Tíminn - 28.04.1978, Blaðsíða 8
8
Föstudagur 28. apríl 1978
Eiríkur Tómasson:
Bæta þarf
stöðu þeirra
sem leigja
Einn er sá hópur fólks sem
býr við litið félagslegt öryggi
hér á landi — öfugt við flesta
aðra, en það eru þeir sem leigja
sér ibúðir.
bótt æskilegt séað sem flestir
búi i eigiií húsnæði (af ástæðum
sem ekki verða raktar hér) þá
er ljóst að þeir eru margir.sem
annað hvort geta eða vilja það
ekki. Ber þar hæst ungt fólk og
efnalitið, t.d. verkafólk, aldraða
og öryrkja.
Skortur á leiguhúsnæði
Óþarfi er að lýsa þvi hve að-
staða þeirra sem leigja eroft og
tiðum bágborin. bað nægir að
benda á örfá atriði: Skriflegur
leigusamningur liggur sjaldan
fyrir. Leiga er oft óheyrilega há
og nemur jafnvel þriðjungi af
vinnutekjum verkafólks. Stund-
um er krafizt greiðslu á leigu
allt að ári fram i timann. Leigu-
húsnæði er sumt lélegt og þann-
ig mætti áfram telja.
Ástæðan fyrir þessu
ófremdarástandi er fyrst og
fremst sú að eftirspurn eftir
leiguhúsnæði hér i Reykjavik
(og reyndar viðar) er mun
meiri en framboðið. Óprúttnir
leigusaiar geta þvi boðið fólki
afarkjör með viðkvæðinu: ,,Ef
þú tekur þessu ekki, tek ég bara
þann næsta.” bað skal tekið
fram til að fyrirbyggja mis-
skilning að fjöldi leigusala
hugsar ekki svona, heldur leigir
ibúðir sinar með sanngjörnum
kjörum.
bann 1. desember s.l. lágu
fyrir 445 umsóknir um leigu-
ibúðir hjá Félagsmálastofnun
Reykjavikurborgar frá borgar-
búum á aldrinum 16-67 ára. Á
sama tima lágu fyrir 377 um-
sóknir frá ellilifeyrisþegum i
borginni. Skorturinn á leiguhús-
næði er þvi augljós , enda er
sagt aö tugir fólks bjóði i hverja
þá ibúð sem augiýst er til leigu i
dagbiöðum.
Bygging nýrra leigu-
ibúða
Borgarstjórn samþykkti með
samhljóða atkvæðum i desem-
ber 1973 að hefjast handa um
byggingu 100 leigui'búða er til-
búnar skyldu verða á árinu 1976.
Ekkert varð hins vegar úr efnd-
um. Fyrr i vetur lýsti borgar-
stjóri yfir þvi, að hann teldi
borgarstjórn hafa fallið frá
þessari fyrirætlan án þess að
hún hfði þó breytt fyrri sam-
þykkt sinni!
Brýna nauðsyn ber til þess að
borgaryfirvöld hefjist nú þegar
handa um byggingu leiguibúða
hér i Reykjavik. 1 fyrsta lagi
þarf að hraða byggingu ibúða
fyrir aldraða. 1 öðru lagi þarf að
byggja ibúðir af hóflegri stærö
fyrir ungt fólk sem er aö stofna
heimili. Leigutima ætti að tak-
marka, t.d. við þrjú ár, og þvi
mætti stilla leigugreiðslum i
hóf. í þriðja lagi þarf svo að
byggja ibúðir, einkum ætlaðar
efnalitlu fólki i húsnæðisvand-
ræðum.
Með þessu móti einu er hægt
að bæta aðstöðu leigjenda svo
að fullnægjandi sé. Réttarstöðu
þeirra má aftur á móti bæta
verulega með þvi að setja hér-
lendis lög um húsaleigu i likingu
Kirikur Tómasson
ara laga voru sum hver skyn-
samleg en önnur þannig að ofur
auðvelt var að fara kringum
þau, enda striddu þau á móti
réttarvitund all flestra. Niður-
staðan varð sú að lögunum var
ekki framfylgt nema að hluta og
voru þau siðar numin úr gildi.
Þessireynsla af lagasetningu
á þessu sviði á að verða okkur
viti til varnaðar. 1 fyrsta lagi er
ekki hægt að bæta rikjandi
ástand að fullu með þvi' að setja
lagareglur. Og i öðru lagi verð-
ur að varast að þrengja um of
svigrúm þeirra sem leigja út
ibúðir sinar. t þvi sambandi
verður að taka tillit til þeirrar
staðreyndar að hér á landi er
það mun algengara en i grann-
löndunum að fólk búi i sinum
^eigin ibúðum.
t.d. danskri, er auk þess að
finna fjöldann allan af reglum
um samskipti leigjanda og
leigusala aðrar en regl-
ur um uppsögn o.þ.h. Svo að
dæmi sé nefnt þá getur hvor
aðili um sig krafizt þess að
gerður sé skriflegur leigu-,
samningur — ella gilda ákvæði
laganna sem eru all itarleg um
leiguna. Eyðublöð fyrir leigu-
samninga verða að hafa hlotið
staðfestingu, annað hvort á
grundvelli samkomulags millí
samtaka leigjenda og húseig-
enda eða samkvæmt ákvörðun
ráðherra.
Þá eru i lögum þessum
ákvæði um afhendingu leigu-
húsnæðis að leigutima loknum,
eyðileggingu eða skemmdir á
húsnæðinu, viðhald þess o.s.frv.
Sést af þessu að ekki eru öll
lagaákvæðin sett i þvi skyni að
vernda leigjendur eina, heldur
er markmiðið einnig að treysta
réttarstöðu leigusala. Fléiri
ákvæði er að sjálfsögðu að finna
i lögunum.sem of langt mál væri
að telja upp hér.
I Danmörku hafa svo verið
sett önnur lög við hliðina á hin-
um eiginlegu húsaleigulögum,
þar sem reistar eru timabundn-
ar — eins og það er orðað —
gkorður við uppsögn leigusamn-
inga (umfram það sem leiðir af
almennum reglum), hækkun á
leigugreiðslum og skyldum
atriðum isamskiptum leigjanda
og leigusala er húsaleigulögin
sem slik láta óátalin.'
Ég álit að farsælasta leiðin
yrði að taka upp i' islenzka lög-
gjöf lög á borð við dönsku húsa-
leigulögin, en láta vera, a.m.k.
fyrstum sinn, að reisa sérstak-
ar skorður við uppsögn leigu-
samninga eða hækkun á leigu-
greiðslum. Eina leiðin til að
stemma raunverulega stigu við
óhóflegum leigugreiðslum og
ósanngjarnri uppsögn á leigu-
samningi er — eins ogfyrr segir
— að auka framboðið á leigu-
húsnæði i borginni unz jafnvægi
hefur náðst milli framboðs og
eftirspurnar. Þá fyrst standa
leigjendur jafnfætis leigusölum.
við húsaleigulögin á hinum
Norðurlöndunum.
Virk lög — ekki aðeins
lagabókstafurinn
Arið 1943 voru sett hér á landi
lög um húsaleigu. Ákvæði þess-
Hvaða atriði er hægt að
taka i lög?
1 islenzkum rétti gilda óskráð-
ar réttarreglur um rýmingu
leiguhúsnæðis. Þessar reglur
ætti að minum dómi að lögfesta
og gera fyllri.
1 norrænni húsaleigulöggjöf,
Tilkynning
Eigendur skúra sem standa i óleyfi á
hafnarsvæði Reykjavikurhafnar i ör-
firisey og Vatnagörðum i Sundahöfn
skulu hafa fjarlægt þá fyrir 20. mai n.k.
Að öðrum kosti verða þeir fjarlægðir á
kostnað eigenda.
Hafnarstjórinn i Reykjavik.
Sóknarprestur
Frikirkjusöfnuðurinn i Reykjavik auglýs-
ir lausa til umsóknar stöðu safnaðarprests
frá og með 1. október n.k.
Laun eru þau sömu og við samskonar störf
i þjóðkirkjunni.
Embættisbústaður (einbýlishús) stendur
væntanlegum safnaðarpresti til boða ef
um semst.
Umsóknir skulu hafa borizt stjórn safnað-
arins fyrir 1. ágúst n.k.
Frekari upplýsingar um starfið gefur Þór-
arinn Sveinsson i sima 1-01-23 og ísak Sig-
urgeirsson i sima 8-26-80, á venjulegum
vinnutima.
Reykjavik 25. april 1978
Frikirkjusöfnuðurinn i Reykjavik.
5k E E cSl E E
Ritstjórn, skrifstofa og afgreiösla
Nú gengur Herjólfur
fyrir svartolíu milljónum
ódýrara á ári
að láta skipið
brenna henni
M.ó. Vestm.eyjum —Búið er aö
breyta vélum Herjólfs, þannig að
nú brennir hann svartoliu, og fór
hann sina fyrstu ferð i gær milli
lands og eyja knúinn svartoliu.
Breyting á vélum skipsins hef-
ur verið gerð að undanförnu og
aðallega unnið að þvi á kvöldin,
þannig að hægt hefur verið að
halda uppi áætlunarferðum.
Breytingum þessum var lokiö i
fyrrakvöld og þá um kvöldið fór
skipið i reynslusiglingu. Blm.
Timans var boðið með i þessa
ferð, og þegar út á rúmsjó var
komið, var skipt yfir á svartoliu.
Virtust vélar skipsins taka hinu
nýja eldsneyti vel og var gang-
Ifraði þess sá sami og áður.
Jón R. Eyjólfsson skipstjóri á
Herjólfi sagði að kostnaður við
breytinguna hefði verið um 3
milljónir króna, en þess væri að
gæta að sparnaður með svart-
oliunotkun væri nálægt 18
milljónum á ári.
Á sfðasta ári flutti Herjólfur 34
þúsund farþega milli lands og
eyja, þótt skipið væri stopp um 10
vikna skeið, vegna galla, sem
fram kom I þvi.
Jón R. Eyjólfsson skipstjóri í
brúnni á Herjólfi. Mynd M.ó.
_______:_______ J