum
kosningum hvað Sex Pistols og
Ritchie Blackmore’s Rainbow
eru ofarlega á mörgum stöðum.
En látum úrslitin tala sinu máli
og birtum nöfn þriggja hæstu á
hverjum lista.
Hljómsveit ársins: 1. Sex Pistols
2. Ritchie Blackmore’s Rainbow
3. Genesis.
Tónlistarmaður ársins: 1. Mike
Oldfield 2. Ritchie Blackmore 3.
David Bowie.
Breiöskifa ársins: 1. Never mind
the bollocks, here’s the Sex
pistols/Sex Pistols. 2. On stage/
Ritchie Blackmore’s Rainbow. 3.
Going for the one/ Yes.
Smásklfa ársins: 1. God save the
Queen/ Sex Pistols 2. Pretty
Vacant/ Sex Pistols 3. Wondrous
stories/ Yes.Bezta sviðsfram-
koma: 1. Ritchie Blackmore’s
Rainbow 2. Yes 3. Genesis.
Bezti gitarleikari: 1. Ritchje
Blackmore 2. Jimmy Page 3.
Steve Jones, (Sex Pistols)
Bezti bassaleikari: 1. Chris
Squire 2. Jean Jacques Burnel
(Stranglers) 3. Phil Lynott, (Thin
Lizzy)
Bez.ti trommuleikari: 1. Cozy
Powell, (Ritchie Blackmore’s,
Rainbow) 2. Phil Collins,
(Genesis) 3. Carl Palmer,
(ELP))
Page/Robert Plant
Anderson/Steve Howe.
3. Jon
Bezta nýja hljómsveitin 1. The
Stranglers 2. Tom Robinson Band
3. Boomtown Rats.
(tJr Sounds)
samantekt:
Jón Freyr Jóhannsson.
Söngkona ársins: 1. Stevie Nicks,
(Fleetwood Mac) 2. Joan Arma
trading 3. Linda Ronstadt.
Hugh Cornwell, Stranglers.
Söngmaöur ársins. Jón hinn rotni
á sólarströnd.
Söngmaður ársins: 1. Johnny
Rotten, (Sex Pistols) 2. Ronnie
James Dio, (R.B. Rainbow) 3.
Jon Anderson, (Yes)
Bezti hljómborösleikarinn: 1.
Rick Wakeman, (Yes) 2. Dave
Greenfield, (Stranglers) 3. Keith
Emerson, (ELP)
Beztu lagasmiðir: 1. Ritchie
Blackmore/Ronnie Dio 2. Jimmy
Sex Pistols.
f 4 BÍTLAGARG OG RtJTILÆÐI
V Skopstæling á Bítlunum slær í gegn
Um páskana var sýnd i BBC 2 i
Bretlandi, sjónvarpskvikmynd,
sem hefur vakiö gifurlega kátlnu
manna. Kvikmyndin sem er gerö
af Rutland Weekend Television,
er byggö upp sem heimildarmynd
og lýsir myndin upphafi og starfs-
fcrli brezku hljómsveitarinnar
The Rutles, allt fram að þeim
tima er hljómsvcitin leystist upp I
byrjun þcssa ártugar.
Þetta væri svo sem ekki i
frásögur færandi ef ekki væri um
að ræða eina almestu og beztu
skopstælingu seinni tima, en
myndin byggist á sögu brezku
Bitlanna, eða réttara sagt mynd-
in byggist áþvi að Rútlarnir
stæla Bitlana i einu og öllu og
er saga þeirra rakin af hinni
mestu natni, en aö sjálfsögðu með
smá lagfæringum á stöku stað. 1
tilefni af gerð myndarinnar kom
út hljómplata i Bretlandi fyrir
skömmu með Rútlunum, en sú
plata ber heitið The Rutles. Um-
slag plötunnar þykir vera sér-
stakt meistaraverk, en þvi fylgir
Bítlarnir? Nei, Rútlarnir.
20blaðsiðna bæklingur sem er eitt
allsherjar grin á kostnað Bitlanna
sálugu, m.a. eru myndir af plötu-
umslögum Bitlanna, þar sem á
frábæran hátt er farið frjálslega
með staðreyndir, og með alls
kyns tilfæringum eru Rútlarnir
klæddir i ,,föt” Bitlanna I orðsins
fyllstu merkingu. Þau lög sem
Rútlarnir flytja, bera nöfn eins og
Let it rot (L.. it be), A dard days
rut (night), Ouch (Help),
Tragical Mystery tour (Magical),
og Sgt. Rutters only Darts
club band (Sgt. Pepper’s lonely
heart club band). En svo að vikið
sé aftur að myndinni, hverjir eru
mennirnir á bak við Rútlana?
Þeir heita Eric Idle, sem leikur
imynd P. McCartney’s (Dirk
Mc Quickly) Reil Innes, sem leik-
ur John Lennon (Ron Nasty),
Ricky Fatar leikur George
Harrison (Stig O’Hara) en hann
er fyrrverandi meðlimur Beach
Boys og John Halsey sem
leikur/stælir Ringo Starr, öðru
nafni Barry Wom. Aðrir sem
mest koma viö sögu i myndinni,
eru persónurnar Leggy Mount-
batten, alias Brian Epstein, og
Eric Manchester (Derek Taylor).
Ef litið er á söguþráðinn kemur i
ljós að hann er meinfyndinn.
Hér á eftir fer stuttur útdráttur
úr söguþræðinum.
Sagan hefst árið 1959, fyrir utan
Egg Lane 49 I Liverpool meö þvl
aö Ron Nasty og Dirk McQuick
rekast hvor á á annan og býöst
Ron til þess aö hjálpa og Barry
Wom i hópinn... Þeir leika i
Rottukjallaranum i Hamborg i 15
mánuði samfleytt og nota fritim-
ann vel til þess kynna sér Reep-
erbahn og Herbertsstrasse....
Þeir snúa aftur til Liverpool, fúííir
af reynslu og pillum ... Leggy
Mountbatten gerist umboðsmað-
ur þeirra, þvi að hann fellur fyrir
hinum þröngu aðskornu buxum
þeirra, þó að hann hati músikina
þeirra... Rútlarnir semja lögin,
Twist and rut og Rut me do og slá
i gegn i Bretlandi... Skömmu sið-
ar liggur Amerika fyrir fótum
þeirra.... Þúsundir aðdaénda biða
þeirra á Kennedy flugvelli, en
þeir þurfa endilega að lenda á La
Guardia flugvelli..Nasty lýsir
þvi yfir að þeir séu sjálfum
himnaföðurnum æðri, þvi að hann
hafi aldrei gefiö út met-
Athugiö þessi umslög vel þvl aö
söluplötu.... Þetta eykur að sjálf-
sögðu söluna á plötum þeirra og
fjöldi fólks kaupir þær aöeins til
þess að brenna sig á fingrunum
við að brenna þær á báli... Rutl-
es hafa slegið i gegn....o.s.frv...
Þegar Rútlarnir skilja við Bitl-
ana að lokum ekur John Lennon
um sem gamall karlfauskur I
hjólastól. Paul Mc Cartney litur
út eins og ræflarokkari með
öryggisnælu i gegnum nefið,
Harrison vinnur hjá Flugfélagi
Indlands og Ringo Starr lifir
hamingjusamur það sem eftir er
ævinnar og starfrækir hár-
greiðslustofu.
Hér mun verða látið staðar
numið i bili, þó af nógu sé að taka
af stælingum The Rutles á The
Beatles, en vonandi fáum við
bráðum að berja þessa mynd aug-
um (Byggt á MM, NME og Sounds)
eralltsem sýnist.