Tíminn - 27.04.1978, Qupperneq 13
Fimmtudagur 27. april 1978
13
Mj ólkur samsalan:
Rekstur gekk mjög
vel á síðasta ári
Aðalfundur Mjólkursa msölunnar
i Reykjavik var haldinn s.l.
þriðjudag. Kom fram á fundinum
að á síðasta ári hefði rekstur
Samsölunnar gengið mjög vel og
hefði bændum verið greitt grund-
vallarverð, sem næmi 84.06 krön-
um fyrir hvern lítra mjólkur, en
það er 7 aurum hærra en iands-
grundvallarverð. Þá fengu bænd-
ur og greidda þá 33 aura fyrir
hvern lítra sem vantaði upp á fyr-
ir framleiðslu ársins 1976, þannig
að meðalútsöluverð fyrir fram-
leiðslu ársins 1977 er krónur 84.35,
en það var 72.8% af útsöluverði
mjólkur.
Alls fóru 58.5 milljón litrar
mjólkur um mjólkurbú á svæði
Mjólkursamsölunnar á árinu, en
það er 6.3% aukning frá fyrr ári.
Samtals voru seldir 32.6 milljón
litraraf nýmjólk, en það var 5.3%
minna en á árinu áður. Mjólkur-
vörur voru seldar fyrir samtals
4535milljónir á árinu 1977. Starfs-
mönnum Mjólkursamsölunnar
fækkaði um 171 á árinu, en þar er
eingöngu um að ræða starfstúlkur
mjólkurbúða, sem hættu hjá
Samsölunni, þegar mjólkurbúð-
irnar voru lagðar niður á slðasta
ári, en nú eru aðeins 6 mjólkur-
búðir i eigu MS. Alls eru starfs-
menn nú 112, þ.e. um siöustu ára-
mót.
Frá þvi að mjólkursalan var
gefin frjáls hefur útsölustöðum
fjölgað um 29 og þar af 10 i
Reykjavik.
Mjólkurframleiðendur fækkaði
um 71 á árinu, og eru þeir nú 1295
talsins.
A siðasta ári var kosin nefnd á
fundi Mjólkursamsölunnar til
þess að kanna aðild fyrirtækisins
að Vinnuveitendasambandinu og
hvort ástæða væri til aö hætta þar
þátttöku. Nefndin skilaöi áliti nú,
þar sem lagt er til að stjórn
Mjólkursamsölunnar segi fyrir-
tækið úr Vinnuveitendasamband-
inu og sæki þess i stað um aðild að
Vinnumálasambandi samvinnu-
manna og var þessi ályktun
nefndarinnar samþykkt einróma.
Tveir stjórnarmenn láta nú af
störfum i stjórn, en þaö eru þeir
Eggert ólafsson, borvaldseyri,
og Oddur Andrésson, Neðra
Hálsi. Nú eru i stjórn Agúst Þor-
valdsson, Brúnastöðum, Gunnar
Guðbjartsson, Hjaröarfelli, og
Vifill Búason, Ferstiklu. Stefán
Stjórn Mjólkursamsölunnar.
Björnsson forstjóri MS mun láta
af störfum um næstu áramót af
aldurssökum, en hann hefur
gegnt starfi nú i 25 ár. 1 hans stað
hefur Guðlaugur Björgvinsson
viðskiptafræðingur verið ráðinn
forstjóri frá og með næstu ára-
mótum, en hann hefur áður gegnt
starfi framkvæmdastjóra Mjólk-
ursamsölunnar.
Umræður um efnahagsmál
a fundi F.U.F.
HEI — Siðastliðin þriðjudags-
kvöld hélt Félag ungra Fram-
sóknarmanna fund um efnahags-
mál á Hótel Borg. Fundinn sóttu
um 60 manns og urðu umræður
fjörugar, svo fundurinn stóð fram
yefi miðnætti.
Framsögumenn voru
Guðmundur G. Þórarinsson,
verkfræðingur, Baldur Guðlaugs-
son framkv. stj. Vinnuveitenda-
sambandsins, og Asmundur
Stefánsson, hagfræðingur A.S.l.
Ræddu þeir um verðbólguna og
m.a. þær langtimalausnir, sem
bent var á i áliti verðbólgunefnd-
ar Alþingis, og var ágreiningur
e.t.v. ekki eins mikill og búast
hefði mátt við, milli þessara
manna.
Þá voru staddir á fundinum
ýmsir menn, sem látið hafa
efnahagsmálin mikið til sin taka
að undanförnu. Má þar nefna Jón
Skaftason, alþingismann. Krstján
Friðriksson, iðnrekanda, Þröst
Ólafsson hagfræðing, Guðmund
Garðarson, alþingismann og
fleiri.
Guðmundur G. Þórarinsson
rasddi m.a. orsakir og afleiðingar
verðbólgunnar og sagði að helztu
hagfræðinga greindi mjög á um
þau mál. Þá kom hann að þvi
mikla stökki sem verðbólgan
heföi tekið hér á landi árið 1973 og
tveim siðustu rikisstjórnum hefði
ekki tekizt að halda i skef jum eins
og þær hefðu þó báðar stefnt að.
Viðurkennt væri af öllum að
einhverjar ráðstafanir hefði þurft
að gera eins og ástandið er nú i
efnahagsmálum þjóðarinnar,
menn greindi bara á um hverjar
þær hefðu átt að 'vera. Leið sú er
valin hefði verið i febrúar var ein
af þeim 5 leiðum, sem verðbólgu-
nefnd hafði sett fram. Hefði sam-
dráttarleið verið valin var hætta
á að það gæti leitt til atvinnyleys-
is, en það höfum við verið bless-
unarlega laus við,Þótt atvinnu-
leysi riki i stórum stil i' nágranna-
löndum okkar. Þessar ráðstafan-
ir dygðu þó skammt einar sér.
Þviþyrfti að breyta skipan kjara-
samninga og bæta alla
efnahagsstjórn. Guðmundur
sagðist binda vonir við framtiðar-
skipulag, þar sem menn kæmu
sér niður á hvað væri til skipt-
anna og semdu á þeim
grundvelli. Einnig aö dregið
yrðu úr þeim gifurlegu sveiflum
sem hér verða i útflutningi, með
eflingu jöfnunarsjóðs. „Stefna
þarf að jákvæðum raunvöxtum og
fráleitt er að reka rikissjóð með
halla i góðæri,” sagði Guðmund-
ur.
4 tónleikum Söngsveitarinnar Filharmoniu syngja fjórir einsöngvarar, þau Sieglinde Kahmann,
íigurður Björnsson, Ruth' L. Magnússon og Halldór Vilhelmsson.
Söngsveitin Filharmónía:
Fjölbreyttir tónleikar með hljómsveit
I kvöld fimmtudag kl. 8.30 og
laugardag kl. 2.30 verða tónleikar
ávegum Sinfóniuhljómsveitar Is-
lands þar sem Söngsveitin
Filharmonia frumflytur á Islandi
þrjú verk undir stjórn Marteins
H. Friðrikssonar.
Flutt verður verk eftir
Sigursvein D. Kristinsson,
„Greniskógurinn”, sem hann
samdi árið 1974. Verkið er samið
fyrir hljómsveit, baryton og kór
við texta samnefnds kvæðis
Stephans G. Stephanssonar.
Þá verður flutt „Tedeum” eftir
Zoltán Kodály, sem samið var i
þvi tilefni, er 250 ár voru liðin frá
frelsun Buda úr höndum Tyrkja.
Auk hlutverks kórsins, sem er
mjög stórt, eru fjórir einsöngvar-
ar og stór hljómsveit. Verkið er
sungið á latinu.
Að siðustu verður flutt verk eft-
ir Johannes Brahms, Sigurljóð
(Trium plied), sem er hið
viðamesta af þessum þremur
verkum. Verkið er fyrir 8 raddað-
an kór, baryton og hljómsveit.
Það er samið 1870-71 við texta úr
opinberunarbókinni. bað hefur
notið mikilla vinsælda, en hefur
að þvi að bezt er vitað aldrei ver-
iðhljóðritað á hljómplötu. Verkið
er mjög stórtisniðum ogskiptist i
þrjá kafla.
Forsala aðgöngumiða er i
Bókabúð Lárusar Blöndal,
Skólavörðustig 2, og i Bókaverzl-
un Sigfúsar Eymundssonar
Austurstræti 18.
V-Berlínarbúum
kynnt íslenskt
dilkakjöt
Sem kunnugt er tók Búvöru-
deild Sambandsins fyrr á þessu
ári þátt i matvælasýningunni
Griine Woche i Vestur-Beriin með
megináherzlu á kynningu á is-
lenzku dilkakjöti.
Að sögn Agnars Tryggvasonar
framkvæmdastjóra BUvörudeild-
ar er nú að hefjast áframhald á
þessari kynningarstarfsemi og
eru fyrirhugaðar kynningárvikur
i þrem stærstu keðjuverzlunum
V-Berlinar. Þar verða afhentar
uppskriftir og sýndar kynningar-
skreytingr i gluggum, auk þess
sem Islenzka dilkakjötið verður
mikið auglýst i blööum þennan
tima. Þar að auki er svo fyrirhug-
aö að gera sérstakt átak til aö
kynna kjötið i veitingahúsum og á
hótelum.
Samkomulag um
radióáhugamannaleyfi
1 gær var gert í Reykjavik
samkomulag milli tslands og
Bandarikja Noröur Ameriku um
gagnkvæma útgáfu radio-áhuga-
mannaleyfa. Samkvæmt sam-
komulaginu geta radióáhuga-
menn i hvoru landinu um sig nú
fengið leyfi til að stunda fjarskipti
á landsvæði hins að uppfylltum
tilteknum skilyrðum.
G]E]E]B]E]E]E]E]E]E]E]E]E]G]E]G]E]E]E]E]E]
I Sjálfvirk
kartöfluniður-
setningarvél
Underhaug
E]E]E]E]G]S]E]E]E]E]E]E]E]G]E]E]B]E]E]E]B|
Eigum til afgreiðslu næstu daga 1 stk.
niðursetningarvél með sjálfvirkum
sáðbúnaði
$ Samband íslenzkra samvinnufélaga VÉLADEILD
/ Wiúla 3 Reykjavík sími 38900