Tíminn - 27.04.1978, Blaðsíða 20
11 U
Sýrð eik er
sígild eign
&ÖGII
TRtSMIDJAN MEIDUR
\ SÍÐUMÚLA 30 • SÍMI: 86822
GISTING
MORGUNVERDUR
RAUDAR&RSTIG 18 ^t ULIim irlff 1ir~5D i
SuCIBBI
SIMI 2 88 66
Fimmtudagur 27. apríl 1978 62. árgangur — 86. tölublaö
Aðalskipulag Reykjavikur og skipulag ,,Hallærisplansins” þættu forkastanleg í
Danmörku nú
Búið að skemma 20-25%
af Reykjavík
- en ekki er nauðsynlegt að halda áfram og skemma
alla borgina, segir danskur sérfræðingur í húsvernd
SJ — Reykjavik er mjög falleg
borg. Þa& á bæOi vi& um legu
hennar, umhverfi og útlinur. En i
mi&bænum hafa veriO byggO of
stór ný hús, sem falia illa aO eldri
húsunum og auka einnig um of á
umferO. Svo eru hér allt of mörg
illa útfærO steinsteypt hús. ÞaO er
eins og einhvern tíma hafi veriO
flutt til iandsins alltof mikiO af se-
menti og menn hafi flýtt sér aö
byggja úr þvi áöur en þaO yröi
ónýtt.
Svo mæltist Robert Egevang
safnveröi viö danska þjóöminja-
safniö og forstööumanni dönsku
húsverndunarskrifstofunnar á
blaðamannafundi i gær, en hann
hefur dvalizt hér undanfarna
daga i boöi Þjóðminjasafns og Ár
bæjarsafns i tilefni þess að hús-
vernd hefur verið mjög til um-
ræöu hér undanfarið. Egevang
sagði ennfremur:
— Það væri óhugsandi að borg-
arskipulag eins og skipulagiö,
sem, er I gildi fyrir Reykjavik,
yröi samþykkt eöa lagt fram I
Danmörku núna, þ.e.a.s. skipulag
þar sem ekki er tekiö umtalsvert
tillit til gamalla bygginga. Aðal-
höfundur Reykjavikurskipulags-
ins, landi minn Bredsdorff, er
annars ágætur arkitekt, en gall-
inn á borgaskipulagi hans er sá,
aö það tekur áratugi i fram-
kvæmd og á þeim tima breytast
efnahagsforsendurnar þannig, aö
ekki er farið eftir skipulaginu
þegar fram liöa stundir.
1 borgarskipulagi ætti fyrst og
fremst aö taka tillit til gamalla
húsa og borgarhverfa og slðan að
hugsa um hvernig skipuleggja
megi ný hverfi án þess aö spilla
þeim. Stór skrifstofuhús ætti að
byggja i nýjum hverfum utan
gamla bæjarins.
Egevang sagöi ennfremur að
hann teldi, að hér hefðu alltof
margir húseigendur alltof lengi
lifað við óvissu um hver yrði
framtið borgarhverfa þeirra og
þvi hefðu þeir ekki haldið við og
endurnýjað hús sin sem skyldi.
Um skipulag það að miöborg
Reykjavikur, „Hallærisplani” og
nágrenni, sem verið hefur til af-
greiðslu hjá Reykjavikurborg i
vetur, sagði hann aö það þver-
bryti þau lögmál, sem hann áliti
að hafa skyldi i heiðri. Það væri
ekki i samræmi viö gömlu byggð-
ina, hlutföll nýbygginganna væru
allt önnur og þær væru of stórar.
Hér væri um að ræða ofhleðslu á
það svæði sem verið væri að
skipuleggja.
— Ég gæti gefið ykkur þaö ráð
aö rifa þær byggingar sem eru of
stórar og byggðar hafa verið I-
gömlum borgarhverfum, en ég
efast um að það yrði farið eftir
þvi. En við getum látið þessi hús
standa sem minnismerki um sitt
tímabil og þótt búið sé að
skemma 20-25% af Reykjavik, þá
er ekki nauðsynlegt að halda
áfram og eyðileggja hana alla.
Danir standa nú flestum Norð-
ur-Evrópuþjóðum framar hvað
snertir húsvernd. Rikið annast
friðun einstakra bygginga, en
sveitarfélögin ákveða varðveizlu
heilla bæja og borga eða hluta
þeirra. Arið 1960 voru samþykkt
lög um þetta efni, en þá var litill
áhugi á húsvernd, en siðustu 10-15
árin hefur það gjörbreytzt. Nú
kemur það tæpast fyrir að gömul
hús séu rifin i dönskum bæjum og
borgum, og ekki er lengur leyft að
byggja stór skrifstofuhús eöa há-
hýsiinni i gömlum borgarhlutum.
Þessi þróun hefur þó ekki geng-
ið slétt og fellt fyrir sig. Frá þvi
um 1930 hafa margar borgir og
bæir i Danmörku verið skemmd
og rifin niður og eru aö sögn Ege-
Robert Egevang, Nanna Hermannsson forstöðumaður Arbæjar-
safns og Gu&mundur Ólafsson safnvöröur á Þjóöminjasafni.
Timamynd GE
vangs, dapurleg sjón nú. Telur
hann aö 25 af 90 stærstu bæjum I
Danmörku, svonefndum kaup-
stöðum, heföu hlotið þau örlög áð-
ur en húsvernd öölaöist almennt
fylgi. Auk þess hefðu margir
meðalstórir bæir og þorp verið,
rifin niður.
Nú hafa 50-75 bæjarfélög farið
fram á að fá aðstoð við skipulagn
ingu með tilliti til varðvéizlú
gamalla húsa. Robert Egevang
hefur stjórnað rannsóknum i
sambandi viö slikt skipulag.
Hann telur heppilegt að það sé
danska þjóðminjasafnið en ekki
ráðuneyti, sem hafi hönd i bagga
með skipulagningu bæja, þannig
veröi stjórnmál ekki ráðandi afl.
Danska ,þjóöminjasafnið sé vin-
sæl stofnun með þjóðinni alveg
eins og honum viröist Þjóöminja-
safnið hér vera.
Nú leggja Danir áherzlu á aö
varðveita ekki aðeins hallir og
hýbýli heldra fólks, heldur húsa-
kynni allra þjóðfélagsstétta.
Umhverfisvernd og husfriðun
nýtur sivaxandi fylgis I Dan-
mörku og sáust þess merki i
sveitarstjórnarkosn. þar i
marz i vor. Viða voru lis.tar um-
hverfisverndarmanna i framboði
og hlutu mikið fylgi, sums staðar
hrepptu umhverfisverndarmenn
borgarstjórastöður, og loks hefur
útkoman orðið sú að sósialdemó-
kratar og aðrir valdamiklir flokk-
ar hafa tekið umhverfismál á
stefnuskrá sina.
1 gærmorgun var Robert Ege-
vang á fundi með umhverfisráði,
skipulagsnefnd og byggingar-
nefnd Reykjavikur, og dundu á
honum spurningarnar i 2 1/2 klst.
Hann fór i stutta heimsókn til
Vestmannaeyja, þar sem hann
kvaö sömu vandamál vera við að
etja og hér i Reykjavik. Héðan fór
Egevang i morgun til að ræða við
ráðamenn I Þórshöfn i Færeyjum
um bæjaskipulag.
Flúöasel 76. Enn bólar ekki á niOurstööum rannsóknarinnar — vegna
skorts á kærugögnum. i fyrradag bárust lögreglustjóraembættinu upp-
lýsingar frá borginni en ekki fullnægjandi.
Von á greinargerð Orkustofnunar um Kröfluskýrslu:
ÝMISLEGT GRUGGUGT í
SKÝRSLUNNI
— sem þarfnast leiðréttingar
SSt — Samkvæmt upplýsingum
sem Ti'minn hefur aflað sér er nú
bráðlegavon á greinargerð Orku-
stofnunar um Kröfluskýrsluna
svonefndu, sem mjög hefur verið
til umræðu siðustu daga.
Mun hafa verið unnið að grein-
argerðinni undanfarna daga þar
sem ýmislegt, sem ekki kemur
fram i' Kröfluskýrslu, verður leitt
fram i dagsljósið og ýmiss konar
misskilningur leiðréttur. Sam-
kvæmt heimildum Timans er svo
að skilja að vinnubrögð iðnaðar-
ráðuneytisins við skýrslusamn-
inguna hafi ekki i alla staði verið
sem heiðarlegust. T.a.m. hafi
bréf frá stofnuninni verið stytt, úr
þeim felldar tilvitnanir og annað i
þeim dúr.
Fortúgalska sendinefndin:
Viðræðum lýkur í dag
Flúðaselsmálið:
Kærendur seinka fram-
vindu rannsóknarinnar!
FI — Rannsókn i Flúöaselsmálinu
svokallaöamiöarhægt nú aö sögn
Williams Th. Möller fulltrúa lög-
reglustjóra. Kærugögn hafa enn
ekki borizt aO fullu frá bygginga-
fulltrúa borgarinnar og bygg-
inganefnd og seinkar þaö mjög
framvindu rannsóknrinnar. Ekki
er viölit aO ná sambandi viö bygg-
ingafulitrúa borgarinnar eOa
skrifstofustjóra hans i gærdag
vegna fundahalda og frfa, en
þeir heföu vafalaust greint frá,
hvaö þaö er, sem tefur þá i þessu
máli.
Samkvæmt kærubréfi beinist
Flúöaselsrannsoknin eingöngu að
broti á byggingasamþykkt, en
brot byggingameistara gagnvart
kaupendum er ekki á dagskrá. Er
þvi surning, hvort bygginganefnd
Reykjavikurborgar hefur tekiö
þetta mál nógu alvarlega, en
þeirri spurningu veröur ekki
svarað að sinni af ofangreindum
ástæöum.
Það er ekki aðeins i Reykjavik,
sem byggingameistarar reyna að
auka við hýru sina. A Seltjarnar-
nesi er mál i gangi vegna sölu
tveggja föndurherbergja i Tjarn-
arbóli 10 og 12, og voru ibúar jafn-
vel fluttir inn i annað herbergj-
anna. Að sögn Einars G. Norö-
fjörð byggingafulltrúa á Seltjarn-
arnesi kærði bygginganefnd bæj-
arins söluna til sakadóms upp úr
miöjum janúar og sagði Einar að
réttaö yrði i málinu innan
skamms eftir þvi er hann bezt
vissi.
„Dómsmálin ganga oft hægt”,
sagöi Einar ennfremur, „en við
reynum að gera þaö sem viö get-
um til þess aö fylgja eftir bygg-
ingasamþykkt gagnvart þessu
fólki”.
GV —Viöræðum 19 manna sendi-
nefndar frá Portúgal og islenzkra
viðskiptaaðila lýkur i dag, en við-
ræður hófust i gærmorgun. Að
sögn Þórhalls Asgeirssonar ráðu-
neytisstjóra viðskiptaráðuneytis-
ins er hér ekki um samningavið-
ræður að ræða heldur er hér verið
að leiða saman viðskiptaaðila
með það i huga að auka innkaup
frá Portúgal og greiða þannig
fyrir sölu á saltfiski þangað.
Vegna efnahagsástandsins i
Portúgal er nú orðið langur timi
frá þvi að saltfiskur hefur verið
fluttur út til Portúgal og hafa
Portúgalir i þvi sambandi óskað
eftir auknum vöruskiptum við Is-
lendinga.
1 sendinefndinni eru sendiherra
íslands i Portúgal, Einar Bene-
diktsson, aðalræðismaður Islend-
inga þar, Leif Dundas, og fulltrú-
ar frá fyrirtækjum og stofnunum.
Af hálfu Islendinga taka þátt i
viðræðunum auk fulltrúa frá
ráðuneytunum, fulltrúar frá ýms-
um samtökum og stofnunum is-
lenzkum s.s. SIS, Verzlunarráð-
inu, Innkaupastofnun rikisins,
Áfengis- og tóbaksverzlun rikis-
ins og fulltrúar ferðaskrifstofa.
Nánar verður skýrt frá viðræðun-
um á blaðamannafundi i dag.
Póýfónkórinn
lifnar á ný
— Ingólfur áfram stjórnandi
A fundi Pólýfónkórsins 24.4
s.l. va'r ákveðiö að stefna að þvi
aö hefja starf kórsins aö nýju á
næsta hausti. Æfingar munu
hefjast siðari hluta september.
Ekki hefur veriö tekin endanleg
ákvörðun um næsta verkefni
kórsins, en rætt hefur verið um
að flytja Jólaoratoriu Bachs i
desember n.k.
Ákveðið er að bæta viö
söngfólki i allar raddir og
verður nýliöum gefinn kostur á
raddþjálfun á vegum kórsins.
Ingólfur Guðbrandsson verður
stjórnandi kórsins eins og veriö
hefur frá upphafi.