Tíminn - 28.04.1978, Side 19
Föstudagur 28. apríi 1978
T9
Framsóknarflokkurinn
flokkur unga fólksins
Fjölmargt ungt ftflk var i hópi
þingfulltrúa á 17. flokksþingi
framsóknarmanna, sem haldið
var i Reykjavik i siðasta mán-
uði. Þetta unga fólk tók mikinn
þátt i störfum þingsins, bæði i
almennum umræðum og nefnd-
arstörfum. Á sama hátt starfaði
einnig fjölmargt ungt fólk i
starfshópum, sem undirbjuggu
þingið.
Þegar kjörið var i miðstjórn
flokksins á Flokksþinginu kom
lika i ljós, að unga fólkið nýtur
hins fyllsta trausts, og af þeim
átta, sem flest atkvæði hlutu i
miðstjórnarkjörinu, voru fimm
um og innan við þritugt. Röð
efstu manna var þessi:
1. Þórarinn Þórarins. 252atkv.
2. Dagbjört Höskuldsd. 246atkv.
3. Eysteinn Jónsson 246atkv.
4. Gerður Steinþórsd. 223atkv.
5. Magnús Ólafsson 223 atkv.
6. Asgeir B jarnason 218atkv.
7. Eirikur Tómasson 208 atkv.
8. Haukur Ingibergsson201 atkv.
Af þessu má greinilega sjá að
unga fólkið hefur mikil áhrif
innan Framsóknarflokksins.Þar
berst það fyrir áhugamálum
sinum og vinnur að þvi að þau
verði að veruleika.
Andstæðingar okkar fram-
sóknarmanna hafa oft haldið
þvi fram að nú sé ekkert ungt
framsóknarfólk lengur til. Tala
þeir um að Samband ungra
framsóknarmanna sé mjög li'tt
áberandi stjóri.málaafl um
þessar mundir. Nú haldi forusta
sambandsins ekki uppi opin-
berri gagnrýni á flokksforust-
una. Það sé merki þess að starf-
iðhjá ungum framsóknarmönn-
um sé litið og dugurinn enginn.
Staðreyndin er hins vegar sú,
að ungir framsóknarmenn
starfa mikið, þótt vissulega
mætti það starf vera enn meira
og ungir framsóknarmenn
mættu hafaenn meiri áhrif. Við,
sem nú erum i forustu Sam-
bands ungra framsóknar-
manna, höfum hins vegar lagt á
þaðáherzlu að ungir framsókn-
armenn starfi innan flokksins
og komi hugðarefnum ungs fólk
þar á framfæri og vinni þeim
fylgi. Við leggjum áherzlu á að
ungt fólk sé kjörið i allar starfs-
nefndir á vegum flokksins, þar
séu málin rædd og þeim unnið
fylgi. Siðan berjist flokkurinn
sameiginlega fyrir þessum mál-
um og vinniþeim brautargengi i
þjóðfélaginu.
Hér skulu nefnd tvö dæmi um
á hvern hátt ungir framsóknar-
menn hafa haft áhrif á málefna-
lega umræðu i þjóðfélaginu á
undanförnum árum Fyrir
þremur árum hélt Samband
ungra framsóknarmanna ráð-
stefnu um kjördæmaskipun og
kosningalög. Þar var m.a. lögð
áherzla á að gera kjör alþingis-
manna persónubundnara en nú
er.
Siðan tók SUF þátt i sam-
starfsnefnd þriggja samtaka
ungra stjórnmálamanna og
mótaði þessi nefnd sameiginleg
ar tllögur. Siðan þá hafa miklar
umræður farið fram um þessi
mál og virðast flestir nú orðnir
sammál.a um að kjör alþingis-
manna verði að gera persónu-
legraen það er samkvæmt gild-
andi lögum. Einnig er mikið
rætt um hvort jafna eigi þann
mismun, sem er á vægi at-
kvæða, og virðast menn sam-
mála um að munurinn sé nú of
mikill. Hins vegar eru flestir á
þvi, að ibúar Reykjavikur hafi
margfalt betri aðstöðu til að
hafa áhrif á ml i þjóðfélaginu en
ibúar landsbyggðarinnar. 1
Reykjavik er stjórnarráðið, og
þar eru flestar opinberar stofn-
anir. Fullt tillit þurfi þvi að taka
til þessara þátta, þegar vægi at-
kvæða milli Reykjavikur og
landsbyggðarinnar er ákveðið.
Annað mál skal hér nefnt,
sem það er stuðningur við
frjálsa félagsstarfcsemi. Sam-
band ungra framsóknarmanna
hélt ráðstefnu um frjálsa fé-
lagastarfsemi siðastliðið sum-
ar. Þar var rætt itarlega um
þýðingu þessarar starfsemi i
landinu og á hvern hátt bezt
mætti stuðla að vexti og við-
gangi frjálsu félagarina.
Þetta mál var siðan tekið til
framhaldsumræðu á 17. flokks-
þingi framsóknarmanna sem
haldið var i marz. Þar var sam-
þykkt itarleg stefnuyfirlýsing
framsóknarmanna i þessum
málaflokki. Þar var lögð
áherzla á að efla beri hina
frjálsu félagsstarfsemi i land-
inu. Bent var á, að slik stefna
væri ekki einungis þjóðhagslega
hagkvæm, heldur þroskavæn-
legust hverjum einstaklingi.
Hér á siðunni er ályktun
flokksþings framsóknarmanna
um frjálsa félagssemi birt I
heild.
Fjölmörg fleiri mál mætti
nefna, þar sem ungir framsókn-
armenn hafa haft forustu um að
tekin yrðu til meðferðar og af-
gréiðslu, en hér verður staðar
numið að sinni.
f upphafi var þess getið hve
ungt fólk hafi haft mikil áhrif á
nýafstöðu flokksþingi. Svona er
þessueinnig farið heima i kjör-
dæmunum. Fjölmargt ungt
framsóknarfólk er þar i forustu-
sveit og á framboðslistum skip-
ar unga fólkið lika verðugan
sess. T.d. má nefna að yngsti
þingmaðurinn er Halldór As-
grimsson þingmaður Fram-
sóknarflokksins á Austurlandi.
Á Vesturlandi verður i komandi
kosningum mikið um ungt frilk á
framboðslista Framsóknar-
flokksins og á lista Framsókn-
arflokksins til borgarstjórnr-
kosninga i Réykjavik er ungt
fólk bæði i öðru og þriðja sæti
auk þess, sem ungt fólk skipar
mörg sæti neðar á listanum.
Af þessu má sjá að unga fólkið
nýtur mikils trausts innan
Framsóknarflokksins Það tek-
ur þar verulegan þátt i stefnu-
mótun og hefur forgöngu um
fjölmörg mál. Ungt fólk hefur
verið kjörið i margar trúnaðar-
stöður á vegum Framsóknar-
flokksins, og i komandi kosning-
um verður ungt fólk mjög áber-
andi á framboðslistum Fram-
sóknarflokksins i flestum kjör-
dæmum. Framsóknarflokkur-
inn er þvi flokkur unga fólksins.
MÓ
M4GII
Föstudaginn 10. mars 1978
Framsóknarflokk-
urinn — flokkur
unga fólksins
Þaö hefur vakið verðskuldaöa
athygli hve unga fólkið tekur nú
mikinn þátt i störfum Framsókn-
arflokksins á Vesturlandi. Er
ekki of mælt aö Framsóknar-
flokkurinn sé i dag sá flokkur sem
unga fólkið fylkir sér um.
Sem dæmi um það traust sem
unga fólkið i flokknum nýtur má
nefna að fjórir frambjóðendur á
lista flokksins til Alþingiskosn-
inga eru um eða undir þritugu 'og
þrir aörir frambjóðendur eru um
eöa undir fertugu. Má með sanna
segja að þetta er framboðslisti
unga fólksins. En þetta er ekki hiö
eina. Formaður stjórnar
kjördæmissambands. Framsókn-
armanna er aöeins 27 ára og
nokkur hluti stjórnarmanna er á
svipuðum aldri. Ritstjóri Magna,
er um þritugt, og svona mætti
telja áfram.
Þetta sýnir betur en nokkuö
annað áhrif ungafólksins innan
Framsóknarflokksins — nokkuö
sem aðrir flokkar i kjördæminu
geta ekki státað sig af.
Dagbjört Höskuldsdóttir skipar
þriðja sæti á f ramboðslista
Framsóknarflokksins á Vestur-
landivið Alþingiskosningarnar i
vor.
Jón Sveinsson, formaður Kjör-
dæmissambands framsóknar-
manna á Vesturlandi, skipar
fimmta sæti á framboðslistan-
um við alþingiskosningarn.ar.
Haukur Ingibergsson, ritstjóri
Magna, málgagns framsóknar-
mannai Vesturlandskjördæmi.
Úrklippa úr Magna, blaði framsóknarmanna á Vesturlandi.
Frjáls félagsstarfsemi
A sautjanda flokksþingi
framsóknarmanna var mik-
ið rætt um frjálsa félags-
starfsemii landinu. Þar voru
itarlegar ályktanir sam-
þykktar um þau mál og
verða þær birtar hér á eftir :
„17. flokksþing Framsókn-
arflokksins haldið i Reykja-
vik dagana 12.-14. marz 1978
ályktar að efla beri hina
frjálsu félagsstarfsemi i
landinu. Þingið bendir á að
slik stefna er ekki einungis
þjóðhagslega hagkvæm
heldur þroskavænlegust
hverjum einstaklingi.
Hin frjálsu áhugamanna-
félög viðs vegar um landið
eru byggðunum nauðsyn
enda oft eini vettvangur
margháttaðra mannlegra
samskipta á sviði félags-
fræðslu- og menningarmála.
1 höndum áhugamanna nýt-
ast opinberar fjárveitingar
bezt og skila mestu starfi.
Flokksþingið telur að á
þennan hátt séu hverjum
manni bezt tryggðir mögu-
leikar á þátttöku i heilbrigðu
félagsstarfi samkvæmt eigin
vali, sjálfum sér til aukins
þroska og ánægju og
byggðarlagi sinu til eflingar.
Til þess að tryggja fram-
gang þessarar stefnu telur
flokksþingið nauðsynlegt að
leggja áherzlu á eftirfarandi
atriði:
1. Stjórn á öllu tómstunda- og
félagsstarfi veröi sem
mest færð i hendur
frjálsra félaga en jafn-
framt verði stuðlað að
traustu samstarfi allra að-
ila sem aðþessum málum
vinna.
2. Auka ber fjárframlög til
þeirra sem eiga að tryggja
uppbyggingu á nauðsyn-
legri aöstöðu fyrir hina
fjölþættu, frjálsu félags-
starfsemi s.s. til félags-
heimilasjóðs, iþróttasjóös
og Æskulýösráðs rikisins,
en fjarframlög til þeirra
cru af svo skornum
skammti að þessir aðilar
valda naumast þvi hut-
verki sem þeim er ætiaö i
lögum.
3. Efla ber samstarf félaga
Umsjónarmenn: Magnús Ólafsson
Ómar Kristján$son
og s kóla. Ljóst er að skólar,
íþróttafélög og önnur fé-
lagasamtök geta notað
sama húsnæðið að miklu
leyti. Slikt samstarf ber að
hafa i huga viö hönnun
skólahúsnæðis i framtið-
inni.
4. Efla ber almenna félags-
málafræðslu i landinu,
bæði I skólakerfínu sbr. 43.
gr. grunnskólalaganna og
á vegum frjálsra félags-
samtaka. Æskulýösráö
rikisins hefur annast
menntun leiðbeinenda
gerð námsefnis og stutt fé-
lagsmálafræöslu félags-
samtaka á undanförnum
árum með góðum árangri.
Þá starfsemi ber að efla
eftir fönguin.
5. Vinna ber að heildarskipu-
lagningu á stuöningi bæj-
ar- og sveiíarfélaga við
frjálsa félagsstar fsem i
áhugamanna. Allmikill
mismunur er núna á milli
byggðalaga i þessum efn-
um og ekki hefur tekizt að
semja reglugerð þar um,
þrátt fyrirákvæði i lögum
(Sbr. lög um æskulvðsmál
frá 197«)
6. t stuöningi við hið frjálsa
félagsstarf ber að taka
fullt tillit til allra lands-
liluta enda er hér um að
ræða snaran þátt i menn-
ingarlif i fólks og ekki sizt i
dreifbýlinu.
7. Breytt verði lögum um
innheimtu söluskatts,
þannig að fjáröflun hinna
frjálsu félagasamtaka
verði undanþegin. Hér er
um að ræða tekjur sem
langflest áhugamannafé-
lög byggja tilveru sina á
og þvi um óeðlilegan
skattstofn að ræða.
8. Niðurfelld verði afnota-
gjöld af öryggisbúnaði
hjálparsveita og björgun-
arsveita.
Flokksþingið lýsir þeirri
skoðun sinni að almenn þátt-
taka allra aldurflokka i heil-
brigðu félagsstarfi sé bezta
vörnin gegn ýmsum vágest-
um sem herja á þjóðlifið i
dag.Að þjóðræknis og mann-
gildishugsjón Ungmennafé-
laganna sé enn i fullu gildi og,
að fjölþætt félagsstarfsemi
verði enn um sinn bezti fé-
lagsmálaskóli þjóðarinnar."