Tíminn - 27.04.1978, Qupperneq 6
fíifliLUu;
6
Halldór E. Sigxirdsson:
Ú tflutnings -
gjaldið trygging
fyrir jofnuði
ins hefðu verið stórauknar á
undanförnu ári og samkvæmt
útreikningum Þjöðhagsstofnun-
ar hefðu tekjur bænda" hækkað
um 60-70% á siðasta ári og þvi
stæðist ekki sú kenning Alþýðu-
bandalagsmanna að rikissjórn-
in hefði ekki gert neitt til að
mæta vanda landbúnaðarins.
Hitt væri firrukenning Alþýðu-
bandalagsmanna að þessum
vanda^fnætti mæta eingöngu
með auknum niðurgreiðslum.
Smjörútsalan nústandandi
sýndi það svart á hvitu. Smjör-
sala hefþi stóraukizt fyrstu dag-
ana eftir að útsalan hófst, en
þótt verð á smjöri hefði ekkert
hækkað siðan, væri sala nú
komin i meðallag.
Þá sagði Halldór, að hið sanna
i þessum málum og þrátt fyrir
áróðurspólitik Alþýðubanda-
lagsins, væri það aö árið 1977
yrði að öllum likindum betra ár
fyrir bændur en árið 1973 og
hefði það ár veriö talið það
bezta um áratugaskeið.
Miklar umræður urðu um
þessi mál i kjölfar ræðna Ragn-
ars og Halldórs. Til máls tóku
Páll Pétursson (F). Ingi
Tryggvason (F).Pálmi. Jótisson
(S), Stefán Jónsson (Abl) og
Ólafur Óskarsson (S).
Á fundi sameinaðs Alþingis i
fyrradag kvaddi sér hljóðs utan
dagskrár Ragnar Arnalds (Abl)
og kvaðst vilja vekja athygi á
nýákveðnu útflutningsgjaldi á
dilkakjöt. Með gjaldtöku þess-
ari sagði hann að verið væri að
kippa rekstrargrundvellinum
undan meðalbúum. Beindi
Ragnar tveimur fyrirspurnum
til landbúnaðarráðherra, Hall-
dórs E. Sigurðssonar. i fyrsta
lagi hvort rétt væri að ákvörðun
hefði verið tekin um gjald þetta
og hvort sauðfjárbændur ættu
að bera það án gagnráðstafana.
i öðru lagi spurðist Ragnar fyrir
um hvort ekki væri ætlunin að
gera einhverjar ráöstafanir til
að auka neyzlu innanlands á
kindakjöti.
Halldór E. Sigurösson svaraði
fyrirspurnum Ragnars og vakti
athygli á áróðurskenndum
rangfærslum i ummælum þing-
mannsins. í fyrsta lagi væri alls
ekki um gjaldtöku að ræða i
þeim skilningi er þingmaðurinn
hefði gefið i skyn. Hér væri um
að ræða tryggingu til aö firra
vandræðum ef svo skyldi fara
að útflutningsbætur dygöu ekki
til aö mæta útflutningi á kinda-
kjöti á árinu eins og allar likur
bentu nú til. Það væri fram-
Halldór E. Sigurðsson.
kvæmdanefnd Framleiðsluráðs
sem tekið hefði ákvörðun um
gjald þetta og ætti það að
tryggja að jöfnuður verði á milli
sláturleyfishafa ef það ástand
skapaðist að útflutningur færi
fram úr þeim ramma sem lög
leyfðu útflutningsbætur á. Ef
hins vegar útflutningur yrði inn-
an rammans, yrði þetta endur-
greitt.
Þá vakti Halldór athygli á, að
niðurgreiðslur til landbúnaðar-
SAKNA FRUM-
VARPS GYLFA
Ólafur Jóhannesson við-
skiptaráðherra mælti i gær á
fundi efri deildar fyrir frum-
varpi til laga um verðlag, sam-
keppnishömlur og óréttmæta
viðskiptahætti, en frumvarp
þetta hefur verið afgrcitt og
samþykkt i neöri deild. Aöur
hefur verið gerð grein fyrir
frumvarpi þessu hér á þingsiðu,
en það gerir ráð fyrir frjálsri
verðlagningu þegar samkeppni
er nægileg til þess að tryggja
æskilega verðmyndun og sann-
gjarnt verðlag. t ræöu sinni i
gær vék ólafur Jóhannesson að
gagnrýni Gylfa Þ. Gislasonar
þess efnis að frumvarpið væri
samhljóða frumvarpi er Fram-
sóknarmenn hefðu átt aðild að
að fella 1969. Minnti Ólafur á að
hann hefði áður gert grein fyrir
hvað væri likt meö frumvörpun-
um og benti á umsögn vinnu-
veitenda til staðfestingar þvi að
frumvörpin væru ekki sam-
hljóða. Það væri svo annað mál
að vinnuveitendur söknuðu ým-
iss úr frumvarpi Gylfa.
Ólafur Jóhannesson.
Forstöðumenn
ríkisstofnana
aðeins ráðnir
til 6 ára í senn
A fundi efri deildar Alþingis á
mánudag mælti Ragnar Arnalds
(Abl) fyrir frumvarpi til laga um
endurnýjun i stöðum forstöðu-
manna rikiss tof nana . Sagði
Ragnar i framsöguræðu að frum-
varpið væri flutt i þeim tilgangi
að stuöla aö hæfilegri endurnýjun
og mannaskiptum I ríkiskerfinu
en ákvæði þess næðu þó aðeins til
yfirmanna rikisstofnana.
Frumvarpið gerir ráð fyrir að
forstöðumenn rikisstofnana skuli
aðeins settir, ráðnir eða skipaðir
til 6 ára i senn og stuðla beri að
hæfilegri endurnýjun i þessum
stöðum, einkum þegar sami mað-
ur hefur verið i starfinu 12 ár eöa
lengur. Lagði Ragnar áherzlu á
að i ákvæðum frumvarpsins fæl-
ist þó engin skylda fyrir ráðherra,
en hins vegar auðveldaði þetta
þeim að stuðla að æskilegri end-
urnýjun og auðveldaði ennfremur
forstöðumönnunum aö vikja úr
embætti á grundvelli lagatil-
mæla.
alþingi
Ragnar Arnalds.
væri i flestum ef ekki öllum tilvik-
um æskilegt að stuðla að hreyf-
ingu og endurnýjun i rikis- og
stjórnkerfinu.
Steingrlmur Hermannsson
Steingrimur Hermánnsson (F)
tók til máls að framsögu Ragnars
lokinni og kvaðst styöja frum-
varpið. Sagðist hann telja að það
Fimmtudagur 27. april 1978
Tölvuskráning
A vegum dómsmálaráðherra, Ólafs Jóhannessonar, hefur verið sam-
iðog lagt fram frumvarp til laga um kerfisbundna skráningu á upplýs-
ingum er varða einkamálefni. t fvrstu erein segir um eildissvið
laganna : „Lög þessi taka til hvers konar kerfisbundinnar skráningar á
upplýsingum •varðandi einkamálefni, þ.á.m. fjárhagsmálefni einstak
Iinga, stofnanfyrirtækja eða annarra lögpersóna.sem sanngjarnt er og
eðlilegt, að leynt fari. Lögin taka bæði til skráningar af hálfu fyrir-
tækja, félag og stofnana og til skrðningar á vegum opinberra aðila.
Mcð kerfibundinni skráningu upplýsinga er átt við söfnun og skráningu
ákveöinna og afmarkaðra upplýsinga i skipulagsbundna heild.
Akvæði laganna eiga við um upplýsingar um einkamálefni, er varða
tiltekinn aðila, þótt hann sé ekki nafngreindur, ef hann er sérgreindur
með nafnnúmeri eða skráningarauðkenni, sem unnt er að persónu-
greina fyrir þá, sem búa yfir greiningarlykli.”
t fimmtu grein þessa lagafrumarps segir m.a.:
„Atvinnufyrirtæki, atvinnurekendur, stofnanir og félög og sambæri-
legir aðilar mega þvi aðeins koma við kerfisbundinni skráningu
upplýsinga, er 1 gr. tekur til að skráning sé eðlilegur þáttur I starfsemi,
sem slikir aðilar hafa um hönd, sbr. þó ákvæði 11. og IIJ. kafla.
Óheimilt er að skrá upplýsingar, er varða þjóðerni manna, þjóðflokk,
kynþátt og litarhátt, svo og skoðanir þeirra á stjórnmálum eða einstök-
um stjórnmálaiegum efnum og á trúmálum, nema sérstök lagaheimild
standi til þess. Skráning er þó heimil, ef hinn skráði hefur látið i té
upplýsingar eða þeirra er aflað með samþykki hans og við þær aðstæð-
ur, að honum getur eigi dulizt, aö ætlunin er að skrá þær með þeim
hætti, er greinir I 1. málsgr. Það er fremur skilyrði, að aðila sé brýn
nauðsyn vegna starfsemi sinnar að skrá upplýsingarnar.”
Nánar veröur verð grein fyrir frum varpinu siðar.
Jöfnunargjald
Lagt hefur verið fram stjórnarfrumvarp til laga um jöfnunargjald. i
frumvarpi þessu er gert ráð fyrir aö lagt verði sérstakt jöfnunargjald á
innflutning sömu iðnaðarvara og framleiddar eru hér á landi, til að
vega upp á móti þeim söluskatti sem veröur hluti framleiöslukostnaðar
þessara vara samkvæmt gildandi söluskattslögum.” Skal gjald þetta
vera 3% og greiðast í rikissjóð. Þaö skal greiða af tollverði innfluttrar
vöru og skal innheimt á sama hátt og aöflutningsgjöld og njóta sömu
lögverndar og þau gjöld. Tekjum af þessu gjaldi skal ráðstafa á fjár-
lögum ár hvert og að hluta til eflingar iðnþróunar. Tekjum af gjaldinu f
ár skal ráðstafa samkvæmt ákvörðun rikisstjórnarinnar. Reiknað er
með aö lög þessi séu til bráðabirgða eða þar til virðisaukaskattur
verður upp tekinn I landinu en uppsöfnunaráhrifum yrði með honum
eytt.
Ný lög frá Alþingi
Þinglýsingarlög
Frumvarp til þinglýsingariaga var afgreitt sem lög frá Alþingi I gær
ásamt 9 fylgifrumvörpum. Lög þessi miöa aö þvi að greiðar óg öruggar
upplýsingar megi fá um réttindi yfir fasteignum og að reglur um
réttaráhrif þinglýsingar séu sem skýrastar. Stefnir frumvarpið að
gleggri og öruggari skráningu fasteignaréttinda en verið hefur og að
bættum háttum á vörzlu skjala.
Tollamál
Samþykkt hefur verið sem lög frá Alþingi frumvarp til laga um
heimild fyrir ríkisstjórnina að fullgilda fyrir tslands hönd samning
milli Lýðveldisins islands og Sambandslýðsveldisins Þýzkaiands um
gagnkvæma aðstoð i tollamálum. Umrædd aðstoð felst annars vegar i
almennri framkvæmd tollalaga og hins vegar i aðstoð til að koma I veg
fyrir, rannsaka og upplýsa brot á tollalöggjöfinni.
Lóðamál
Samþykkt hefur verið sem lög frá Alþingi frumvarp til laga um
breyting á lögum um ákvörðun leigumála og söluverðs lóða og landa
Reykjavikurkaupstaðar.
Samþykkt hfur verið sem lög frá aiþingi frumvarp til laga um vöru-
happdrætti StBS. Með iögum þessum framlengist heimild Sambands
islenzkra berklasjúklinga til reksturs vöruhappdrættis um 10 ár.
Bókhald
Samþykkt hefur verið sem lög frá Alþingi frumvarp til laga um
breyting á bókhaidslögum. Með lögum þessum er I fyrsta lagi skilyrðið
um innbundna og löggilta efnahagsbók gert undanþægt. Með þvi er
stefnt að þvi að opna þann möguleika aö I stað handfærslu og innbind-
ingar efnahagsbókar, geti komið geymslubindi, sem ársreikningurinn
>rði lagður i eöa bundinn. í öðru lagi er opnuö heimild til þess aö setja
reglugerðarákvæði um geymslu bókhaldsbóka og bókhaldsgagna á
filmu og annarri jafngildri eftirmynd.