Fréttablaðið - 17.08.2006, Síða 33
FIMMTUDAGUR 17. ágúst 2006
Úr háborg tískunnar
BERGÞÓR BJARNASON SKRIFAR FRÁ PARÍS
Slönguskinnsæði
Ein vinkona mín borðar engin dýr, ekki einu sinni vesalings litlu
fiskana sem kveljast svo óskaplega þegar þeir deyja, áður en þeir enda
í fiskibollum. Bara egg af því að hænurnar eru ekki drepnar og svo
mjólk. Hún hefur samt stundað það árum saman að selja lúxusskó á
300-500 evrur parið sem eru auðvitað allir úr dýraskinni. Ég get
svosem tekið undir það, að það að ala dýr eingöngu fyrir feldinn er hálf
ógeðfellt og að ríkar kerlingar geti svo sem alveg lifað án loðfelda.
Stella McCartney er mikill dýravinur og hefur nú sett á markað
fylgihlutalínu með skóm og töskum án þess að nota svo mikið sem
leðurbút við framleiðsluna, vinkona mín ætti held ég að sækja um hjá
Stellu.
Stella er reyndar alls ekki í takti við vetrartískuna því það er nánast
hægt að tala um exótískt-æði í skóm og töskum í vetur. Nú gildir að
vera í krókódílaskóm og með slönguskinns- eða strútstösku, svo ég tala
nú ekki um loðfeldi sem hafa síðustu ár verið í sókn eftir að hafa á
tímabili fengið á sig svartan stimpil frá dýraverndarsinnum. Villidýrin
sem má nota í tískuheiminum eru í misjöfnum verðflokkum. Krókódíla-
taska er til dæmis þrisvar sinnum dýrari en slönguskinnstaska. Hjá
Chanel er töskulína úr marglitu slönguskinni í vetrarlínunni á 3.880
evrur taskan (356.000 krónur) en krókódílataska í svipaðri stærð er á
13.500 evrur ( 1.242.000 krónur). Það er því mikill stigs- og verðmunur
á því hversu „chic“ maður vill vera.
En þar sem flest tískuhúsin róa á sömu mið í vetur hefur skapast
mikill flöskuháls í franska umhverfisráðuneytinu. Hver viðskiptavinur
sem er frá landi utan Evrópusambandsins, og það eru þeir vissulega
margir, þarf nefnilega að fá vottorð frá seljandanum um að skinnið
sem notað er tilheyri ekki verndaðri tegund sem bannað er að veiða og
vegna þess hversu mörg tískuhúsanna framleiða úr krókódílum og
slöngum í vetur hefur umhverfisráðuneytið ekki undan. Ekki hjálpar
til að opinbera stjórnsýslan vinnur á hálfum hraða vegna sumarleyfa
og ef það er eitthvað sem ekki virkar vel á opinbera starfsmenn í þessu
landi er það að láta reka á eftir sér; getur jafnvel haft þveröfug áhrif.
Stjórnendur tískuhúsanna gráta fögrum krókódílatárum þar sem í lok
júlí og ágúst er vertíð í tískuhúsunum meðan blæjuklæddar Sádi-
Arabíukonur flykkjast til Parísar og kaupa handtöskur og skó í
skipsförmum. Ef ekki eru til upprunavottorð fara krókó-töskurnar ekki
langt og rykfalla í læstum hirslum. Þá er nú verr af stað farið en heima
setið í þessum villimannaleik.
bergthor.bjarnason@wanadoo.fr
Hugsaðu vel
um hárið
JOICO BÝÐUR UPP Á FJÖLBREYTT
ÚRVAL HÁRVARA.
Snyrtivöruframleiðandinn Joico
býður upp á fjölbreytt úrval af alls
kyns hárvörum sem næra og styrkja
hárið.
Meðal þess sem framleitt er hjá
Joico er línan Body Luxe. Í línunni
er sjampó og sérstök blanda sem
þykkir hárið heilmikið. Þessar vörur
henta þeim einstaklega vel sem eru
með þunnt og fínt hár þar sem Body
Luxe eykur ummál hársins án þess
að þyngja það.
Meðal annars sem Joico hefur
upp á að bjóða er Moisture Recovery
sem vinnur á þurru hári, Color End-
ure sem heldur lit og lífi í hári, Silk
Results sem gerir hárið silkimjúkt og
Style & Finish sem er lína af hárvör-
um til að móta hárið.
Body Luxe eykur ummál hársins án
þess að þyngja það.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Útsölunni lýkur
á laugardag.
Erum að taka upp
nýjar vörur.
Kjólasprengja
í Flash
Kjólar við buxur
Kjólar í brúðkaupið
Kjólar í veisluna
Kjólar í vinnuna
Allir kjólar á 3990
Algjör bomba....!!
KRINGLUNNI
mán.-mið. 10-18.30
fimmtud. 10-21
föstud. 10-19
laugard. 10-18
sunnud. 13-17
i
i
l
Hefurðu heyrt
annað
eins......?!?!?
Já, þú velur þér
hvaða þrjár flíkur
sem eru
á útsölunni
en greiðir bara
fyrir eina.
Þú greiðir aðeins
fyrir dýrustu vöruna
Rýmum til
fyrir nýjum
vörum
af öllum útsöluvörum
fimmtudag, föstudag,
laugardag, sunnudag
i ...... ! !
, l
j lí
l i
i i
i i .
r i ir i
f rir r t r
Mun hefja störf á hinni frábæru
GRÍMU-hárstofu í Álfheimum 4,
þann 25. ágúst n.k.
Hlakka til að sjá ykkur öll.
Gamlir sem og nýir viðskiptavinir velkomnir!
Ebba Særún Brynjarsdóttir
Sími 553 3133