Tíminn - 28.04.1978, Page 16
16
Föstudagur 28. apríl 1978
ídag
Föstudagur 28. apríl
Heilsugæzla
Minningarkort
Reykjavik: Lögreglan simi:
11166, slökkviliðið og sjúkra-
bifreið, simi 11100.
Kópavogur: Lögreglan simi
"41200, slökkviliðið og sjúkra-
bifreið simi 11100.
Haf nar f jörðúr: Lögreglan
simi 51166, slökkvilið simi
51100, sjúkrabifreið simi 51100.
Lögregla og slökkviliðj
Slysavarðstofan: Simi 81200,
eftir skiptiborðslokun 81212.
Sjúkrabifreið: Reykjavik og •
Köpavogur, simi 11100.
Hafnarfjörður, simi 51100.
Hafnarfjörður — Garðabær:
Nætur- og helgidagagæzla:
Upplýsingar á Slökkvistöð-
inni, simi 51100.
Læknar:
Revkjavik — Kópavogur.
Dagvakt: Kl. 08:00-17:00
mánud.-föstudags, ef ekki
næst i heimilislækni, simi
11510.
Kvöld- nætur- og helgidaga-
varzla apöteka i Reykjavik
vikuna 28. april til 4. mai er i
Lyfjabúð Iðunnar og Garðs
Apoteki. Það apotek, sem fyrr
er nefnt, annast eitt vörzlu á
sunnudögum, helgidögum og
almennum fridögum.
"Hafnarbúðir.
Heimsóknartimi kl. 14-17 og
19-20.
Heimsóknartimar á Landa-
kotsspitala: Mánudaga til
föstud. kl. 18.30 til 19.30.
I.augardag og sunnudag kl. 15
ti, 16. Barnadeild alla daga frá
kl. 5 til 17.
Kópavogs Apótek er opið öll
kvöld til kl. 7 nema laugar-
daga er opiö kl. 9-12 og sunnu-
daga er lokað.
.Minningarkort
Minningarsjóðs hjónanna Sig-
riðar Jakobsdóttur og Jóns
Jónssonar á Giijum i Mýrdal
við Byggðasafnið i Skógum
fást á eftirtöldum stöðum: i
Reykjavik hjá Gull- og silfur-
smiðju Bárðar Jóhannesson-
ar, Hafnarstræti 7, og Jóni
Aðalsteini Jónssyni, Geita-
stekk 9, á Kirkjubæjarklaustri
hjá Kaupfélagi Skaftfellinga, i
Mýrdal hjá Björgu Jónsdótt-
ur, Vik, og Astriði Stefánsdótt-
ur, Litla-Hvammi, og svo i
Byggðasafninu i Skógum.
Minningarkort Flugbjörg-
unarsveitarinnar fást á eftir-
töldum stööum: Bókabúö
Braga, Laugaveg 26. Amatör-
vezlunin, Laugavegi 55. Hús-
gagnaverzl. Guðmundar Hag-
kaupshúsinu, simi 82898. Sig-
urður Waage, simi 34527.
Magnús Þórarinsson, simi
37407. Stefán Bjarnason, simi
37392. Siguröur Þorsteinsson,
simi 13747.
Félagslíf ]
Bilanatilkynningar
Rafmagn: i Reykjavik og
Kópavogi i sima 18230. I
Hafnarfirði i sima 51336.
Hita veitubilanir: kvörtunum
verður veitt móttaka i sim-
svaraþjónustu borgarstarfs-
manna 27311.
Vatnsveitubilanir simi '86577.
Símabiianir simi 05.
Bílanavakt borgarstofnana.
Simi 27311 svarar alla virka
daga frá kl. 17 siðdegis til kl. 8
árdegis og á helgidögum er
svarað allan sólarhringinn.
Kvikmy ndasýning i MIR-
salnum á laugardag
Laugardaginn 29. þ.m. kl.
14.00 verður sýnd kvikmynd
um heimsókn Geirs Hall-
grimssonar til Sovétrikjanna.
öllum er heimill aðgangur. —
MÍR.
Föstud. 28/4 kl. 20
1. Húsafell. Gengið á Hafrafell
eða Ok, Strútogviðar. Göngur
við allra hæfi. Tilvalin fjöl-
skylduferð. Farið i Surtshelli
(hafið góð ljós með). Gist i
góðum húsum, sundlaug,
gufubað. Fararstj. Kristján
M. Baldursson ofl.
2. Þórsmörk Góðar gönguferð
ir. Gist i húsi. Fararstj. Jón I.
Bjarnason.
Farseðlar á skrifst. Lækjarg.
6a, simi 14606.
Útivist.
Gæludýrasýning i Laugar-
dalshöllinni 7. mai næstk. Ösk-
að er eftir sýningardýrum,
þeir sem haf a áhuga á að sýna
dýrin sin vinsamlega hringi i
eftirtalin simanúmer — 76620
— 42580 — 38675 — 25825 —
43286.
krossgáta dagsins
2748.
Lárétt
1) Húsgagnið 5) Gubbað 7)
Lánar 9) Þannig 11) 45 12)
Klaki 13) Þrir 15) Sturlað 16)
Læsing 18) Týnir
Lóðrétt
1) Brjótir 2) Jörð 3) Eins 4)
Hasars 6) Matur 8) Hriðar-
kófi 10) Strengur 14) Vond
15) Ofsaful! 17) Afa.
Ráðning á gátu No. 2747
Lárétt
I) Ljósár5) Ann 7) Tár9) Ari
II) Út 12) Án 13) Nag 15) önd
16) Als 18) Stapar.
Lóðrétt
1) Látúns 2) Óar 3) SN 4)
Ana 6) Vindur 8) Ata 10) Rán
14) Gat 15) ösp 17) La
Hrauntunga — Gjásel. Fyrsta
kvöldganga vorsins með Gisla
Sigurðssyni. Farið frá BSl
bensinsölu, Hafnarfirði v.
kirkjugarðinn). Útivist.
Kvenfélag Laugarnessókn-
ar heldur fund i fundarsal
kirkjunnar mánudaginn 1.
mai kl. 20.30. Munið kaffisöl-
una og skyndihappdrættið.
Stjórnin.
Kvennadeild Skagfirðinga-
félagsins i Reykjavik hefur
veizlukaffi og happdrætti i
Lindarbæ 1. mai n.k. kl. 2 s.d.
Nefndin.
Kaffisalai Bctaniu l.maiEins
og venja er hefur kristniboðs-
félag kvenna i Reykjavik
kaff isölu i Betaniu Laufásvegi
13 1. mai n.k. Konurnar vænta
mikillar aðsóknar eins og allt-
af hefur verið undanfarin ár
enda þekkja margir borgar-
búar hve rausnarlega er á
borð borðið i Betaniu þennan
mánaðardag. Allur ágóðinn
rennur til kristniboðsstarfs-
ins. Húsið verður opið frá kl.
14,20 til 22.30.
Myndakvöld i Lindarbæ, mið-
vikudaginn 3. mai kl. 20.30
þetta verður siðasta mynda-
kvöldið að sinni. Finnur Jó-
hannsson og Grétar Eiriksson,
sýna myndir m.a. úr Þjórsár-
verum, Hvitárnesi og Karls-
drætti, fuglamyndir og fleira.
Allir velkomnir meðal húsrúm
leyfir. Aðgangur ókeypis en
kaff i selt i hléinu.
Ferðafélag Islands
Sunnudagur 30. apríl.
1. Kl. 9.30. Gönguferð á Botns-
súlur 1095 m. Gengið úr Hval-
firðinum á Botnssúlurnar og
komið niður hjá Svartagili.
Fararstjóri: Magnús Guð-
mundsson.
2. Kl. 13. Þingvellir. Gengið
um eyðibýlin Hrauntún —
Skógarkot — Vatnsvfkin.
Fararstjóri: Sigurður Krist-
insson.
3. Kl. 13.00. Vifilsfell 655 m. 5.
ferð. „Fjall Ársins 1978"
Fararstjóri: Tómas Einars-
son. Verð kr. 1000 gr. v/bil-
inn.Gengið úr skarðinu við
Jósepsdal. Einnig getur
göngufólk komið á eigin bilum
og bætzt i hópinn við fjallsræt-
urnar. Allir fá viðurkenn-
ingarskjal að göngu lokinni.
Ferðirnar eru farnar frá Um-
ferðamiðstöðinni að austan-
verðu. Fritt fyrir börn i fylgd
með foreldjum sinum.
Mánudagur 1. mai.
1. Kl. 10.00 Akrafjall og sögu-
ferð umhverfis Akrafjall.
Feröin er tvíþætt: annars
-vegar gengiðá Akrafjall 574 m
Fararstjóri: Þórunn Þórðar-
dóttir, og hins vegar farið um
slóðir Jóns Hreggviðssonar,
einnig verður komið i byggða-
safnið i Görðum. Leiðsögu-
menn: Ari Gislason og Guðrún
Þórðardóttir.
2. Kl. 13.00 Tröllafoss —
Haukafjöll. Létt ganga við
allra hæfi. Fararstjóri. Gr.
v/bilinn.
Ferðirnar eru farnar frá Um-
ferðarmiðstöðinni að austan
verðu. Fritt fyrir börn i fylgd
með foreldrum sinum.
Ferðafélag Islands
29. april — 1. mai kl. 08.00.
1. Hnappadalur-Kolbeinstaða-
fjall-Gullborgarhellar og
víðar.
Gist i Lindartungu I upphituðu
húsi. Farnar verða langar og
stuttar gönguferðir. Farið i
hina viðfrægu hella i Gull-
borgarhrauni. Gengið á
Hrútaborg, farið að Hliðar-
vatni og viðar. Fararstjóri.
2. Þórsmörk.
Gist i sæluhúsinu. Farnar
gönguferðir bæði langar og
stuttar eftir þvi sem veður
leyfir. Fararstjóri.
Frá og með næstu helgi verða
ferðir i Þórsmörk um hverja
helgi sumarsins.
Allar nánari upplýsingar og
farmiðasala á skrifstofunni.
Ferðafélag Islands
r n
^ David Graham Phillips:__________J
186
*
SUSANNA LENOX
C
Jón Helgason
.10
,öy
berst örvæntingarfullri baráttu til þess aö fæða sig og klæöa og njóta
húsaskjóls — berst hvað við annaö. Og til þess að sjá sér farboröa
verður fólk að vera gætt þeim kjarki og þvi algera kæruleysi um af-
drif samþegnanna sem gerir þvl kleift að berjast þannig.
— Þaö er margt satt í þessu sagði Spenser. — Hefði ég ekki veriö
svona — góöur drengur eins og það er kaliað — heföi ég ekki veriö
svona góður drengur — heföi ég til dæmis verið eins og Brent —
Brent sem aldrei hefur viljað vera neins manns vinur og ai drei gert
neitt fyrir neinn annan en sjálfan sig og aldrei hefur hugsað um
annað en frægð sina —ja þá væriég kominn I hans sæti núna.
Svarið var komið fram á varir Súsönnu: — Já — orðinn dugandi
maður — fær um að hjálpa öðrum — fær um aö gera eitthvað sem
einhvers er vert. En hún þagði.
Roderick hélt áfram : — Ég skal ekki lengur vera fiflið I leiknum.
Ég mun bráðum hafa of mikið til þess að hirða um kunningja eða
liðsinna fólki eða gera neitt sem ekki er sjálfum mér til gagns.
Súsanna kærði sig ekki um aö láta misskilja orð sin svona alger-
lega. Hún færði sig nær dyrunum. — Ég kem aftur I kvöld eins og
venjulega.
Það kom hörkulegur fyrirlitningarsvipur á Spenser. — Þú veröur
kyrr hér — eða þú kemur ekki aftur sagði hann. — Þú skalt velja um
það sjálf. Viitu koma mér i skilning um það að þú sért götumeila af
hug og hjarta?
Hún staðnæmdist við fótagaflinn á rúminu og starði á þiliö fyrir
ofan höfðalag hans. — Ég verð að vinna fyrir útgjöldum okkar
þangað til við erum búin að koma undir okkur fótunum, sagði hún.
— Hvers vegna ertu að kvelja mig? sagöi hann. — Viltu að ég
veikist aftur?.
— Segjum nú svo að þú fengir ekki neina peninga strax, sagöi hún.
— Ég er búin aö segja þér að ég fái þá. Og ég fyrirbýð þér — að
gera það sem þú gerir. Ef þú ferð þá ferðu fyrir fullt og allt.
Hún settist. — Viltu að ég lesi fyrir þig eða á ég aö skrifa eftir
þinni fyrirsögn?
Það færðist yfir andlit hans þessi ánægjusvipur sem kemur á
smámenni þegar vald þeirra er viðurkennt I smáatriðum — Þú mátt
ekki vera reið sagði hann. — Ég geri ekki annaö en þér, er sjálfri
hoilast. Ég er aö verja þig fyrir þér sjálfri.
— Ég er ekki reið sagði hún og starði á hann með einkennilegu
augnaráði.
Hann leit undan og fór hjá sér. — Hvað á þetta augnaráð að þýöa?
spurði hann og hió vandræðalega.
Hún brosti aöeins og yppti öxlum.
Sperry var litill maður og magur, útitekinn og svipbrigðalaus,
hvasseygur og slægðarlegur og loddaralegur, bæði I tali og hreyf-
ingum. Hann var fljótur að reka leikritið saman og átti þau Itök
hjá Fitzalan, að hann kom þegar á sunnudaginn með tvö hundruð og
fimmtiu dali, hluta Spenser af peningunum, sem þeir fengu greidda
fyrirfram.
— Sagði ég þetta ekki alltaf —, sagði Spenser sigri hrósandi við
Súsönnu. — Við flytjum undir eins. Flýttu þér heim og taktu saman
eigur þinar og komdu hingað I vagni með ailt draslið. Sperry og
hjúkrunarkonan verða búin að tygja mig, þegar þú kemur aftur —.
Klukkan var nálægt þrjú, þegar Súsanna kom heim til sin.
— Hvaðer þetta? Ertu aðtaka saman dótið þitt? — hrópaði Klara,
þegar henni varð litið inn.
— Já, vinur minn er oröinn svo heilbrigður, aö hann getur fariö úr
sjúkrahúsinu. Við ætlum að búa upp I borginni—.
Klara fleygði sér á stól og fór að gráta. — Ég sakna þin svo hræöi-
lega —, snökti hún. — Þú ert eina vinkonan, sem ég á I öllum heim-
inum, og öllum er sama um mig nema þér. Ég vildi óska, aö ég gæti
verið eins og þú. Þú þarft ekki við neinn að styðjast —.
— O-jú, vist þarf ég þess —, sagði Súsanna.
— Já, en ég átti við, að þú værir engum háð. Ég átti ekki viö, aö þú
værir svo kaldlynd, þvi aö það ertu ekki. Þú hefur hjálpað mér og
tugum annarra stúlkna út úr alls konar vandræðum. En þú ert sjálf
óháð öllum. Geturðu ekki lofað mér aö fara með þér?
— Ég get ekki tekiö þig með mér, en ég skal koma aftur og sækja
þig, undir eins og ég er búin að koma undir mig fótunum—, sagði
Súsanna. — Eg verö fyrst að ná mér dálítið upp. Svo mikiö hef ég þó
að minnsta kosti lært —.
,,Ég sofnaöi i miðjum lestri hjá
þér. Hvernig endaði sagan?”
DENNt
DÆMALAUSI