Tíminn - 28.04.1978, Qupperneq 24
HU
Sýrð eik er
sígild eign
CiQC.ll
TRÉSMIDJAN MÉIDUR
SÍÐUMÚLA 30 • SÍMI: 86822
GISTING __
MORGUNVERDUR ^ ^
iÓtelRAUDARÁRSTÍG 1B' ij.MI.I II <1 •* ® líFEITl
SIMI 2
WÉEÍW Föstudagur 28. apríl 1978 62. árgangur — 87. tölublað
t»örungavinnslan á Reykhólum:
Fyrirhugaö að auka
afköst um helming
„Stendur og
fellur með
vatns-
málunum”
ESE — Framkvæmdir við
Þörungavinnsluna á Reykhól-
um eru nú að hefjast/og eru
þegar nokkrir starfsmanna
teknir til við þangskurðinn. í
sumar munu helmingi fleiri
starfsmenn vinna að þangskurði
en i' fyrra, og er fyrirhugað aö
afköstin aukist i samræmi við
þáð en i fyrra voru um 700 tonn
af þangi seld úr landi.
Að sögn ömars Haraldssonar
framkvæmdastjóra Þörunga-
vinnslunnar standa allar fram-
kvæmdir i sumar og falla með
þvi að nægilegt magn af heitu
vatni fáist, en til þess að vinnsl-
an geti starfað með hámarks-
afköstum þarf 45 sekúndulitra
af 100 gráðu heitu vatni en eins
og málin stóðu fyrir nokkrum
dögum fékkst ekki nema rúmur
helmingur þessa vatnsmagns.
værihægtað segja til um það að
svo stöddu hvern árangur það
hefði borið. Þá væri nú verið að
vinna við að bora nýja holu og
byndu menn miklar vonir viö að
vel tækist til og heitt vatn feng-
ist úr henni i nægilega miklu
magni.
Annars sagði Ömar að sömu
aðferðum yrði beitt við vinnslu
þangsins ogi fyrra, en það væri
að mestu leyti skorið með orfi
og ljá og fengju þangskurðar-
mennirnir borgað fyrir afköst
og ynni hver þeirra út af fyrir
sig.
Markaðsmálin ættu að vera
tryggð fyrst um sinn svo fremi
sem hægt veröur að þurrka
nægilegt magn af þangi, því að á
sinum tima var gerður 10 ára
samningur við Algenite
Industries i Skotlandi um sölu á
5000 þúsund tonnum af þangi ár-
lega, sem fyrirtækið skuldbind-
ur sig til að kaupa, en eins og
áður segir voru aðeins um 700
tonn seld þangað á siðasta ári,
sagði Ómar Haraldsson að lok-
um.
Þvi má bæta við, að Algenite
Industries nota þangið til
vinnslu á Algenite sýru, sem
mikið er notuð i matvælafram-
leiðslu.
Þörungavinnslan að Reykhölum.
Ömar sagði, að fyrir skömmu við dýpkun á borholunni sem
hefði verið lokið framkvæmdum vatnið hefði lengizt úr, en ekki
Semja samvinnu-
starf smenn beint
við Vinnu-
málasambandið?
HEI — Landsþing Landssam-
bands ísl. samvinnustarfsmanna
samþykkti sl. sumar ýtarlega á-
lyktun um stöðu samvinnustarfs-
manna i stéttarfélögum, m.a. um
þá hugmynd, hvort timabært væri
■ að taka upp þann hátt, að samtök-
in semdu beint við Vinnumála-
samband samvinnufélaganna um
kaup og kjör félagsmanna sinna.
Hefur L.l.S. nú ákveðið að efna
til sérstakrar ráðstefnu um þetta
mál i Bifröst helgina 27. og 28.
mai'. Var skýrt frá þessu nýlega i
Sambandsfréttum.
Slæmt ástand
vega á
Austur-
landi
GV —Astand vega á Austurlandi
er nú slæmt oghefur orðið að tak-
marka burðarþunga á öllum veg-
um og veldur það miklum erfið-
leikum i öllum flutningum, m.a.
eru þungatakmarkanir á vegum
suður til Reykjavikur og er það
baralegt. Veður hefur verið kalt
undanfariðá Austurlandi og tafið
fyrir aðbleytu taki upp af vegum.
Allir fjallvegir hafa nú verið
opnaðir og er nylega lokið við að
moka veginn norður fyrir Grims-
staði á Fjöllum.
Samtökin
ekki með í
borgar-
stjórnar-
slagnum
Samtök frjálslyndra og vinstri
manna munu ekki bjóða fram til
borgarstjórnarkosninga að þessu
sinni. Frá þessuer skýrti Nýjum
þjóðmálumogbentáþað, að isið-
ustu borgarstjórnarkosningum
var sameiginlegt framboð Sam-
takanna og Alþýðuflokksins ,,og
gafst illa”.
Þá varSteinunn Finnbogadóttir
i öðru sæti á sameiginlega listan-
um, en Björgvin Guðmundsson i
fyrsta. Er skemmst frá þvi að
segja, að á kjörtimabilinu hefur
Steinunn ekki setið einn einasta
borgarstjórnarfund, enda Björg-
vin duglegur og heilsuhraustur og
hefur ekki séð ástæðu til að vikja
sæti fyrir fulltrúa samstarfs-
flokksins i fjögur ár samfleytt.
Blaðburðor
fólk óskast
Timinn óskar eftir
blaöburðarfólki
Suðurlandsbraut
Skjólin
Tómasarhagi
Hjarðarhagi
Öðinsgata
Hraunbær.
SIMI 86-300
Viðgerð Rauðanúps:
Brezku tilboði tekið
— langstytztur viðgerðartími réði úrslitum
segja Almennar tryggingar
ESE — gær ákvað útgerðarfyrir-
tækið Jökull h.f. á Raufarhöfn, að
höfðu samráði við vátryggjanda
Rauðanúps ÞG 160, Álmennra
trygginga i Reykjavik, að taka
tilboði sem barst f viðgerð á tog-
aranum, frá brezku skipasmiða-
stöðinni Swan& Hunter. Þvi mun
Rauöinúpur fara utan til Eng-
lands til viðgerðar þegar lokið
verður við. bráðabirgðaviðgerð á
skipinu hér heima.
t tilkynningu sem Almennar
tryggingar sendu frá sér i gær
segir:
„Jökull h.f., Raufarhöfn, hefur
i samráði við vátryggjanda
Rauðanúps, Almennar
tryggingar h.f., aflað tilboða i
viögerð á skipinu eftir strand.
Alls bárust fimm tilboð, þrjú
frá innlendum aðilum og tvö frá
erlendum. Afsérstökum ástæðum
var aðilum gefinn kostur á að
endurskoða tilboð sin. Viö saman-
burð á lokatilboðum kom i ljós að
tilboðfrá brezkri skipasmiðastöð
var hagstæðast hvað verð snertir
og langhagstæöast i viðgerðar-
tima, sem hefur úrslitaáhrif
vegna þess að skipið er burðar-
ásinn i atvínnulifi Raufarhafnar.
Jökull h.f. og Almennar trygg-
ingar h.f.-hafa þvi ákveðið að
taka þessu tilboöi og er stefnt að
þvi að viðgerð á skipinu geti
hafizt sem allra fyrst.”
Timinn hafði samband við Ólaf
A. Sigurðsson deildarstjóra hjá
Almennum tryggingum vegna
þessa máls i gær, og var hann
inntur eftir þvi hvenær hann teldi
að viðgerð gæti hafizt á skipinu.
Olafur sagði að ómögulegt væri
að segja til um það að svo stöddu,
þvi að ekki væri vitað um endan-
leg viðbrögð járniðnaðarmanna,
Ekki gat ólafur sagt til um það
hvað tilboðin, sem bárust i við-
gerðina á Rauðanúpi, væru há,en
þau yrðu birt siðar. Að lokum var
ólafur spurður að þvi hvort hann
teldi að tilboð það sem frá Bret-
landi barst, myndi standast i öll-
um atriðum, en vegna þessa
máls hefur verið á það minnzt, aö
erlend tilboð i viðgerðir á islenzk-
um skipum stæðust sjaldan eða
aldrei, og hefði reynsla undanfar-
inna ára leitt i ljós að svo væri.
Ólafur kvaðst ekki hafa ástæðu til
annars en að trúa þvi að tilboðið
myndi standast þvi að á undan-
förnum árum hefðu Almennar
tryggingar látið gera við islenzk
farmskip i þó nokkrum tilvikum
erlendis oghefði ekki borið á öðru
en að þau tilboð, sem gerð hefðu
verið þá, hefðu staðizt i öliu.
Rauðinúpur ÞG 160 i slipp —
Hvitklæddi maðurinn frcmst á
mvndinni er starfsmaður Swan &
Hunter i Bretlandi, en það fyrir-
ta>ki hreppti „hnossið”..
Timamvnd Gunnar.
Guðjón Jónsson formaður
Félags járniðnaöarmanna:
Jámiðnaðarmenn
99
:__99
óánægðir
ESE — Timinn leitaði i gær álits
Guðjóns Jónssonar formanns h'é-
lags islenzkra járniðnaöarmanna
á þeirri ákvörðun Jökuls h.f. og
Almennra trygginga h.f. að fela
brezka fyrirtækinu Swan &
Hunter viðgerðina á Raufarhafn-
artogaranum Rauðanúpi.
Guðjón sagði, að Félag járniðn-
aðarmanna hefði nú málið í at-
hugun, en það væri ljóst að mikil
óánægja væri meðal járniðnaðar-
manna yfir þvi hvernig hefði ver-
ið staðið að þessu máli. Einnig
sagöi Guðjón, að menn hefðu nú
ýmistlegt að athuga við tilboðið
sem tekiö var, og t.d. ættu þeir
bágt meðað trúa þvi aö timamis-
munur á framkvæmdatfma milli
tilboða væri eins mikill og látið
hefði verið uppi.
Annars sagði Guðjón að á--
kvörðun járniðnaðarmanna i
Jiessu máli yrði trúlega tekin á
fundi i dag, en bann við bráða-
birgðaviðgerð á togaranum stæði
þar til að annaö yrði ákveðið.
Tveir lögreglu-
menn í Keflavík
leystir frá störf um
G V — Jón Eysteinsson
bæjarfógeti i Keflavik leysti igær
frá störfum þá VÖMng Sveinsson
varðstjóra i Kefl.”. vik og.Viðar
Pétursson lögreglumenn á meðan
á rannsókn svokal'aðs handtöku-
máls stendur. Viðar Olsen fulltrúi
bæjarfógeta i Keflavik sagði
startl sinu lausu i gær, og hefur
bæjarfógeti fallizt á þá lausn-
arbeiðni. ^
1 frétt i Timanum i gær um
þetta mál var sagt að Viðar Olsen
og Vikingur Sveinsson hafi viöur-
kennt að hafa leynt þvi fýrir rétti
hvernig málinu var háttað,
þ.e.a.s. að þeir hafi ekki vitað að
smygluðu áfengi hafi verið komið
fyrir i bil Guðbjarts Pálssonar til
að koma á hann sök. Þetta atriði
fréttarinnar er eitthvað málum
blandið og er ekki frá rannsókn-
arlögreglu rikisins komið.