Tíminn - 27.04.1978, Qupperneq 1
Fimmtudagur 27. apríl
1978 62. árgangur — 86.
tölublað
Islendinga-
þættir
Siðumúla 15 • Pósthólf 370 • Reykjavík • Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 Afgreiðsla og áskrift 86300 • Kvöldsimar 86387 & 86392
VMSÍ og VMSS
Vísa vinnudeilunni til
sáttasemj ara í sameiningu
VSI ekki með, en mim mæta til funda
JB — Eftir fund Verkamanna-
sambandsins með Vinnuveit-
endasambandi tslands og Vinnu-
málasambandi samvinnufélag-
anna i gær var ákveðið að visa
vinnudeilunni til sáttasemjara.
En i lok fundar þessara aðila i
siðustu viku innti formaður VMSí
vinnuveitendur eftir þvi þeir
hværu reiðubúnir að visa málinu
með þeim til sáttasemjara. Bað
þá VSt um frest til að athuga mál-
ið, en á fundinum i gær lýsti það
þvi svo yfir, að það væri ekki til-
búið til að go:a s o bar sem það
vildi ræða við 10 manna nefnd
frekar, eóa ASt i heitd, en teldi
óeðlilegt að ra:ða við eitt félag
sér. Hins vegar ákvað VMSS að
visa málinu meö VMSÍ til sátta-
semjara. Að sögn ólafs Jónsson-
ar, framkvæmdastjóra VSl,
munu fulltrúar þess mæta til
fundar hjá sáttasemjara er hann
boðar þá.
Hallgrimur Sigurðsson hjá -
VMSS sagði i gær, að viðhorf
þeirra þar væri það, að ef VMSt
Formenn VSt og VMSt Barði Friöriksson og Guðmundur J. takast i hendur i upphafi fundar i gær.
—MyndGunnar
vildi ræða sér, væru þeir fúsir til
viðræðna. Sagði hann að þeir
hefðu marglýst þvi yfir, að af
þeirra hálfu hefðu samningar frá
i fyrra verið haldnir, en að póli-
tiskur aðili hefði komiö þar inn i
og breytt málinu. Þeir teldu, að
lausn væri ekki að fá frá þeim i
formi hærri launa, heldur þyrfti
aö koma frá þessum pólitisku
aöilum.
Sagði hann Vinnumálasam-
bandið hafa lýst þvi yfir að þeir
vildu vinna að þvi að hafa áhrif á
að einhver lausn fyndist.
Að sögn Gúðmundar J. Guð-
mundssonar formanns VMSt vildi
Verkamannasambandið visa
málinu til sáttasemjara, þvi þær
viðræður, sem farið hafa fram
meðal aðila að undanförnu hefðu
verið með öllu árangur§lausar.
brátt fyrir yfirlýsingu vinnuveit-
enda að þeir vilji ræða við ASt
hafi ekkert frá þeim komið. Sagði
Guðmundur að þegar málið væri i
höndum sáttasemjara, tæki hann
að sér að stjórna umræðum, og
reyndi að leita eftir tillögum.
Taldi hann það, að VSt vildi ekki
visa málinu með þeim til sátta-
semjara benda til þess, að þeir
vildu draga málið þótt ekki væri
hægt að sjá það i fljótu bragði
hver yrði bættari meö sliku.
Stal auövaldið
bíl Guðmundar J.?
JB —Aður en fundur vinnuveit-
enda og Verkamannasambands
tslands hófst i gær, beindi Guð-
mundur J. þeirri fyrirspurn til
Barða Friðrikssonar, formanns
Vinnuveitendasambandsins,
hvort það hefði staðið fyrir þvi
að bifreið hans var stolið á með-
an siðasti fundur fulltrúa vinnu-
veitenda og verkamannasam-
bandsins stóð yfir. Guðmundur
sagði að lögreglan hefði gert
mikla leit að bifreiðinni og fund-
ið hana siðan fyrir utan Hús-
mæöraskóla Reykjavikur. Kvað
hann bilmissinn hafa skapað sér
slik vandræði, að hann myndi
vart slikt i annan tima.
Fjör á þingi:
MÖRG LÖG AFGREIDD
— lögð fram tvö ný stjórnarfrumvörp
KEJ —Mikil fundahöld voru á Al-
þingi í gærdag og fram á kvöld.
Fjölmörg lög voru samþykkt frá
þinginu, m.a. afgreiddi neðri
deild 12 stjórnarfrumvörp á veg-
um ólafs Jóhannessonar dóms-
og viðskiptaráðherra til rikis-
stjórnarinnarsem lögfrá Alþingi.
Þá voru i gær lögð fram tvö ný
stjórnarfrumvörp. Annars vegar
er um að ræða frumvarp til laga
um kerfisbundna skráningu á
upþlýsingum, er varöa einkamál-
efni, frumvarp samið að tilhlutan
Ólafs Jóhannessonar dómsmála-
ráðherra um meöferð efnis i tölv-
um, er varða einkahagi manna.
Hins vegar er um að ræða
frumvarp á vegum fjármálaráð-
herra ufn jöfnunargjald. Verði
þetta jöfnunargjald lagt á inn-
fluttar samkeppnisvörur til að
bæta iðnaðinum þaö óhagræöi
sem hlýzt af uppsöfnun söluskatts
i framleiðslu fyrir innlendan
markað.
Frá þessum málum og fleirum
segir á þingsiðu blaðsins, bls. 6.
„Huldumeyjarnar” fundnar
Haf a viðurkennt aðild
að handtökumálinu
— héldu að um lögmæta lögregluaðgerð væri að ræða
„Framhalds-
aðgerðir fara
eftir viðbrögð-
mn vinnuveit-
enda”
— segir Karl
SteinarGuðnason
JB — Eins og komiðhefurfram i
fréttum, veitti fundur I Verka-
lýös-og sjómannafélagi Keflavik-
ur stjórn félagsins heimild til boð-
unar allsherjarvinnustöövunar.
Karl Steinar Guðnason formaður
félagsins sagði Timanum i gær,
aðenn heföi engin ákvörðun verið
tekin um boðun verkfalls á svæð-
inu. Sagði hann, aö þaö færi eftir
viðbrögðum vinnuveitenda.
— Við höfum óskað eftir við-
ræöum við vinnuveitendur hér á
Suðurnesjum um þessi mál. beir
hafa enn ekki svarað okkur að
heitið geti ennþá, en það ætti að
verða ljóst á morgun hvenær
fundur verður haldinn. Fram-
haldið af okkar aögerðum verður
i ljósi viðbragða atvinnurekenda.
En það eru fleiri en Vinnuveit-
endafélagið, sem viö þurfum að
ræða við, t.d. Oliufélagið og Flug-
leiðir auk annarra, — sagði Karl
Steinar.
GV — Handtökumálinu svonefnda
hefur enn á ný skotið upp á yfir-
borðið á grundvelli nýrra upplýs-
inga. „Huldumeyjarnar” tvær,
sem Guðbjartur heitinn Pálsson
og Karl Guðmundsson fullyrtu að
hefðu verið með þeim i bi'lnum,
eru nú komnar i leitirnar og hafa
viðurkennt, að eftir að áfengi
hafði verið komiö fyrir með leynd
i farangursgeymslu bilsins hafi
þær, að áeggjan og beiðni Hauks
Guömundssonar, blekkt Guðbjart
og Karl til að fara til Voga þar
sem lögreglumenn úr Keflavik
sátu fyrir þeim. Haukur
Guðmundsson hefur ekkert viður-
kennt við yfirheyrslur.
Samkvæmt upplýsingum sem
Timinn hefúr aflað sér, töldu kon-
urnar, að hér væru þær að taka
þátt i lögmætri lögregluaðgerð,
svo að einnig þær voru blekktar,
eins og Guðbjartur og Karl.
Rannsóknarlögreglan hefur
unnið að stöðugum yfirheyrslum
frá þvi i fyrradag, að konurnar
gáfu þessar nýju upplýsingar i
málinu og sat Haukur Guðmunds-
son inni eina nðtt, en hefur eins og
fyrr segir ekkert viðurkennt til
þessa.
Viðar Olsen fulltrúi bæjarfó-
geta i Keflavik og Vikingur
Sveinsson varðstjóri hafa verið
yfirheyrðir út af málinu, og hafa
þeir nú viðurkennt að hafa leynt
þvi fyrir rétti hvernig málinu var
háttaö.
Hér fer á eftir fréttatilkynning
rannsóknarlögreglu rikisins
vegna málsins:
,,Með bréfi, dagsettu 22. des-
ember s.l., sendi Steingrim
ur Gautur Kristjánsson, héraðd-
sómari, rannsóknarlögreglu-
stjóra rikisins rannsóknargögn
varðandi kæruefni Karls Guð-
mundssonar, Þórufelli 14,
Reykjavik um ólögmæta hand-
töku ásamt ljósriti af bréfi rikis-
saksóknara, dagsettu 8. desem-
ber s.l., til héraðsdómarans, svo-
hljóðandi:
„Með bréfi, dagsettu 31. mai
s.l., senduð þér, herra setudóm-
ari; endurrit af dómsrannsókn
ásamt fylgiskjölum varðandi
kæru Karls Guðmundssnar Þóru-
felli 14, Reykjavik vegna ætlaðrar
ólögmætrar handtöku hinn 6. des-
ember 1976 i Vogum á Vatns-
leysuströnd, og i þeim sambönd-
um ætláð brot Matthiasar Hauks
Guðmundssonar, Kirkjubraut 3,
Innri-Njarðvik, á 131. gr., 132. gr.
og 148. gr. almennra hegningar-
laga nr. 19, 1940.
Embættið hefur nú lokið athug-
un sinni á fyrrgreindum rann-
sóknargögnum og er niðurstaða
þeirrar athugunar sú, að rann-
sóknargögnin hafi ekki að geyma
nægilegar sterkar likur til sak-
fellis svo að fullnægi ákvæðum
115. gr. laga nr. 74, 1974 til dtgáfu
ákæru á hendur kærða, Matthiasi
Hauki Guðmundssyni, fyrir brot á
131. gr., 132. gr. og 148 gr. al-
mennra hegningarlaga og er þvi
eigi af ákæruvaldsins hálfu kraf-
izt frekari aðgerða i máli þessu að
sinni, nema fram komi nýjar upp-
lýsingar, sem kynnu áð'renna
styrkari stoðum undir fyrr-
greindar sakargiftir á hendur
kærða.”
Hinn 9. þ.m. komu fram nýjar
upplýsingar i máli þessu, sem
leiddu til þess, að hafin var rann-
sókn i máli þessu af hálfu rann-
sóknarlögreglu rikisins. Hafa 2
konur, búsettar i Keflavik, nú
viðurkennt i rækilegri skýrslu-
gjöf, sem þær hafa staðfest fyrir
Framhald á bls. 19.