Tíminn - 27.04.1978, Síða 8
8
Fimmtudagur 27. april 1978
A Náttúruverndarþingi um næstu
helgi:
Meðferð
auðlinda og
staðarval
iðnaðar
— auk fjölda annarra
náttúruverndarmála
úruverndarmál: I’áll Lmdal ræð-
FI — Náttúruverndarþing, hið
þriðja í röðinni, verður haldið
dagana 29. ug :!(). april nk. á Hótel
Loftleiðum. Eysteinn Jónsson
formaður Náttúruverndarráðs
setur þingið laugardaginn 29.
april og Vilhjálmur Hjálmarsson
menntamálaráðherra flytur á-
varp. Kosið verður i embætti og
skýrslur formanns og fram-
kvæmdastjóra lagðar fram. Pá
verða flutt fimm crindi um nátt-
ir endurskoðun náttúruverndar-
laga, llrafn V. Friöriksson talar
um mengungarmál. Sigurður
Þórarinsson og Arnþór Garðars-
son tala um vatna- og jarðhita-
svæði og Vilhjálmur Lúðviksson
um val á stöðum til iönreksturs.
Einnig flytur Eyþór Einars-
son erindi um verndun villtra
dýra og plantna. Sföan verða um-
ræöur.
náttOruverndarrAð
A sunnudaginn 30. april verða
kosnir aðalmenn i Náttúruvernd-
arráð. Nefndarálit og tillögur
koma fram, lýst verður kjöri
aðalmanna og kosningu vara-
manna. Þingið hefst klukkan 9 að
morgni báða dagana.
Sex menn eiga sæti i Náttúru-
verndarráði og 6 menn eru til
vara, en formann ogvaraformann
skipar menntamálaráðherra.
Rétt til setu á Náttúruverndar-
þingi eiga fulltrúar allra náttúru-
verndarnefnda, en þær starfa i
hverri sýslu og kaupstað. Auk
þess fulltrúar allmargra samtaka
og stofnana, fulltrúar þingflokka
og Náttúruverndarráðsmenn. t
náttúruverndarlögum, sem i gildi
gengu vorið 1971, eru ákvæði um,
að Náttúruverndarþing skuli
haldið þriðja hvert ár, og var
fyrsta þingið háð i Reykjavik i
april 1972.
Náttúruverndarráð undirbýr
þingið og veitir skrifstofa þess
allar nánari upplýsingar.
ALÞJŒ)LEG RÁÐSTEFNA MÆL
IR MEÐ UPPSETNINGU NÝS
BLINDLENDINGARKERFIS
Verður tekinn i notkun á næsta áratugi
A fóstudaginn i siðustu viku
lauk i Montreal þriggja vikna
ráðstefnu á vegum alþjóðaflug-
málastofnunarinnar (ICAO), þar
sem fjallað var um val á fram-
tiðar blindlendingarkerfi fyrir
loftför. Var ákveðið að mæla með
þvi að fastaráð stofnunarinnar
staðfesti alþjóðastaðal fyrir nýtt
mikróbylgjulendingar kerfi
(MLS),sem þróað hefur verið i
Bandarikjunum og Astraliu. Ráð-
stefnu þessa sóttu 254 fulltrúar
frá 74 rik jum og 4 alþjóðasamtök-
um. Islenzkri fulltrúinn á ráð-
stefnunni, Leifur Magnússon
varaflugmálastjóri, var kosinn
forseti hennar.
Eftir að fastaráð Alþjóðaflug-
málastofnunarinnar hefur stað-
fest tillögur ráðstefnunnar má
búast við að alþjóðleg uppsetning
umræddra tækja hefjistá árunum
1980-1985. Núverandi blindlend-
ingarkerfi, sem samþykkt var
sem ICAO-alþjóðastaðall árið
1949, mun þó verða áfram i notk-
un til ársins 1995, en eftir það ár
verður eingöngu nýja MLS kerfið
notað.
Kostir þess eru taldir umtals-
vérðir, t.d. er það miklu nákvæm-
ara en núverandi tæki, og mun
gera kleifar sjálfvirkar lendingar
á fjölda flugvalla. Kerfið er að
mestu ónæmt fyrir truflunum frá
umhverfi sinu, og gerir mun
minni kröfur til landrýmis fyrir
tækjabúnaðinn, sem i dag útilok-
ar uppsetningu blindlendinga-
kerfa (ILS) á fjölda flugvalla.
Núverandi kerfi (ILS) veitir
möguleika á aðeins einni aðflugs-
stefnu og einu aðflugshorni
(vanalega 3gr.). MLS kerfið býð-
ur hins vegar upp á frjálst val að-
flugsferla og aðflugshorna. Það
verður framleitt i ýmsum mynd-
um er henta stórum alþjóðaflug-
völlum jafntoglitlum flugvöllum.
A undan timanum
i 100 ár
léttir
meðfærilegir
viðhaldslitlir
fyrir stein- o^
steypu.
f Ávallt fyrirliggjandi. Góö varahlutaþjónusta.
m Þ. ÞORGRÍMSSON & CO
'Armúla 16 ■ Reykjavík ■ sími 38640
Ú
’fe
þiappur
slipivelar
dælur
sayartjloð
steypusagir
1
þjoppur
bindivirsrúllur
FÍB:
Meira fé í vegasjóð
Gylfi Þórðarson
ráðinn fram-
kvæmdastjóri
Sementverk-
smiðjunnar
ESE — Gylfi Þórðarson við-
skiptafræðingur hefur verið ráð-
inn framkvæmdastjóri Sements-
verksmiðju rikisins frá og með 1.
maí n.k.
Gylfi mun hafa fengið stuðning
þriggja manna innan stjórnar Se-
mentsverksmiðjunnar i starfið,
en Þorsteinn Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Kisiliðjunnar, sem
einnig sótti um starfið, naut
stuðnings tveggja stjórnar-
manna.
Almennur fundur haldinn á
Akureyri hinn 23. aprfl 1978, af
Félagi islenzkra bifreiðaeigenda,
skorar á Alþingi og rikisstjórn að
allar þær álögur, sem nú eru
lagðar á bifreiðaeigendur og telj-
ast vera sérálögur umfram aðra
neyzlu i landinu, verði skilyrðis-
laust látnar renna óskiptar til
vegasjóðs. — Ef ekki, þá verði
þær nú þegar felldar niður.
Jafnframt bendir fundurinn á
þá tvisköttunsem nú er lögð á bif-
reiðaeigendur i formi söluskatts
sem reiknaður er ofan á önnur
lögboðin gjöld, s.s. ábyrgðar-
tryggingu bifreiða, ogtelur slikt i
ósamræmi við gildandi lög um
söluskatt.
Auglýsið i
Timanum
íslálalalsilalálaíslalalalalálsilalalals
Bændui ' — Athugið
Inten nali n IK ll
574 HYDRO
:n5m
Eigum til afgreiðslu með mjög stuttum
fyrirvara International 574 Hydro traktor,
sem er 78 ha, vökvaskiptur með hljóðein-
angruðu húsi, vökvastýri og bezta fáan-
lega búnaði. _ _ w
Athugið:
Aðeins til fáar vélar á mjög góðu verði!
Ca. kr. 4.200.000 með söluskatti
Samband islenzkra samvinnufélaga
VÉLADEILD
Ármula 3 Reykjavik simi 38900
lalálálalalaSIalalalalsIalalsIalálsIaláls
Fyrirhuguð er 12 daga ferð á vegum framsóknarfélaganna með viðkomu í:
HAIMNOVER - BERLÍN - PRÁG - MÚNCHEN - KÖLN
Einnig er hugsanlegt að hafa viðkomu i
LEIPZIG OG SALZBURG
Möguleikar eru einnig á að
kaupa aðeins flugfar Reykjavik
— Hannover — Reykjavik
Mjög hagstætt
verð
Brottför 24. mai — heimkoma 4.
júni.
Allar nánari upplýsingar á skrif-
stofunni Rauðarárstig 18.
Simi 2-44-80.