Tíminn - 27.04.1978, Side 9
Fimmtudagur 27. april 1978
9
á víðavangi
Jónas, Hannibal og
stj ór nar skr ár nefndin
Jónas Kristjánsson Dag-
blaftsritstjóri skrifar heldur
ósmekklegan leiðara i blað sitt
i fyrradag, þar sem hann fjall-
ar um nýkomná tillögu á Al-
þingi um að svipta stjórnar-
skrárnefnd umboöi, vegna
þéss aðhún hafi ekki lagt fram
tillögur um kosningalög og
kjördæmaskipan. Ker Jónas i
þessum leiðara sinum hrak-
legum orðum um Hannibal
Valdim.arsson fyrrum ráö-
herra, en hann er sem kunnugt
er formaður nefndarinnar.
Haö skal hér sagt, að sú til-
laga sem fram er komin um
þetta efni á Alþingi er ekki
með öllu sanngjörn. Ekki er
annað vitað en stjórnarskrár-
nefndin hafi verið að safna að
sér efni og kalla eftir tUlögum
um stjórnarskrárbreytingar,
enda þótt eiginlegir fundir hafi
ef til vill ekki verið margir um
hrlð. Af tillögum annarra er
þaðaðsegja að þær munu fáar
hal'a horizt og með lélegum
skilum, og var það að sönnu
nefndinni litil hvatning.
1 þessu efni liafa Alþingi
sjáll't og stjórnmálaflokkarnir
vitaskuld algera sérstöðu. Úr
þeirri átl hefur nákvæmlega
ekki neitt komið, fyrr en nií á
siðustu mánuöum frá einstök-
um þingmönnum, ef undan
eru teknar tillögur sem æsku-
lýðssamtök flokkanna létu frá
sér ganga fyrir alllöngu.
l»að var vitaö.og yfirlýst af
hálfu formanns stjórnarskrár-
nefndar og annarra nefndar-
manna, að nefndin tæki umboð
sitt svo, að henni bæri ekki að
gera tillögur um hið „við-
kvæma” mál, kosningaskipan
og kjördæmi. Það efni hlyti að
verða verkefni þingsins og
st jórnmálaflokkanna sjálfra.
Af þessari ástæðu einkum er
það fráleitt að liamast að
nefndinni og formanni hennar
l'yrir þá sök að ekki hafi verið
lagðar fram tillögur um þessi
mál.
Um það er skemmst að
segja, að flokkarnir hafa ekki
komiösér saman um afstöðu i
. þessum málum. Klokkarnir
bafaað visu sumir lýst yfir af-
stöðu i grundvallaratriðum,
en lengra liefur það ekki geng-
ið. Þannig hal'a Kramsóknar-
menn annars vegar viður-
kennl nauðsyn þcss að kosn-
ingaréttur verði jafnaður frá
þvi seni nó er orðið, t.d. með
breytingum á reglum um út-
hlutun uppbótarsæta, og hins
vegar ályktað að taka beri upp
pcrsónulegari kosningarað-
l'erð en nú tíðkast og fjölga
kjördæmum eitthvað frá þvi
sem nú er. Kikisstjórnin hefur
enn fremur lýst þvi yfir, að
Iiúii æski þess að jafna kosn-
ingaréttinn citthvað og taka
upp persónulegri kosningar-
aðl'erð.
l.engra liefur þetta ekki
koinizt hjá stjórnmála-
flokkunum, rikisstjórninni eða
þinginu. ()g nú nýlega þegar
leitað var eftir tillögum og
viðhorfum stjórnarand-
slæöinga á Alþingi varð niður-
staöan sú, að ekki var vilji eða
samstaða um neinar breyting-
ar að snmi yfirleitt.
Það hefur með öðrum orð-
um komiö fram, að á Alþingi
er ekki áhugi á því að láta
þetta mál hafa nokkurn for-
gang. Þar er ekki heldur sam-
staða um neinar beinar tillög-
ur i málinu, en þess hefur ver-
ið reynt að gæta þar, að sam-
staða allra flokka náist um
Jónas dytti aftur yfir sig
það sem gert kynni að verða i
málinu.
í reynd mun það vera svo,
að ólik sjónannið séu uppi i
öllum flokkununi uin þessi
efni. Sannleikurinn cr greini-
lega sá að hugmyndir um
breytingar á kosningalögum
og ákvæðum stjórnarskrár um
kosningar og kjördæmi ganga
þvert i gegnum alla flokkana
ogniæta meirieða minni and-
stöðu i þcim öllum.
Stjórnarskrárnefndin hefur
ekki skilað áliti og það má
áfellasl liana fyrir það. Hún
hefur hins vegar ekki fengiö
neinn hvata eöa eftirrekstur af
hálfu Alþingis, rikisstjórnar
eða stjórnmála flokka til þess
að Ijúka störfum sinum á ein-
um eða öðrum tima. Það er
þvi kyndugt aö nú skuli
skyndilega eiga að hlaupa upp
mcð iral'ár af þvi efni. Von-
brigði þeirra, se'm hafa látiö
sérannt um þessi efni, eru af
öðrum toga spunnin en af-
kastale y si st jór narskrár-
'nefndar i opinberri tillögugerð
eða lúðrablæstri.
Daghla ðsritstjórinn fer
háöulcgum orðum um Hanni-
bal Valdimarsson að þessu til-
elni. Orð ritstjórans markasl
ekki af athugun málsatvika,
sanngirni eða velvild. Slikt er
ekki nýlunda. Ilannibal Valdi-
marsson á ekki lirós skilið i
sjáll'u sér íyrir störf sín eða
annað i stjórnarskrárnefnd,
en hann á annað skilið en
lirópyrði bleypimanna i rutl-
vimu á götuhornum liöfuð-
horgarinnar. Hannibal er orð-
inn roskinn ogáskiflð að liljóta
verðuga virðingustráka þegar
þeir mæta lionum á fleygiferð.
Ilann er stórhöfðingi og situr á
friöarslóli eins og fornkappi
og goði eltir mikil vigaferli.
Þetta verður sagt um
llannibal Valdimarsson, og
það þótt mönnum kunni að
þýkja sitt hverjum um félags-
mála- og stjórnmálastörf hans
ýniis bæði fyrr og siðar.
Jónas Dagblaösritstjóri
dytti altur yfir sig ef hann
reyndi að horfast i augu við
llannihal Valdiniarsson.
JS
V or tónleikar
Tónlistarskólans
Fyrstu vortónleikar tónlistar-
skólans verða haldnir i sal skól-
ans föstudaginn 28. april n.k. Aðr-
ir tónleikar skólans verða haldnir
föstudaginn 19. mai og hefjast
báðir tónleikarnir kl. 18. Nem-
endur úr öllum deildum, yngri
sem eldri, koma fram á þessum
tvennum tónleikum. Starfsemi
skólans hefur verið mjög blómleg
i vetur og voru um 50 nemendur i
undirbúningsdeild og um 125
nemendur i öllum hinum deildum
skólans. Haldnir voru afmælis-
tónleikar 11. marzs.l. i Keflavik-
urkirkju i tilefni af 20 ára afmæli
skólans. Þar flutti formaður
skólanefndar séra Ólafur Oddur
Jónsson ræðu. Á þessum tónleik-
um komu eingöngu fram elztu
nemendur skólans, ásamt skóla-
hljómsveitinni undir stjórn Árna
Arinbjarnarsonar.
Skólinn efndi til starfskynning-
ar I Barnaskóla Keflavikur til að
kynna nemendum þar starfsemi
skólans. Börnunum voru sýnd öll
hljóðfæri, sem kennt er á i skólan-
um og leikið fyrir þau. Nú er i
undirbúningi aðsamræma náms-
efni og kennslutilhögun i tón-
mennt til stúdentsprófs við fjöl-
brauta- og menntaskóla, og er
það merkur áfangi i sögu tón-
menntakennslu á Islandi. 13
kennarar störfuðu við skólann i
vetur, þar af 6 fastráðnir. Skóla-
slit verða sunnudaginn 21. mai kl.
15 i tónlistarskólanum og verða
þar afhent prófskirteini og verð-
laun til handa þeim, sem fram úr
hafa skarað.
Jósefína Pétursdóttir og Sverrir Kristjánsson fyrir utan verzlunina.
Timamynd: Gunnar.
Nýir eigendur
teknir við „Loftinu”
SJ — Helgi Einarsson hefur und-
anfarin ár rekið verzlun I gömlu
verzlunarhúsi að Skólavörðustig 4
og á „Loftinu” þar fyrir ofan lit-
inn sýningarsal. Þann 15. april
s.l. urðu eigendaskipti að verzl-
uninni og jafnframt tóku nýju eig-
endurnir við sýningarhúsnæöinu.
Nýju eigendurnir eru Jósefína
Pétursdottir og Sverrir Krist-
já nsson.
Svipaðar vörur og áður verða á
boðstólum i verzluninni, sem nú
hefur hlotið nafniö „Loftiö” og
jafnframt veröa væntanlega sýn-
ingar haldnar eins og áöur. Verzl-
unin Loftiö er gjafa- og listmuna-
verzlun, þar fæst m.a. Feneyja-
krystall og handunnir leirmunir.
Hannsókn John
Lindsay máls-
ins að ljúka
ESE — Rannsókn á hinu svo-
kallaða John Lindsay máli er nú
nær þvi lokið hjá sakadómi, en
eins og kunnugt er, kærði verð-
lagsráð fyrirtækið fyrir verðlags-
dómi, vegna meintra brota á
verðlagslöggjöfinni á siðasta ári.
Er blaðið hafði samband við
Sverri Einarsson sakadómara i
gær, sagði hann að einungis v^eri
eftir að vélrita málsgögn, en sið-
an yrði málið sent til rikissak-
sóknara til frekari umfjöllunar.
Annað væri ekki um málið að
segja.
Vörubifreiðastjórar
iiinrmna*
Sendið okkur
hjólbarða
og látið setja
VUL-CAP
kaldsólningar-
munstrið á
barðann.
&GE(1ILIUJL£
Smiðjuvegi 32-34 — Símar 4-39-88 £t 4-48-80 — Kópavogi