Tíminn - 27.04.1978, Síða 5
Fimmtudagur 27. april 1978
5
Húnavaka komin út
i 18. skipti
Hdnavaka, ársrit Ungmenna-
sambands Austur-Húnvetninga,
er nýkomið út. Ritið er rúmar 200
blaðsiður að stærð prentað i
Prentverki Odds Björnssonar,
Akureyri. Ritsjóri er Stefán A.
Jónsson, Kagaðarhóli.
Meöal efnis i Húnavöku má
nefna: Grein eftir Guömund
Jónsson um þátt Húnvetninga I
upphafi búnaðarfræðslu, þáttur
eftir Jón Torfason þar sem gréint
er frá upphafi bilaaldar. Björn
Bergmann ræöir viö Lárus i
Grimstungu umflutninga áður en
vélknúin ökutæki komu til sög-
unnar. Viðtal er við Elinborgu
Guðmundsdóttur.skráö af Unnari
Agnarssyni. Grein eftir Guðlaug
Guðmundsson um Reykjaskóla 40
ára. Þá er framhald á þætti
Bjarna f Blöndudalshólum, Litast
um i Svinavatnshreppi. Þá er
stutt grein um Vatnsdalsárgil
eftir BjörnBergmannoglO myndir
úr gilinu sem Unnar Agnarsson
hefur tekið. Smásaga er eftir
Skarphéðin Ragnarsson. Björn
Magnússon skrifar um fjármissi.
Viðtal er við Halldór Guömunds-
son.Efri-Lækjardal. frásögner af
ferð yfir Blöndu árið 1900, eftir
Jónbjörn Gislason. Guðriður B.
Helgadottirskrifar um Kvenfélag
Bólstaðarhliðarhrepps 50 ára.
Elisabet Arnadóttir skrifar um
Jónatan Jónsson, Lárus Guð-
mundsson skrifar um lífið við sjó-
inn. Grimur Gislason rekur sögu
Jakobs Sigurjónssonar. Sr. Arni
Sigurösson skrifar um aldaraf-
mæli Þingeyrakirkju og Þorbjörg
Bergþórsdóttir skrifar um Kven-
félagið Vöku 50 ára. Guömundur
Jósafatsson frá Brandsstöðum
skrifar minningargrein um Pétur
Pétursson, Höllustööum
Auk þess, sem hér hefur verið
talið, eru i ritinu nokkur ljóð, og
stuttar greinar eru um alla Hún-
vetninga, sem látizt hafa á árinu
1977. Þá er i ritinu þáttur, sem
nefnist Fréttir og fróðleikur og er
þar greint frá þvi helzta sem
geröist i Húnaþingi árið 1977.
Forsiöumynd er úr Alkugili,
tekin af Unnari Agnarssyni.
Þetta er 18. árgangur ritsins
Húnavöku. 1 ritinu hafa á umliðn-
um árum birzt greinar eftir fjöl-
marga höfunda og kennar
margra grasa i efnisvali. Flestar
eru þó greinarnar tengdar þjóö-
legum fræöum eða málefnum
héraðsins.
Otgefandi Húnavöku er Ung-
mennasamband Austur-Húnvetn-
inga. Dreifingu ritsins annast
Gisli J. Grimsson, Brekkubyggð
18, Blönduósi, og geta þeir, em
vilja snúið sér til hans með óskum
að verða sent ritið.
Útboð
Hitaveita Suðurnesja óskar eftir tilboðum
i smiði á ryðfrium geymum.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu hita-
veitunnar, Vesturbraut lOa, Keflavik og á
Verkfræðistofu Guðmundar og Kristjáns,
Laufásvegi 12, Reykjavik, gegn 10. þús.
kr> skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð 15. maf.
Aðalfundur
Laugarnessafnaðar verður haldinn i
Laugarneskirkju sunnudaginn 30. april kl.
15, að lokinni guðsþjónustu.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Safnaðarheimilismálið
önnur mál.
Sóknarnefnd Laugarnessóknar.
Stjáni (Siguröur Skúlason) „Ég
vil fá mitt barn fyrst þú vilt það
ekki”.
Svandis (Anna Kristin Arn-
grímsd.) ,,Nei!Nei!Nei! Kemur
ekki til mála.”
llulda (Steinunn Jóhannesd.)
hlustar á rifrildi systur sinnar og
fyrrverandi kærasta hvort gefa
eigi barn þeirra.
Sýningnm á
„Stalín” fer
fækkandi
Hið vinsæla leikrit Vésteins
Lúðvikssonar Stalin er ckki hér
hefur veriðsýnt i Þjóðleikhúsinu i
allan vetur við mikla aðsókn,eru
sýningar orðnar 30 og hefur verið
uppselt á þær flestar.
Þetta er fyrsta verk Vésteins
sem flutt er i Þjóðleikhúsinu og
hlutu bæði leikritið og sýningin
einróma lof gagnrýnenda. Hefur
leikritið i vetur orðið kveikja fjöl-
margra blaðagreina og mun
óhætt að segja að fá ný islensk
leikrit hafi vakið jafn mikla at-
hygli á siðustu árum.
Leikstjóri sýningarinnar er
Sigmundur örn Arngrimsson,
leikmynd gerði Magnús Tómas-
son en i hlutverkunum sex eru:
Rúrik Haraldsson, Bryndis
Pétursdóttir, Sigurður Skúlason,
Steinunn Jóhannesdóttir Sigurður
Sigurjónsson og Anna Kristin
Arngrimsdóttir.
Antik-málið til
ríkissaksóknara
ESE — Hið svokallaða Antik mál
hefur nú verið sent rikissaksókn-
araembættinu, og er það nú á
valdi þess hvort mál verður höfð-
aðeðaekki. Af hálfu embættísins
sér Jónatan Sveinsson fulltrúi um
rannsókn málsgagna, og er
blaðamaður Timans hafði sam-
band við hann i gær, sagði hann,
að ómögulegt væri að segja um
hvenær megi vænta þess, að
ákvörðun verði tekin i málinu, þvi
að hvort tveggja er, að stutt er
siðanhanntók við málinu, svo og
það, að mál sem þetta eru mjög
viðamikil og seinyfirfain.
BÍLAPARTA-
SALAN
auglýsir
NÝKOMNIR VARAHLUTIR í:
Peugot 204 árg. '69
M. Benz — '65
M. Benz 319
Fiat 128 - '72
Fiat 850 Sport — '72
Volvo Amason — '64
BÍLAPARTASALAN
Höfðatúni 10 — Simi 1-13-97
Bakarameist-
arar á Norður
löndum þinga
i Reykjavik
Ráðstefna bakarameistara frá
Norðurlöndum, verður haldin að
Hótel Sögu dagana 26. og 27. april
n.k.
Þetta verður i annað sinn sem
slik ráöstefna er haldin en fyrsta
ráðstefnan var haldin árið 1976 i
Osló. í tengslum við ráðstefnuna
kemur hingað til lands 120 manna
hópur bakarameistara og makar
þeirra til að kynnast landi og
þjóð.
Hot Rod — Hot Rodding
Cor Craft
Car & Driver
Amerísk
Bflablöð
Four Wheeler
Off Road
Super
Chevy
gó/fteppí
SAMBANDIÐ AUGLÝSIR
Úrval af Rya-teppum
Einlitum og munstruðum — Ensk úrvalsvara
SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA
BYGGINGARVORUR Teppadeild
SUÐURLANDSBRAUT 32 SÍMI 82033