Fréttablaðið - 17.08.2006, Side 4

Fréttablaðið - 17.08.2006, Side 4
4 17. ágúst 2006 FIMMTUDAGUR GENGIÐ GENGI GJALDMIÐLA 16.8.2006 Bandaríkjadalur 69,72 70,06 Sterlingspund 131,77 132,41 Evra 89,1 89,6 Dönsk króna 11,94 12,01 Norsk króna 11,143 11,209 Sænsk króna 9,682 9,738 Japanskt jen 0,5999 0,6035 SDR 103,49 104,11 HEIMILD: Seðlabanki Íslands KAUP SALA 123,214 Gengisvísitala krónunnar Máttarstólpi Menningarnætur Menningarnótt 19. ágúst Öll dagskráin á www.landsbanki.is Jeff Who? MÓTMÆLI Lögreglan á Eskifirði lagði í gær hald á bifreið sem notuð hafði verið til að flytja mót- mælendur að byggingarsvæði álvers Alcoa á Reyðarfirði. Einn mótmælendanna, Stephan Silbermann, sat í bifreiðinni og varnaði því að lögreglumenn gætu tekið hana og var hann handtekinn og færður á lögreglustöðina á Eskifirði. Bifreiðina höfðu mót- mælendurnir leigt hjá Bílaleigu Akureyrar. Lögreglan gaf mótmælendum þá skýringu að lögreglustjóri hefði tekið ákvörðun um að hald skyldi lagt á bifreiðina, þar sem hún hefði verið notuð til mannflutn- inga í tengslum við mótmæla- aðgerðirnar. Til orðaskipta kom á milli mót- mælenda og lögreglumanna en mótmælendur telja handtöku bíl- stjórans og töku bílsins vera ólög- mæta. Bifreiðin var staðsett á svæði sem Alcoa hafði úthlutað til mótmæla. - jse / öhö Lögreglan á Eskifirði: Bílaleigubíll í vörslu lögreglu STEPHAN SILBERMANN HANDTEKINN Step- han reyndi að koma í veg fyrir að hald yrði lagt á bílinn en var handtekinn af lögreglu og færður til Eskifjarðar. FRÉTTABLAÐIÐ/JÓN SIGURÐUR MÓTMÆLI Lögreglan á Eskifirði handtók í gær þrettán mótmæl- endur sem farið höfðu inn á bygg- ingarvæði álvers Alcoa í Reyðar- firði. Þá var einn til viðbótar handtekinn en hann hafði ekið mótmælendunum. Vinna lá niðri á byggingarsvæðinu fram eftir degi í gær vegna aðgerða mótmælend- anna. „Það eru mjög strangar reglur um öryggi á byggingarsvæðinu. Það er engum hleypt inn á svæðið án þess að fá leiðbeiningar um öryggi og í fylgd með starfsmönn- um Bechtel sem annast bygging- arframkvæmdirnar,“ segir Erna Indriðadóttir, upplýsingafulltrúi Alcoa á Íslandi. Hún segir að mót- mælendurnir hafi sett bæði sjálfa sig og aðra í mikla hættu með aðgerðum sínum. Mótmælendurn- ir fóru inn á vinnusvæðið á vakta- skiptum klukkan sex í gærmorgun og klifruðu þrír þeirra upp í vinnu- krana. Þá fór einn upp á þak nýbyggingar og nokkrir til viðbót- ar upp á vinnupalla. „Það kom ekkert annað til greina en að stöðva vinnu,“ segir Erna. Vinna lá niðri í um átta klukkustundir vegna aðgerðanna. Alcoa hefur ekki útilokað að krefja mótmælendur um skaðabætur vegna þeirra tafa sem urðu á vinnu í gær. Mótmælendur hafa meðal ann- ars haldið því fram að virkjana- og álversframkvæmdirnar á Austur- landi séu ekki löglegar, en tals- menn Alcoa segja það ekki rétt. „Það er fráleitt að tala um að þessar framkvæmdir séu ólögleg- ar. Þær voru samþykktar með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða á Alþingi. Leyfin eru ekki felld úr gildi nema með dómi og það hefur ekki verið gert. Framkvæmdin er lögleg en aðgerðir mótmælenda eru það hins vegar ekki,“ segir Erna. Mótmælendurnir voru fluttir á lögreglustöðina á Eskifirði til skýrslutöku og stóðu þær fram eftir kvöldi í gær. Mótmælendurn- ir gistu fangageymslur í nótt og verða leiddir fyrir dómara í dag. Ekki er ljóst að svo stöddu hvort þeir verða kyrrsettir hér á landi. hnefill@frettabladid.is Alcoa útilokar ekki að krefjast skaðabóta Lögreglan handtók í gærmorgun 13 mótmælendur sem farið höfðu inn á bygg- ingarsvæði álvers Alcoa í Reyðarfirði. Höfðu sumir þeirra klifrað upp í vinnu- krana og stofnuðu sjálfum sér og öðrum í mikla hættu. Málið hefur verið kært. VIÐHORF VEGFARENDA Ketill Hallgrímsson „Þetta er nokkuð seint í rassinn gripið hjá þeim, þeir hefðu þurft að mótmæla áður en ákvörðunin var tekin, ekki nú þegar fram- kvæmdir eru hafnar því það verður ekki hætt við úr þessu.“ Jóna B. Margeirsdóttir „Ég held að þau séu ekki að gera neitt gott með þessu. Það lítur út fyrir að þetta séu hálfgerðir auðnuleysingjar. Ég held að þeir ættu frekar að vinna að mannúðar- störfum eða eitthvað því um líkt, frekar en að vera að þessari vitleysu.“ Sigurjón Kristinn Björgvinsson „Mér finnst þetta bara kjaftæði. Framkvæmdir eru komnar langt á leið og þetta verður ekkert stoppað núna. Þeir hafa allan rétt á að láta skoðun sína í ljós en það að ráðast inn á skrifstofu Hönn- unar og svo nú að stöðva vinnu við álverið er of langt gengið.“ LÖGREGLUMENN HJÁLPA MÓTMÆLENDUNUM NIÐUR Þrír lögreglumenn þurftu að fara upp í kranana tvo sem mótmælendur höfðu klifrað upp í. Talsmenn Alcoa segja að með aðgerð- um sínum hafi mótmælendur bæði stofnað sér og öðrum í hættu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM GAZA, AP Forseti og forsætisráð- herra palestínsku heimastjórnar- innar hittust í gær að máli til að ræða hugsanlega stjórnarmyndun. Forsetinn, Mahmoud Abbas, er leiðtogi Fatah-samtakanna, sem þykir hófsamt afl í palestínskum stjórnmálum, en forsætisráðherr- ann, Ismaíl Haniyeh, er leiðtogi Hamas-hreyfingarinnar, sem hefur verið skilgreind sem „hryðjuverka- afl“ af vestrænum ríkjum. Haft er eftir embættismönnum að í stjórnarsáttmála yrði tilveru- réttur Ísraelsríkis viðurkenndur og að með stjórnarþátttöku Fatah sé vonast til að draga úr einangrun heimastjórnarinnar á alþjóðavísu. Talsmaður Hamas tók fram að áður en nokkur slík viðurkenning verði að veruleika þurfi að sleppa nokkrum ráðherrum heima- stjórnarinnar úr haldi Ísraels- manna. Skærur hafa verið á Gaza- ströndinni síðan herför Ísraels- manna hófst þar þann 25. júní og hafa minnst 140 manns látið lífið í árásunum. Á mánudaginn var gerð loftárás á hús í Jebaliya-flótta- mannabúðunum, en enginn dó í henni. Sameinuðu þjóðirnar hafa reynt að vekja athygli á ástandi mála á Gaza-svæðinu og var haft eftir talsmanni þeirra að það væri „jafn slæmt og í Líbanon.“ - kóþ Fatah og Hamas í stjórnarmyndunarviðræðum: Gætu viðurkennt Ísraelsríki JARÐARFÖR Á GAZA-SVÆÐINU Hljótt hefur verið um yfirstandandi herför Ísraelsmanna á Gaza-svæðinu, en í henni hafa minnst 140 manns látist síðan þann 25. júní. FRÉTTABLAÐIÐ/AP ���������������������������������� ������������� ������� ���� �������� �� ��������� ������ ����� ��������� ��������������� ������ �������� �������� ������� ���� ������� �� ������������� ������������� ����������������� ������������� ������������� ������������ ������������ ������������ �������������� ��������������� ������������� ������������� �������������� �������������� ��������������� ����� ��� ���� ��������� ����������� � ������ �� ����� ��� ���� �������� ������������������� �� ��� �������������� ���� ������������������ ���� ������������ �� ���������������������������� ���������� ���� � �������������������� � �� ��������������� ������ �������� ������������ ����� �������� ��������� ��������� ���� ����� ������� � ���������� ���� ����������� ���� ���������� ��� ������� �������������������� ����������� ��� ���� ����� �� ��������� �������� ���� ������������������ ��� ��� ���� �� ������� �� ������ �� ���������� ������� �� ��� �� �� �� �� �� �� � � � � � � � � � � �� �� �� �� �� �� �� �� �� �� ��� �� �� �� �� LÖGREGLA Lögreglan á Húsavík hafði afskipti af hópi fólks á þrítugsaldri í fyrrinótt, sem var ölvað og lék sér að því að stela fyrirtækjafánum um bæinn. Fólkið var í skemmtiferð í bænum á vegum vinnustaðar síns og var talsvert ölvað. Að sögn lögreglu hafði fólkið sankað að sér „góðri hrúgu af fánum.“ Fánarnir voru teknir af fólk- inu eftir tiltal og fólkinu sleppt að því loknu. Fánunum verður skilað til eigenda sinna, en lög- regla segir athæfi sem þetta hvorki fyndið né skemmtilegt í augum annarra en sökudólga. - sh Fánaþjófahópur á Húsavík: Stálu fánum í skemmtiferð

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.