Tíminn - 28.04.1978, Page 14
14
Föstudagur 28. apríl 1978
Húsnæðismálastofnun ríkisins:
Komið að greiðslu
4 lánveitingar
1 mal og júni-mánuöi n.k. munu
koma til greiBslu 4 lánveitingar
HúsnæBismálástofnunar ríkisins,
samtals aö fjárhæB um 523 mill-
jónir króna. Samþykkti húsnæBis-
málastjórn lánveitingar þessar á
fundi sinum hinn 18. april s.l.
Lánveitingar þær, sem hér um
ræöir, eru þessar:
1) Frumlán (I. hluti) eru veitt
til.greiöslu eftir 25. mai n.k. þeim
lánsumsækjendum til handa, sem
áttu fullgildar og lánshæfar um-
sóknir fyrirliggjandi hjá stofnun-
inni hinn 31.1janúar s.l. og höfBu
sent henni fokheldisvottorö vegna
ibúöa sinna' éigi siöar en þann
dag. — Lánveiting þessi nemur
samtals 144 miilj. króna.
2) Frumlán (I. hluti) eru veitt
til greiöslu eftir 15. júni n.k. þeim
Iánsumsækjendum til handa, sem
áttu fullgildar og lánshæfar um-
sóknir fyrirliggjandi hjá stofnun-
inni eigi siöar en 28. febrúar s.l.
og höfðu jafnframt sent henni
fokheldisvottorö vegna ibúöa
sinna eigi síöar en þann dag. —
Lánveiting þessi nemur samtals
126 millj. króna.
3) Lokalán (3. hluti) eru veitt til
greiðslu eftir 15. mai n.k. þeim
umsækjendum til handa, er fengu
frumlán sin greidd eftir 15. mai
1977og miðlán sin greidd eftir 15.
nóvember 1977. — Lánveiting
þessi nemur samtals 93 millj.
króna.
4) Lán til kaupa á eldri Ibúöum
(G-lán) eru veitt til greiöslu eftir
20. maí n.k. þeim umsækjendum
til handa, er sóttu um þau á tima-
bilinu I. október — 31. desember
s.l. — Lánveiting þessi némur
samtals 160 millj. króna.
HVALKJOT
úrvals gott og ódýrt á aðeins kr.
KG
n::::
Opidtil WL
ioi K.VOLD
og hádegisijli
á morgun! ii|ijl
/ ................
Skötuse/ur - Ysa og ýsuf/ök ||
Svartfugl ||
Grensáskjör |
Grensásvegi 46 * 3-67-40
* •áS&íte* \ :|:|||
••••••
' ... í. • ••••••
♦••••♦
S\
••♦•♦♦♦•i
•♦••♦«♦•
-■♦♦♦♦*•♦•
>♦•♦••♦♦.
öllum þeim, sem glöddu mig meö heillaskeytum, heim-
sóknum og gjöfum á áttræöisafmæli minu 17. april s.l.
þakka ég auðsýndan heiöur og vinarhug.
Guð blessi ykkur öll.
Benedikt Grimsson.
+——
Ástkæri unnusti minn og sonur okkar
Gunnar Einarsson
Smáratúni 29,
Keflavik,
sem lézt af slysförum 23. april s.l. veröur jarösunginn frá
Keflavikurkirkju laugardaginn 29. april kl. 2.
Fyrir hönd systkina og annarra ættingja
Valdis Inga Steinarsdóttir
Sigriöur Guðbrandsdóttir
Einar Gunnarsson
Frá aöalfundi Alþýöubankans, sem haldinn var aö Hótel Sögu. Á fundinum var hankaráö bankans end-
urkjöriö og skipa þaö: Benedikt Davfösson, Ragnar Guömundsson, Þórunn Valdimarsdóttir, Halldór
Björnsson og Bjarni Jakobsson. Einnig voru endurskoöendur endurkjörnir, þeir Böövar Pétursson og
Magnús Geirsson.
Aðalfundur Alþýðubankans 1977:
Staða bankans batn-
aði á síðasta ári
— innlán jukust um 33,7% árið 1977 í stað
2,9% árið áður
SSt — Aðalfundur Alþýöubankans
h/f var haldinn að Hótel Sögu fyr-
irskömmu. A fundinum gerði for-
maður bankaráðsins, Benedikt
Daviðsson, grein fyrir starfsemi
bankansá siðasta ár og Stefán M.
Gunnarsson bankastjóri útskýrði
reikninga bankans. t ræðum
þeirra kom fram, að á árinu 1977
sneri mjög til betri vegar i rekstri
bankans. Aukning innlána, sem
hófst i júli 1976 hélt áfram á árinu
1977 og jukust þau um 383 m. kr.
eða um 33,7% samanborið við
2,9% árið áður.
Rekstrarafkoma bank-
ans.
Þótt snúið hafi til betri vegar i
þróun innlána verður að skoða
rekstrarafkomu bankans á árinu
1977 i ljósi þeirrar staðreyndar,
að bankinn varð i lok ársins 1975
og á árinu 1976 að kaupa skulda-
bréf til nokkurra ára tii þess að
tryggja mikinn hluta van-
tryggðra Utlána. Stór hluti þess-
ara útlána er með föstum vöxt-
um. Sú binding fjár hefur dregið
nokkuð úr útlánagetu bankans til
núverandi viðskiptavina hans og
orðið bankanum mjög óhagstæð i
hinum tiðu vaxtabreytingum á
árinu 1977, þar sem innlánsvextir
og vextir af skuldum Alþýðu-
bankans við Seðlabanka Islands
hafa hækkað mjög mikið, en
vaxtafótur fra mangreindra
skuldabréfa staðið i stað. —
Rekstrarafgangur fyrir afskriftir
nam 4,1 m. kr., sem er 1 m.kr.
lægri upphæð en á siðasta ári.
Hafa verður þó i huga, að á árinu
1977 vorugreiddir fullir vextir af
skuldum bankans við Seðlabanka
Islands, en á árinu 1976 voru ekki
reiknaðir vextir af 125 m. kr. láni
við Seðlabankann frá 10. des. 1975
til 10. des. 1976.
Tekjufærðir voru vextir af hús-
eign bankans við Siðumúla 37, 9,8
m. kr. Heildartekjur bankans
námu 329,1 m.kr. og hækkuðu um
88,3 m.kr. eða 36,7% frá fyrra ári
Vaxtagjöld urðu 220,4 m.kr.
Hækkunin er 64 m.kr. eða 41%.
Hagur bankans
A árinu jókst hlutafé bankans
um 32,9 m.kr. og var hlutafé hans
i árslok 1977 100 m.kr., þar af voru
ógreidd hlutafjárloforð 32,5 m .kr.
Aukning varð á innborguðu hluta-
fé um 18,3 m.kr. Bókfært verð
íasteigna bankans var i árslok
1977 191,6 m.kr. og hafði aukist
um 3,lm.kr.Eigiðfé bankans var
á sama tima 140 m.kr. eða 9,2% af
heildarinnlánum. Aukning eigin
fjár nam 27,7 m.kr. eða 24,7%.
A afskriftarreikningiútlána eru
46,7 m. kr. Á árinu voru afskrifuð
útlán að fjárhæð 0,3 m.kr.
Björgunarsveitin Stakkur
í Keflavík 10 ára
Björgunarsveitin Stakkur i
Keflavik er 10 ára um þessar
mundir, ensveitin var stofnuð 28.
april árið 1968. Formaður hennar
og aðalbvatamaður til ársins
1977 var Garðar Sigurðsson,
kaupmaður i Keflavik.
Hefur starf björgunarsveitar-
innar verið öflugt alla tið og er
sveitin vel búin tækjuin og vel
inönn uð.
STAKKUR vel i
stakk biiinii
Fyrstu árin var björgunar-
sveitin til húsa i skátahúsinu i
Keflavik, eða hafði þar fundaað-
stöðu, en siðar fékk hún aðstöðu i
slökkvistöðinni i Keflavik, þar til
sveitin eignaðist sitt eigið hús-
næði, sem nú hýsir alla starfsemi
hennar.
Björgunarsveitin Stakkur er
sjálfstæð og óháð sveit, sem á þó
gott og ánægjulegt samstarf við
aðrar björgunarsveitir, og hún
hefurafnot af snjóbjörgunartækj-
um Slysavarnafélags Islands i
Keflavik.
Stakkur hefur notið nokkurs
fjárhagslegs stuðnings frá Kefla-
vikurbæ, Njarðvikurbæ og sýsl-
unni, og fleiri aðilar hafa lagt
henni lið, en mest af fjármunum
þeim, sem deildin hefur haft til
starfseminnar hefur verið sjálfs-
aflafé hennar.
Hafa sveitarmenn farið ýmsar
fjáröflunarleiðir, haft kosninga-
getraunir, málverkasýningar,
annast útgáfu ýmiss konar
sjúkrakassasölu og torfæruakst-
urskeppni, til styrktar björgunar-
starfinu.
Björgunarsveitin STAKKUR er
vel i stakk búin með björgunar-
tæki og annan tæknibúnað. Hún á
tvær torfærubifreiðar, önnur er til
mannflutninga, en hin er flutn-
inga- og sjúkrabifreið, og er sú
bifreið jafnframt notuð sem vara-
sjúkrabifreið i læknishéraðinu.
Þá á deildin stóran gúmbjörg-
unarbát, froskköfunartæki og
fleira, en auk þess fullkominn
fjarskiptabúnað.
Opið hús á
atmælisdaginn
„I tilefni afmælisins verður
mikið um dýrðir hjá sveitarlim-
um”, sagði einn björgunarsveit-
armanna blaðinu i stuttu samtali
við Timann.
Hinn 28. april, á afmælisdaginn
verður opið hús hjá STAKK frá
14.30-16.00, og laugardaginn 29.
april 13.30-17.00. Þarna gefst ál-
menningi tækifæri til þess að
skoða húsakynni björgunarsveit-
arinnar og allan búnað.
Kl. 16.30-18.30 á afmælisdaginn
verður haldið kaffisamsæti að
Bergási fyrir félaga og boðsgesti,
en kl. 2000 um kvöldið hefst sam-
kvæmi i samkomuhúsinu i Gerð-
um fyrir félaga og maka þeirra.
Gilda félagsskirteini sem að-
göngumiðar að hátiðinni, en þar
munu „sveitarlimir” bjóða upp á
fjölbreytta skemmtidagskrá og
dansað verður fram undir morg-
un.
Starfandi félagar eru nú um 60
talsins. Formaður er Karl B.
Sævar.
Björgunarsveitin Stakkur hefur
oftkomið i góðar þarfir, sem geta
má nærri og mikið öryggi er að
sliku starfi fyrir byggðarlagið og
sjófarendur, og reyndar almenn-
ing allan, Helztu verkefni hafa
verið leitarstörf og hafa björgun-
arsveitarmenn marga hildi háð á
þessum áratug, sem liðinn er síð-
an hún tók til starfa.
JG
Utankjörfundar-
atkvæðagreiðsla
i Reykjavik vegna sveitarstjórnarkosn-
inga 1978 hefst sunnudaginn 30. april n.k.
Kosið verður i Miðbæjarskólanum alla
virka daga kl. 10-12, 14-18 og 20-22, sunnu-
daga og helgidaga kl. 14-18.
Mánudaginn 1. mai n.k. verður aðeins
kosið kl. 10-12.
Borgarfógetaembættið i Reykjavik.