Fréttablaðið - 17.08.2006, Page 66
17. ágúst 2006 FIMMTUDAGUR46
Svo virðist sem leikar séu farnir
að æsast í samskiptum þeirra Sir
Paul McCartney og Heather Mills
sem skildu að borði og sæng fyrir
skömmu. McCartney hefur mein-
að Heather að sækja dóttur þeirra
Beatrice inn á heimili hans. Þess í
stað þarf fyrirsætan fyrrverandi
að sækja barnið á hlutlaust svæði
og hitta hina tveggja ára gömlu
dóttur á Flackley Ast hótelinu sem
er aðeins í 300 metra fjarlægð frá
heimili Bítilsins fyrrverandi.
McCartney hefur séð um barn-
ið síðustu vikur og sendi dóttur
þeirra á hótelið í fylgd barnapíu.
„Paul gerði það ljóst að hann
vildi ekki að Heather kæmi í húsið
til að hitta telpuna. Heather var
þó hvorki reið né æst þegar hún
frétti þetta. Hún yppti bara öxlum
og sagði: „Ef hann vill leika á
þennan hátt þá hann um það“,“
var haft eftir heimildarmanni
Daily Mirror. „Heather telur að
það væri hægt að leysa þetta á
mun farsælli hátt fyrir Beatrice
en hún vildi ekki búa til nein leið-
indi og leyfði honum að fá sitt
fram.“
Þegar Heather hafði hitt dóttur
sína flaug hún með hana í þyrlu á
Heathrow-flugvöll þar sem flug-
vél beið þeirra og flaug með þær
beint vestur til Los Angeles.
Klukkutíma síðar hélt Paul
McCartney til New York.
Kastast í kekki milli Pauls
McCartney og Heather Mills
PAUL MCCARTNEY OG HEATHER MILLS Hjónakornin skildu að borði að sæng fyrir nokkru
og vildu reyna að leysa málin friðsamlega. Það virðist hins vegar ekki ætla að takast.
„Þetta er svokölluð „monobrand“
verslun með hollenska fatamerkinu
G-Star,“ segir Blængur Sigurðsson,
verslunarstjóri í G-star tískuvöru-
versluninni sem opnaði siðastliðinn
laugardag á Laugaveginum.
G-star fyrirtækið var stofnað
árið 1989 og hefur síðan þá náð
skapa sér sess meðal stærstu galla-
buxnamerkja í heiminum í dag.
Merkið er þekkt fyrir tilrauna-
kenndan stíl með töffaralegu yfir-
bragði. „G-Star leggur mikið upp úr
„hráu“ gallaefni sem þýðir að það
er alveg óunnið og ekkert þvegið.
Bæði kvenna- og herralínan í galla-
buxum einkennist af því,“ segir
Blængur en hann segir að viðtök-
urnar hafi hingað til verið góðar
enda þekkja margir til merkis-
ins sem er gríðarlega vinsælt úti
um allan heim. Einnig býður versl-
unin upp á flottar hettupeysur,
jakka, úlpur og belti
fyrir bæði kynin.
Búðin er staðsett
fyrir ofan
bílastæða-
húsið þar
sem gamla
Stjörnubíó
var einu sinni.
Góð lofthæð og stórir gluggar ein-
kenna búðina sem er innréttuð í stíl
við fatnaðinn, töff og hrátt. Fyrir-
hugaðar eru sex verslanir í þessu
húsnæði og til dæmis mun tísku-
vöruverslun með danska merkinu
Day opna þar innan tíðar. Það verð-
ur því nóg af skemmtilegum versl-
unum í miðbænum.
Hollenskur gallabuxnarisi
VERSLUNARSTJÓRINN Blængur Sigurðsson stýrir nýju búðinni og er hann sérstaklega hrifinn af kvenlínunni sem er kynþokkafull og töffara-
leg í bland.
MIKIÐ ÚRVAL Búðin býður upp á mjög gott
úrval af gallabuxum fyrir bæði kynin.
MIÐBÆRINN Staðsetning búðarinnar er
góð og tískuvöruverslanirnar Gallerí 17 og
Eva eru beint á móti.
VINSÆLASTA SNIÐIÐ
Elwood sniðið frá G-Star
er mest selda sniðið
þetta árið og er bæði á
konur og karla.
FRUMSÝND 18. ÁGÚST
9. HVER
VINNUR!
Vinningar verða afhendir hjá BT Smáralind. Kópavogi.
Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 99 kr/skeytið.
SENDU SMS SKEYTIÐ
JA CAF Á NÚMERIÐ 1900
OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ
MIÐA FYRIR TVO.
VINNINGAR ERU BÍÓMIÐAR FYRIR 2
DVD MYNDIR
VARNINGUR TENGDUR MYNDINNI
OG MARGT FLEIRA!
Fyrirsætan og leikkonan góð-
kunna Pamela Anderson ætlar
að stofna súludansskóla
ásamt eiginkonu rokkarans
Marilyns Manson, Ditu
Von Teese. Stöllurnar eiga
það sameiginlegt að
hafa einhvern tíma
dansað í kringum súl-
una áður en þeim
hlotnaðist frægð og
frami. Anderson og
Von Teese vilja að
aðrar konur fái að finna fyrir
sælunni og frelsinu sem
fylgir því að dansa súlu-
dans og er reiknað með að
skólinn verði opnaður
bæði í London og Los
Angeles.
Súludansæfingar er nýj-
asta æðið í Hollywood
enda þykja þær reyna
vel á vöðva líkamans
ásamt því sem konur
tileinki sér fallegar og
kynþokkafullar hreyf-
ingar. Madonna og
Gwyneth Paltrow eru
meðal frægra kvenna
til að prófa þessa
nýju líkamsrækt.
Stofna strippskóla
PAMELA ANDERSON Gekk nýlega í það heilaga með Kid Rock og vill nú stofna strippskóla
með Ditu Von Teese. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES
DITA VON TEESE Ein
frægasta strippdansmær
Bandaríkjanna er nú
kærasta rokkarans
Marilyns Manson.
HETTUPEYSA Vel sniðin
hettupeysa frá Marc
Newsom-línunni sem er
fatalína fyrir bæði kynin,
litaglöð og skemmtileg.